Morgunblaðið - 17.12.2015, Page 35

Morgunblaðið - 17.12.2015, Page 35
ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015 gagnfræða- og menntaskólasumrin vann hann á lagernum í málningar- verksmiðjunni Hörpu og í Sportvali við Hlemm. Hann tók kennarapróf frá KHÍ 1979 og kenndi við Barna- skólann á Laugarvatni og Mýrar- húsaskóla á Seltjarnarnesi til 1984. Þá hóf hann störf á Rás 2 og hefur verið hjá Ríkisútvarpinu nær óslitið síðan, síðustu 14 árin á fréttastofunni, en þar áður hjá svæðisstöðinni á Ak- ureyri í 13 ár við dagskrárgerð. „Ég hef alltaf haft áhuga á íþrótt- um, og vann talsvert með foreldra- ráðum hjá Skíðaráði Akureyrar, Vík- ingi og HK/Víkingi í kringum kvennafótboltann. Ég spila ennþá bumbubolta tvisvar til þrisvar í viku, annars vegar, þótt útrúlegt sé, í Moggaboltanum svokallaða, þar sem ég, með einni undantekningu, er að kljást við 15-30 árum yngri menn og hef stundum betur. Hins vegar spila ég á sunnudagskvöldum við ýmsa jafnaldra vestur í KR-heimili. Ég hef yndi af tónlist, ólst upp við Bítlana og get bara ekki hætt að kanna nýjar lendur í alls kyns músík, heimstónlist, þjóðlögum, rokki, djassi og fleiru og hef keypt allt of mikið af plötum og diskum í gegnum tíðina. Ég var svo lánsamur að fá útrás fyrir þetta áhugamál með því að hafa umsjón með tónlistarþáttum á Rás 2 frá stofnun hennar 1983 til 2000, lengst af með þættinum Tengja. Svo eyði ég peningum í ferðalög út og suður og hef undarlegt „fetish“ fyrir landa- fræði og kortabókum. Bóklestur er ágætur, líka sólböð og fínt að gera bara ekki neitt. Skemmtilegast er þó að umgangast vini og fjölskyldu, eig- inkonu mína og besta vin, Ásaugu, dætur og þeirra fólk, eta góðan mat og drekka. Við eigum lítinn bústað uppi í Kjós, paradís sem við nýtum allt árið. Ég held ég sé frekar vesenislaus maður, vil ekki flækja hlutina, hef ætíð haldið með Víkingi og West Ham og unnið á RÚV mest- allan minn starfsferil. Er það vel, eins og Orri á Mogganum myndi segja.“ Fjölskylda Eiginkona Kristjáns er Áslaug Ótt- arsdóttir, f. 20.4. 1957, bókasafns- fræðingur hjá Borgarbókasafninu. Foreldrar hennar eru Ingibjörg Sæ- mundsdóttir, f. 5.2. 1925, fyrrv. starfsmaður við Háskólabókasafnið, og Óttar Karlsson, f. 4.11. 1924, skipaverkfræðingur. Dætur Kristjáns og fyrrv. eigin- konu hans, Ingibjargar Haralds- dóttur, f. 6.3. 1953, framhaldsskóla- kennara í Reykjavík, eru Brynja Kristjánsdóttir, f. 10.5. 1981, lýð- heilsufræðingur í Kaliforníu, en mað- ur hennar er Guðmundur Páll Atla- son endurskoðandi og eru synir þeirra Björn Héðinn, f. 2011, og Magnús Thor, f. 2014, og Arna Krist- jánsdóttir, f. 1.6. 1989, verkfræðinemi í Gautaborg, en kærasti hennar er Hafþór Örn Pétursson verk- fræðinemi. Dætur Áslaugar eru Birta Björns- dóttir, f. 28.9. 1979, fréttamaður á Stöð 2 , en maður hennar er Sveinn Logi Sölvason, fjármálastjóri hjá Össuri, og eru börn þeirra Herdís Anna, f. 2006, Óttar, f. 2009, og Sölvi Brynjar, f. 2015; Brynja Björnsdóttir, f. 29.8. 1982, leikmyndahönnuður, en maður hennar er Hjörtur Jóhann Jónsson leikari og er sonur þeirra Jón Egill, f. 2015, og Anna Guðjóns- dóttir, f. 21.1. 1990, MA-nemi í blaða- og fréttamennsku við HÍ. Systkini Kristjáns eru Snorri Sig- urjónsson, f. 6.8. 1948, verkfræðingur hjá Mannviti, búsettur í Hafnarfirði, og Hrefna Sigurjónsdóttir, f. 24.10. 1950, prófessor í líffræði við HÍ, bú- sett í Reykjavík. Foreldrar Kristjáns: Björg Ólafs- dóttir, f. 19.3. 1921, húsfreyja og fyrrv. verslunarmaður, búsett í Reykjavík, og Sigurjón Sigurðsson, f. 24.7. 1920, d. 5.2. 2013, bankamaður. Úr frændgarði Kristjáns Sigurjónssonar Kristján Sigurjónsson Jóhann Kristján Árnason sjóm. á Seltjarnarnesi Ingibjörg Steinunn Eyjólfsdóttir húsfr. á Seltjarnarnesi Sigurður Helgi Jóhannsson sjóm. og vaktm. í Rvík Jónína Kristjana Sigurðardóttir húsfr. í Rvík Sigurjón Sigurðsson bankam. í Rvík Sigurður Grímsson prentari í Rvík Jóhanna Friðrikka Jónsdóttir Norðfjörð húsfr. í Rvík Sigurður Ólafsson lyfsali í Reykjavíkurapóteki Rögnvaldur Ólafsson forstj. Hraðfrystihúss Hellissands Bjarni Ólafsson sím- stöðvarstj. í Ólafsvík Hlíf Ólafsdóttir lyfjatæknir Jóhannes Sigurðsson húsasmiður Jón Sigurðsson svæfingalæknir Ólafur Rögnvalds- son útgerðarm. á Hellissandi Vigdís Bjarnadóttir ritari á skrifstofu forseta Íslands Hallgrímur Magnússon tæknifræðingur og Everestfari Sigurður Helgi Jóhannesson kjötiðnaðarm. Guðjón Valur Sigurðsson handboltakappi Bjarni Sigurðsson b. á Hofi á Kjalarnesi og á Brimilsvöllum Vigdís Sigurðardóttir húsfr. á Hofi á Kjalarnesi, síðar Brimilsvöllum Ólafur Bjarnason hreppstj. og umboðsm. á Brimilsvöllum Kristólína Kristjánsdóttir húsfr. á Brimilsvöllum í Fróðárhreppi Björg Ólafsdóttir húsfr. og fyrrv. verslunarm. í Rvík Kristján Þorsteinsson b. og sjóm. í Mávahlíð Sigurlín Þórðardóttir húsfr. í Mávahlíð í Fróðárhreppi Hermannius fæddist á Ísafirði17.12. 1825. Foreldrar hansvoru Jón Jónsson, versl- unarstjóri á Ísafirði, og Guðbjörg Jónsdóttir Hjaltalín húsfreyja. Jón var sonur Jóns Magnússonar yngra, bónda og meðhjálpara á Reykhólum í Reykhólasveit, og k.h., Guðrúnar Teitsdóttur húsfreyju, en Guðbjörg var dóttir Jóns Hjaltalín, prests og skálds á Breiðabólstað á Skógarströnd Oddssonar Hjaltalín lrm. í Gullbringusýslu, á Rauðará við Reykjavík Jónssonar Hjaltalín, sýslumanns í Kjósarsýslu sem var síðasti ábúandinn í Vík (bænum Reykjavík við Aðalstræti) en and- aðist í bænum Arnarhóli á Arnarhóli í Reykjavík Oddssonar. Móðir Guð- bjargar var Guðrún Jónsdóttir hús- freyja. Eiginkona Hermanniusar var Ing- unn, dóttir Halldórs Þorvaldssonar, bónda í Álfhólahjáleigu og Álfhólum í Vestur-Landeyjum, og k.h., Krist- ínar Sigurðardóttur húsfreyju. Börn Ermanníusar og Ingunnar voru Guðrún, kona Eggerts Páls- sonar, prófasts og alþingismanns á Breiðabólstað í Fljótshlíð; Guðbjörg, kona Jóns Jónassonar Thorstensen, prests á Þingvöllum; Jón, lög- reglustjóri og tollstjóri í Reykjavík, kvæntur Ástu Pétursdóttur; Kristín, kona Halldórs Jónssonar, prests á Reynivöllum í Kjós; Halldór, pró- fessor og bókavörður í Íþöku í New York-ríki í Bandaríkjunum, og Odd- ur, skrifstofustjóri í Stjórnarráði Ís- lands. Hermannius lauk stúdentsprófum frá Lærða skólanum í Reykjavík 1849, lauk Ex.philol og Ex-philos- prófum við Hafnarháskóla 1851 og embættisprófi í lögfræði 1856. Hermannius var kennari hjá Þórði Sveinbjörnssyni, dómstjóra í Nesi við Seltjörn, 1849-50, málflutnings- maður við Landsyfirréttinn 1858-61, gegndi land- og bæjarfógetaembætti fyrir Vilhjálm Finsen 1859-60 og var land- og bæjarfógeti 1860-61, var skipaður sýslumaður í Rangárvalla- sýslu 1861 og gegndi embætti til 1890 og bjó á Velli í Hvolhreppi sýslumannsárin og til æviloka. Hermannius lést 2.4. 1894. Merkir Íslendingar Hermannius E. Johnsson 90 ára Dagmar Arngrímsdóttir Halldór Jóhannesson Kristín Rögnvaldsdóttir 85 ára Gyða Bergs Lára Hafliðadóttir 80 ára Eiður Eiðsson Gunnar H. Pálsson Haukur L. Brynjólfsson Helgi Jónsson Sigurrós Sigurðardóttir 75 ára Gylfi Heinrich Gunnarsson 70 ára Erla Sigurbergsdóttir Johan Danielsen Jónsson Jósavin Hlífar Helgason Sólveig Erlendsdóttir Svavar Páll Th. Laxdal 60 ára Anton Sigurðsson Boguslaw Jan Ksepko Einar Gunnlaugsson Halina Cichy Hrefna Guðmundsdóttir Kristjana Geirsdóttir Ragnheiður Guðfinnsdóttir Sigurður R. Sigurjónsson Valur Benjamín Bragason Ævar Ákason 50 ára Gunnar Ingi Víkingsson Hermann Þór Baldursson Jónína Þ. Thorarensen Magnús Grétar Gíslason María Hjaltalín Óskar Guðjón Kjartansson Sigrún Ásta Elefsen Sigurbjörg Einarsdóttir Unnsteinn Þorsteinsson Þorgrímur Kristjánsson Þórður Magnús Elefsen 40 ára Boleslaw Filip Baran Guðmundur Björnsson Hafrún Brá Hafsteinsdóttir Haukur Ingi Jónsson Indra Devi Bohora Jóhann Ioan Constantin Solomon Karl Friðrik Bragason Kristín Magnea Halldórsdóttir Laimunas Lengertas María Dögg Aðalsteinsdóttir Ragnhildur Ýr Pétursdóttir Signý Bjarnadóttir 30 ára Agnieszka Poslednik Borghildur Anna Brynjólfsdóttir Carlo Cupaiolo Erna Sveinbjörnsdóttir Haukur Elías Benediktsson Hrannar Hólm Sigrúnarson Jóhanna Hlín Kolbeinsdóttir Jón Einar Hjartarson Sindri Þór Hilmarsson Stefán Rúnar Guðnason Svava Hróðný Jónsdóttir Úlfhildur Ída Helgadóttir Til hamingju með daginn 30 ára María Rut lauk prófi í guðfræði, stundar nám í kynjafræði og starf- ar við þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts. Maki: Eyþór Grétar Grét- arsson, f. 1986, kennari og M.Ed.-nemi við HÍ. Synir: Elías Bjarmi, f. 2010, og Patrik Nói, f. 2014. Foreldar: Baldur R. Sig- urðsson, f. 1960, prestur, og Ágústa G. Ólafsdóttir, f. 1961, ljósmyndari. María Rut Baldursdóttir 30 ára Jóna Björg ólst upp á Björgum í Kalda- kinn. Hún lauk BSc-prófi í búvísindum frá LBHÍ og er bóndi á Björgum, ásamt foreldrum og syst- ur. Systur: Ásta Ósk Hlöð- versdóttir, f. 1982, og Þóra Magnea Hlöðvers- dóttir, f. 1991. Foreldrar: Hlöðver Pétur Hlöðversson, f. 1955, og Kornína Björg Ósk- arsdóttir, f. 1956, bændur. Jóna Björg Hlöðversdóttir 30 ára Kristín ólst upp í Borgarnesi, býr á Akur- eyri, lauk BA-prófi í sál- fræði frá HA og MSc-prófi í auðlindafræði og er stundakennari við HA. Maki: Arnar Þór Arn- arsson, f. 1983, lögfræð- ingur. Foreldrar: Gísli V. Hall- dórsson, f. 1943, fyrrv. framkvæmdastjóri, og Guðrún Birna Haralds- dóttir, f. 1955, ræstitækn- ir. Þau búa í Borgarnesi. Kristín Heba Gísladóttir Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is fyrir íslenskar aðstæður Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.