Morgunblaðið - 17.12.2015, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 17.12.2015, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015 þegar þú vilt kvarts stein á borðið Blettaábyrgð Viðhaldsfrítt yfirborð Slitsterkt Bakteríuvörn Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is By Cosentino Eigum á lager Ford F350 Lariat 2016 og Dodge Ram 3500 Ford F350 2016 Lariat Dodge Ram 3500 Longhorn 2016 • Varahlutir • Sérpantanir • Aukahlutir • Bílasala • Verkstæði Umboðsaðilar BL á Selfossi IB ehf • Fossnes A • 800 Selfoss • ib.is Sími 4 80 80 80 BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf., segir það afleitt ef ekki nást samningar um þorskveiðar ís- lenskra skipa í rússneskri lög- sögu í Barents- hafi á næsta ári. „Niðurstaða við- ræðna í Moskvu í síðustu viku sýn- ir svo ekki verð- ur um villst að við þurfum að fara gætilega í utan- ríkisstjórnmál- um,“ segir Guðmundur. Þátttaka Íslands í viðskipta- þvingunum gegn Rússum leiddi til þess fyrr í ár að lokað var á inn- flutning á íslenskum sjávarafurðum til Rússlands. Á viðræðufundinum í síðustu viku var sagt að ástæða þess að ekki var gengið frá samn- ingi um veiðar í Barentshafi væru úrlausnarefni varðandi þorsk- kvótann. Það er þó tæpast langsótt að tengja þátttöku Íslendinga í þvingunaraðgerðum gagnvart Rússlandi við afstöðu Rússa. Bannið hefur þegar valdið miklu tjóni „Við höfum séð að þessar stór- þjóðir, sem við erum í samstarfi með eiga allar í viðskiptum við Rússland,“ segir Guðmundur. „Menn þurfa að hafa heildarmynd- ina í huga þegar stigið er niður og fara gætilega. Framundan er frysting á loðnu og í því dæmi skiptir gífurlegu máli að við töpum ekki Rússlandsmark- aði, sem við höfum byggt upp í marga áratugi. Fyrirtæki í sjávar- útvegi eru sem betur fer sterk og hafa leitað annarra markaða, en þetta er grafalvarleg staða og bannið hefur þegar valdið miklu tjóni. Það er ekki skynsamlegt fyrir Ís- land að vera á þessum lista og það hefur í sjálfu sér ekkert með mann- réttindi að gera. Það sést best á því að stórþjóðirnar sem stjórna þessu öllu hafa komið ár sinni þannig fyr- ir borð að þær skaðast ekkert af þessum viðskiptaþvingunum gagn- vart Rússum.“ Launatekjur og skattar Guðmundur áætlar að um 13% af tekjum Brims á þessu ári séu af veiðum í lögsögu Rússa í Barents- hafi. Af heildarframlegð fyrirtæk- isins hafi þessar veiðar skilað um 7%, því hluti aflaheimilda er keypt- ur. „Veiðarnar hafa hins vegar skapað gríðarlegar launatekjur fyr- ir starfsmenn fyrirtækisins og þá um leið skatttekjur fyrir ríki og sveitarfélög. Þessir aðilar tapa langmestu ef ekki verður samið um veiðar í Barentshafi,“ segir Guð- mundur. Ljósmynd/Bragi Ragnarsson Kleifaberg RE-70 Í mörg ár hefur skipið verið meðal aflahæstu skipa og stór hluti aflans verið sóttur í Barentshaf. Ekki skynsamlegt að vera á þessum lista  Afleitt ef ekki nást samningar við Rússa um þorskveiðar í Barentshafi  Menn þurfa að hafa heildarmyndina í huga Guðmundur Kristjánsson Ljósmynd/Bjarni Þór Hjaltason Mesta birta Myrkur er stærstan hluta sólarhringsins í Barentshafinu í des- ember. Í gær var Kleifabergið út af Tromsö og var dagsskíma í 2-3 stundir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.