Morgunblaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015
tímanlega með
skyrturnar
fyrir jólin
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
ÞVOTTAHÚS – EFNALAUG – DÚKALEIGA
Komdu
Skínandi hrein og strokin skyrta um jólin
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta var stórkostleg stundþar sem tvö hundruðdásamlegar söngkonur óm-uðu saman. Sumar þessar
konur hafa verið saman að syngja í 23
ár hjá mér, þær hafa færst upp um
kóra og þær muna eftir Siggu dóttur
minni í vöggu,“ segir Margrét Pálma-
dóttir, listrænn stjórnandi tónleika
fimm kvennakóra í Hallgrímskirkju í
gærkvöldi. Allir koma kórarnir frá
kórskóla hennar, Domus Vox. Þetta
voru kórarnir Vox feminae, sem er
elsti og reyndasti kórinn; Aurora,
sem er kór kvenna á aldrinum 25 til
40 ára, Cantabile, Stúlknakór
Reykjavíkur, sem geymir um hundr-
að stelpur á grunnskólaaldri, og
Hrynjandi, sem er kór Maríusar son-
ar Margrétar, en hún er fósturmóðir
þess kórs á meðan Maríus er að
syngja í Sviss.
„Ég er afar stolt af því að þrír
fyrrverandi söngnemendur mínir sáu
ásamt mér um kórstjórn í gærkvöldi;
Sigga dóttir mín, Hildigunnur
Einarsdóttir og Guðrún Árný Guð-
mundsdóttir. Það gleður mig líka að
sjá fyrrverandi kórfélaga velja tónlist
sem atvinnu, ég hef þá kennt þeim að
það er hægt að vinna við að vera kór-
stjóri. Þá er ég sátt við mig sem fyrir-
mynd,“ segir Margrét.
Mér leyfist að mótmæla
Þær mæðgur Margrét og Sigga
hafa lifað og hrærst saman í söngnum
frá því Sigga man eftir sér, en hún
hefur verið með í söngnum hjá móður
sinni frá því hún var fjögurra ára.
Magnaður kraftur
fylgir 200 konum
„Ég held ekki tónleika meiningarlaust. Ljós tónleikanna var kærleikurinn og
friðurinn sem við þráum öll,“ segir Margrét Pálmadóttir kórstjóri, sem í gær-
kvöldi leiddi saman 200 kvenraddir á tónleikum í stútfullri Hallgrímskirkju.
Fimm kvennakórar sungu og sameinuðust í lokin. Dóttir Margrétar, Sigríður
Soffía, hefur alist upp við hlið móður sinnar í söngstarfinu og hefur sungið í kór-
um frá því hún var fjögurra ára. Hún stjórnaði tveimur af kórunum í gær.
Innlifun Margrét gefur sig sannarlega alla í að stjórna konunum sínum.
Vandvirkni Sigga stígur sín fyrstu skref í kórstjórn og vandar sig.
Mikið verður um dýrðir í Bókakaffinu
á Selfossi í kvöld þegar átta rithöf-
undar mæta þangað á fimmta og síð-
asta upplestrarkvöld Bókakaffisins á
þessu ári. Fólk getur notið jólastemn-
ingar yfir kakóbolla og allir eru vel-
komnir meðan húsrúm leyfir. Húsið
er opið frá klukkan 20 en lestur hefst
klukkan 20:30. Á eftir gefst tækifæri
til að spjalla við skáldin og fá hjá
þeim áritaðar bækur.
Þórunn Jarla Valdimarsdóttir les
upp úr bók sinni, Stúlka með höfuð;
Vilborg Dagbjartsdóttir les upp úr
Ljóðasafni; Sigurbjörg Sæmunds-
dóttir les upp úr bókinni Mjálm; Ást-
ráður Eysteinsson les upp úr bók
Matthíasar Johannessen, Við landa-
mæri; Kristian Guttesen les upp úr
bókinni Eilífðir, sem er úrval ljóða;
Hallgrímur Helgason les upp úr bók-
inni Sjóveikur í München; Guð-
mundur Andri Thorsson les upp úr
bók sinni um pabba sinn Thor: Og svo
tjöllum við okkur í rallið; og Elín
Gunnlaugsdóttir les upp úr bók sinni
Björt í sumarhúsi, en meðhöfundur
að henni er Þórarinn Eldjárn.
Guðmundur Andri, Þórunn Jarla, Hallgrímur og fleiri
Feðgar Guðmundur Andri og Thor.
Upplestur á bókakaffi Selfossi
Flóra er ný fatalína Hildar Yeoman
sem er innblásin af dulmagnaðri og
kraftmikilli orku sem býr í náttúr-
unni. Upp úr henni vaxa grös og jurtir
sem notaðar eru til að útbúa seiði
sem búa yfir lækningamætti en þau
má einnig nota til að öðlast andlegan
styrk eða til að tæla hjartað. Línan
Flóra hefur að geyma sögu þessarar
náttúru og kvennanna sem höfðu
þekkinguna til að nýta sér kraft
hennar og dulúð. Því verður fagnað
með partíi kl. 17 í dag að línan Flóra
er komin í verslunina Kiosk, Lauga-
vegi 65. Frumsýndar verða myndir
eftir Sögu Sig af nokkrum af þeim
nútímanornum sem hafa verið inn-
blástur fyrir fatalínuna.
Flóra: Nýja fatalínan hennar Hildar Yeoman
Dulmagnaðar nútímanornir
Ljósmynd/Saga Sig.
Norn Hér má sjá Hildi Rósu í flík sem heitir Black magic, eða svarti galdur.
Íslensku jólasveinarnir eru þekktir
fyrir stríðni og pretti en þessi jólin
hafa þeir þó ákveðið að taka höndum
saman, bæta ráð sitt og hjálpa UNI-
CEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóð-
anna, við að koma hinum ýmsu hjálp-
argögnum til barna sem á þurfa að
halda. Stúfur hefur sem dæmi ákveð-
ið að gefa börnum í neyð námsgögn
og Þvörusleikir vill útvega þeim orm-
alyf. Gáttaþefi er mikið í mun að
börnum sé hlýtt og gefur því börnum
í neyð skjólgóð teppi á meðan Hurða-
skellir hefur mestan áhuga á að sjá
börnum fyrir hreinu vatni og koma
vatnsdælum í eins mörg þorp og
hann getur.
Uppistaðan í jólaátaki UNICEF á Ís-
landi fyrir sannar gjafir er myndir
Brian Pilkingtons af íslensku jóla-
sveinunum en hann hefur nú teiknað
þá upp á nýjan leik með hin ýmsu
hjálpargögn í höndunum sem þeir
völdu sér sjálfir. Íslensku jólasvein-
arnir og UNICEF eru sem sé komin í
óvenjulegt samstarf og hægt verður
að fylgjast með góðverkum jólasvein-
anna á mbl.is, þegar þeir koma til
Jólasveinar í samstarfi við UNICEF
Hjartagóðir íslenskir jólasvein-
ar hjálpa nú börnum í neyð
Stúfur Krúttið hann Stúfur bregst ekki börnunum, hann færir þeim námsgögn.