Morgunblaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015
• Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru
margverðlaunuð fyrir hönnun, myndgæði, notagildi,
umhverfisvernd og áreiðanleika.
• Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga og
alhliða prentumsjón.
• Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki,
stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt
að gera kröfur um gæði og góða þjónustu.
• Kjaran er viðurkenndur söluaðili á
prentlausnum af Ríkiskaupum.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
BLI A3 MFP Line of the Year:
2011, 2012, 2013, 2014
bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki
BLI Pro Award:
2013, 2014
94.900
Verð
119.900
Verð
69.900
Ný vara
Veggskápur USG
Upphengdur læsanlegur verkfæraskápur með
rennihurð, læsanlegur. Kjörinn fyrir geymslu á
verkfærum. Stærð: 1375x714x145
USG F1Z600
69.900
Ný vara
Vinnuborð
Traust vinnuborð frá USG.
Sterkur járn rammi.
Stærð: 1500x780x830mm
USG F1Z200
Síðumúla 11・568 6899・www.vfs.is
Verkfæraskápur 188 verkfæri
7 skúffur – 1/4", 3/8“ & 1/2" topplyklasett
Splittatangir, skrúfjárn, fastirlyklar, tangir,
skralllyklar, meitlar, sexkantar, rennimál, þjalir.
USG FIRP7B
Verkfæraskápur 172 verkfæri
7 skúffur með frauðbökkum. 1/4",
3/8“ & 1/2" topplyklasett. Splittatangir,
skrúfjárn, fastirlyklar, tangir, skralllyklar,
skiptilykill, meitlar, sexkantar, rennimál, þjalir.
USG FIRP7B-FOAM
Hart er sótt að lög-
verndun iðngreina
þessa dagana. Frá því í
október 2013 þar til á
haustmánuðum 2015
heyrðist ekkert af
væntanlegri endur-
skoðun iðnaðarlaga.
Það breyttist með grein
í Viðskiptablaðinu hinn
13. ágúst síðastliðinn
undir yfirskriftinni „Afnám einok-
unar mætir andstöðu“. Höfundi vex í
augum að iðnstörf séu frátekin handa
þeim sem hafa sérhæfingu á tilteknu
sviði. Það er undarleg afstaða að fag-
þekking og færni teljist til einokunar
sem eigi að afnema. Næsta skref
taka þeir saman Frosti Ólafsson
framkvæmdastjóri og Björn Brynj-
ólfur Björnsson, hagfræðingur Við-
skiptaráðs Íslands, með því að birta
átta síðna langloku á vef sínum hinn
8. september 2015 sem þeir nefna
„Banvænn biti“.
Við lestur skrifanna kemur fyrst
upp í hugann að höfundarnir ættu að
snúa sér frekar að því sem þeir sjálfir
hafa menntað sig til. Svo virðist sem
þessir svokölluðu sérfræðingar álíti
að fagkröfur, sem liggja að baki iðn-
námi, séu úreltar. Þær séu settar
fyrst og fremst til að halda öllum frá
sem vilja starfa við iðnstörf. Öllum er
frjálst að læra það sem hugur þeirra
stendur til. Fólk getur hins vegar
ekki tekið að sér krefjandi og vanda-
söm verkefni sem það hefur ekki
menntun né þekkingu á. Það sanna
ótal dæmi um fúsk og vankunnáttu
við iðnstörf. Í ritsmíðinni stendur:
„Þá var niðurstaða umfangsmikillar
rannsóknar að starfsfólk í lögvernd-
uðum greinum hefur 28% hærri
tekjur en þegar störfin eru frjáls“.
Er þessi setning kannski leiðarljósið?
Sem sagt: Með því að gjaldfella sem
mest af iðnmenntun og fella burt sem
mest af lögverndun iðna er hægt að
komast af með minni launakostnað í
greinunum. Og það er biðlað til
stjórnvalda: „Þrýstihópar sem gæta
hagsmuna fárra hafa svo mikil áhrif
að stjórnvöld eru vanmáttug þegar
kemur að því að draga úr sérrétt-
indum þeirra. Í slíkum tilfellum er
þörf á pólitískri forystu til að knýja
fram breytingar sem þjóna hags-
munum heildarinnar.“ Svo virðist að
markmið forystumanna Viðskipta-
ráðs Íslands sé að gjaldfella gæði og
fagmennsku með því að kollvarpa
lögverndun iðngreina. Okkur er
spurn: Hagsmuna hverra gætir Við-
skiptaráð Íslands?
Afstaða ráðherra afdráttarlaus
Í Viðskiptablaðinu 20. ágúst sl. var
talað við Ragnheiði Elínu Árnadóttur
iðnaðarráðherra og Guðrúnu Haf-
steinsdóttur, formann Samtaka iðn-
aðarins. Ráðherrann var afdráttar-
laus: „Iðnaðarlögum og löggiltum
iðngreinum var meðal annars ætlað
að tryggja gæði, öryggi, almanna-
heilbrigði og neytendavernd. Ríkir
almannahagsmunir eru fyrir því að
tryggt sé að ákveðin verk séu unnin
af fagmönnum. Þá sé mikilvægt að
áfram verði í landinu nauðsynleg iðn-
og fagþekking. Slík þekking gæti í
einhverjum tilfellum glatast ef lög-
verndun yrði felld úr gildi.“
Afstaða formanns SI kom hins
vegar á óvart. Guðrún segir að sam-
tökin leggi áherslu á að iðnaðarlög-
gjöfin sé í takt við tíðarandann. Okk-
ur sýnist orðin merkja t.d. að flytja
megi hingað starfsfólk, ómenntað í
byggingargeiranum, til að byggja
hús sem standa eigi til frambúðar. Er
það rétt og farsæl stefna? Guðrún
sagðist líka vera talskona þess að
engin kerfi kæmu fram til að vera, öll
kerfi yrðu að vera síbreytileg og slá
með hjarta samfélagsins. Þá telur
hún að „fækka megi löggiltum iðn-
greinum“.
Hver segir satt?
Í Viðskiptablaðinu hinn 10. sept-
ember sl. var forsíðuviðtal við Þor-
stein Víglundsson, framkvæmda-
stjóra Samtaka atvinnulífsins (SA),
þar sem fram kemur að gera þurfi
umbætur á kjarasamningslíkaninu.
„Launahækkanir fari stigvaxandi og
það stefni í algjört óefni ef ekkert
verður að gert.“ Vert er að benda á
að SA heldur utan um samningsrétt
félaga iðnmeistara. Það er því stutt
að fara fyrir Þorstein Víglundsson
hvað fagfélög iðnmeistara varðar.
Hinn 23. september sl. var eftirfar-
andi haft eftir Almari Guðmundssyni,
framkvæmdastjóra SI, í hádeg-
isfréttum Ríkisútvarpsins: Hann
sagði að mikilvægt væri að færa iðn-
aðarlög til nútímans. Í iðnaðarráðu-
neytinu er áhugi á endurskoðun
starfsheita og lögverndun iðngreina.
Tímabært sé að endurskoða lögin.
Hér er um afar merkilega afstöðu að
ræða þar sem flestöll aðildarfélög
iðnaðarmanna innan SI lögðust árið
2012 eindregið gegn breytingu á iðn-
aðarlögunum. Hvað hefur breyst?
Hópur iðnmeistara hafði strax sam-
band við iðnaðarráðuneytið sem stað-
festi með tölvupósti að engin vinna
hefði átt sér stað síðan 23. október
2013 um afnám lögverndunar iðn-
greina. Iðnmeistarafélögin voru aldr-
ei upplýst um að breytingar á iðnlög-
gjöfinni stæðu til af hálfu SI. Hver er
því að segja satt?
Þjóðverjar viðurkenna mistök
Árið 2004 var felld niður lögvernd-
un á helmingi allra löggiltra iðn-
greina í Þýskalandi. Afleiðingin var
faglegt hrun. Gríðarlega mikil fag-
þekking er að tapast, kostnaður sam-
félagsins af mistökum, gjaldþrotum
og kærumálum hefur margfaldast og
ungt fólk sér ekki lengur tilgang með
að læra þessar greinar. Ástæða af-
námsins var krafa Evrópusambands-
ins um aukið frjálst flæði vinnuafls á
innri markaði sínum. Hafa samtök
iðnaðarmanna í Þýskalandi staðið
fyrir mikilli herferð sem nefnist „Ja
Zum Meister“ til stuðnings meist-
arakerfinu. Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins gaf út þá yf-
irlýsingu á dögunum að ekki yrði
frekar hreyft við meistarakerfinu.
Má líta á það sem viðurkenningu á
fyrri mistökum.
Undarleg samsvörun
Hinn 9. desember sl. kom svo út
enn ein langlokan frá Viðskiptaráði
en nú í beinni samvinnu við Samtök
iðnaðarins. Nefnist hún „Af hverju er
dýrt að byggja?“ Þar eru settar fram
margar og misgáfulegar tillögur að
lækkun byggingarkostnaðar. Sú gal-
nasta er líklegast að „heimila hús-
byggjanda að sinna jafnframt hlut-
verki byggingarstjóra í sérbýli“ og er
þar með formlega lagt til að iðnmeist-
arar séu óþarfir.
Undarleg samsvörun virðist vera
með skrifum Viðskiptaráðs („Ban-
vænn biti“) og orða formanns SI og
framkvæmdastjórum SI og SA.
Tjaldinu hefur verið svipt frá og eng-
inn þarf framar að velkjast í vafa um
hvar þessir sjálfskipuðu vitringar
standa. Aðförin að fagmennsku kem-
ur úr þeirri átt sem iðnaðarmenn
áttu síst von á, úr húsi atvinnulífsins í
Borgartúni 35, og er runnin undan
rifjum fulltrúa sérhagsmuna hjá
samtökum sem þeir eiga aðild að.
Samtök iðnaðarins eru gríðarlega
efnislega auðug og eiga í sjóðum sín-
um eitthvað á sjötta milljarð króna. Í
staðinn fyrir að kynna iðnnám fyrir
ungu fólki og taka upp hanskann fyr-
ir iðngreinarnar á opinberum vett-
vangi er tíma og peningum eytt í að-
för að meistarakerfinu og lögverndun
iðngreina. Félög iðnmeistara geta
vart átt lengur samleið með sam-
tökum sem hafa brugðist trausti
þeirra með svona grófum vinnu-
brögðum þar sem farið er á bak við
félög iðnmeistara og félagsmenn
þeirra. Afnám lögverndunar iðn-
greina yrði mikil afturför frá því sem
þjóðin hefur búið við og hefur reynst
vel síðustu áratugi. Mælirinn er full-
ur.
Sérhagsmunasamtök sýna klærnar
Eftir Sigurð Má
Guðjónsson og
Helga Steinar
Karlsson
» Gríðarlega mikil fag-
þekking er að tap-
ast, kostnaður sam-
félagsins af mistökum,
gjaldþrotum og kæru-
málum hefur margfald-
ast.
Sigurður Már
Guðjónsson
Sigurður Már er bakara- og köku-
gerðarmeistari. Helgi Steinar er múr-
arameistari.
Helgi Steinar
Karlsson