Morgunblaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 7. D E S E M B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 295. tölublað 103. árgangur
BRUGÐIÐ UPP
SVIPMYND AF
KÓRSTARFINU
NÁTTÚRAN
Í SAMKEPPNI
VIÐ HEIMINN
ÖFLUGAR
MÆÐGUR STÝRA
KVENNAKÓRUM
VIÐSKIPTAMOGGINN KÓR 200 KVENRADDA 10HAMRAHLÍÐARKÓRINN 38
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Annarri umræðu um fjárlagafrum-
varp fjármálaráðherra fyrir árið
2016 lauk kl. 15.41 í gær og hafði
fyrsta og önnur umræða þá staðið í
samtals 92 klukkustundir. Fyrsta
umræða stóð í 16 klukkustundir og
11 mínútur og önnur umræða í 75
klukkustundir og 50 mínútur.
Við fyrstu umræðu var fjöldi
ræðumanna 42 þingmenn og við
aðra umræðu var fjöldi ræðumanna
51. Samtals var ræðufjöldi í fyrstu
og annarri umræðu 1.752 ræður.
Til samanburðar þá tók fjárlaga-
umræðan, allar þrjár umferðirnar
og atkvæðagreiðsla, árið 2012 fyrir
árið 2013 alls um 80 klukkustundir.
Einar K. Guðfinnsson, forseti Al-
þingis, var í gær spurður hvort
tímabært væri að velta því fyrir
sér hvað gerðist ef ekki næðist að
ljúka afgreiðslu fjárlaga fyrir ára-
mót:
„Nei, það finnst mér ekki. Ég
læt mér ekki einu sinni til hugar
koma að við séum stödd þar, að
menn virði það ekki að fjárlög og
hlutir sem tengjast fjárlagagerð-
inni séu afgreiddir. Menn úr öllum
flokkum hafa marglýst því yfir að
það eigi að virða,“ sagði Einar.
Forseti Alþingis benti á að Alþingi
væri ekki eins og hvert annað
fyrirtæki. Alþingi væri vettvangur
lýðræðisins og hlutirnir þar myndu
aldrei ganga fyrir sig eins og gerð-
ist í fyrirtækjarekstri.
Afgreiðsla fjárlaga virt
Fjárlagaumræðan staðið í samtals 92 klukkustundir Einar K. Guðfinnsson,
forseti Alþingis, neitar að trúa öðru en að fjárlög verði afgreidd fyrir áramót
MEkki eins og eitthvert … »6
Löng atkvæðagreiðsla
» Atkvæðagreiðsla um fjár-
lagafrumvarpið, eftir 2. um-
ræðu, stóð enn yfir á Alþingi er
blaðið fór í prentun í gærkvöldi.
» Allar breytingartillögur meiri-
hlutans höfðu verið samþykktar
en tillögur minnihlutans felldar.
Frumvarpið fer síðan í nefnd.
Gríðarleg eftirvænting var í gærkvöldi þegar sjöunda Star Wars-
kvikmyndin var frumsýnd á miðnætti í fjölmörgum kvikmyndahúsum.
Eitilharðir aðdáendur, sem höfðu beðið spenntir í mörg ár, mættu uppá-
klæddir líkt og starfsmenn bíóhúsanna. Í Sambíóunum Kringlunni var
Svarthöfði sjálfur mættur, ásamt fylgdarliði, og keypti sér popp og kók hjá
Lilju prinsessu áður en frumsýningin þar hófst.
Svarthöfði fékk popp frá Lilju fyrir frumsýningu
Morgunblaðið/Golli
Dæmi eru um að Íslendingar hafi
misst vinnuna sína í Stavanger í
kjölfar lækkandi olíuverðs og séu á
leið heim. Atvinnuleysi í Stavanger
mældist í byrjun desember um 4,1%
sem þykir ekki mikið á norskan
mælikvarða en atvinnuleysið hefur
aukist um 80% á síðasta ári í störf-
um tengdum olíuiðnaði.
Statoil hyggst fækka starfsfólki
um 1.500, en þar vinna um 30 þús-
und manns. Hefur öllum verið boð-
inn starfslokasamningur og svara
þarf því tilboði fyrir 25. janúar
næstkomandi. Á síðustu 18 mán-
uðum hefur störfum í olíuvinnslu í
Noregi fækkað um 25 þúsund. »4
Noregur heillar ekki
jafn mikið lengur
Noregur Statoil dregur saman seglin.
Ljósmynd/Statoil
Aflaverðmæti frystitogarans
Kleifabergs RE er nálægt 3,7 millj-
örðum króna í ár og er það trúlega
mesta aflaverðmæti íslensks skips á
árinu. Skipið er nú á heimleið úr
Barentshafinu úr síðasta túr ársins,
en stór hluti afla skipsins hefur ver-
ið sóttur þangað samkvæmt samn-
ingi Íslendinga við Rússa og Norð-
menn. Nú er óvissa um veiðar í
rússneskri lögsögu á næsta ári.
Skipverjar á Kleifaberginu gerðu
sér dagamun í gær og borðuðu jóla-
mat í ljósum skreyttum borðsaln-
um. Kenndi þar ýmissa grasa og
hafði Ómar Björn Skarphéðinsson
matsveinn í nógu að snúast.
aij@mbl.is »18-19
Frystitogarinn Kleifaberg með mest
aflaverðmæti íslenskra skipa í ár
Ljósmynd/Bjarni Þór
Veisla Ómar Björn matsveinn sker kjötið
um borð í Kleifaberginu í hádeginu í gær.
Heildarkostnaður við slit föllnu
viðskiptabankanna, Glitnis, Lands-
bankans og Kaupþings, mun að öllu
óbreyttu nema 135 milljörðum
króna, en það jafngildir rúmlega
einum milljarði Bandaríkjadala. Í
tölum sem Morgunblaðið hefur tek-
ið saman er miðað við að rekstrar-
kostnaður búanna á síðari helmingi
yfirstandandi árs verði jafn mikill
og á fyrri hluta ársins. Hann gæti
þó orðið hærri.
Samkvæmt samantektinni nemur
kostnaður við slit gamla Lands-
bankans tæpum 50 milljörðum
króna, slit Kaupþings tæpum 45
milljörðum og kostnaðurinn við slit
Glitnis rúmum 41 milljarði.
Allt stefnir í að slitum búanna
ljúki nú í kringum áramót en Hér-
aðsdómur Reykjavíkur hefur nú
þegar staðfest nauðasamninga
Kaupþings og Glitnis. »Viðskipti
Kostnaður við slit gömlu viðskiptabank-
anna mun nema um 135 milljörðum króna
Morgunblaðið/Ómar
Slit Enn er verið að leysa úr þeim flækjum
sem sköpuðust við fall bankanna 2008.
Íslensku
gæsastofnarnir
eru almennt í
góðu ástandi
og sama er að
segja um hels-
ingjastofninn.
Eini gæsastofn-
inn sem hefur
hér viðdvöl og
stendur höllum
fæti er bles-
gæs.
Heiðagæsastofninn setur ný met
á hverju ári. Fyrir ári voru heiða-
gæsirnar orðnar um 393.000 tals-
ins. »14
Fjöldi heiðagæsa
slær nýtt met
Heiðagæs Orðnar
393.000 talsins.
7
GLUGGAR TIL JÓLA