Morgunblaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015
MENN I N G A R S Ö GU L E G G E R S EM I
„Þessi merka bók, Listamaður á söguslóðum, um ferðir og vinnu [danska
listamannsins] Johannesar Larsens á Íslandi, er afar falleg, læsileg og
opnar fyrir lesandanum forvitnilega heima sem tengjast fornsögunum,
bókmenntunum og myndlist. Þetta er menningarsöguleg gersemi. [...]
[Myndirnar] eru skýrar og tærar, njóta sín vel í þessu stóra broti, á þykk-
um og góðum pappírnum. Frásögnin af ferðum Johannesar Larsen um
landið er heillandi og tekst Nørgaard Nielsen á aðdáunarverðan hátt að
drífa lesandann með í ferðalagið...“
Einar Falur Ingólfsson,
Morgunblaðinu
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Líklegt er að frystitogarinn Kleifa-
berg verði það fiskskip í íslenska flot-
anum sem komi með mest aflaverð-
mæti að landi á þessu ári.
Uppsjávarskipin þá ekki undan-
skilin! Aflaverðmæti skipsins verður
nálægt 3,7 milljörðum króna og lætur
því nærri að á hverjum degi ársins
hafi fiskast fyrir 10 milljónir króna.
Alls er aflinn í ár um 11 þúsund
tonn af bolfiski upp úr sjó og er það
þriðja árið í röð sem skipið kemur
með svo mikinn afla að landi. Kleifa-
bergið er nú á heimleið úr Barents-
hafi og er áætlað að skipið verði í
höfn á sunnudag.
Skipið hélt áleiðis á miðin í rúss-
neskri lögsögu í lok október og var
tregur afli lengst af. Góður kafli í lok
nóvember þegar mokveiddist bjarg-
aði túrnum og kvótinn náðist um
helgina. Millilandað var í Baatsfjord
eftir 40 daga og skipt um áhöfn, en 26
manns eru um borð hverju sinni. Alls
veiddust um 1.100 tonn í túrnum og
við tekur kærkomið jólafrí, en veiðar
í úthafinu krefjast mikillar vinnu og
langra fjarvista.
Fór að dimma um hádegi
Fimm sólarhringa sigling er af
miðunum og um hádegi í gær var
skipið statt norðaustur af Tromsö.
Skarphéðinn Gíslason er með skipið í
þessum túr, en Víðir Jónsson og Árni
Gunnólfsson eru annars skipstjórar á
Kleifaberginu.
Skarphéðinn sagði að í gærmorg-
un hefði verið aðeins skíma, en aftur
var farið að dimma undir hádegi.
Myrkur er á þessum slóðum stærst-
an hluta sólarhringsins á þessum
árstíma. Tveir togarar HB Granda,
Þerney og Örfirisey, voru í gær um
það bil að leggja af stað heimleiðis úr
Barentshafinu.
Í ár hefur Kleifabergið sótt um
60% af afla sínum í lögsögu annarra
ríkja. Í norskri lögsögu hefur verið
veitt fyrir um 500 milljónir króna og
14-1500 milljónir í rússneskri lög-
sögu, en þar þarf að greiða fyrir
veiðiheimildir að hluta. Á Íslands-
miðum hefur mikið verið veitt af
ufsa. „Það yrði stór biti fyrir okkur
ef ekki nást samningar um veiðar í
Barentshafinu á næsta ári,“ sagði
Skarphéðinn skipstjóri í gær.
Margir samverkandi þættir
Guðmundur Kristjánsson, for-
stjóri Brims hf, segir að margir sam-
verkandi þættir hjálpist að til að
gera Kleifabergið að einstöku afla-
skipi ár eftir ár. „Um borð er af-
bragðsáhöfn 52 þrautþjálfaðra sjó-
manna sem flestir eru með áratuga-
reynslu, góð útgerðarstjórn í landi,
gott viðhald á skipinu og við höfum
síðan reynt að tryggja skipinu næg-
ar aflaheimildir. Það er ekki tilviljun
að Kleifabergið hefur í mörg ár verið
í fremstu röð,“ segir Guðmundur, en
Kleifabergið hefur það sem af er öld-
inni veitt um 120 þúsund tonn af bol-
fiski. Skipið var smíðað 1974.
Hann segir að það sé miður að
menn hafi í mörg ár talað útgerð
frystiskipa niður. „Frystitogara-
útgerð hefur síðustu ár legið undir
stöðugum árásum. Það er eitt að
leggja há eða lág veiðigjöld á grein-
ina, en annað að með ósanngjörnum
veiðigjöldum er verið að eyðileggja
rekstrargrundvöll frystitogaranna,“
segir Guðmundur.
Fiskað fyrir 10 milljónir á dag
Kleifabergið með 11 þúsund tonn á árinu og aflaverðmætið 3,7 milljarðar Meira aflaverðmæti
en á uppsjávarskipunum 60% af aflanum sótt í lögsögu annarra ríkja Í fremstu röð í mörg ár
Jólalegt Búið var að skreyta borðsalinn á Kleifaberginu er skipverjar gerðu sér dagamun í hádeginu í gær og
snæddu jólamat. Frá vinstri eru Skarphéðinn Gíslason skipstjóri, Bjarni Þór Hjaltason, Ríkharð Lúðvíksson, Guð-
mundur Árni Hannesson, Garðar Guðmundsson, Víðir Björnsson og Steinar Erlendsson.