Morgunblaðið - 13.01.2016, Side 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2016
Hins mikilhæfa listamanns Davids Bowies, sem
lést á sunnudag úr krabbameini 69 ára gamall,
hefur verið minnst með áhrifaríkum hætti út um
heimsbyggðina. Fregnir af andláti listamannsins
tóku samfélagsmiðla yfir á mánudag og frægir
sem ófrægir minntust Bowies og þeirra áhrifa
sem hann hafði haft á líf þeirra. Tónlist hans var
leikin á útvarpsstöðvum, veitingastöðum og á
heimilum um alla jörð, og aðdáendur söfnuðust
saman og lögðu blóm og tjáðu sorg sína með
margvíslegum hætti við æskuheimili Bowies í
Suður-London, við hús þar sem hann hafði búið,
meðal annars í Berlín, og við Lafayette-stræti í
SoHo í New York þar sem hann var búsettur síð-
ustu tvo áratugi ásamt eiginkonunni, fyrirsæt-
unni Iman, og fimmtán ára dóttur þeirra.
Síðasta hljómplata listamannsins, Blackstar,
kom út á afmælisdegi hans á föstudaginn var og
við óvænt andlát hans skilja menn nú textana
með allt öðrum hætti, og síðasta myndbandið við
lagið „Lazarus“, þar sem Bowie liggur í sjúkra-
rúmi og syngur: „Lítið hingað upp, ég er á himni,
ég hef ör sem enginn getur séð …“ Samstarfs-
menn Bowies hétu því að þegja um að hann
glímdi við krabbamein, sem meðhöfundur hans að
söngleiknum Lazarus sem frumsýndur var á dög-
unum segir hafa verið krabba í lifur, og dást að
sköpunarkrafti hans og elju síðustu misseri, þar
sem hann lagði ofurkapp á að ljúka við söngleik-
inn og plötuna, með myndböndunum við
„Blackstar“ og „Lazarus“, þar sem hann kveður
þessa jarðvist.
AFP
Eftirmyndir Í London grét kona með húðflúr af Bowie við vegg með sömu mynd af honum.
AFP
Í Lundúnum Í fæðingarborg Davids Bowies söfnuðust aðdáendur hans saman við Ritzy-
kvikmyndahúsið í Suður-London, þar sem leikin voru lög með honum og sungið með.
Aðdáendur
Bowies syrgja
víða og þakka
AFP
Heimilið Strax er fréttist af andláti Bowies tók fólk að safnast að heimili hans í SoHo í New York.
Við frægðarstíg Í Los Angeles var Bowies minnst við stjörnu hans á The Hollywood Walk of Fame.
Aðdáendur Sigur Rósar finnast víða
og þá m.a. í Ísrael. Morgunblaðinu
barst tölvupóstur í gær frá hópi
slíkra sem sagðist hafa hrint af stað
verkefninu Project Múkk fyrir um
ári og að nú hefði litið dagsins ljós
plata á netinu til heiðurs hljómsveit-
inni víðfrægu. Á henni gera 12 ísr-
aelskir tónlistarmenn lög Sigur Rós-
ar að sínum og flytja með sínum
hætti og það á íslensku. Að baki
verkefninu standa tveir stofnendur
ísraelskrar facebooksíðu fyrir aðdá-
endur Sigur Rósar sem nefnist
„Bring Sigur Rós To Israel“, eða
„Flytjum Sigur Rós til Ísraels“, þeir
Ofer Perl og Orri Dror. Síða þessi á
sér nú yfir þúsund áhangendur.
Dror mun vera sérfróður um ís-
lenska tónlist og menningu og stofn-
andi samtaka og facebooksíðu sem
helga sig henni. Dror hefur einnig
ritað greinar um efnið, stýrt út-
varpsþáttum og haldið fyrirlestra,
svo fátt eitt sé nefnt. Tónlistarmenn-
irnir sem túlka Sigur Rós eru sagðir
meðal þeirra fremstu í Ísrael og inn-
blásnir af tónlist sveitarinnar. Af-
raksturinn má hlýða á og hala niður
á slóðinni
projectmukk.bandcamp.com/
releases.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Heimsfrægir Jónsi og félagar í Sigur Rós eiga sér milljónir aðdáenda.
Ísraelskir tónlistar-
menn heiðra Sigur Rós
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino
THE HATEFUL EIGHT 5, 9
DADDY’S HOME 8, 10:10
STAR WARS 2D 5
SISTERS 8, 10:30
SMÁFÓLKIÐ 2D 5:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar