Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.12.1988, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 21.12.1988, Blaðsíða 13
VWWAttaut „Svínakjötið langvinsælasti jólamaturinn" - segir Gylfi Kristinsson, verslunarstjóri í Samkaup „Fólk kaupir jólamatinn mest siðustu dagana fyrirjól", segirGylfi Kristinsson. Ljósm.: hbb. Nú eru einungis tveir dagar þar til sjálfjólahátíðingengur í garð og því vert að fara að huga að jólamatnum og jóla- gjöfunum, ef fólk er ekki þeg- ar búið að því. Oft er það nú þannig að fólk leitar í stórmarkaðina fyrir jól- in og verða Samkaup og Hag- kaup í Njarðvík oftast uppi á teningnum hjá fólki. Við litum inn í Samkaup og þar varð á vegi blaðamanns Gylfi Krist- insson verslunarstjóri. „Fólk hóf jólainnkaupin í fata- og búsáhaldadeild fyrir þessi jól. Matvaran kemur ekki inn í myndina hjá fólki fyrr en þessa síðustu daga fyrir hátíðina. Fólk kaupir mikið af þvottavélum, þurrkurum, eldavélum, ísskápum ogfrysti- kistum um þessar mundir og við erum með tilboð á þessari vöru. Það er hagstætt að kaupa þetta núna, því það má allt eins búast við hækkunum eftir áramótin. Búsáhaldadeildin þyrfti að vera helmingi stærri, svo mikil er salan í heimilis- tækjum og búsáhöldum. Ann- ars erum við búnir að byrgja okkur vel upp af eldavélum, ís- skápum, þvottavélum og slík- um tækjum og keyrum þessu heim til fólks samdægurs. í fatadeildinni er hægt aðfá föt á alla fjölskylduna og mik- ið afheimilisvörumeins ogt.d. dúka, sængur og gott úrval er af mottum. Eftir breytingarn- ar, sem gerðar voru í fatadeild- inni, hefur þessi varaskilaðsér mjög vel.“ -Hver er vinsælasti jólamat- urinn? „Svínakjötið er langvinsæl- asti jólarétturinn og hefur mikla yfirburði. Hangikjötið er líka vinsælt. Síðan fer líka alltaf eitthvað af rjúpu, kalkún og hreindýrakjöti, en það er ýmis gangur á þessu.“ -Þið bjóðið nú nýja þjónustu varðandi jólaölið. „Við erum nú að bjóða fólki að drekka mikið meira magn af gosi fyrir þessi jól, heldur en áður, fyrir minna verð. Nú er gosið allt í gámum fyrir utan stórmarkaðinn, þar sem fólk getur bakkað upp að og strák- arnir sjá um að setja gosið í bíl- inn.“ -Þið bjóðið einnig þjónustu í því að pakka inn gómsætum jólagjöfum? „Já, við erum byrjaðir að pakka inn konfekti fyrir fyrir- tæki og einstaklinga, sem kaupa konfekt í einhverju magni.“ -Að lokum. Verður þú var við að það fari mikið af fólki til Reykjavíkur til þess að versla til jólanna? „Sumum finnst spennandi að fara til Reykjavíkur á laug- ardegi með alla íjölskylduna að versla. Það er staðreynd að varan sem fólk kaupir I Reykjavík er ekkert ódýrari en hér á Suðurnesjum. Fólk á að versla heima og halda íjár- magninu á svæðinu. þá stuðlar það einnig að því að hin ýmsu félagasamtök fái styrk frá versluninni. Það þýðirekk- ert að fara í verslun, þar sem engir peningar eru og biðja um styrk,“ sagði Gylfi Kristinsson að lokum. Jolasveinninn kemur reglulega 1 heinisokn i Samkaup. Ljósm.:hbb. Miðvikudagur 21. desember 1988 13 STAPAFELL _________KEFLAVÍK Jólagjöf heimilisins Eldavélar-Eldhúsviftur Eldavélasett-Uppþvottavélar Þvottavélar-Þvottaþurrkarar Kæliskápar 17 gerðir Hljómtækja- samstæður mikið úrval STAPAFELL KEFLAVÍK SÍMAR 12300 - 11730 fMeistaraskóli byggingarmanna Kennsla í meistaraskóla byggingar- manna hefst á vorönn 1989 ef næg þátttaka fæst (15-18 nemendur). Umsóknir berist skrifstofu FS fyrir 1. janúar 1989 ásamt staðfestu ljósriti af sveinsprófi. Skólameistari Litsjónvarpstæki 12 gerðir Myndbandstæki Viðtæki 34 gerðir Útvarpsklukkur VEL KLÆDD í FÖTUM DÖMUJAKKAFÖT með pilsi eða buxum kr. 11.980.- HERRAJAKKAFÖT frá kr. 11.990.- RÚSKINNSVESTI SILKIVESTI Vettlingar, Treflar Leðurhanskar Langerma rúllukragabolir STAKIR JAKKAR allir litir kr. 1.190.- Köflóttir og einlitir kr. 7.990.- Glæsilegir ullarherrajakkar Rúskinnsjakkar Rúskinnsbuxur Rúskinnsbuxur Rúskinnspils kr. 14.900 kr. 9.900 kr. 9.900 kr. 4.900 PEYSUR ótrúlegt úrval Herraspariskyrtur Silkibindi og slaufur Dúnúlpur m/hettu kr. 11.900 Dúnúlpur m/skinnkraga kr. 9.900 Tökum upp nýjar vörur daglega til jóla. frá Pe/eMon

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.