Morgunblaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015
Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is
er með jólagjöfina
LOVÍSA
Hálsmen 6.900
Lokkar 12.200
Armband 12.800
FREDBENNETT
Hálsmen 9.900
Hringur 6.900
Armband 13.200
SKAGEN
28.900
DANIEL
WELLINGTON
26.900
DANIEL
WELLINGTON
26.900
HENRY
LONDON
32.900
HENRY
LONDON
32.900
HENRY
LONDON
29.900
SKAGEN
42.400
SKAGEN
27.900
FOSSIL
30.700
FOSSIL
26.300
DKNY
29.600
DKNY
24.900
FOSSIL
26.300
DKNY
29.600
ARNA STJARNA
Armband 15.900
Hálsmen 8.900
DANIEL
WELLINGTON
40.320
Bankastræti 6
Sími 551 8588
gullbudin.is
Árlegir jólatónleikar söngkon-
unnar Estherar Jökulsdóttur til
heiðurs Mahaliu Jackson fara
fram í Fríkirkjunni í Reykjavík í
kvöld kl. 20.
Á þeim syngur Esther inn jólin
í stíl Jackson með karlasöngtríói
og við undirleik hljómsveitar og
verður blandað saman efni af
hljómplötum sem Jackson söng
inn á á sínum tíma, m.a. Silent
Night, I believe og You never
walk alone. Sami hópur hélt tón-
leika í Tónlistarmiðstöð Austur-
lands 27. nóvember sl. við góðar
undirtektir. Karlatríóið skipa Gísli
Magna, Skarphéðinn Hjartarson
og Hafsteinn Þórólfsson og um
hljóðfæraleik sjá Aðalheiður Þor-
steinsdóttir sem leikur á píanó,
Þorvaldur Þór Þorvaldsson á
trommur, Gunnar Gunnarsson á
Hammond-orgel og Gunnar
Hrafnsson á kontrabassa.
Tónleikarnir eru nú haldnir ní-
unda árið í röð og eru í anda jóla-
tónleika á árunum 1950-1960 og út-
setningarnar eftir því, að sögn
Estherar. Rólegur jólaandi sé yfir
þeim og miðaverði stillt í hóf svo
gestir geti haldið áfram að kaupa
jólagjafir að tónleikum loknum.
Morgunblaðið/Ómar
Jólaplatan Á æskuheimili Estherar Jökulsdóttur var Silent Night, plata
Mahaliu Jackson, hin eina sanna jólaplata. Síðastliðin ár hefur Esther haldið
jólatónleika þar sem hún syngur jólalögin hennar Mahaliu ásamt hljómsveit.
Jólatónleikar í anda Maha-
liu Jackson í Fríkirkjunni Þjóðleikhúsið
hefur tryggt sér
réttinn á barna-
bókinni Mömmu
klikk! eftir Gunn-
ar Helgason.
Bókin hefur not-
ið mikilla vin-
sælda og er nú í
fyrsta sæti á
sölulistum barna-
bóka. Leikgerð
upp úr bókinni verður unnin í Þjóð-
leikhúsinu á næsta ári og stefnt er
að því að verkið fari á fjalir Þjóð-
leikhússins veturinn 2016-2017.
Mamma klikk! í
Þjóðleikhúsið
Gunnar
Helgason
Jólasýningin Eitthvað fallegt verð-
ur opnuð í Ekkisens sýninga- og
viðburðarými í kjallara Bergstaða-
strætis 25B í kvöld kl. 20. Fjöldi
listamanna á ólíkum aldri tekur
þátt í sýningunni og sýnir verk af
ýmsu tagi sem eru bæði til sýnis og
sölu. Má af þeim nefna Steingrím
Eyfjörð, Huldu Vilhjálmsdóttur,
Freyju Eilífi, Katrínu Ingu Jóns-
dóttur Hjördísardóttur, Evu Ísleifs-
dóttur, Loga Bjarnason, Halldór
Ragnarsson, Höllu Birgisdóttur,
Önnu Fríðu Jónsdóttur, Anton
Loga Ólafsson, Auði Ómarsdóttur,
Auði Lóu Guðnadóttur, Ásgeir
Skúlason, Guðrúnu Heiði Ísaks-
dóttur, Heiðrúnu Grétu Viktors-
dóttur, Loga Leó Gunnarsson, Meg-
an Auði Grímsdóttur, Ragnhildi
Láru Weisshappel, Sigríði Þóru Óð-
insdóttur, Ásgeir Skúlason og fata-
hönnuðina Ýrúrarí og Tönju Levý.
Heitar veigar verða í boði við
opnun sýningarinnar og má vænta
þess að óvæntar uppákomur eigi
sér stað í rýminu um kvöldið í formi
gjörninga eða upplestra. Slagorð
sýningarinnar er „Notum myndlist
um jólin!“. Ekkisens verður opið
fram til 23. desember kl. 17- 21.
Eitthvað fallegt til
sýnis í Ekkisens
Skrímsli Ávaxtaskrímsli í peysulíki
eftir Ýrúrarí fatahönnuð.
Árviss jólablús-
gjörningur blús-
sveitarinnar
Vina Dóra verð-
ur framinn á
Hallveigarstíg 1
kl. 21 í kvöld.
Hljómsveitina
skipa gítarleik-
ararnir Halldór
Bragason og
Guðmundur Pétursson, trommu-
leikarinn Ásgeir Óskarsson og
bassaleikarinn Jón Ólafsson og
munu þeir auk þess allir syngja.
Hljóðmaður verður Jón Skuggi.
„Jólablúsgjörningurinn er ein-
stakt tækifæri til að hvíla sig á ver-
aldlegu amstri aðventunnar. Við
sem stöndum að starfseminni sem
blús tengist leggjum áherslu á að
blúsinn miðlar friði, samkennd og
skilningi á lífi og örlögum manns-
ins. Blúsinn er öflugt vopn gegn
kynþáttahatri og skapar andrúms-
loft mannkærleika hvar sem hann
heyrist. Hann er einlægur og hittir
í hjartastað þeirra sem við hlustir
leggja,“ segir um gjörninginn í til-
kynningu. Jólablúsinn sé kærleiks-
boðskapur og gleðistund sem eng-
inn vilji missa af. Miðaverð á
tónleikana er kr. 2.500 og hægt að
panta fyrirfram mat og borð í síma
5175020. Húsið verður opnað kl. 19.
Jólablúsinn kær-
leiksboðskapur
Halldór Bragason