Morgunblaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015
✝ IngveldurAnna Ingvars-
dóttir fæddist í
Reykjavík 28. mars
1920. Hún andaðist
á Dvalarheimilinu
Grund 9. desember
síðastliðinn. For-
eldrar Ingveldar
voru Ingibjörg
Jónsdóttir frá
Oddagörðum í
Gaulverjabæj-
arhreppi, f. 7. nóv-
ember 1893, d. 29. júlí 1939, og
Ingvar Þorvarðarson múr-
arameistari frá Meðalholtum í
Gaulverjabæjarhreppi, f. 3.
ágúst 1891, d. 5. ágúst 1981.
Systkini Ingveldar eru Jón, f. 7.
júlí 1918, d. 22. júní 2000, Ást-
ríður, f. 3. júní 1921, Ingibjörg
Vigdís, f. 17. júlí 1924, d. 23. okt.
1981, Fríða, f. 5. des. 1929,
Magnea, f. 14. apríl 1933, d. 12.
okt. 1997, Sigríður, f. 22. apríl
1972, hann á einn son, 2) Þórunn
Linda, f. 25. ágúst 1978, hún á
tvö börn, 3) Ingi Rúnar, f. 15.
nóv. 1981. Einnig á Ingvar Katr-
ínu, f. 22. des. 1990, með síðari
sambýliskonu sinni, Sigrúnu E.
Einarsdóttur, f. 28. feb. 1951.
Seinni maður Ingveldar var
Ársæll Kristinn Kjartansson,
forstöðumaður Áhaldahúss
Reykjavíkurborgar til margra
ára, f. 29. júlí 1915, d. 18. sept.
1981.
Ingveldur lauk almennu
skólanámi eins og tíðkaðist á
þeim tíma. Að því loknu fór hún
að vinna í Sokkabúðinni á
Laugavegi 40. Seinna vann hún
við tannlæknaþjónustu skóla-
barna í Miðbæjarskólanum en
þegar skólatannlæknarnir færð-
ust yfir á Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur tók Ingveldur við
yfirumsjón með þeim og starf-
aðiþar þangað til hún hætti
störfum árið 2002. Eftir að hún
hætti að vinna fékk hún áhuga á
golfi og vann til ýmissa verð-
launa.
Útför Ingveldar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 17. desem-
ber 2015, og hefst athöfnin
klukkan 11.
1934, d. 16. maí
2003.
Ingveldur giftist
4. ágúst 1952 Haf-
steini Hannessyni,
f. 4. sept. 1923, d. 8.
sept. 1979, iðn-
aðarmanni. For-
eldrar hans voru
Svanborg Bjarna-
dóttir, f. 3. sept.
1893, d. 20. júlí
1956, og Hannes Ó.
Björnsson, f. 21.
ágúst 1889, d. 10. apríl 1938.
Þau skildu. Sonur þeirra var
Ingvar Örn Hafsteinsson, fædd-
ur í Reykjavík 11. apríl 1951, dá-
inn 27. okt. 2011. Eiginkona
hans (skildu) var Matthilde Kirs-
ten Hansen, f. 27. des. 1953, for-
eldrar hennar Sigríður I. Sig-
urðardóttir, f. 7. des. 1927, og
Hans Jörgen J. Hansen f. 26.
nóv. 1915, d. 22. júní 1984. Börn
þeirra eru 1) Eiður Örn, f. 3. júní
Í dag kveð ég ástkæra systur
mína, Ingveldi eða Ingu eins og
hún var alltaf kölluð, yndislega
manneskju sem ég hef átt í
samskiptum við allt mitt líf.
Sérstaklega eru mér minnis-
stæðar fjölmargar ánægju-
stundir sem við hjónin áttum
með Ingu og Ársæli, seinni eig-
inmanni systur minnar sem var
henni mjög kær. Hann féll því
miður frá langt fyrir aldur
fram. Það má segja um Ingu og
Sæla að þau voru einstakar
manneskjur sem vildu allt fyrir
alla gera. Þau ferðuðust mikið
og nutu þess sem lífið hafði að
bjóða.
Ársæll reyndist Ingvari, syni
Ingu, sérstaklega vel. Sonur
hennar lést fyrir fáum árum og
var mikill harmur fyrir systur
mína að sjá eftir einkabarni
sínu.
Inga mín var svo lánsöm að
eiga fjögur barnabörn sem hún
reyndist einstaklega vel. Þó að
þau byggju stóran hluta ævi
sinnar í Ástralíu vílaði hún ekki
fyrir sér, nærri níræðu, að
ferðast hálfan hnöttinn til að
heimsækja þau.
Við systurnar vorum, eins og
sagt er í dag, 101 aðdáendur.
Okkur fannst fátt skemmti-
legra en að „spássera“ og kíkja
við á kaffihúsi, enda bjó Inga
systir meginhluta ævi sinnar í
miðbænum og vildi hvergi ann-
ars staðar vera.
Síðustu árin tók Inga mikinn
þátt í starfi eldri borgara og
þótti með eindæmum góður
„púttari“ í golfinu. Eins ferðað-
ist hún til útlanda með vinkon-
um sínum eftir að hún missti
Sæla sinn. Eins og gefur að
skilja hafa þær allar nú kvatt
þennan heim enda náði Inga
mín háum aldri.
Systir mín nefndi það oft, í
síðustu heimsóknum mínum á
Grund þar sem fór einstaklega
vel um hana, að nú væri þetta
orðið gott. Ég held að hún sé
hvíldinni fegin.
Hvíl í friði elsku systir,
Fríða og Ólafur (Óli).
Ingveldur Anna
Ingvarsdóttir
✝ Bergþóra Jóns-dóttir fæddist í
Hvammi í
Fáskrúðsfirði 8.
ágúst 1918. Hún
lést á Sólvangi í
Hafnarfirði 7. des-
ember 2015.
Foreldrar henn-
ar voru Jón Odds-
son frá Hvammi í
Fáskrúðsfirði, f.
23. júlí 1891, d. 20.
maí 1933, og Stefanía Sigríður
Ólafsdóttir frá Gvendarnesi við
Fáskrúðsfjörð, f. 28. janúar
1894, d. 21. júlí 1971.
Bergþóra var elst fimm
systkina. Alsystkin: Auður Asp-
ar, f. 1920, d. 1998, Ólafur Jóns-
son, f. 1927, d. 2013, og Jóna
Jónsdóttir, f. 1933. Sammæðra:
Erna Jóhannsdóttir, f. 1934, og
Helga Jóhannsdóttir, f. 1937.
ína, f. 23.6. 1978, maki Reynir
Smári Markússon, f. 2.12. 1976.
Börn þeirra eru: Atli Már, f. 8.4.
2003, Elvar Smári, f. 10.7. 2010,
Bára Dís, f. 28.2. 2014. Fyrir
átti Erla soninn Rúnar Sigurð
Guðlaugsson, f. 15.5. 1966, maki
Hulda Kristjánsdóttir, f. 1.9.
1969. Börn þeirra eru: Kristján
Ernir, f. 3.12. 1987. Eydís Erla,
f. 6.3. 1990, maki Garðar Geir
Hauksson, f. 28.6. 1989. Barn
þeirra er Erik Úlfar, f. 7.6.
2013. Pétur Gunnar, f. 25.10.
1999.
2) Jón Guðmundsson f. 25.8.
1947.
Bergþóra og Guðmundur
hófu búskap í Fáskrúðsfirði og
bjuggu þar til ársins 1957 er
fjölskyldan fluttist til Hafnar-
fjarðar. Bergþóra starfaði við
fiskbeitingu sem ung kona en
eftir að þau Guðmundur hófu
búskap hélt hún utan um heim-
ili þeirra hjóna. Síðustu árin
dvaldi Bergþóra á Sólvangi í
Hafnarfirði.
Bergþóra verður jarðsungin
frá Hafnarfjarðarkirkju í dag,
17. desember 2015, klukkan 13.
Bergþóra giftist
Guðmundi Stefáni
Björnssyni, f. 29.9.
1920, frá Fáskrúðs-
firði, hinn 14.7.
1945, og eignuðust
þau tvo syni: 1)
Björn Kristmann
Guðmundsson, f.
26.8. 1942, maki
Erla Eyjólfsdóttir,
f. 16.8. 1937. Þau
eiga þrjú börn: a)
Guðmundur Stefán, f. 3.2. 1971,
maki Fríða Kristín Jóhannes-
dóttir, f. 19.7. 1973. Börn þeirra
eru: Kristín Ylfa, f. 19.10. 2002,
Björn Yngvi, f. 5.2. 2007, Frið-
rika Ýr, f. 22.5. 2013. b) Eyjólf-
ur Andrés, f. 30.5. 1972, maki
Sunneva Kolbeinsdóttir, f. 23.1.
1974. Börn þeirra eru: Eva Car-
men, f. 28.4. 2007, Anita Björk,
f. 22.8. 2010. c) Bergþóra Pál-
Amma Bergþóra kvaddi
þennan heim 7. desember 2015
um miðjan dag, rétt áður en
mikið óveður gekk yfir landið.
Fjölskyldunni gafst þá tækifæri
til að eiga með henni hinstu
stund áður en veðrið skall á.
Það var friður og ró yfir ömmu
og haft var á orði, að afi Guð-
mundur væri mættur til að
taka á móti henni eftir tíu ára
aðskilnað. Bergþóra var dug-
mikil kona sem aldrei skipti
skapi og var afar elskuleg og
blíð. Hún lét sig náungann
varða og um dvöl hennar á Sól-
vangi var það haft á orði að hún
rétti fljótt fram hjálparhönd ef
svo bar við. Bjartar og góðar
minningarnar um ömmu Berg-
þóru búa með okkur eftirleiðis.
Við minnumst einkum jólaboð-
anna á annan í jólum þar sem
okkur mætti drekkhlaðið borð
af jólakræsingum ásamt heitu
súkkulaði.
Einnig er mjólkurgrauturinn
hennar ömmu minnisstæður en
hann þótti mjög ljúffengur og
var gjarnan borinn fram þegar
við heimsóttum ömmu og afa
snemma morguns um helgar.
Amma var regluföst og kom
iðulega í heimsókn á miðviku-
dögum um miðjan dag. Það var
tilhlökkun að fá ömmu í heim-
sókn. Hún hafði alltaf eitthvað
að geyma í pokahorninu til að
færa okkur, þá gjarnan Cheer-
ios, rúgbrauð og eitthvert góð-
gæti. Amma hélt heimili þar til
hún var komin yfir nírætt en þá
fluttist hún á Sólvang í Hafn-
arfirði. Þar leið henni vel,
stundaði hún leikfimi og fékkst
við ýmislegt til að auðga líf og
sál. Ávallt var stutt í brosið,
hláturinn og kátínuna. Þrátt
fyrir að vera komin á tíræð-
isaldur fylgdist amma vel með
og las blöðin spjaldanna á milli
og horfði á sjónvarp. Hún hafði
gaman af því að fylgjast með
íþróttum, einkum handbolta-
landsliðinu. Ömmu leið afar vel
á Sólvangi og söng og hló fram
á síðasta dag. Við kunnum
starfsfólki Sólvangs miklar
þakkir fyrir hlýja og góða
umönnun.
Bergþóra amma var 97 ára
þegar hún lést og erum við
systkinin afar lánsöm að hafa
fengið að hafa ömmu Bergþóru
svo lengi með okkur og fengið
að kynna hana fyrir ellefu lang-
ömmubörnum og einu langa-
langömmubarni.
Ljósið leiðir himnaför
langferð nú er farin,
á lygnan stað, ljóssins beð
loks þá upp er hafin.
Á Hvammi skoppaði lítil skör
er skyggndist yfir sæinn,
þar vaknaði blóm úr lífsins vör
á fagurri grund við bæinn.
Hún óx í laut við lítinn bæ
langt út við fjörðinn,
þar tindar trónuðu upp við sæ
tignarlegir við skrúðinn.
Rysjótt öldin reyndi margt
á reglufestu hóf vöndinn,
hógvær, hófsöm umfram allt
himnagleðin tók völdin.
Ljósið leiðir himnaför
langferð nú er farin,
gleðin greypt í hjartastað
gjöful var hún öldin.
(Eyjólfur Andrés Björnsson)
Elsku amma, nú ertu horfin
á braut til nýrra og framandi
staða en eftir lifir falleg og góð
minning. Guð geymi þig í ljósi,
friðsæld og kærleika. Þín
barnabörn,
Guðmundur, Eyjólfur,
Bergþóra og Rúnar.
Fagur ertu fjörður minn
með fjallahringinn bláa.
Fastan, traustan faðminn þinn
fyrir stóra og smáa.
Sumardag, er sólin skín
sé ég græna rinda.
Fríð eru líka fjöllin þín
fönnum krýnd um tinda.
Ég hef fundið frið og skjól
fjöllum þínum undir.
Í vetrarhríð og sumarsól
sælar lifað stundir.
Fjörður kær með fjöll og sæ,
fríðgræn tún og haga.
Verndi Drottinn byggð og bæ
og börn þín alla daga.
(Jórunn Bjarnadóttir.)
Elskuleg systir okkar Berg-
þóra Jónsdóttir frá Fáskrúðs-
firði er nú látin 97 ára að aldri.
Hún dvaldi á Sólvangi í Hafn-
arfirði síðustu árin við frábæra
umönnun og hlýju. Sjálf var
hún ætíð glöð og hafði gaman
af heimsóknum.
Hún vildi fylgjast með okk-
ur systrunum og fjölskyldum
okkar og fréttum frá kunn-
ingjum og vinum. Hún las
blöðin daglega og fylgdist vel
með öllum fréttum.
Okkur þykir ákaflega vænt
um hve synir hennar og
tengdadóttir sýndu henni
mikla hlýju með jafnvel dag-
legum heimsóknum og ekki má
heldur gleyma börnum og
barnabörnum Kristmanns og
Erlu. Við þökkum þetta af al-
hug. Fyrstu minningar okkar
um Bergþóru eru frá unglings-
árum hennar á Fáskrúðsfirði,
en hún var nokkuð eldri en
við. Bergþóra systir var glæsi-
leg kona svo eftir var tekið.
Hún hafði glaðlegt og vin-
gjarnlegt viðmót og sagði aldr-
ei hnjóðsyrði um annað fólk.
Við minnumst heimsókna
hennar inn í Gullbringu á Fá-
skrúðsfirði með drengina sína
tvo til að heimsækja móður
okkar Stefaníu Ólafsdóttur og
fjölskylduna þar.
Eftir að Bergþóra fluttist til
Hafnarfjarðar og allir voru
fluttir suður, eins og kallað er,
þá voru fastir liðir að fara til
Bergþóru og Munda á jólaföst-
unni. Bergþóra giftist Guð-
mundi Stefáni Björnssyni unn-
usta sínum og bjuggu þau
fyrstu árin á Fáskrúðsfirði en
fluttu seinna til Hafnarfjarðar
og áttu heima þar allan sinn
búskap, en Guðmundur er nú
látinn.
Við minnumst systur okkar
með virðingu og þökk. Sonum
hennar tengdadóttur, börnum
og barnabörnum sendum við
innilegar samúðarkveðjur.
Jóna Jónsdóttir, Erna
Jóhannsdóttir, Helga
Jóhannsdóttir og
fjölskyldur.
Bergþóra
Jónsdóttir
Mikið óskaplega
eigum við eftir að
sakna Steina Ing-
ólfs vinar okkar.
Ljúfur karl í alla staði, alltaf í
góðu skapi, hlátur hans afar
smitandi, góður vinur og frábær
persóna. Steini kom reglulega til
okkar strákanna í söludeild
Bílaumboðsins Öskju, nokkuð
sem margir okkar viðskiptavina
gera svo oft, bara til að spjalla
smá og fá kaffisopa. Það var
alltaf gaman að fá Steina í heim-
sókn, hvort sem hann átti við-
skiptalegt erindi eða bara til að
ræða daglegu málin. Sögurnar
sem karl kunni voru skemmti-
legar og hann óspar á að segja
þær, hvort sem þær voru
skreyttar eða óskreyttar. Menn
Þorsteinn
Ingólfsson
✝ Þorsteinn Ing-ólfsson fæddist
19. febrúar 1950.
Hann lést 1. des-
ember 2015.
Útför Þorsteins
fór fram 11. desem-
ber 2015.
lögðu niður vinnu
til að hlýða á með
athygli. Á síðustu
árum hafði Steini
keypt hjá okkur
nokkra bíla, til
notkunar við starf
sitt. Nýverið lagði
kappinn inn pöntun
hjá okkur fyrir
þeim síðasta og
kom margoft til
okkar til að útfæra
hinar ýmsu hugmyndir sínar um
búnað bílsins. Nú skyldi síðasti
bíllinn vera pantaður og hann
átti að duga vel. Bíll sem átti að
afhenda á nýju ári og kappinn
var ógurlega spenntur, enda
ekki oft sem menn fá splunku-
nýja kagga úr kassanum. En svo
grípa örlögin inn í, karlinn er
farinn í sinn síðasta túr. Með
þessum örfáu orðum langar okk-
ur að kveðja vin okkar og send-
um um leið öllum aðstandendum
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Fyrir hönd strákanna í Öskju,
Páll Halldór.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Minningargreinar
Elsku eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ERLA GRÓA GUÐJÓNSDÓTTIR,
fv. lögreglukona og fulltrúi hjá
sálfræðideild skóla í Reykjavík,
síðast búsett í Torfufelli 20, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum í Reykjavík 7. desember síðastliðinn,
verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn
18. desember klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á að styrkja æskulýðs- og sumarstarf KFUM og KFUK í
Vindáshlíð og Kaldárseli, Hjálparstarf kirkjunnar á Íslandi,
Samhjálp og Mæðrastyrksnefnd.
.
Kristján Búason,
Jóna Kristjánsdóttir,
Guðrún Kristjánsdóttir, Rúnar Vilhjálmsson,
Búi Kristjánsson, Sif Sigfúsdóttir,
Guðjón Kristjánsson, Ragnheiður Harpa Arnard.,
Erlendur Kristjánsson, Elín Anna Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku pabbi okkar, tengdapabbi, afi og
langafi,
BJÖRN J. GUÐMUNDSSON,
áður til heimilis að Karfavogi 25,
sem lést á Hrafnistu, Reykjavík, þann 9.
desember, verður jarðsunginn frá
Lindakirkju, Kópavogi, mánudaginn 21. desember klukkan 13.
.
Margrét Björnsdóttir, Einar Hákonarson,
Sigrún Björnsdóttir,
Guðrún Björnsdóttir, Sigurður Ágúst Sigurðsson,
Jón Axel Björnsson, Karen Sigurkarlsdóttir,
Björn Jóhann Björnsson, Vilhelmína Einarsdóttir,
Unnur Ýr Björnsdóttir, Magnús Bogason,
afa- og langafabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
HREFNA RAGNARSDÓTTIR,
Hraunbæ 44,
sem lést föstudaginn 4. desember, verður
jarðsungin frá Árbæjarkirkju mánudaginn
21. desember klukkan 13.
.
Axel Sölvason,
Axel Sölvi Axelsson, Guðrún Harðardóttir,
Ragnar Guðni Axelsson, Björk Hreiðarsdóttir,
Bergur Axelsson, Jóna Guðrún Ívarsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og systkini.