Morgunblaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Yfir 40 litir í boði!
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Svalaskjól
- sælureitur innan seilingar
Hundruð þúsunda manna söfnuðust saman á götum
Bangkok í gær til að votta minningu æðsta trúar-
leiðtoga búddista í Taílandi virðingu sína. Somdet Phra
Nyanasamvara lést hundrað ára að aldri 24. október
2013 og bálför hans fór fram í gær á vegum konungs-
fjölskyldu Taílands. Lík trúarleiðtogans er hér flutt
með konunglegum líkvagni frá hofi í borginni til Wat
Thep Sirintharawat þar sem bálförin fór fram. Maha
Vajiralongkorn krónprins stjórnaði athöfninni fyrir
hönd Bhumibols Aduluyadejs konungs.
Búddistar í Taílandi kveðja leiðtoga sinn í Bangkok
AFP
Trúarleiðtoganum fylgt til bálfarar
Kanadískur prestur hefur verið
dæmdur í lífstíðarfangelsi í Norður-
Kóreu fyrir áróður og afskipti af
málefnum ríkisins.
Hyeon Soo Lim, sem fæddist í
Suður-Kóreu en er prestur í Toronto
í Kanada, var dæmdur fyrir hæsta-
rétti Norður-Kóreu eftir stutt
réttarhöld, að sögn kínversku frétta-
stofunnar Xinhua.
Lim var fundinn sekur um að hafa
tekið þátt í því með Bandaríkja-
mönnum og Suður-Kóreumönnum
að dreifa áróðri um mannréttinda-
mál í Norður-Kóreu og sverta ímynd
landsins. Hann var einnig sakaður
um að hafa fjármagnað og aðstoðað
„svikara“ sem vildu flýja frá
Norður-Kóreu. Dómstóllinn sagði að
Lim hefði játað sök og látið í ljós
mikla iðrun fyrir brot sín.
Lim var handtekinn í Norður-
Kóreu í janúar eftir að hann fór
þangað frá Kína. Kirkja prestsins
segir að hann hafi aðeins starfað að
mannúðarmálum í Norður-Kóreu.
Í lífstíðarfangelsi í N-Kóreu
AFP
Dæmdur Presturinn leiddur fyrir
dómara hæstaréttar í Pjongjang.
Kanadískur prest-
ur dæmdur fyrir
„áróður“ gegn ríkinu
Xi Jinping, forseti Kína, hefur óskað
eftir því að þjóðir heims virði „net-
fullveldi“ hver annarrar og rétt
þeirra til að setja reglur í því skyni
að hafa stjórn á netinu.
Xi sagði þetta á netráðstefnu sem
fer fram í Kína en netnotendur þar í
landi eru um 650 milljónir talsins.
Hann sagði að ríki hefðu rétt til að
ákveða sjálf hvernig notkun netsins
þróaðist og setja eigin reglur um
netið.
Kínversk yfirvöld hafa verið gagn-
rýnd fyrir strangar reglur um netið.
Þau hafa lokað vefsíðum og einnig
ritskoðað efni á netinu sem valdhöf-
unum hugnast ekki.
Að sögn fréttamanns BBC, sem
fylgist með ráðstefnunni, var Xi Jin-
ping með ræðu sinni að senda þau
skilaboð að stjórnvöld í Kína vildu
taka þátt í því að semja alþjóðlegar
reglur um hvað mætti loka fyrir og
ritskoða á netinu. Ræðan bendi einn-
ig til þess að eftirlit með netnotkun
sé eitt af forgangsmálum kínversku
ráðamannanna.
Nær 40 blaðamenn í fangelsi
Samtökin Fréttamenn án landa-
mæra höfðu hvatt fyrirtæki og
stjórnvöld frá öðrum ríkjum en Kína
til að taka ekki þátt í ráðstefnunni.
Samtökin sögðu að hartnær 40
blaðamenn væru í fangelsi í Kína
vegna greina sem birtust á netinu og
ríki sem tækju þátt í ráðstefnunni
gerðust í raun samsek um kúgunina.
Hátt settir embættismenn frá
Rússlandi, Pakistan, Kasakstan,
Kirgisistan og Tadjikístan sitja ráð-
stefnuna, að sögn BBC.
Kínverski forsetinn hvatti einnig
ríki heims til að taka höndum saman
til að tryggja netöryggi og sagði að
ekkert ríki ætti að geta notað netið
til að grafa undan öryggi annarra
landa.
Kínverjar vilja
„netfullveldi“
Vilja rétt til að setja reglur um netið
AFP
Gegn netfrelsi Xi Jinping, forseti
Kína, flytur ræðu á netráðstefnu.