Morgunblaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015
Halldór Guðmundsson varstaddur á Bókamessunnií Frankfurt, tiltöluleganýorðinn útgáfustjóri
Máls og menningar, þegar hann rat-
aði fyrst á veitingastaðinn Scarlet
Pimpernel eða Rauðu akurliljuna.
Eftir það varð kjallarinn hjá Ma-
músku um árabil árlegur viðkomu-
staður Halldórs og þeirra Íslend-
inga, sem sóttu Bókamessuna.
Þegar fram í sótti stækkuðu veisl-
urnar og samband Halldórs við eig-
anda staðarins varð nánara. Eitt
kvöldið spurði hún Halldór hvort
hann ætti ömmu og þegar hann tjáði
henni að þær væru báðar fallnar frá
sagði hún: „Þá skal ég vera amma
þín.“
Mamúska heillaði greinilega Hall-
dór og þar kom að hann ákvað að
skrifa ævisögu hennar. Mamúska
var hins vegar treg til, vildi greini-
lega ekki segja allt af létta um ævi
sína og uppvöxt í Evrópu tuttugustu
aldar þar sem landamæri færast
fram og til baka og lífi venjulegs
fólks var hvað eftir annað umturnað
á vígvöllum stórvelda.
Halldór er lipur penni og frásögn-
in leikur í höndunum á hon-
um. Hann á auðvelt með að
draga fram myndir af við-
fangsefninu og lýsir hinni
sérlunduðu Mamúsku,
klæðaburði hennar, skap-
sveiflum, kenjum og sjarma
af mikilli væntumþykju.
Halldór fer þá leið að
gera lesandann að þátttak-
anda í rannsókn sinni á lífi
sögupersónunnar. Hann lýsir því
hvernig brot úr lífi hennar safnast
saman þannig að úr verður heilleg
mynd; hvernig höfuðpersóna bók-
arinnar slær úr og í, vill ráða för og
helst ekki fjalla um það, sem er
óþægilegt. Hún vill tala um veitinga-
staðinn sinn, samtímann, ekki lífið á
tímum nasista. Óhjákvæmilega vill
lesandinn hins vegar vita meira um
þann þátt, hvernig það hafi verið
fyrir innflytjanda að komast áfram í
Þýskalandi í valdatíð nasista, hvaða
fórnir og málamiðlanir það hafi kost-
að. Um það dregur Halldór sitt hvað
fram þrátt fyrir að viðfangsefnið sé
ósamvinnuþýtt.
Halldór hefur uppi á bróður Ma-
músku, sem varð eftir hinum megin
við járntjaldið, og í ljós kemur að
sýn hennar á rás atburða þarf ekki
að vera sú rétta.
Bókin kom fyrst út á
þýsku og sú útgáfa varð til
þess að Halldór fékk upp-
lýsingar, sem haldið er til
skila í íslensku útgáfunni.
Halldór skrifar að sem
ævisagnahöfundur hafi
hann „alltaf heillast af tutt-
ugustu öldinni, öld öfganna
…“ Inn í ævisöguna fléttar
Halldór þessa sögu og verð-
ur það til þess að lyfta bókinni upp
þannig að ævi Mamúsku verður að
hluta fyrir heild.
Mamúska er bráðskemmtileg frá-
sögn af konu, sem vakti athygli hvar
sem hún fór, skapaði sína eigin ver-
öld í kjallara í Frankfurt og heillaði
með viðurgerningi sínum Jackson
Five (Michael Jackson þar á meðal),
Deep Purple, Cat Stevens og Ivan
Rebroff. Auk íslenska útgáfustjór-
ans, sem þakkaði fyrir sig með þess-
ari fallegu bók.
Morgunblaðið/Kristinn
„Þá skal ég vera
amma þín“
Ævisaga
Mamúska – Sagan um mína pólsku
ömmu bbbbn
Eftir Halldór Guðmundsson.
JPV útgáfa, 2015. Innbundin, 220 bls.
KARL BLÖNDAL
BÆKUR
Höfundurinn „Mamúska er bráðskemmtileg frásögn af konu, sem vakti athygli hvar sem hún fór, skapaði sína eigin
veröld í kjallara í Frankfurt og heillaði með viðurgerningi sínum Jackson Five (Michael Jackson þar á meðal), Deep
Purple, Cat Stevens og Ivan Rebroff,“ segir m.a. í gagnrýni um bók Halldórs Guðmundssonar.
Hin árlegu bókmenntaverðlaun
starfsfólks bókaverslana voru afhent
í bókmenntaþættinum Kiljunni í Rík-
issjónvarpinu í gærkvöldi. Er þetta í
16. sinn sem verðlaunin eru veitt.
Samkvæmt upplýsingum frá Félagi
starfsfólks bókaverslana, sem heldur
utan um verðlaunin, bárust atkvæði
frá 41 bóksala í ár, en aðeins taka þátt
bókaverslanir sem versla með bækur
allan ársins hring og eru þær stað-
settar víðs vegar um landið. Veitt eru
verðlaun í níu flokkum.
Besta íslenska skáldsagan
1. Stóri skjálfti eftir Auði Jónsdóttur
2. Dimma eftir Ragnar Jónasson
3. Sogið eftir Yrsu Sigurðardóttur
Íslenskar ungmennabækur
1. Skuggasaga: Arftakinn eftir Ragn-
heiði Eyjólfsdóttur
2. Vetrarfrí eftir Hildi Knútsdóttur
3. Drauga-Dísa eftir Gunnar Theodór
Eggertsson
Íslenskar barnabækur
1.-2. Koparborgin eftir Ragnhildi
Hólmgeirsdóttur
1.-2. Mamma klikk eftir Gunnar
Helgason
3. Þín eigin goðsaga eftir Ævar Þór
Benediktsson
Handbækur / fræðibækur
1. Stríðsárin 1938-1945 eftir Pál Bald-
vin Baldvinsson
2. Þær ruddu brautina eftir Kolbrúnu
S. Ingólfsdóttur
3. Gleðilegt uppeldi – Góðir foreldrar
eftir Margréti Pálu Ólafsdóttur
Besta ævisagan
1. Munaðarleysinginn eftir Sigmund
Erni Rúnarsson
2.-3. Nína S. eftir Hrafnhildi Schram
2.-3. Og svo tjöllum við okkur í rallið
eftir Guðmund Andra Thorsson
Besta ljóðabókin
1. Frelsi eftir Lindu Vilhjálmsdóttur
2. Stormviðvörun eftir Kristínu
Svövu Tómasdóttur
3.-4. Gráspörvar og ígulker eftir Sjón
3.-4. Öskraðu gat á myrkrið eftir
Bubba Morthens
Besta þýdda skáldsagan
1. Spámennirnir í Botnleysufirði eftir
Kim Leine
2. Grimmsævintýri: fyrir unga og
gamla eftir Philip Pullman
3. Flugnagildran eftir Fredrik Sjö-
berg
Þýddar ungmennabækur
1. Þegar þú vaknar eftir Franzisku
Moll
2. Violet og Finch eftir Jennifer Ni-
ven
3. Hvít sem mjöll eftir Söllu Simukka
Þýddar barnabækur
1. Strákurinn í kjólnum eftir David
Walliams
2. Mómó eftir Michael Ende
3. Grimmi tannlæknirinn eftir David
Walliams
Stjóri skjálfti besta íslenska skáldsagan
Auður
Jónsdóttir
Kim
Leine
Linda
Vilhjálmsdóttir
Páll Baldvin
Baldvinsson
Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Lau 19/12 kl. 19:00 Sun 27/12 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 19:00
Lau 26/12 kl. 19:00 Fös 8/1 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - sýningum lýkur í janúar
Njála (Stóra sviðið)
Mið 30/12 kl. 20:00 Frums. Sun 10/1 kl. 20:00 6.k Fim 21/1 kl. 20:00 11.k
Lau 2/1 kl. 20:00 2.k Mið 13/1 kl. 20:00 7.k Sun 24/1 kl. 20:00
Sun 3/1 kl. 20:00 3.k Fim 14/1 kl. 20:00 8.k Fim 28/1 kl. 20:00 12.k
Mið 6/1 kl. 20:00 4.k Sun 17/1 kl. 20:00 9.k Sun 31/1 kl. 20:00
Fim 7/1 kl. 20:00 5.k Mið 20/1 kl. 20:00 10.k
Blóðheitar konur, hugrakkar hetjur og brennuvargar
Hver er hræddur við Virginíu Woolf? (Nýja sviðið)
Fös 15/1 kl. 20:00 Frums. Sun 24/1 kl. 20:00 6.k Fös 5/2 kl. 20:00 11.k
Lau 16/1 kl. 20:00 2.k Fim 28/1 kl. 20:00 7.k Lau 6/2 kl. 20:00 12.k
Sun 17/1 kl. 20:00 3.k Fös 29/1 kl. 20:00 8.k Sun 7/2 kl. 20:00 aukas.
Fim 21/1 kl. 20:00 4.k Lau 30/1 kl. 20:00 aukas. Fim 11/2 kl. 20:00 13.k
Fös 22/1 kl. 20:00 aukas. Sun 31/1 kl. 20:00 9.k
Lau 23/1 kl. 20:00 5.k Fim 4/2 kl. 20:00 10.k
Margverðlaunað meistarastykki
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Sun 27/12 kl. 13:00 Sun 3/1 kl. 13:00 Sun 10/1 kl. 13:00
Sýningum lýkur í janúar
Sókrates (Litla sviðið)
Lau 19/12 kl. 20:00 Sun 27/12 kl. 20:00
Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina
Vegbúar (Litla sviðið)
Fim 17/12 kl. 20:00 Þri 29/12 kl. 20:00 Mið 30/12 kl. 21:00
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 18/12 kl. 20:00 Fös 8/1 kl. 20:00 Lau 23/1 kl. 20:00
Kenneth Máni stelur senunni
TJARNARGÖTU 12, 101 REYKJAVÍK SÍMI 527 2100 TJARNARBIO.IS
Predator (Salur)
Mið 13/1 kl. 21:00
Lífið (Salur)
Sun 17/1 kl. 13:00 Sun 7/2 kl. 13:00
Sun 24/1 kl. 13:00 Sun 21/2 kl. 13:00
Jólagrín í Tjarnarbíó (Salur)
Sun 20/12 kl. 20:00
The Valley (Salur)
Lau 19/12 kl. 20:30
Þroskastríðið - Hugleikur Dagsson UPPISTAND (Salur)
Fös 18/12 kl. 20:00
Ævintýrið um Augastein (Salur)
Sun 20/12 kl. 11:00 Sun 20/12 kl. 13:00 Sun 20/12 kl. 15:00
65 20151950
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
DAVID FARR
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Mið 30/12 kl. 15:00 37.sýn Fim 14/1 kl. 19:30 42.sýn Fös 12/2 kl. 19:30 47.sýn
Mið 30/12 kl. 19:30 38.sýn Sun 24/1 kl. 19:30 43.sýn Lau 13/2 kl. 19:30 48.sýn
Lau 2/1 kl. 15:00 39.sýn Fös 29/1 kl. 19:30 44.sýn Sun 21/2 kl. 19:30 49.sýn
Lau 2/1 kl. 19:30 40.sýn Lau 30/1 kl. 19:30 45.sýn
Sun 10/1 kl. 19:30 41.sýn Fös 5/2 kl. 19:30 46.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Sporvagninn Girnd (Stóra sviðið)
Lau 26/12 kl. 19:30
Frumsýning
Fös 8/1 kl. 19:30 4.sýn Sun 17/1 kl. 19:30 7.sýn
Sun 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 9/1 kl. 19:30 5.sýn
Sun 3/1 kl. 19:30 3.sýn Lau 16/1 kl. 19:30 6.sýn
Eitt af meistaraverkum 20. aldarinnar
Um það bil (Kassinn)
Þri 29/12 kl. 19:30 Frums. Lau 9/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 21/1 kl. 19:30 7.sýn
Sun 3/1 kl. 19:30 2.sýn Fös 15/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 22/1 kl. 19:30 8.sýn
Fös 8/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 17/1 kl. 19:30 6.sýn
Glænýtt verk eftir þekktasta samtímaleikskáld Svía, bráðfyndið og harkalegt í se
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 19/12 kl. 11:00 Lau 19/12 kl. 14:30 Sun 20/12 kl. 13:00
Lau 19/12 kl. 13:00 Sun 20/12 kl. 11:00 Sun 20/12 kl. 14:30
Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins komið í sölu 11 leikárið í röð.
Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið)
Fim 7/1 kl. 19:30 12. sýn Fös 15/1 kl. 22:30 13.sýn
Mið 13/1 kl. 19:30 aukasýn Fim 21/1 kl. 19:30 15.sýn
Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna!
Umhverfis jörðina á 80 dögum (Stóra sviðið)
Lau 23/1 kl. 13:00 Frums. Sun 31/1 kl. 13:00 3.sýn Lau 6/2 kl. 16:00 5.sýn
Lau 23/1 kl. 16:00 2.sýn Lau 6/2 kl. 13:00 4.sýn
Eldfjörug barnasýning eftir Sigga Sigurjóns og Karl Ágúst!
Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið)
Sun 10/1 kl. 14:00 21.sýn Sun 17/1 kl. 14:00 23.sýn
Sun 10/1 kl. 16:00 22.sýn Sun 17/1 kl. 16:00 24.sýn
Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu