Morgunblaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú lendir í þeirri aðstöðu að þurfa
að útskýra mál þitt fyrir ungu fólki.
Mundu bara að þú ert ekki einn að verki.
Leggðu áherslu á að hvíla þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarft að ganga úr skugga um að
ekki sé verið að ganga á rétt þinn. En ef
þér finnst leiðinlegt að hjálpa fólki skaltu
pæla betur í því.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ættingi þinn kallar á athygli þína
en þú ert of önnum kafinn við aðra hluti.
Fáðu góðan vin til að slást í för með þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Öðrum kann að virðast erfitt að
fylgja þér eftir og finnast þú segja eitt í
dag og annað á morgun. Nú er tækifærið
að sýna hvað í þér býr.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það umkringir þig fólk sem vill ekki
bara hjálpa – það þarfnast þess! Þú hjálp-
ar því með því að leyfa því að aðstoða
þig. Skoðanir einstaklings munu koma þér
mjög á óvart.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þeir eru margir sem bíða í ofvæni
eftir að þú segir skoðun þína á ákveðnu
máli. Hættu að eyða tímanum til einskis
og drífðu þig!
23. sept. - 22. okt.
Vog Flest virðist ganga þér í haginn svo
þú getur slakað á og þarft ekki stöðugt
að vera að reyna að hagræða hlutunum.
Nú er tíminn til að kynna sér dulúðleg
svið og mundu að framkoma sýnir eðli
sálarinnar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er oft vitnað til klettsins,
þegar skapgerð þína ber á góma. Leitaðu
að tækifæri til að hjálpa öðrum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er líklegt að þú lendir í
deilum um peninga eða eyðslu í dag. Að
því loknu getið þið gert það sem hugur
ykkar stendur til.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vandað fólk í hópnum í kring-
um þig færir þér gæfu. Margt af því sem
sýnist áríðandi leysist upp ef maður lætur
sem maður taki ekki eftir því. Ekki leyfa
gremju að krauma innra með þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú virðist hafa svör við öllu á
reiðum höndum. Bíddu í einn dag eða svo
og athugaðu hvort þú sért reiðubúin(n) til
að breyta afstöðu þinni á einhvern máta.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Menn láta eitt og annað flakka í
einkasamtölum sem á ekkert erindi við
aðra. Tímasetningin er stórkostleg.
Jón Ingvar Jónsson kastar framjólavísu ársins 2015 – og er lík-
ur sjálfum sér:
Við skulum ekki hafa hátt
en heilla vinum árnum.
Jólasveinar ganga um gátt
gráir fyrir járnum.
Þá Ingólfur Ómar Ármannsson:
Fönn þó hylji foldarsvið
finn ég gleði í hjarta.
Blessuð jólin boða frið
bjartri dásemd skarta.
Og hann bætir við í léttum dúr:
Skoltinn þanið skröggur fær
skerpir á andanstólum.
Fengitíminn færist nær
fer að líða að jólum.
Guðmundur Ingi Jónatansson
var góðvinur Vísnahornsins og
verður saknað á þessum vettvangi.
Hann orti á sínum tíma:
Er nú mæða andans brott,
ekki hræða á stjái.
Kannski fæðist kvæði gott,
kannski ég næði fái.
Eitt sinn orti Pétur Stefánsson
hálfgerða öfugmælavísu, en til-
efnið var að hann sagðist hættur
að geta ort – slitnað hefði upp úr
sambandi hans og ljóðadísarinnar:
Svona fór um sambandið
sem mig mátti gruna,
skömmin ég er skilinn við
skáldadrottninguna.
Friðrik Steingrímsson getur
sjaldnast setið á sér þegar Pétur
er annars vegar og kastaði óðar
fram:
Þú ortir mest um öl og reið
og ýmsra kvenna dekur,
að hún fengi á þér leið
enga furðu vekur.
Guðmundur Ingi mælti þegar í
léttum dúr: „Pétur minn! „Gangi
þér vel að dubla við drottn-
inguna!““
Hjá einmánuði eru skil.
Eykst þér vilji og kraftur.
Þá mun karlinn koma til
kerlingunni aftur.
Nokkur orð frá Hjálmari Frey-
steinssyni að lokum:
Á gömlum helgisögnum margir hafa
mætur,
en merkilega tíma lifum við.
Útlendingastofnun á aðventunni
lætur
endurskrifa jólaguðspjallið.
Pétur Blöndal
p.blondal@gmail.com
Vísnahorn
Af jólasveinum og
drottningu skálda
Í klípu
„LANGALANGAFI MINN STOFNAÐI
ÞETTA FYRIRTÆKI – AF HVERJU
ELTIST ÞIÐ EKKI VIÐ HANN?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„GETURÐU SETT HANDLEGGINN Á MÉR
Í FATLA Í TVÆR VIKUR SVO ÉG
LOSNI VIÐ UPPVASKIÐ?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... það sem hjálpar þér í
gegnum daginn.
KOMIÐ MEÐ
SÆLGÆTIS-
STAFINA!
HRÓLFUR,
ÞESSI VAR
SOFANDI Á
VERÐINUM!
ÞAÐ ÞÝÐIR AÐ ÉG ÞARF AÐ
DÆMA ÞIG TIL HÖRÐUSTU
VÍKINGAREFSINGARINNAR!
ÞÚ MEINAR…
ÞÚ MEINAR…
JÁ! ÞÚ FERÐ Í HÁTTINN
ÁN ÞESS AÐ HAFA FENGIÐ
KVÖLDMAT!
GISP!
SKATT-
RANNSÓKN
SKAT
TA-
SKÝR
SLUR
Víkverji áttaði sig á því um daginnað aðventan væri meira en
hálfnuð. Heimili Víkverja ber þess
þó engin merki, fyrir utan það að
eldhúsið er nánast orðið glansandi
fínt. Restin af húsinu þarf hins vegar
að bíða því að enginn tími hefur gef-
ist til þess að sinna því. „Næstu
helgi, næstu helgi“ lofar Víkverji
frúnni, en svo verður minna úr lof-
orðunum þegar vinnuvikunni slepp-
ir.
x x x
Ein leiðin til að halda eldhúsinueins hreinu og það hefur verið er
sú að halda öllum jólabakstri í lág-
marki. Víkverji minnist þess þegar
hann var krakki að móðir hans og
amma hefðu bakað allar mögulegar
og ómögulegar sortir fyrir jólin, og
fylgdi undirbúningurinn nánast
heilli dagskrá. Eina helgina var
skorið út laufabrauð, þá næstu bak-
aðar piparkökur. Víkverji áttar sig æ
betur á því í seinni tíð að þessi fasta
dagskrá gekk samt eiginlega bara
upp af því að amma hans var komin á
eftirlaun. Hvernig hún hafði tíma til
þess að sinna þessu öllu mun Vík-
verji aldrei vita hins vegar.
x x x
Piparkökuskreytingar voru hinsvegar á þeim tíma alltaf í mestu
uppáhaldi hjá Víkverja, en amma
hans bakaði þá alls kyns karla og
kerlingar, grísi, sleða og jólasveina,
sem barnabörnin síðan skreyttu með
glassúr og alls kyns öðru góðgæti.
Hvert barnabarn fékk einn karl og
eina kerlingu til þess að skreyta,
hvorki meira né minna, en sú
skömmtun var tekin upp eftir að
Víkverji hafði tekið sig til eitt árið,
smellt þunnu lagi af glassúr á eina
kerlinguna (hún var í pilsi og gat því
borið meira af súkkulaði á sér), sett
eins marga súkkulaðidropa og hann
gat ofan á, og síðan borðað með
bestu lyst fyrir framan vesalings
ömmuna, sem hljóðaði upp, fremur
ósátt við sinn mann.
x x x
Víkverji fékk því gjarnan að heyraþað að af því að hann lét eins og
algjör súkkulaðigrís eitt árið þurftu
öll barnabörnin með tölu að sætta sig
við skert aðgengi að piparkökufólk-
inu á næstu árum. víkverji@mbl.is
Víkverji
Varpið allri áhyggju ykkar á hann því
að hann ber umhyggju fyrir ykkur.
Fyrra Pétursbréf 5:7
Árin segja sitt1979-2015
Hjónin Ragnar Guðmundsson, matreiðslu-meistari og kona hans
Bára Sigurðardóttir, stofnendur og eigendur Lauga-ás.
Laugarásvegi 1
104 Reykjavík • laugaas.is
)553 1620
Verið velkominn
Lauga-ás hefur frá 1979
boðið viðskiptavinum
sínum uppá úrval af
réttum þar sem hráefni,
þekking og íslenskar
hefðir hafa verið hafðar
að leiðarljósi.