Morgunblaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015 ✝ Þórir JóhannAxelsson fædd- ist í Reykjavík 23. janúar 1943. Hann lést á hjartaskurð- deild Landspítal- ans í Reykjavík 9. desember 2015. Foreldrar hans voru Oddfríður Ragnheiður Jóns- dóttir, f. 25. júní 1913 á Efri-Núpum í Fremri-Torfustaðahreppi, Vestur-Húnavatnssýslu, d. 12. september 1997, og Axel Guð- mundsson, f. 15. júní 1905 í Knarrarhöfn í Hvammshreppi, Dalasýslu, d. 1. janúar 1971. Bræður Þóris eru Jón Guðmundur Axelsson, f. 13. nóvember 1932, d. 8. desember 1982, og Arnar Axelsson, f. 30. apríl 1941. Fyrri eiginkona Þóris er Hanna Rún Guðmundsdóttir, f. Seinni eiginkona Þóris er Hjördís Jónsdóttir, f. 14. júlí 1945. Þau skildu. Foreldrar hennar voru Jón Einar Jónsson og Ingibjörg Jónsdóttir. Sonur þeirra er 4) Axel Þórir Þóris- son, f. 29. janúar 1980, í sam- búð með Veru Dögg Antons- dóttur, f. 11. nóvember 1987. Sonur þeirra er Anton Axel, f. 2013. Fyrir átti Hjördís tvö börn, Pál Sigurðsson, f. 19. apr- íl 1966, og Ingibjörgu Sigríði Sigurðardóttur, f. 25. janúar 1969. Þórir Jóhann var alinn upp í Vesturbænum og lauk gagn- fræðaprófi frá Vesturbæjar- skóla. Hann byrjaði ungur til sjós og lauk farmannaprófi frá Sjómannaskólanum árið 1965. Þórir vann til sjós mestan hluta ævi sinnar. Á ferlinum starfaði hann lengst af hjá Rík- isskipum, en einnig hjá Hafskipum og Landhelgis- gæslunni. Eftir að hann hætti sjómennsku starfaði hann hjá Reykjavíkurborg. Útför Þóris Jóhanns fer fram frá Langholtskirkju í dag, 17. desember 2015, og hefst at- höfnin klukkan 15. 26. ágúst 1941. Þau skildu. For- eldrar hennar voru Guðmundur Jón- asson og Guðbjörg Þórðardóttir. Dætur þeirra eru 1) Guðbjörg Þórisdóttir, f. 2. maí 1967, gift Ing- ólfi Guðjónssyni, f. 17. september 1967. Börn þeirra eru Hanna Rún, f. 1989, Val- gerður, f. 1994, og Ólafur Þór, f. 1997. 2) Oddfríður Ragnheiður Þórisdóttir, f. 25. júlí 1969, gift Aleksandar Knezevic, f. 12. október 1975. Dóttir þeirra er Aleksandra Sól, f. 2013. 3) Þórdís Rún Þórisdóttir, f. 3. ágúst 1970. Fyrrverandi sambýlismaður er Skúli Þor- kelsson, f. 28. maí 1957. Sonur þeirra er Þorkell, f. 2001. Elsku pabbi minn, mikið var það sárt að fá símtalið á mið- vikudagskvöld um að þú værir dáinn. Ég var nýkominn heim eftir heimsókn til þín á Landspít- alann fyrr um daginn. Ekki óraði mig fyrir því að fjórum tímum seinna yrðir þú búinn að kveðja þennan heim. Þennan dag áttum við yndislega stund saman, það var grínast, hlegið og gert grín að tækjum og rörum sem þú varst tengdur í. Þú varst léttur í lundu og ég var fullviss um að þú myndir ná þér og koma til Stykkishólms og vera hjá okkur um jólin, líkt og þú gerðir síðustu jól þegar við vorum á Blönduósi. Þó að ég hafi ekki náð að kveðja þig er ég mjög þakklátur fyrir þessa stund. Á barnsárum mínum slitnaði samband okkar vegna hjóna- bandsskilnaðar en leiðir okkar lágu aftur saman seinna meir og mun ég ætíð geyma þær minn- ingar sem við áttum í hjarta mínu. Fyrsta minning mín af þér er í brúnni á Esjunni, en þar varstu á heimavelli sem stýri- maður og skipstjóri hjá Ríkis- skipum og þóttir afar fær sem slíkur. Þegar leiðir okkar lágu svo aftur saman fórum við á Harlem Globetrotters-sýningu og sáum Ace Ventura í bíó, sem þú hlóst nú minna að en ég gerði, og ég gat alltaf leitað til þín með hvað sem er, stórt sem smátt. Seinna voru heimsóknir þínar til mín erlendis þar sem ég var við nám og sérstaklega við útskrift mína. Þá varstu sjálfur nýút- skrifaður af spítala eftir mjaðmarbrot og mjög þjáður en þú tókst ekki í mál að missa af henni. Þú sökktir þér í skipamódel- smíði enda voru skip ær þínar og kýr. Fyrst var dráttarbáturinn Smit Rotterdam smíðaður og síðan ákvaðstu að ráðast í smíði á gömlu Esjunni, því skipi sem þér þótti vænst um, og fékkstu upprunalegar teikningar og lést smækka niður í módelstærð. Við tók margra tíma þolinmæðis- vinna við smíði og ef þú varst ekki sáttur byrjaðir þú aftur og hættir ekki fyrr en allt var full- komið, enda þekktir þú hvern krók og kima á Esjunni. Ég kom reglulega til þín í mat og var mikið uppáhald hjá okkur að steikja rauðsprettu með sítrónupipar, mikið af sítrónu- pipar. Einnig kenndir þú mér að borða skötu á Þorláksmessu og á ég eftir að sakna þeirrar hefðar mikið að koma heim til þín í fata- lörfum sem máttu anga af lykt- inni og borða skötu sem varð helst að vera það kæst að við ættum í erfiðleikum með að ná andanum við átið. 2013 eignaðist þú afastrák sem sér vart sólina fyrir þér. Hvert skipti sem dyrabjallan glymur þá kallar hann afi afi og hleypur til dyra til að taka á móti þér. Þið eruð báðir miklir sæl- kerar og eru stundirnar ófáar sem þið áttuð saman í sófanum heima með ís í hendi að horfa á fréttir. Þegar hann kom svo í heimsókn til þín var ísköld mjólk og kex í miklu uppáhaldi hjá honum og svo læddist nú stöku súkkulaði upp í drenginn og það leiðist honum ekki. Elsku pabbi minn, mikið sem ég sakna þín og þeirra tíma sem við áttum saman. Ég mun ætíð minnast þín sem góðs pabba, góðs afa og síðast en ekki síst góðs vinar sem ég gat alltaf leit- að til og mun Anton Axel fá að heyra ævintýrasögur afa síns af sjónum frá mér þegar hann hef- ur aldur til. Þinn sonur, Axel Þórir Þórisson. Elsku pabbi, við áttum ekki von á því að skrifa hinstu orðin um þig í jólaundirbúningnum. Jólin áttu að snúast um að gleðj- ast og eyða tíma saman. Þú áttir eftir að gera svo margt. Ekkert okkar var undir þetta búið en við sitjum eftir með góðar minning- ar um þig. Sjómennskan átti hug þinn, 16 ára fórstu þína fyrstu ferð og þá var ekki aftur snúið. Þar unnir þú þér best, varst mjög fær í þínu starfi og farsæll á sjó. Þær voru ófáar ferðirnar sem við fór- um með þér á strandferðaskip- unum og voru þessar ferðir mik- ið tilhlökkunarefni. Þar var stjanað við okkur og við fengum tækifæri til að eyða tíma með þér þar sem þú varst í essinu þínu. Sjómennskunni lauk en þráin eftir sjónum minnkaði aldrei og fórst þú margar ferðir niður á bryggju og fylgdist með lífinu þar og hafðir gaman af. Flökkueðlið var ríkt í þér og naust þess að sjá nýja staði bæði í siglingum og ferðalögum. Það var alltaf gaman að fá þig í heim- sókn til Ameríku þar sem þú keyrðir landið þvert og endi- langt. Hápunktur einnar þeirra var heimsókn til Nashville og að sjálfsögðu með stoppi á heimili átrúnaðargoðs þíns Elvis Pres- ley. Þú ljómaðir þegar þú sagðir okkur allt um þá heimsókn og greinilega gat fátt annað toppað þetta. Þó að líf þitt hafi ekki alltaf verið dans á rósum og áföll sem þú upplifðir gert þér erfitt fyrir barst þú harm þinn í hljóði. Þú háðir baráttu við áfengi sem stal þér frá okkur og frá sjálfum þér. Aldrei gafstu upp og leitaðir þér ávallt hjálpar. Sum tímabil voru ekki auðveld en alltaf tókst þér að rétta úr kútnum og með góðri aðstoð að læra að lifa með þess- um sjúkdómi, njóta lífsins og vera þú sjálfur. Það var aðdáun- arvert að sjá hversu staðráðinn þú varst í því að miðla reynslu þinni til annarra og gefa þeim tækifæri til að læra af þínum mistökum. Þú talaðir aldrei mik- ið um þetta; við vissum að þegar þú bankaðir upp á hjá okkur og baðst um pössun fyrir Eros vær- ir þú að fara á fund. Sagðist þurfa að mæta tímanlega til að allir fengju kaffi og allt væri tilbúið fyrir fundinn. Þar eign- aðist þú góða vini sem hafa fylgt þér í gegnum lífið og reynst þér vel. Við eigum eftir að sakna þess að heyra þig ekki banka upp á í kaffi með Eros félaga þinn eða fá leyfi til að nota bílskúrinn til að mála eða bóna bílinn. Hlæja með þér að uppákomum yngstu barnabarnanna og leiðbeina þeim eldri um umhirðu bíla. Handlaginn varstu og vandvirk- ur og gaman að fylgjast með þér vinna og nutum við þess óspart þegar kom að því að mála heimili okkar. Ekki var málningarsletta á fötunum þó að þú værir búinn að mála heila íbúð. En handlagni þín kom best í ljós við módel- smíðar á skipum. Þar týndir þú þér klukkustundum saman í því- líkri smámunasemi að okkur stóð ekki á sama. Heimilinu var um- turnaði í verkstæði en þú hlóst bara að afskiptasemi okkar. Handverk þitt var aðdáunarvert og gaman að sjá hversu stoltur þú varst þegar aðrir dáðust að því. Áhugi þinn á skipum skein þar í gegn og fyrirmyndirnar skýrar í kollinum á þér. Það er margt sem kemur upp í hugann en í dag kveðjum við þig með söknuði og höfum áhyggjur af því hver geti klárað síðasta skipið þitt. Það verður erfitt að klára það án þín en við vitum að þið Jón frændi fylgist vel með. Hvíldu í friði, elsku pabbi, og við þökkum fyrir þann góða tíma sem við áttum með þér. Guðbjörg, Ragnheiður og fjölskyldur. Elsku Þórir minn. Þegar ég hugsa til þín fyllist ég þakklæti fyrir þau ár sem við áttum sam- an, sá tími er mér afar dýrmæt- ur. Ég mun halda minningunni um þig á lofti með litla afa- stráknum þínum sem fannst ekk- ert skemmtilegra en að fá afa Þóri í heimsókn. Ég mun sakna þess að heyra sögurnar þínar, þú sagðir alltaf svo skemmtilega frá, og að borða hjá þér heimsins bestu rauðsprettu. Mig langar til þess að minnast þín með litlu ljóði: Sár þykir mér hinsta kveðja, þung er byrði saknaðar. Minningar hjörtu okkar seðja. Hjálplegur, hlýr, maður jafnaðar. Allt það góða sem barst þú að geyma, galgopi sem glotti í annað. Siglir með Eros um nýja heima, sægræn höfin saman getið kannað. Nú vegi skilur að sinni, bið ég góðan Guð þig að geyma. Ávallt þú lifir í mínu minni, þakklæti um hjarta mitt ætíð mun streyma. Þín vinkona og tengdadóttir, Vera Dögg Antonsdóttir. Elsku afi Þórir, við trúum því ekki að við sitjum hér og skrifum þessi orð um þig. Þú varst tekinn mjög snögglega frá okkur og það er erfitt að sætta sig við að þú sért farinn. Þinna krafta hefur verið beðið á betri stað og þá sérstaklega handlagni þinnar. Við munum aldrei gleyma þeirri unun sem þú hafðir af því að gera módelin af skipunum þínum og þá sérstaklega Esjunni sem þú varst svo stoltur af. Líka munum við eftir tímanum sem þú eyddir í sumar úti í skúr hjá Ragnheiði frænku við að dytta að bílnum þínum og bóna hann og gera hann fínan. Þú varst allt- af svo góður við okkur krakkana og við munum eftir ótal mörgum skiptum sem við fengum að fara með þér í vinnuna á okkar yngri árum. Það var alltaf mjög spenn- andi að fá að fara í vinnuna með afa Þóri. Á Þorláksmessukvöld var iðulega komið við hjá þér í vinnunni áður en við fórum í bæ- inn. Takk fyrir allar góðu stund- irnar sem við áttum saman og guð geymi þig, elsku afi. Hanna Rún og Valgerður. Í dag kveðjum við afa Þóri. Hann var yndislegur maður og er ég þakklátur fyrir allan þann tíma sem ég átti með honum. Hann sagði mér margar skemmtilegar sögur af sjónum, en þar naut hann sín vel. Afi hafði mjög gaman af því að þrífa og bóna bílinn sinn. Síðastliðið sumar var hann að bóna bílinn í skúrnum og ég ætlaði að skola af mínum bíl. Afi tók ekki annað í mál en að bóna bílinn minn líka. Það var á þessum degi sem ég lærði að bóna bíl vel og vandlega og var það honum afa að þakka. Ég, mamma og afi fórum öll saman til Flórída þegar ég var lítill og hugsa ég oft um þessa skemmtilegu ferð okkar saman. Við afi brölluðum margt í þessari ferð og höfðum gaman af því að rifja hana upp. Ég hugsa með hlýju til afa og finnst heiður að vera skírður í höfuðið á honum. Hvíldu í friði, elsku afi. Þinn Ólafur Þór. Þórir Jóhann Axelsson gerði fyrir þig. Þú hafðir meiri áhyggjur af öðrum í kringum þig sem voru að glíma við veikindi í staðinn fyrir að vera með áhyggj- ur af þínum eigin veikindum, svona karakter varstu. Þú ætl- aðir þér að berjast við krabbann og þú gerðir það en hafðir ekki vinninginn í þeirri baráttu. Þú vannst samt ákveðnar baráttur við krabbann á þessum stutta tíma eins og þegar þú fékkst lungnabólguna og þú gjörsam- lega reist upp frá dauðum eins og ég kýs að orða það. Það var alveg ótrúlegt að fylgjast með þér og þínu viðhorfi og ég er viss um að það hafi hjálpað þér mikið. Þú varst engin venjuleg amma. Þú varst mögnuð kona, gast allt sem þú ætlaðir þér og lést fátt stoppa þig. Þér var svo margt til lista lagt í gegnum tíðina, þú föndr- aðir, smíðaðir, saumaðir, prjón- aðir, hnýttir flugur, skarst út og fleira. Allt sem þú gerðir var gert af mikilli nákvæmni og vand- virkni. Þú áttir mörg áhugamál í gegnum tíðina og þú sinntir þeim af alhug. Stærst þessara áhuga- mála var sjóstangveiðin en þú varst alveg rosalega fiskin og vannst þú ófáa titlana á sjóstang- veiðimótunum meðal annars Ís- landsmeistaratitil og Evrópu- meistaratitil. Þú varst rík kona, áttir fjögur myndarleg börn, ell- efu barnabörn og 5 langömmu- börn. Það var þér mikið hjartans mál að þú myndir lifa til að sjá litlu tvíburana sem áttu að fæð- ast í janúar, en þau fæddust tæp- um 10 vikum fyrir tímann sem varð til þess að þú fékkst að sjá þau áður en þú kvaddir, það hef- ur greinilega átt að gerast. Þú náðir einnig að gera marga hluti sem þú vildir gera á síðustu mán- uðum lífs þíns og ég er svo ánægð með að þú slóst ekki slöku við í þann tíma sem þú hafðir, þú nýtt- ir hann til fulls og naust þín með fjölskyldu og vinum. Við höfði lútum í sorg og harmi og hrygg við strjúkum burt tárin af hvarmi. Nú stórt er skarð í líf okkar sorfið því Með ástúð og kærleik þú allt að þér vafðir og ætíð tíma fyrir okkur þú hafðir þótt móðuna miklu þú farin sért yfir þá alltaf í huga okkar myndin þín lifir. Við kveðjum þig, amma, með söknuð í hjarta, en minning um faðmlag og brosið þitt bjarta. Allar liðnar stundir um þig okkur dreymi og algóður Guð á himnum þig geymi. (Sigfríður Sigurjónsdóttir.) Elsku Sigga amma mín, ég kveð þig með miklum söknuði. Ég trúi því að þú sért komin á góðan stað og ég veit að við hitt- umst einhvern tímann aftur. Salóme Tara Guðjónsdóttir. Elsku vinkona mín og veiði- félagi til margra ára kvaddi þennan heim 9. desember síðast- liðinn langt um aldur fram. Hún var einstakur vinur, traust og trú. Okkar vinátta hófst í gegn- um sjóstöngina. Ég man þegar ég sá hana fyrst; það var á bryggjunni á Sigló, glæsileg í veiðigallanum með veiðistöngina í annarri hendi og veiðikassann í hinni og eftirminnilega veiðihúfu. Já, hún var glæsileg en skyldi hún veiða eitthvað með lakkaðar neglur og máluð? Já, hún veiddi og veiddi, hún Sigga mín. En það var engin tilviljun að Sigga liti glæsilega út því það var hennar einkenni að vera óaðfinnanleg í útliti á sjó og landi. Hún vann til flestra verðlauna, klyfjuð bikur- um fór hún venjulega heim. Hún var snillingur í fluguhnýtingum og margs konar trixum sem hún veiddi á og var snillingur í teg- undaveiði. Flugurnar hennar hafa farið víða og margir notið góðs af. Hún var skemmtilegur veiðifélagi og margt lærði ég af henni. Við fórum margar ógleym- anlegar veiðiferðir á vegum EFSA Ísland á Evrópumót í sjóstöng. Við brölluðum margt saman í þessum ferðum og eign- uðumst marga vini. Það háði okk- ur ekki þótt tungumálakunnáttan væri takmörkuð, enda hlógum við mikið að því, þær minningar er gott að eiga núna í sorginni. Við eigum örugglega eftir að veiða saman í Sumarlandinu okk- ar sem við töluðum stundum um, og þar munum við hitta þá vini okkar sem farnir eru fyrr, það verður flott teymi. Ég kveð þig, elsku vinkona, með þökk fyrir einstaka vináttu og traust og all- ar gleðistundirnar okkar saman. Það er sárt að kveðja góða vin- konu en minningarnar fara ekki. Mínar bestu samúðarkveðjur til barna þinna og fjölskyldna þinna. Guð geymi þig. Þín vinkona, Magnea Sigurbjörg Kristjánsdóttir (Sibba). Sigríður Kjartansdóttir lést miðvikudaginn 9. desember 2015 í Reykjavík eftir erfiða baráttu við lungnakrabbamein. Mörgum mánuðum áður en úrslitastundin rann upp vissi Sigga Kjartans, eins og hún var jafnan kölluð, að hverju stefndi. Samt sem áður lét hún ekki sjúkdóm sinn aftra sér frá því að taka þátt í þriggja daga erfiðu sjóstangaveiðimóti EFSA Íslands, Samtaka evrópskra sjó- stangaveiðimanna, Íslandsdeild- ar, sem haldið var í júní sl. frá Höfn í Hornafirði þar sem hún eins og ætíð áður stóð sig með stakri prýði. Sigga Kjartans var ein af tíu félögum EFSA Íslands sem end- urreistu félagið í janúar 1998 eft- ir að starfsemin hafði legið í dvala um árabil. Hún tók þátt í nær öllum keppnum á vegum fé- lagins allt frá byrjun og vann til fjölmargra verðlauna, varð meðal annars þrisvar sinnum Íslands- meistari kvenna í bátakeppni ár- in 2004, 2005 og 2009 auk þess að skipa oftast annað eða þriðja sætið árin þar á milli fram til þessa dags. Sigga Kjartans tók auk þessa þátt í fjölmörgum sjó- stangaveiðimótum víðsvegar í Evrópu og hlaut margvísleg verðlaun, varð m.a. Belgíumeist- ari kvenna 2008 (Friendship Cup) í móti sem haldið var frá Ostende, Evrópumeistari kvenna í tegundaveiði 2008, einnig frá Ostende, og Evrópumeistari kvenna árið 2011 í léttlínukeppni frá Weymouth, Englandi. Sigga Kjartans var félagi í Sjó- ís, Sjóstangaveiðifélagi Ísfirð- inga, og keppti á vegum félagins um land allt í mótum á vegum Sjól, Landssambands sjóstanga- veiðimanna. Árangur hennar var að öllu jöfnu góður og vann hún m.a. til Íslandsmeistaratignar kvenna árið 2000. Sigga Kjartans var kjörin gjaldkeri EFSA Íslands í mars 2006 og gegndi stöðunni til síð- sumars þessa árs að hún óskaði lausnar vegna veikinda sinna. Hún sinnti starfi gjaldkera fé- lagsins með mikilli eljusemi, ná- kvæmni og samviskusemi. Fjár- hagur félagsins var með ágætum allan starfstíma hennar og átti hún mjög gott og farsælt sam- starf við aðra stjórnarmeðlimi í stjórnartíð sinni. Sigga Kjartans var vinur vina sinna og mikill félagi, hrókur alls fagnaðar, hafði ákveðnar og fast- mótaðar skoðanir og hörð af sér og einbeitt. Ógleymanlegar eru margar veiðiferðirnar sem ég og félagar mínir fóru með henni víðs vegar á Íslandi sem og erlendis þar sem hún hvatti okkur til dáða í keppnisferðum á erlendri grund sem fulltrúar þjóðar okkar. Hennar skarð verður seint fyllt og munu núlifandi félagar hennar í sjóstönginni ætíð minnast henn- ar með hlýhug og söknuði. Ég votta börnum og fjölskyldu Sigríðar Kjartansdóttur mína dýpstu samúð og þakka henni nú að leiðarlokum áralöng og góð kynni. Þórir Sveinsson. KRISTJÁN JAKOBSSON, Hólalandi, Stöðvarfirði, lést á heilbrigðisstofnuninni á Seyðisfirði 14. desember síðastliðinn. Útförin fer fram frá Stöðvarfjarðarkirkju mánudaginn 21. desember klukkan 14. . Sveinbjörn Sverrisson, Hugrún Ólafsdóttir og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.