Morgunblaðið - 17.12.2015, Side 24

Morgunblaðið - 17.12.2015, Side 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015 Jóla dagar LÁGMÚLA 8 SÍMI 530 2800 Átta bolla pressukanna og hitakanna í senn. Gott úrval af pressukönnum og ferðabollum sem halda heitu. kr. 12.490,- Afkastamiklar og endingagóðar kaffivélar til heimilisnota. kr. 69.900,- Koparinn er sígildur enda er koparlitaða pressukannan vinsæl. kr. 9.900,-  Expresso- kaffivél, hálfsjálfvirk. Einfaldur og tvöfaldur skammtari. Frábært verð: kr. 14.900,- Favola kaffivélin frá AEG á sér marga aðdáendur enda er Lavazza kaffi í hylkjunum. kr. 29.900,- Kaffivélin sem sýður vatnið. Til í nokkrum litum. kr. 19.900,- kr. 5.990,- Þessi klassíska frá AEG, endingargóð fyrir þá sem vilja það einfalt. Brynjar Níelsson þingmaður skrifar grein í laugardagsblað Morgunblaðsins og ger- ir athugasemdir við málflutning minn á Al- þingi um Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og aðkomu heilbrigð- isráðherra að henni. Brynjar tínir sitthvað fleira til en staðnæmist sérstaklega við þá stað- reynd að ég hafi sagt Odd Stein- arsson, lækningaforstjóra Heilsu- gæslunnar, ráðinn af heilbrigðis- ráðherra. Hið rétta er að þótt Heilsugæslan heyri undir ráðherra þá er það for- stjóri hennar sem ræður lækninga- forstjórann en ekki ráðherrann. Þetta er rétt ábending hjá Brynjari svo og hitt að ég titlaði lækninga- forstjórann ekki með réttum hætti í umræðu á Alþingi. Rétt skal vera rétt Ég biðst velvirðingar á þessu, þótt þetta hafi ekki snert kjarnann í málflutningi mínum eins og ég mun hér gera grein fyrir. En rétt skal vera rétt og mikilvægt er að leið- rétta allar rangfærslur, óháð því hvort þær eru notaðar eins og Brynjar Níelsson gerir, til að ýja að því að undirritaður hljóti að vera ómerkingur um allt sem frá honum kemur fyrst hann misfari með stað- reynd í „einföldu máli“. Tilefnið var að á Alþingi hafði ég kvatt mér hljóðs í kjölfar þess að Fréttablaðið birti flennifrétt um að til stæði að taka upp nýtt greiðslu- kerfi innan Heilsugæslunnar á höf- uðborgarsvæðinu sem greiddi götu samkeppnisrekstrar undir forsjá Samkeppniseftirlitsins líkt og hinn nýi lækningaforstjóri hafði talað fyrir þegar hann hlaut ráðningu í lok síðasta árs. Samræmt göngulag Á fréttinni var að skilja að nú væri draumsýnin að rætast því vitnað var í Pál Gunnar Pálsson, for- stjóra Samkeppniseft- irlitsins, þar sem hann fagnaði fyrirhuguðum nýjum „samkeppnis- hvötum“ í heilbrigðisþjónustunni. Kristján Þór Júlíusson heilbrigð- isráðherra hafði áður sagt í sjón- varpsfréttum að nú væri stefnt að kerfisbreytingum innan heilbrigð- isþjónustunnar í þessa veru. Þær byggðust á því að fjármagn fylgdi sjúklingi. Vísaði ég til þess í orðum mínum á Alþingi að þarna væri augljóslega um samræmt göngulag að ræða, forstjórans og ráðherrans, og hvatti til þess að fyrirhugaðar kerfisbreyt- ingar fengju ítarlega opinbera um- ræðu áður en lengra yrði haldið. Tölum skýrt Í mínum huga er mjög mikilvægt að umræðan verði skýr og nákvæm því auðvelt er að afvegaleiða hana. Því miður eru talsverð brögð að slíku enda markaðsvæðing heil- brigðiskerfisins algerlega á skjön við þjóðarvilja eins hann ítrekað hefur birst í skoðanakönnunum. Nú er það svo að augljóslega þarf að skipuleggja framlög til heilbrigð- isþjónustunnar í samræmi við verk- efni og þar með eftirspurn og í því samhengi mætti til sanns vegar færa að fjármagnið fylgdi sjúkling- um. Ef þessu væri hins vegar fylgt, hefði framlag til Landspítalans þurft að hækka um tæpan milljarð til að svara auknum fjölda sem til sjúkrahússins leitar. Nemur árleg aukning tæpum tveimur prósentum að sögn stjórnenda spítalans vegna fjölgunar og öldrunar þjóðarinnar. Að sama skapi væri framlagið til Heilsugæslunnar mun hærra en raun ber vitni, þ.e. ef fjárveitingar væru í samræmi við verkefni og þörf. En á sama tíma og hækkanir fjár- veitinga til opinberu þjónustunnar hafa látið á sér standa gengur greiðlega að hækka og leiðrétta framlag til einkareknu þjónust- unnar. Bæði í fjáraukalögum og með varanlegum hætti í fjárlaga- frumvarpi 2016 er gert ráð fyrir við- bótarfjármagni að upphæð sem nemur 1,2 milljörðum króna til einkarekinnar heilbrigðisþjónustu vegna samninga við sjálfstætt starf- andi lækna en hins vegar er ekki orðið við sambærilegri bón frá Landspítalanum vegna kostn- aðarsamra kjarasamninga þar á bæ! Í framhaldi verður auðvelt að segja, sjáið hvað einkareknu stöðv- arnar standa sig vel en hinar illa. Síðan mun spírallinn vinda upp á sig, opinberri þjónustu gert ókleift að anna eftirspurn og fjármagnið síðan látið streyma til einkarekst- ursins sem hefur fríar hendur til að haga sér eins og einkafyrirtæki. Og fyrir þau sem ímynda sér að sambandsleysi sé á milli ráðherra og kerfisbreytingamanna í heilsu- gæslunni þá er gert ráð fyrir 70 milljónum á næsta ári til húsaleigu undir þennan nýja rekstur. Í framhaldinu spyr ég hvort stjórnendur Heilsugæslunnar á höf- uðborgarsvæðinu séu ekki ráðnir til að gæta hennar sérstaklega en ekki til að grafa undan henni með því að hola hana að innan? Einnota útboð Ég er þeirrar skoðunar að útboð heilsugæslustöðva sé skammgóður vermir fyrir þá sem vilja markaðs- væðingu. Útboð gæti vissulega virk- að einu sinni en ólíklegt er að þeir rekstraraðilar sem kynnu að fá reksturinn í hendur í gegnum slíkt útboð myndu síðar missa hann á út- boðsmarkaði þótt aðrir kostir byð- ust. Ólíklegt má heita að markaður myndist á milli lækninga- og rekstr- arteyma heilsugæslustöðva. Þegar tengsl hafa myndast við samfélagið sem heilbrigðisstofnun þjónar er erfitt að rjúfa þau auk þess er lík- legt að vegna samstöðu og sam- tryggingar innan geirans myndi slíkur markaður aldrei myndast á þennan hátt. Mér býður í grun að þegar reksturinn er kominn á einn stað þá sé hann kominn til að vera. Veikleikar boðaðra kerfisbreytinga Þetta þýðir að samkeppnin sem sóst er eftir hljóti að vera á milli einstakra lækna annars vegar, sem menn sjá fyrir sér keppa um „kúnna“ á grundvelli verðlags, og síðan hitt að heilbrigðisstofnanir komi til með að keppast um að fá til sín sjúklinga samkvæmt formúlu Miltons Freedmans: Fjármagnið fylgi sjúklingi. Þar sem þetta fyrirkomulag hefur verið reynt hafa komið fram miklir veikleikar. Hinar dreifðustu byggðir hafa reynst lítt eftirsóknarverð mið að róa á og hverfi í þéttbýli sem byggð eru tekjulitlu fólki hafa ekki heldur reynst eftirsóknarverð af ýmsum ástæðum, einkum fé- lagslegum. Þörf á samstarfi og samræmingu Í heilbrigðisþjónustunni er taka- markað fjármagn. Menn reyna að verja því þannig að sem mest fáist fyrir hverja krónu. Þetta kallar á samstarf og samhæfingu. Það sem gerist þegar markaðslögmálin eru virkjuð undir formerkjunum, fjár- magn fylgi sjúklingi, er að veit- endur þjónustunnar taka völdin og stýra því hvernig kerfið þróast. Fyrst um sinn mun skattgreiðand- inn standa straum af kostnaðinum með svipuðum hætti og nú – eða þangað til farið verður að „heimila“ að smyrja ofan á ríkisframlagið. Grunnhugsunin er hins vegar sú á þessu stigi, að hið opinbera borgi allt. Eftir að kerfisbreytingarnar sem byggðu á því að fjármagn fylgi sjúk- lingi hefðu náð fram að ganga alls staðar í kerfinu, myndu heilbrigð- isstofnanir líkt og einkaaðilar sækj- ast eftir því að fá „kúnna“ sem gefa vel af sér; sjúklinga sem hægt er að lækna eða veita aðhlynningu eftir atvikum, á auðveldan hátt og í „miklu magni“. Margir læknar hafa látið blekkj- ast af fagurgala frjálshyggjunnar og hafa trúað því að fyrir tilstilli henn- ar muni hagur þeirra vænkast. Framkvæmd þessarar stefnu hefur þó vafist fyrir fjölmennari þjóðum en Íslendingum og hafa þær þjóðir sem þetta hafa reynt, fengið að kynnast því að veruleikinn er iðu- lega annar en kenningin og að þeg- ar upp er staðið skilar þetta fyrir- komulag ómarkvissu og dýru kerfi. Heilsugæslan á leið inn á markaðstorgið Eftir Ögmund Jónasson » Síðan mun spírallinn vinda upp á sig, op- inberri þjónustu gert ókleift að anna eft- irspurn og fjármagnið síðan látið streyma til einkarekstursins. Ögmundur Jónasson Höfundur er fyrrverandi heilbrigðisráðherra. Í sjónvarpsfréttum þann 10. þ.m. var rætt við einhvern framá- mann í læknastætt. Hann deildi á viljaleysi stjórnvalda til að veita fjármagn úr yfirfullum kassa skattgreiðenda til heilbrigðismála. Hann benti réttilega á, að heilbrigðiskerfið þyrfti meiri peninga til að standa undir launa- hækkunum lækna, sem þeim tókst að knýja fram með siðlausum hót- unum. Muni ég rétt, var þessi sami maður nokkuð oft í fjöl- miðlum, þegar deilan um laun lækna stóð sem hæst, og þá voru ekki sparaðar hótanir um, að læknar færu úr landi til sæluríkja, sem greiddu þeim meiri peninga. Eitthvað þótti mér þá djúpt á siðferði lækna. Af ótta við þessar hótanir var gengið að kröfum lækna. Ekki var vit í því, og þótti þá mörgum rétt að segja þeim læknum að fara, sem vildu heldur sænska peninga fyrir störf sín, og treysta á siðferði hinna. Nú kemur þessi framámaður í læknastétt fram í sjónvarpi og segir okkur, að fjárhagsvandi heilbrigðis- kerfisins stafi m.a. af því, að lækn- um tókst að hræða yfirvöld til að lofa þeim meiri peningum. Er ekki rétt, að maðurinn líti í eigin barm, þegar hann bendir á örsök vand- ans? Má ekki leysa þennan þátt í fjárhagsvanda spítalans með því, að læknar skili aftur þeim launahækk- unum, sem þeir hræddu út úr þjóð- inni? Annar læknir starfar hjá risafyr- irtæki á nokkuð góðum launum og hefur nú rekið það með miklu tapi í áratugi. Hann er svo snjall í við- skiptum, að honum hefur tekist að halda þessu fyrirtæki gangandi í áratugi, án þess að það verði gjald- þrota. Nú hótar hann stjórnvöldum, að hann ætli að koma þeim frá völd- um með stuðningi hins opna lýð- ræðis, ef heilbrigðiskerfið fær ekki meira fé til að standa undir pen- ingum til lækna, sem þessi stjórn- völd voru hrædd til að samþykkja. Nú er rétt, að þessi stóri maður taki við stjórn Landspítalans og reki hann með þeim töfrabrögðum, sem hann hefur beitt við rekstur síns risafyrirtækis. Sjálfsagt verður honum ekki skotaskuld úr því að út- vega spítalanum það fjármagn, sem þarf, frá þeim, sem hafa haldið lífi í fyrirtæki hans hingað til. Rétt er, að hann gefi stjórnvöld- um að öðru leyti frið til að vinna þau verk, sem þeim hefur verið falið að vinna af íbúum landsins í lýðræðislegum kosningum. Læknasiðferði Eftir Axel Kristjánsson »Má ekki leysa þenn- an þátt í fjárhags- vanda spítalans með því, að læknar skili aftur þeim launahækkunum, sem þeir hræddu út úr þjóðinni? Axel Kristjánsson Höfundur er lögmaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.