Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Blaðsíða 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.2. 2016
Stofnun vefsíðunnar Airbnb er hluti af því sem nefnt hefur verið deilihag-kerfið. Með því að deila íbúðum okkar gegnum vefsíðu til ferðamannahluta úr ári getur húsnæðið verið í notkun þótt við séum ekki þar. Þetta
er í raun afar skynsamleg nýting fjármuna. Flest þurfum við að hafa talsvert
fyrir því að koma þaki yfir höfuðið og greiðum stóran hluta tekna til að borga af
og halda við því húsnæði sem við búum í. Þegar við förum að heiman er þvi ekki
nema sjálfsagt mál að aðrir nýti húsnæðið, og við fáum smávegis aura í aðra
hönd til að standa straum af vöxtum,
hækkandi fasteignagjöldum og svo
framvegis.
Airbnb hefur verið til umfjöllunar í
mörgum borgum um heim allan og
víða hafa verið settar sérstakar regl-
ur, eins og stendur til að gera hér, um
hve lengi má leigja eigin íbúð út í
skammtímaleigu. Samkvæmt frum-
varpsdrögum sem fram eru komin og
eru nú í nefndaryfirferð er gert ráð
fyrir að leigja megi íbúð sína út til
ferðamanna í hámark 90 daga á ári.
Hefðbundin hótel og forkólfar í
ferðabransanum hafa löngum haft
horn í síðu þessa leiguforms enda telja þau að það taki frá þeim kúnna. En fyrir
því er þó ekki endilega fótur. Í rannsókn sem unnin var við Boston-háskóla á
hegðun Airbnb-ferðalanga kom fram að um 40% þeirra hefðu aldrei farið í ferð-
ina nema einmitt vegna þessa gistimöguleika. Þessi angi af deilihagkerfinu
virðist einfaldlega stækka kökuna fyrir alla frekar en að stela bara sneiðum af
hótelgistingu. Þá hefur sýnt sig að á þeim svæðum þar sem framboð Airbnb-
gistingar er mikið hefur hótelverð lækkað. Samkeppni á þessu sviði í formi fjöl-
breyttra gistimöguleika virðist því jákvæð fyrir neytendur.
Á sama tíma og greiningardeild Arion banka telur ástæðu til að staldra við
uppbyggingu hótela og gistiheimila í ljósi þess að markaðurinn gæti mettast
fetta Samtök ferðaþjónustunnar fingur út í 90 daga regluna. Samtökin telja
það of langan tíma sem íbúðaeigendur her á landi fá að leigja ibúðir sínar til
ferðalanga í samkeppni við hótel og gistiheimili.
Þessar áhyggjur eru óþarfar því auknar vinsældir gistingar í heimahúsum
eru langt frá því að vera slæmar fréttir fyrir ferðabransann í heild. Möguleg of-
fjárfesting í hóteluppbyggingu ætti miklu frekar að vera efni í áhyggjur hjá
ferðaforkólfum heldur en hugguleg heimagisting sem laðar að sér nýja gesti
sem annars hefðu ekki heimsótt landið. Nú og ef öll óbyggðu hótelin okkar
lenda í vandræðum með að leigja herbergin sín, þá geta þau líka alltaf auglýst –
á Airbnb.
Morgunblaðið/Golli
Nýir gestir
í heimsókn
’
Auknar vinsældir
gistingar í heima-
húsum eru langt frá því að
vera slæmar fréttir fyrir
ferðabransann í heild.
Pistill
Eyrún
Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
Steingrímur Steingrímsson
Ég verð að skjóta á Hillary Clinton.
SPURNING
DAGSINS
Hver held-
ur þú að
sigri í for-
setakosn-
ingunum í
Bandaríkj-
unum?
Hólmfríður Þorsteinsdóttir
Ég vona að það verði hún Hillary
Clinton.
Morgunblaðið/Sigurborg Selma
Karl Gissur Þórisson
Hillary Clinton.
Eva Ólöf Hjaltadóttir
Ég vona nú að Hillary Clinton
geri það.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
MARÍA HEBA ÞORKELSDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM
Enn að þróa sýninguna
eftir frumsýningu
Forsíðumyndina tók
Árni Sæberg
María Heba Þorkelsdóttir leikkona leikur í verkinu Old Bessastaðir
eftir Sölku Guðmundsdóttur í uppfærslu Sokkabandsins. Verkið er
sýnt í Tjarnarbíói 14. og 18. febrúar.
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Um hvað fjallar verkið? Það fjallar um þrjár konur sem koma
saman til að leggja á ráðin, skilgreina sín gildi og borða spægipylsu.
Eða það er svona ysta lagið. Ekki svo ýkja langt undir yfirborðinu
kraumar rasismi og þjóðarrembingur. En leikritið er líka um valda-
baráttu, kúgun og einelti í samskiptum. Verkið er bæði grimmt og
um leið alveg bráðfyndið.
Hvernig kviknaði hugmyndin að verkinu? Ég
var búin að ganga með hugmynd að leikriti í maganum
sem ég var að hugsa um að reyna að skrifa sjálf. Ég bar
hugmyndina undir manninn minn (Kristófer Dignus,
kvikmyndaleikstjóra og handritshöfund) sem sagði að
það væri nú alveg eitthvað í þessu hjá mér. Þá kom
það þannig til að okkur Elmu Lísu langaði að sækja
um styrk til uppsetningar á leikverki. Ég stakk upp
á þessari hugmynd minni en að við skyldum þá at-
huga með að fá Sölku (Guðmundsdóttur) til að
skrifa leikritið fyrir okkur. Úr varð að Sokka-
bandið sem er leikhópurinn þeirra Elmu og Arn-
dísar (Hrannar Egilsdóttur) sótti um
uppsetningarstyrk og listamannalaun fyrir hug-
myndinni. Við fengum styrkinn sem gerði Sölku
kleift fyrir það fyrsta að skrifa leikritið, að setja
verkið upp á leiksviði og til að stýra því fengum
við Mörtu Nordal sem er eldklár leikstjóri.
Nú er verkið 80 mínútur og ekkert
hlé. Hvernig gengur það? Það gengur
vel og er gaman. Mér finnst þetta skemmtilegt
form á leiksýningum. Þetta er örlítið öðruvísi
upplifun fyrir áhorfendur sem kannski mætti
líkja við tilfinninguna þegar maður sest upp í
rússibana.
Er/var eitthvað meira krefjandi en annað
við gerð verksins? Salka skrifar engar sviðslýs-
ingar inn í verkið sem mér finnst bæði mjög skemmti-
legt og spennandi en um leið var það mikil áskorun
hreinlega að finna út hvað konurnar væru að aðhafast á
hverjum tíma. Við gerðum mjög miklar tilraunir á æfinga-
tímanum og prófuðum margt. Raunar erum við enn að þróa
sýninguna núna eftir frumsýningu.
Hvað er á döfinni hjá þér? Ég fer með lítið en svolítið krefj-
andi hlutverk í kvikmyndinni Eiðurinn sem Baltasar Kormákur er í
upptökum á um þessar mundir. Auk þess styttist í frumsýningar á
kvikmyndaverkefnum þar sem ég fer með misstór hlutverk, bæði ís-
lensk og erlend. Þá er ég að byrja að undirbúa mig fyrir sviðsverk
sem ég verð í og fjallar um Þórberg Þórðarson sem verður á fjöl-
unum á næsta leikári. Hér er um að ræða fyrsta leikstjórnarverk-
efni Eddu Bjargar Eyjólfsdóttur. Bæði spennandi verkefni þar á
ferð og flottur hópur listamanna sem að því kemur.