Morgunblaðið - 17.12.2015, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015
Ármúla 24 • S: 585 2800Opið virka daga 9 -18, – www.rafkaup.is
FOLD veggljós frá
Hönnuður er Arik Levy
Eftir að hafa náð þeim merkaáfanga að slá Íslandsmet í fjár-
lagaumræðu og tryggt sér að það
met myndi standa um ókomna tíð lét
stjórnarandstaðan staðar numið og
leyfði að um fjár-
lagafrumvarpið
yrðu greidd atkvæði
eftir aðra umræðu.
Athygli hefurvakið í öllu
þessu málþófi og svo
í atkvæðagreiðsl-
unni í gær að Píratar
hafa í engu skorið
sig frá hinum
vinstriflokkunum.
Þeir fylgdu Sam-fylkingarflokk-
unum og Vinstri
grænum eins og skugginn í gegnum
allt málþófið svo ekki mátti á milli
sjá hverjir voru fulltrúar ferska nýja
tímans og unga fólksins og hverjir
voru steinrunnir fulltrúar gamla úr-
elta fjórflokksins.
Píratarnir ungu og fersku hafajafnvel lagt lykkju á leið sína í
atkvæðaskýringum til að verja
vinstristjórn Jóhönnu og Steingríms
og er þá langt seilst til að tryggja að
enginn haldi að þeir hafi eitthvað
nýtt fram að færa í stjórnmálum.
Það er með miklum ólíkindum aðþingmenn Pírata, sem í orði
kveðnu eru fulltrúar einhvers nýs,
sem enginn hefur að vísu enn út-
skýrt og þaðan af síður skilið hvað á
að vera, skuli elta hina vinstriflokk-
ana í öllum tillögum og atkvæða-
greiðslum fjárlaganna.
Er ekki orðið tímabært að Pírat-ar sameinist formlega
skoðanabræðrum sínum í VG og
Samfylkingu og láti af því að reyna
að rugla kjósendur með þessum nýja
belg um gamla bragðvonda sullið?
Ásta Guðrún
Helgadóttir
Skuggar vinstri-
flokkanna
STAKSTEINAR
Helgi Hrafn
Gunnarsson
Veður víða um heim 16.12., kl. 18.00
Reykjavík 2 skýjað
Bolungarvík 2 skýjað
Akureyri -7 skýjað
Nuuk -12 heiðskírt
Þórshöfn 7 alskýjað
Ósló -6 skýjað
Kaupmannahöfn 5 alskýjað
Stokkhólmur 0 skýjað
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 10 súld
Brussel 12 súld
Dublin 12 skýjað
Glasgow 11 skýjað
London 15 skýjað
París 12 skýjað
Amsterdam 12 súld
Hamborg 7 skýjað
Berlín 6 heiðskírt
Vín 4 þoka
Moskva -2 snjóél
Algarve 18 heiðskírt
Madríd 13 heiðskírt
Barcelona 16 heiðskírt
Mallorca 17 heiðskírt
Róm 12 heiðskírt
Aþena 11 skýjað
Winnipeg -6 alskýjað
Montreal 1 alskýjað
New York 10 heiðskírt
Chicago 7 skýjað
Orlando 26 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
17. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:19 15:30
ÍSAFJÖRÐUR 12:05 14:53
SIGLUFJÖRÐUR 11:50 14:34
DJÚPIVOGUR 10:57 14:50
Neytendur geta sparað sér talsverð-
ar fjárhæðir í kaupum á jólamatnum
með því að versla þar sem hann er
ódýrastur. Mikill verðmunur er á
jólamat í verðkönnun Alþýðusam-
bandsins (ASÍ) í matvöruverslunum
á höfuðborgarsvæðinu sem fór fram
14. desember síðastliðinn.
Kannað var verð á 108 algengum
vörum sem eru í boði fyrir jólahátíð-
ina. Bónus var með lægsta verðið í 50
tilvikum af 108, Krónan í 38 tilvikum
og Víðir í 12 tilvikum. Oftast var á
milli 25-50% verðmunur á hæsta og
lægsta verði en sjá mátti allt að 147%
verðmun.
Allt að 43% verðmunur var á heil-
um, frosnum kalkúni eftir verslun.
Var kílóverðið 1.185 krónur í Víði en
1.699 krónur í Iceland. Þá kostaði
KEA-hamborgarhryggur með beini
1.485 kr/kg hjá Víði, var dýrastur á
1.898 kr. hjá Samkaupum-Úrvali.
Verðmunurinn var því 28%. Hið vin-
sæla Húsavíkur hangilæri kostaði
úrbeinað 2.685 kr/kg í Víði en 4.393
kr. í Nettó og var því verðmunurinn
64%.
Mestur verðmunur reyndist vera
á ódýrustu fersku jarðarberjunum
sem fáanleg voru, en þau voru dýr-
ust á 3.740 kr/kg í Krónunni en ódýr-
ust á 1.512 kr. hjá Fjarðarkaupum.
isb@mbl.is
Mikill verðmunur á jólamatvöru
Bónus með lægsta verðið í 50 til-
vikum af 108 í verðkönnun ASÍ
Morgunblaðið/Valdís Thor
Matur Mestur verðmunur var á
ferskum jarðarberjum milli verslana.
Embætti sérstaks saksóknara hef-
ur nú lokið rannsókn á því hvort
markaðsmisnotkun hafi átt sér stað
hjá Glitni banka
fyrir hrun.
Málið hefur
verið til rann-
sóknar undan-
farin ár. Er það
nú í ákvörðunar-
ferli hjá saksókn-
ara embættisins
og kemur þá í
ljós hvort ákært
verður í málinu
eða ekki. Þetta
staðfestir Ólafur Þór Hauksson,
sérstakur saksóknari, við mbl.is.
Ólafur segir að óvíst sé hversu
langan tíma taki að fá niðurstöðu
varðandi hvort ákæra verði gefin
út eða ekki, enda geti saksóknari
óskað eftir frekari gögnum eða
rannsókn og þá geti teygst á mál-
inu.
Áður hafði sérstakur saksóknari
ákært fyrir markaðsmisnotkun hjá
bæði Landsbankanum og Kaup-
þingi. Voru flestir ákærðu sakfelld-
ir í báðum málunum í héraðsdómi
en Hæstiréttur á eftir að fjalla um
málin. thorsteinn@mbl.is
Ólafur Þór
Hauksson
Rannsókn
á Glitni
er lokið
Málið til saksóknara