Morgunblaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015 • Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru margverðlaunuð fyrir hönnun, myndgæði, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika. • Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga og alhliða prentumsjón. • Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt að gera kröfur um gæði og góða þjónustu. • Kjaran er viðurkenndur söluaðili á prentlausnum af Ríkiskaupum. Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is BLI A3 MFP Line of the Year: 2011, 2012, 2013, 2014 bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki BLI Pro Award: 2013, 2014 94.900 Verð 119.900 Verð 69.900 Ný vara Veggskápur USG Upphengdur læsanlegur verkfæraskápur með rennihurð, læsanlegur. Kjörinn fyrir geymslu á verkfærum. Stærð: 1375x714x145 USG F1Z600 69.900 Ný vara Vinnuborð Traust vinnuborð frá USG. Sterkur járn rammi. Stærð: 1500x780x830mm USG F1Z200 Síðumúla 11・568 6899・www.vfs.is Verkfæraskápur 188 verkfæri 7 skúffur – 1/4", 3/8“ & 1/2" topplyklasett Splittatangir, skrúfjárn, fastirlyklar, tangir, skralllyklar, meitlar, sexkantar, rennimál, þjalir. USG FIRP7B Verkfæraskápur 172 verkfæri 7 skúffur með frauðbökkum. 1/4", 3/8“ & 1/2" topplyklasett. Splittatangir, skrúfjárn, fastirlyklar, tangir, skralllyklar, skiptilykill, meitlar, sexkantar, rennimál, þjalir. USG FIRP7B-FOAM Hart er sótt að lög- verndun iðngreina þessa dagana. Frá því í október 2013 þar til á haustmánuðum 2015 heyrðist ekkert af væntanlegri endur- skoðun iðnaðarlaga. Það breyttist með grein í Viðskiptablaðinu hinn 13. ágúst síðastliðinn undir yfirskriftinni „Afnám einok- unar mætir andstöðu“. Höfundi vex í augum að iðnstörf séu frátekin handa þeim sem hafa sérhæfingu á tilteknu sviði. Það er undarleg afstaða að fag- þekking og færni teljist til einokunar sem eigi að afnema. Næsta skref taka þeir saman Frosti Ólafsson framkvæmdastjóri og Björn Brynj- ólfur Björnsson, hagfræðingur Við- skiptaráðs Íslands, með því að birta átta síðna langloku á vef sínum hinn 8. september 2015 sem þeir nefna „Banvænn biti“. Við lestur skrifanna kemur fyrst upp í hugann að höfundarnir ættu að snúa sér frekar að því sem þeir sjálfir hafa menntað sig til. Svo virðist sem þessir svokölluðu sérfræðingar álíti að fagkröfur, sem liggja að baki iðn- námi, séu úreltar. Þær séu settar fyrst og fremst til að halda öllum frá sem vilja starfa við iðnstörf. Öllum er frjálst að læra það sem hugur þeirra stendur til. Fólk getur hins vegar ekki tekið að sér krefjandi og vanda- söm verkefni sem það hefur ekki menntun né þekkingu á. Það sanna ótal dæmi um fúsk og vankunnáttu við iðnstörf. Í ritsmíðinni stendur: „Þá var niðurstaða umfangsmikillar rannsóknar að starfsfólk í lögvernd- uðum greinum hefur 28% hærri tekjur en þegar störfin eru frjáls“. Er þessi setning kannski leiðarljósið? Sem sagt: Með því að gjaldfella sem mest af iðnmenntun og fella burt sem mest af lögverndun iðna er hægt að komast af með minni launakostnað í greinunum. Og það er biðlað til stjórnvalda: „Þrýstihópar sem gæta hagsmuna fárra hafa svo mikil áhrif að stjórnvöld eru vanmáttug þegar kemur að því að draga úr sérrétt- indum þeirra. Í slíkum tilfellum er þörf á pólitískri forystu til að knýja fram breytingar sem þjóna hags- munum heildarinnar.“ Svo virðist að markmið forystumanna Viðskipta- ráðs Íslands sé að gjaldfella gæði og fagmennsku með því að kollvarpa lögverndun iðngreina. Okkur er spurn: Hagsmuna hverra gætir Við- skiptaráð Íslands? Afstaða ráðherra afdráttarlaus Í Viðskiptablaðinu 20. ágúst sl. var talað við Ragnheiði Elínu Árnadóttur iðnaðarráðherra og Guðrúnu Haf- steinsdóttur, formann Samtaka iðn- aðarins. Ráðherrann var afdráttar- laus: „Iðnaðarlögum og löggiltum iðngreinum var meðal annars ætlað að tryggja gæði, öryggi, almanna- heilbrigði og neytendavernd. Ríkir almannahagsmunir eru fyrir því að tryggt sé að ákveðin verk séu unnin af fagmönnum. Þá sé mikilvægt að áfram verði í landinu nauðsynleg iðn- og fagþekking. Slík þekking gæti í einhverjum tilfellum glatast ef lög- verndun yrði felld úr gildi.“ Afstaða formanns SI kom hins vegar á óvart. Guðrún segir að sam- tökin leggi áherslu á að iðnaðarlög- gjöfin sé í takt við tíðarandann. Okk- ur sýnist orðin merkja t.d. að flytja megi hingað starfsfólk, ómenntað í byggingargeiranum, til að byggja hús sem standa eigi til frambúðar. Er það rétt og farsæl stefna? Guðrún sagðist líka vera talskona þess að engin kerfi kæmu fram til að vera, öll kerfi yrðu að vera síbreytileg og slá með hjarta samfélagsins. Þá telur hún að „fækka megi löggiltum iðn- greinum“. Hver segir satt? Í Viðskiptablaðinu hinn 10. sept- ember sl. var forsíðuviðtal við Þor- stein Víglundsson, framkvæmda- stjóra Samtaka atvinnulífsins (SA), þar sem fram kemur að gera þurfi umbætur á kjarasamningslíkaninu. „Launahækkanir fari stigvaxandi og það stefni í algjört óefni ef ekkert verður að gert.“ Vert er að benda á að SA heldur utan um samningsrétt félaga iðnmeistara. Það er því stutt að fara fyrir Þorstein Víglundsson hvað fagfélög iðnmeistara varðar. Hinn 23. september sl. var eftirfar- andi haft eftir Almari Guðmundssyni, framkvæmdastjóra SI, í hádeg- isfréttum Ríkisútvarpsins: Hann sagði að mikilvægt væri að færa iðn- aðarlög til nútímans. Í iðnaðarráðu- neytinu er áhugi á endurskoðun starfsheita og lögverndun iðngreina. Tímabært sé að endurskoða lögin. Hér er um afar merkilega afstöðu að ræða þar sem flestöll aðildarfélög iðnaðarmanna innan SI lögðust árið 2012 eindregið gegn breytingu á iðn- aðarlögunum. Hvað hefur breyst? Hópur iðnmeistara hafði strax sam- band við iðnaðarráðuneytið sem stað- festi með tölvupósti að engin vinna hefði átt sér stað síðan 23. október 2013 um afnám lögverndunar iðn- greina. Iðnmeistarafélögin voru aldr- ei upplýst um að breytingar á iðnlög- gjöfinni stæðu til af hálfu SI. Hver er því að segja satt? Þjóðverjar viðurkenna mistök Árið 2004 var felld niður lögvernd- un á helmingi allra löggiltra iðn- greina í Þýskalandi. Afleiðingin var faglegt hrun. Gríðarlega mikil fag- þekking er að tapast, kostnaður sam- félagsins af mistökum, gjaldþrotum og kærumálum hefur margfaldast og ungt fólk sér ekki lengur tilgang með að læra þessar greinar. Ástæða af- námsins var krafa Evrópusambands- ins um aukið frjálst flæði vinnuafls á innri markaði sínum. Hafa samtök iðnaðarmanna í Þýskalandi staðið fyrir mikilli herferð sem nefnist „Ja Zum Meister“ til stuðnings meist- arakerfinu. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gaf út þá yf- irlýsingu á dögunum að ekki yrði frekar hreyft við meistarakerfinu. Má líta á það sem viðurkenningu á fyrri mistökum. Undarleg samsvörun Hinn 9. desember sl. kom svo út enn ein langlokan frá Viðskiptaráði en nú í beinni samvinnu við Samtök iðnaðarins. Nefnist hún „Af hverju er dýrt að byggja?“ Þar eru settar fram margar og misgáfulegar tillögur að lækkun byggingarkostnaðar. Sú gal- nasta er líklegast að „heimila hús- byggjanda að sinna jafnframt hlut- verki byggingarstjóra í sérbýli“ og er þar með formlega lagt til að iðnmeist- arar séu óþarfir. Undarleg samsvörun virðist vera með skrifum Viðskiptaráðs („Ban- vænn biti“) og orða formanns SI og framkvæmdastjórum SI og SA. Tjaldinu hefur verið svipt frá og eng- inn þarf framar að velkjast í vafa um hvar þessir sjálfskipuðu vitringar standa. Aðförin að fagmennsku kem- ur úr þeirri átt sem iðnaðarmenn áttu síst von á, úr húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35, og er runnin undan rifjum fulltrúa sérhagsmuna hjá samtökum sem þeir eiga aðild að. Samtök iðnaðarins eru gríðarlega efnislega auðug og eiga í sjóðum sín- um eitthvað á sjötta milljarð króna. Í staðinn fyrir að kynna iðnnám fyrir ungu fólki og taka upp hanskann fyr- ir iðngreinarnar á opinberum vett- vangi er tíma og peningum eytt í að- för að meistarakerfinu og lögverndun iðngreina. Félög iðnmeistara geta vart átt lengur samleið með sam- tökum sem hafa brugðist trausti þeirra með svona grófum vinnu- brögðum þar sem farið er á bak við félög iðnmeistara og félagsmenn þeirra. Afnám lögverndunar iðn- greina yrði mikil afturför frá því sem þjóðin hefur búið við og hefur reynst vel síðustu áratugi. Mælirinn er full- ur. Sérhagsmunasamtök sýna klærnar Eftir Sigurð Má Guðjónsson og Helga Steinar Karlsson » Gríðarlega mikil fag- þekking er að tap- ast, kostnaður sam- félagsins af mistökum, gjaldþrotum og kæru- málum hefur margfald- ast. Sigurður Már Guðjónsson Sigurður Már er bakara- og köku- gerðarmeistari. Helgi Steinar er múr- arameistari. Helgi Steinar Karlsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.