Morgunblaðið - 13.01.2016, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2016
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Vistun barna á Kópavogshæli
Viðtöl á vegum vistheimilanefndar
Vistheimilanefnd óskar vinsamlegast eftir því að þeir sem
vistaðir voru sem börn á Kópavogshæli, eða aðstandendur
þeirra, og hafa áhuga á því að veita nefndinni viðtal og
upplýsa hana um vistunina, hafi samband við nefndina fyrir
1. febrúar 2016 í síma 545 8461 eða á netfangið
vistheimilanefnd@for.is
Jafnframt óskar vistheimilanefnd vinsamlegast eftir því að þeir
sem störfuðu á Kópavogshæli á umræddu tímabili, og búa yfir
upplýsingum sem varpað geta ljósi á þau atriði sem nefndinni
ber að kanna, hafi samband með sama hætti.
Samkvæmt erindisbréfi forsætisráðherra frá 4. júlí 2012, á
grundvelli laga nr. 26/2007, um skipan nefndar til að kanna
starfsemi vist- og meðferðar¬heimila fyrir börn (vistheimila-
nefnd), ber nefndinni að kanna hver hafi verið tildrög þess að
börn voru vistuð á Kópavogshæli, hvernig opinberu eftirliti hafi
verið háttað með starfsemi stofnunarinnar og hvort börn sem
þar voru vistuð hafi sætt illri meðferð eða ofbeldi á meðan á
dvöl þeirra stóð.
Könnun vistheimilanefndar tekur til einstaklinga sem vistaðir
voru á Kópavogshæli fyrir 18 ára aldur á árunum 1952-1993.
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Hinar vinsælu
Gino stretchbuxur
nú á 30%afslætti
Tvær síddir - Stærðir 38-52
30–50%
afsláttur
Sparidress - Sumaryfirhafnir - Peysur - Blússur - Bolir
Laugavegi 63 • S: 551 4422
STÓRÚTSALA
Frábærar vetraryfirhafnir
og gæðadömufatnaður
30% - 40% - 50%
www.laxdal.is
Varðskipið Þór tók flutningaskip
Samskipa, Hoffell, í tog í gær-
morgun en skipið varð vélarvana
djúpt suður af landinu á sunnudag.
Gert er ráð fyrir ágætu veðri á
heimleiðinni og má búast við að
skipin nái til hafnar í Reykjavík í
lok vikunnar.
Þór kom að Hoffelli rétt fyrir
klukkan ellefu í gærmorgun. Tók
það áhöfnina tæpa tvo tíma að
koma taug á milli skipanna, þrátt
fyrir töluverða ölduhæð. Síðan var
stefnan tekin á Reykjavík.
Helgafell, skip Samskipa, sem
var Hoffelli til aðstoðar á meðan
beðið var eftir varðskipi hélt sigl-
ingu sinni áfram og er væntanlegt
til Immingham á Englandi á morg-
un.
Þór og Hoffell stefna til Reykjavíkur
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Vel gekk að koma
taug á milli skipanna