Morgunblaðið - 17.12.2015, Síða 44
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 351. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. Tók á móti dóttur sinni í stofunni
2. Barnalegasta blaðamennska …
3. Þriggja stúlkna saknað
4. Þekkir þú þennan mann?
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Þýsku djasstónlistarmennirnir
Markus Burger og Jan von Klewitz
halda jólatónleika í Hallgrímskirkju í
kvöld kl. 20 og eru tónleikarnir í boði
þýska sendiherrans á Íslandi. Burger
og Klewitz kynna þýsk jólalög í nýrri
útgáfu, m.a. eftir G.F. Händel, og
munu verkin fá djassaðan tón í sam-
leik píanós og saxófóns. Tónleikarnir
eru haldnir í samvinnu við Listvina-
félag Hallgrímskirkju og með þeim
styrkir þýska sendiráðið starfsemi
Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Færa þýsk jólalög
í djassbúning
Hátíð í bæ nefn-
ast tónleikar sem
haldnir verða kl.
12 í dag í Fríkirkj-
unni í Reykjavík
til styrktar Hjarta-
gátt Landspít-
alans. Einsöngv-
arar á tónleik-
unum eru Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Valgerður Guðnadótt-
ir og Einar Clausen og með þeim eru
kvennakórinn Heklurnar og sjö
manna hljómsveit. Stjórnandi er Lilja
Eggertsdóttir.
Hádegistónleikar til
styrktar Hjartagátt
Söngkonan
Sigga Eyrún held-
ur jólatónleika í
kvöld kl. 20 í Ped-
ersen-svítunni í
Gamla bíói ásamt
Karli Olgeirssyni
píanóleikara og
gítarleikaranum
Ásgeiri Ásgeirs-
syni. Tónleikarnir bera yfirskriftina
Stofujól og verða lögin flest í útsetn-
ingum Karls.
Stofujól í Pedersen-
svítu Gamla bíós
Á föstudag Norðaustan og norðan 8-15 m/s og snjókoma eða él,
hvassast á annesjum en úrkomulítið fyrir suðvestan. Frost 0 til 8
stig en frostlaust syðst.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og norðaustan 13-23 m/s hvassast
norðvestan til. Rigning á Suðurlandi, snjókoma fyrir norðan en
rigning eða slydda austast. Hiti 1 til 7 stig.
VEÐUR
ÍR situr í næstneðsta sæti
Olís-deildar karla í hand-
knattleik, þremur stigum á
eftir FH, næstu vikurnar.
Það varð ljóst eftir að ÍR
tapaði fyrir Gróttu í gær-
kvöldi á eigin heimavelli,
27:26. Þetta var síðasti leik-
ur beggja liða í deildinni um
nokkurra vikna skeið, en
senn verður gert hlé á
keppninni vegna jóla og
svo sökum undirbúnings
fyrir EM landsliða. »2
ÍR-ingar fastir í
næstneðsta sæti
Guðmundur Þ. Guðmundsson býr
þessa dagana danska karlalandsliðið
í handknattleik undir stórmót í annað
sinn og kveðst ekki hafa neina
ástæðu til annars en
að vera bjartsýnn
um gott gengi
þess á EM í Pól-
landi. „Ég veit að
það eru gerðar
gífurlega mikl-
ar kröfur til
mín og liðsins
og það er
bara spenn-
andi að
glíma við
það,“ segir
Guðmundur
í ítarlegu
viðtali. »1
Engin ástæða til annars
en að vera bjartsýnn
„Ég hafði ekki heyrt neitt um þetta
og þessi atburðarás varðandi breytt
eignarhald og þjálfaraskiptin kom
mér mjög á óvart,“ sagði Guðmundur
Þórarinsson meðal annars við
Morgunblaðið í gær. Hann er einn
þriggja Íslendinga sem leika með
Nordsjælland, en þar var Ólafi Krist-
jánssyni sagt upp störfum sem þjálf-
ara liðsins. »3
Guðmundur kom af
fjöllum í Danmörku
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
þekkjum öll en viljum ekki kannast við að við
höfum. Því fylgir oft mikill sársauki – sársauki
ósagðra sagna.“
Heldur áfram að skrifa
Áslaug sendi handritið til Miðstöðvar íslenskra
bókmennta og fékk útgáfustyrk. „Það varð til
þess að ég ákvað að kýla á þetta í sumar,“ segir
hún. Í umsögn dómnefndar segir að
„með lágstemmdum en hrífandi prósa
bregður höfundur upp ólíkum myndum
af forgengileika lífsins – af einsemd, ör-
væntingu og uppgjöf. Myndirnar eru
nístandi en eftir þungan lífróður má
jafnvel finna hvíld“.
Áslaug segir að styrkurinn hafi skipt
miklu máli. „Hann er ákveðin viðurkenn-
ing á því að ég væri að gera eitthvað sem
aðrir sæju líka eitthvað í.“ Hún bætir við
að viðbrögð við bókinni hafi einnig verið góð og
hún ætli að halda áfram að skrifa.
„Áslaug Björt Guðmundardóttir stígur
hér fram af öryggi og hittir lesendur í
hjartastað,“ segir meðal annars á
kápu bókarinnar.
Bókin Himnaljós er safn 17 smá-
sagna. Málverkið á kápu, Niðurhal
ljóssins, er eftir Fríðu Kristínu Gísla-
dóttur. Aðalsteinn Svanur Sigfússon
sá um kápuhönnun og umbrot,
Leturprent prentaði og Áslaug er
sjálf útgefandi bókarinnar.
„Hittir lesendur
í hjartastað“
HIMNALJÓS FYRSTA BÓK HÖFUNDAR
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Áslaug Björt Guðmundardóttir hefur sent frá sér
bókina Himnaljós. Þetta er fyrsta bók höfundar,
en hún fékk Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra
bókmennta í ár og gefur bókina út sjálf auk þess
sem hún hefur opnað síðu á Fésbókinni um hana
undir heitinu Himnaljós.
Áslaug segir að bókin eigi sér langan aðdrag-
anda. „Ung dótturdóttir mín lést skyndilega fyrir
fimm árum og í kjölfarið fór af stað mikið rót
ólíkra tilfinninga eins og þeir þekkja sem misst
hafa ástvini. Tilveran og sýnin á lífið eins og maður
þekkti hana áður er ekki lengur til. Skriftirnar
voru mér góð leið til þess að fara í gegnum þetta
ferli,“ segir hún. Leggur samt áherslu á að smá-
sögurnar séu skáldaðar þótt þær eigi sér kveikju í
þessu sorgarferli.
„Sögurnar eru í raun svipmyndir úr lífi alls kon-
ar fólks sem glímir við ólíka hluti, horfist í augu við
mismunandi tilfinningar og aðstæður og reynir að
ná skilningi og sátt,“ áréttar hún.
Ekki tilfinningaklám
Áslaug er rekstrarfræðingur að mennt og með
framhaldsmenntun í mannauðsstjórnun. „Ég hef
verið á allt öðrum vettvangi en í skapandi skrifum
í gegnum tíðina en hef þó alltaf skrifað mikið, mest
fyrir sjálfa mig,“ segir hún.
Fyrir nokkrum árum kvaddi Áslaug öruggan
starfsvettvang og fór í fullt nám í ritlist í Háskóla
Íslands. „Þetta var mitt prívat ævintýri. Gamall
draumur,“ segir hún og bætir við að námið hafi
verið sérlega skemmtilegt. „Það kveikti á nýjan
leik með mér gleðina við að skrifa.“
Á meðan Áslaug var í náminu dó dótturdóttir
hennar. „Þessar sögur eru eiginlega kveðjugjöf
mín til hennar,“ segir hún. „Ég vona að þær sýni
allt það sem hennar stutta ævi kenndi mér – að
lífið og dauðinn eiga meira sameiginlegt en við
kannski höldum og hvað vonin er dýrmæt.“
Sögurnar urðu hins vegar ekki til í núverandi
mynd fyrr en á þessu ári.
„Þetta voru alls konar hugleiðingar og brot úr
lengri textum sem ég ákvað að fullvinna í þetta
form. Ég var dálítinn tíma að finna rétta tóninn,
vildi ekki að þetta yrði eitthvert tilfinningaklám,
vildi ekki að þetta yrði sannsaga, vildi ekki að
þetta endurspeglaði mig sem konu sem ætti bágt.
Ég fann tóninn eða leiðarstefið í þessum sam-
mannlegu sögum. Sögum af tilfinningum sem við
Sársauki ósagðra sagna
Áslaug Björt Guðmundardóttir fór úr öruggu starfi í háskólanám og hefur
sent frá sér bókina Himnaljós Skriftirnar hjálpuðu henni á erfiðum tímum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Höfundur Áslaug Björt Guðmundardóttir mannauðsstjóri hefur sent frá sér bókina Himnaljós.