Morgunblaðið - 17.12.2015, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 17.12.2015, Qupperneq 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015 » Sjöunda kvikmyndinum Stjörnustríð, Star Wars: The Force Awakens, var heims- frumsýnd á mánudaginn í Los Angeles og fara nú frumsýningar á mynd- inni fram víða um heim. Stjörnustríðsaðdáendur láta ekki sitt eftir liggja, bíða tímunum saman í röðum eftir því að sjá myndina og margir hverjir í gervi persóna úr kvikmyndunum. Kvikmyndin verður frumsýnd hér á landi í dag og hafa þegar selst yfir tíu þúsund miðar í forsölu á hana hjá Sam- bíóunum. Stjörnustríðsæði víða um heim vegna frumsýningar sjöundu myndar syrpunnar Barist Stjörnustríðsaðdáendurnir Toni og Outi Korlee skylmdust með geislasverðum sínum fyrir frumsýningu Star Wars: The Force Awakens í Helsinki í gær. Aðdáendur hafa beðið myndarinnar í ofvæni mánuðum saman. Glæsileg Stjörnustríðsaðdáendur eru á öll- um aldri. Ung stúlka á frumsýningu kvik- myndarinnar í Sydney í Ástralíu í gær. Tilhlökkun Gleðin skein úr andlitum þessara aðdáenda Stjörnustríðs í París í gær sem biðu frumsýningar við Grand Rex-bíóið. Flottir Tveir liðsmenn úr storm- sveitunum uppáklæddir fyrir frum- sýningu myndarinnar í París í gær. AFP Sjöunda kvikmyndin í Stjörnu- stríðs-syrpunni, Star Wars: The Force Awakens, eða Stjörnustríð: Mátturinn vaknar, verður frum- sýnd í dag um heim allan. Leikstjóri er J.J. Abrahams og stjörnur gömlu myndanna snúa aftur, þau Harrison Ford, Mark Hamill og Carrie Fish- er en með aðalhlutverk fara Adam Driver, Daisy Ridley, Domhnall Gleeson, John Boyega og Oscar Isaac. Sannir aðdáendur myndanna hafa sem minnst viljað vita um söguþráð þessarar og á miðasölu- vefnum Midi.is er lítið gefið upp, sagt að myndin hefjist um 30 árum eftir að sjötta kaflanum, Return of the Jedi, lauk. Hin myrku öfl hafi látið til skarar skríða á ný og nýr foringi þeirra ætli að ljúka verki Svarthöfða og ná alheims- yfirráðum. Kvikmyndin hefur fengið afar já- kvæða dóma það sem af er, var í gær með meðaltalseinkunnina 83 af 100 á vefnum Metacritic. Þá höfðu 37 dómar birst og af þeim sem hafa gefið myndinni fullt hús stiga má nefna Peter Bradshaw, gagnrýn- anda Guardian, Robbie Collin hjá Telegraph og Manohlu Dargis, gagnrýnanda New York Times. Dargis segir myndina uppfylla öll skilyrði fyrir spennu sem og mann- lega og Bradshaw endar dóm sinn á orðunum „hvílík jólagjöf“. Collin segir töfrana aftur til staðar og að hann hafi þrisvar fellt tár yfir myndinni. Vefurinn Rotten Tom- atoes tekur líka saman gagnrýni og á honum er myndin 97% „fersk“. Aðdáendur Stjörnustríðs geta því andað léttar, Abrahams virðist ekki hafa brugðist þeim. Bíófrumsýning Mátturinn vex á ný Afbragð Chewbacca (Loðinn) og Han Solo (Hans Óli) í sjöundu Stjörnu- stríðsmyndinni sem gagnrýnendur hafa ausið lofi fram til þessa. Daisy Ridley fer með eitt af stærstu hlut- verkum nýju Stjörnustríðs- myndarinnar og segir hún á vef BBC að hún hafi reynt að lifa sínu venjubundna lífi frá því hún tók að sér hlutverkið. Hún ferðist enn með neðanjarð- arlestum í heimaborg sinni Lund- únum og taki strætó í líkamsrækt- ina. Hún hafi engu að síður fengið góð ráð frá Harrison Ford og Car- rie Fisher um það hvernig best sé að tækla frægðina sem fylgi Stjörnustríði. Ferðast enn með lest og strætó Daisy Ridley BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 MASTER STILLANLEGUR HNAKKAPÚĐI FJÖLSTILLANLEGT BAK SEM LEGGST ALVEG AFTUR GÆĐALEĐUR VERĐ kr. 373.800 STAR WARS 3D 2, 5, 10:45 STAR WARS 2D 3, 6, 9 THE 33 10:45 HUNGER GAMES 4 5, 8 GÓÐA RISAEÐLAN 2 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.