Morgunblaðið - 13.01.2016, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 13.01.2016, Qupperneq 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2016 ✝ Frosti Skag-fjörð Bjarna- son fæddist á Ak- ureyri 21. janúar 1930. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Grund í Reykjavík 12. desember 2015. Foreldrar hans voru Sigríður Ós- land Sigurjónsdótt- ir húsmóðir, f. 1902, d. 1973, og Bjarni Mar- teinn Jónsson, sjómaður og fangavörður, f. 1905, d. 1999. Systir Frosta var Hanna Bjarna- dóttir óperusöngkona, f. 1928, d. 1999. Frosti kvæntist 26. desember 1953 Kötlu Kristínu Ólafsdóttur, f. 10. október 1934, djákna og vefnaðarkonu. Foreldrar henn- ar voru Svanborg Þórdís Ás- mundsdóttir, húsfreyja á Laug- arvatni, f. 1905, d. 1988, og Ólaf- ur Ketilsson, sérleyfishafi á Laugarvatni, f. 1903, d. 9.7. 1999. Börn Frosta og Kötlu eru: 1) Ólafur Ketill flugstjóri, f. 1953, d. 2003. Hann var kvæntur Jóhönnu Valgerði Hauksdóttur, ljósmóður og hjúkrunarfræð- Frá fyrra hjónabandi með Bjarna Andréssyni smið, f. 1956, á Svanborg Þórdís tvo syni: Frosta tölvufræðing, f. 1984, og Aron heilbrigðisverkfræðing, f. 1986. 4) Bjarni, flugstjóri, f. 1968, kvæntur Hrafnhildi Gunnarsdóttur Peiser hagfræð- ingi, f. 1972, og eiga þau tvær dætur: Drífu Rós nema, f. 1997, og Freyju Dröfn, f. 2006. Frosti lauk gagnfræðaprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1947. Loftskeytaprófi 1948 og prófi í radíó- og radartækni frá Municipal Technical College í Hull á Englandi 1950. Prófi í loftsiglingafræði 1958, atvinnu- flugmannsprófi og blindflugs- prófi 1962 og öðlaðist flug- stjóraréttindi 1965. Starfaði sem loftskeytamaður á togurum og Landhelgisgæsl- unni, 1950-1957, var flug- umsjónarmaður 1957-1959 og flugleiðsögumaður 1959-1963. Frosti var flugmaður á ýms- um vélum Flugfélags Íslands og síðar Flugleiða. Flugstjóri frá 1976 þar til hann lét af störfum 1993 fyrir aldurs sakir. Tók hann þá upp þráðinn sem loft- skeytamaður í Gufunesi, 1993- 2000. Hann var í stjórn FÍA, í trúnaðarmannaráði FÍA, í starfsráði FÍA, trygging- arfulltrúi FÍA um árabil og í stjórn eftirlaunasjóðs FÍA. Útför Frosta fór fram í kyrr- þey að ósk hins látna. ingi, f. 1956, þau slitu samvistir. Syn- ir þeirra eru: a) Haukur, flugmað- ur, f. 1979, sam- býliskona hans er Erla Ólafsdóttir, f. 1984. Haukur á tvö börn frá fyrri sam- búð: Kristófer Loga, f. 2008, og Kolbrúnu Lind, f. 2012, með Guðrúnu Bjarnadóttur, f. 1976. b) Frosti, hagfræðingur, f. 1982, sambýlis- kona hans er Ásdís Ólafsdóttir, f. 1980, dóttir þeirra er Iðunn Jóhanna, f. 2014. c) Hjörtur, verkamaður, f. 1988, sambýlis- kona hans er Sandra Dís Jóns- dóttir, f. 1988, eiga þau tvö börn, Aríu Dís, f. 2013, og Darra, f. 2014. 2) Sturla Skagfjörð, sagn- fræðingur og flugumsjón- armaður, f. 1956, kvæntur Ólöfu Einarsdóttur textíllistakonu, f. 1959. Þau eiga tvær dætur; Kötlu Rán, viðskiptafræðing, f. 1980, og Ólafíu nema, f. 1989. 3) Svanborg Þórdís viðskiptafræð- ingur, f. 1964, gift Ófeigi Gests- syni, f. 1943, og eiga þau eina dóttur, Kötlu Kristínu, f. 2001. Nú hefur tengdafaðir minn lagst til hinstu hvílu eftir alls- narpa viðureign við veikindi. Hann sagði stundum síðustu vik- urnar að hann væri þreyttur. Frosti Skagfjörð Bjarnason var ungur drengur sendur frá for- eldrum á Akureyri í fóstur í Hegranes í Skagafirði. 12 ára fór hann aftur í foreldrahús á Akur- eyri, lauk þar námi við Mennta- skólann og fór í framhaldsnám. Hann lærði loftskeytafræði, lærði að fljúga, var farsæll flug- stjóri. Hann kynntist ungur kon- unni sinni, Kötlu Kristínu Ólafs- dóttur á Laugarvatni, þegar hún var nærri búin að keyra yfir hann á bremsulausri rútu föður síns. Þau giftu sig og eignuðust fallegt heimili og fjögur börn. Þegar Svanborg Þórdís dóttir þeirra var búsett á Blönduósi kynntumst við og giftumst nokkru síðar. Þá kynntist ég fjöl- skyldu sem var samheldin. Frosti og Katla komu oft í heimsókn og fórum við margar ferðir um ná- grennið. Minnisstæð er ferð í Drangey og gönguferð upp með Vatnsdalsá frá Forsæludal. Í ilmandi lyngmóa, innan við Bjarnastaði í Hvítársíðu, eignað- ist fjölskyldan sumarhús sem nefnt var Svanahlíð. Áttum við þar margar samverustundir bæði innan dyra og utan við plöntun trjáa og lagfæringu beða, lagn- ingu gangstíga og viðhald húss- ins. Var þá margt spjallað og oft sá ég gleðisvip á andliti Frosta, sú gleði náði líka til augnanna sem þá gjarnan geisluðu líka af hlýju, ekki síst þegar afkomend- ur bárust í tal en þeim sýndi Frosti mikla umhyggju. Frosti var með fádæmum vandvirkur, sagði nákvæmlega frá ýmsum at- vikum úr sögu sinni í gegn um tíðina; silungsveiði á Grænlandi, hreindýraveiði fyrir austan og rjúpnaveiði á Holtavörðuheiði svo dæmi séu tekin. Það var unun að sjá hvernig andlit og augu breyttust eftir umfjöllunarefni hverju sinni. Hann sinnti öllu við- haldi af samviskusemi og mikilli natni. Það var stórskemmtilegt að fylgjast með honum grafa fyr- ir trjám og skógarþrastaungarn- ir komu í heimsókn til hans og fengu eitthvað gott í gogginn. Byggt var lítið hús fyrir verkfæri og það skírt Þrastahlíð. Þannig liðu farsæl ár. Einn skugga bar þó yfir og dró fyrir sólu. Það gerðist á aðfangadag jóla árið 2003 þegar elsti sonur þeirra hjóna, Ólafur Ketill, lést. Það varð allri fjölskyldunni þung raun. Þó svo tíminn hafi liðið og minningarnar tekið við og þyrlað yfir liðna tíð situr samt alltaf sár- ið eftir. Saman áttu þau Katla fallegt heimili, þar voru allir velkomnir, oft fjölmennt og kátt, gjarnan sungið og leikið undir á píanó eða saxófón. Þetta voru sælar stundir Frosta, hann unni tónlist, kunni fjölda texta, raddaða og óraddaða og söng til margra ára í kórum. Söngröddin erfðist til barnanna og sungu oft saman Ólafur, Sturla og Frosti, þegar fjölskyld- an kom saman. Yndislegur fjöl- skyldufaðir hefur nú kvatt og haldið á fund genginna kynslóða. Ófeigur Gestsson. Frosti Skagfjörð Bjarnason ✝ GuðbjörgAmelía Magn- freðsdóttir fæddist 21. mars 1953. Hún lést 24. október 2015. Foreldrar henn- ar voru Magnfreð Tryggvi Jónasson, f. 16. október 1915 á Ísafirði, d. 17. apríl 1991, og Val- gerður Sigurborg Jónsdóttir, f. 11. júní 1914 á Galtarhrygg í Ísafjarðardjúpi, d. 1. febrúar 1982. Systkini Amelíu eru: Elín, f. 1943, Ingi Guðjón, f. 1945, Þor- steinn Kristinn, f. 1949, Jens Friðrik, f. 1950, og Sigríður Steinunn, f. 1956. Börn Guð- bjargar Amelíu eru: 1) Valgerður Jóhanna, f. 1971, börn hennar eru: a) Kristófer Atli, f 1989, sonur hans er Atlas Logi, f. 2013. b) Aron Már, f. 1990, börn hans eru Natalía Sól, f. 2012, og Tristan Máni, f. 2013. c) Tanja, f. 1994, sonur hennar er Jóhann Elí, f. 2015. d) Stefán Dagur, f. 2004, og e) Amelía Sól, f. 2006. 2) Ásbjörn, f. 26. apríl 1977. Útför Guðbjargar fór fram frá Ísafjarðarkirkju 7. nóv- ember 2015. Elsku mamma, hjartans þakk- ir fyrir allt. Þú varst alltaf svo nærgætin og skilningsrík, umhyggjusöm og hjartahlý. Þú varst skjól mitt og varnarþing. Við stóðum saman í blíðu og stríðu, vorum sannir vinir. Mér þótti svo undur vænt um þig, elsku mamma mín. (Sigurbjörn Þorkelsson) Valgerður og Ásbjörn. Amelía var fimmta barn for- eldra okkar. Það var mikil eftir- vænting við fæðingu hennar en á þeim tíma mátti ekki koma í heimsókn á sjúkrahúsið svo að ég sat í tröppunum á ganginum og beið. En svo kom hún í heiminn og það var ást við fyrstu sýn þegar ég fékk að sjá hana. Þessi fallega systir mín ólst upp að Seljalandsvegi 8 á Ísafirði, í fjölskyldu sem var samhent þrátt fyrir stundum lítil efni. Ég fékk að dúlla með hana er hún stækkaði, oft skreið hún upp í með kalda fætur og fékk að hita þær á stóru systu á meðan við lás- um saman. Amelía var bráðgreint og duglegt barn og gekk vel í skóla. Hún fór snemma að vinna eins siður var hjá unglingum þess tíma. Hana langaði til að læra meira en það varð ekki. Hún vann fyrst hjá Norðurtanganum og tók svo meirapróf árið 1974. Prófið tók hún á olíubíl og þótti nokkurt af- rek enda ekki algengt að konur tækju meirapróf. Þegar Amelía var 18 ára gömul eignaðist hún Valgerði Jóhönnu, Vallý. Um tíma bjó Amelía með Benedikt Guðmundssyni, föður Valgerðar, en þau slitu samvist- um og fluttu mæðgurnar þá til foreldra okkar. Árið 1977 fæddist Ásbjörn en faðir hans er Bjarni Kjartansson. Amelía leigði sér íbúð fyrir sig og börnin og vann oftar en ekki tvö- falda vinnu. Hún var í mörg ár í Mjólkurstöðinni en síðan hjá Gunnvöru hf. Árið 1990 keypti Amelía hús í Sundstrætinu, Messíönnuhús, og vann eins og forkur við lagfær- ingar á því enda bæði útsjónar- söm og handlagin. Húsinu fylgdi góður garður og þangað bauð hún fjölskyldunni iðulega í mat á sumrin enda bæði hjartahlý og gestrisin. Amelía var elsk að fjölskyldu sinni, bóngóð og alltaf fyrst til að rétta hjálparhönd. Hún var bros- mild og stutt í glettnina en með sterkan vilja og tók upp hanskann fyrir þá sem minna máttu sín. Börnum sínum unni Amelía mjög og vildi allt fyrir þau gera. Vinum Vallýjar og Ásbjörns, sem og börnum þeirra, var hún eins og önnur móðir. Við söknum Amelíu sárt og um leið og við kveðjum hana erum við þakklát fyrir tímann sem við átt- um með þessari yndislegu systur, móður, ömmu og frænku. Allar góðu og skemmtilegu minning- arnar lifa áfram. Elsku Vallý og fjölskylda og elsku Ásbjörn, megi góður Guð styðja ykkur í sorginni. Elín Magnfreðsdóttir. Guðbjörg Amelía Magnfreðsdóttir Elskulegur eiginmaður minn og besti vinur, KRISTMUNDUR HALLDÓRSSON, fyrrverandi skrifstofustjóri, Bræðratungu 36, lést 6. janúar síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 15. janúar klukkan 13. . Gróa Jónatansdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS ÓSKARSSON húsasmíðameistari, Hamratungu, lést sunnudaginn 3. janúar. Útförin fer fram frá Skálholtsdómkirkju laugardaginn 16. janúar klukkan 13. . Þuríður Jónsdóttir, Jón Arnar Magnússon, Hulda I. Skúladóttir, Harpa Sigríður Magnúsdóttir, Unnsteinn S. Snorrason, Einar Kári Magnússon, Lilja Rún Bjarnadóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS KRISTJÁNSSON, Hrafnakletti 1, Borgarnesi, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju laugardaginn 16. janúar klukkan 14. . Jónína Kristín Eyvindsdóttir, Eyvindur S. Magnússon, Ólafía G. Sigurvinsdóttir, Kristján Á. Magnússon, Branddís M. Hauksdóttir, Magnús H. Magnússon, barnabörn og barnabarnabarn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástæra eiginmanns, föður, afa og langafa, LOGA S. JÓHANNSSONAR. Sérstakar þakkir fær starfsfólk gjörgæsludeildar Landspítala fyrir alúð og óeigingjarnt starf. . Jóhanna M. Vestmann, börn, afabörn og langafabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓR HALLDÓRSSON læknir, sem lést 2. janúar, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 19. janúar kl. 13. . Auður Ingólfsdóttir, Guðlaug Þórsdóttir, Ingólfur Kristjánsson, Jóna Þórsdóttir, Lars Peter Jensen, Bolli Þórsson, Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, Hjalti Þór Þórsson og barnabörn. ANTONÍA SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR frá Steinaborg, Berufjarðarströnd, síðast til heimilis að Norðurbrún 1, Reykjavík, lést fimmtudaginn 7. janúar. Hún verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 15. janúar klukkan 13. . Antonía Sveinsdóttir, Anna María Sveinsdóttir, Helga Haraldsdóttir og aðrir vandamenn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI SVEINBJÖRNSSON yfirvélstjóri, Öldugötu 52, lést á Landspítalanum Hringbraut 10. janúar síðastliðinn. Jarðarför auglýst síðar. . Ragna Matthíasdóttir, Sveinbjörn M. Bjarnason, Ebba Sverrisdóttir, Elín B. Bjarnadóttir, Adolf Árnason, Matthías Æ. Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir, tengdafaðir og afi, ELVAR KRISTJÓNSSON, lést á Landspítalanum í Fossvogi 8. janúar. Útför hans verður gerð frá Fossvogskapellu mánudaginn 18. janúar klukkan 11. . Kristjón Elvar Elvarsson, Kristbjörg Bragadóttir, Ástríður Jóhanna Elvarsdóttir, Þórsteinn Pálsson, Róbert Sindri Elvarsson, Eva Dögg Blumenstein, Karl Ragnar Elvarsson, Helena Arnljótsdóttir og barnabörn hins látna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.