Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Blaðsíða 49
14.2. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49 Myndin leitar orða og kannski kem- ur út úr því lína sem er stuðluð og í ákveðnum takti. Og ég tala nú ekki um ef hún endar á orði sem heimtar rím. Þá getur þetta orðið að hátt- bundnu ljóði. Önnur orð vilja svo frekar raða sér í lausara form. Ég hélt þessu lengi aðgreindu, hélt mig alveg við háttbundinn brag í fyrstu þremur bókum mínum af því mér fannst það svo miklu þægilegra, fannst að ef ég hefði ekki skorð- urnar og rammann, þá myndi ég ekki vita mitt rjúkandi ráð. En svo ákvað ég að taka á þessu vandamáli og temja mér það að ná valdi á óháttbundnum brag. Þá gaf ég út bók sem heitir Ydd og margir gagn- rýnendur töluðu í kjölfarið eins og ég hefði farið í meðferð eða eitthvað svoleiðis, og losað mig við erfiða ár- áttu, nú væri allt annað að sjá til mín. Síðan fór þetta að vera sitt á hvað – og fyrir mér er ljóð núna bara ljóð. Sum eru háttbundin, önn- ur ekki, sum eru vond og sum góð, og það hefur ekkert að gera með bragarhátt. En þetta er ekki sami hluturinn. Ég hef ort mikið af barnaljóðum og þau eru eingöngu háttbundin, vegna þess að í hinum háttbundna brag er það hrynjandin og rímið sem býr yf- ir þeim galdri sem höfðar ekki síst til barna.“ Rými til að skálda Við ræðum um muninn á prósa- formunum, smásögum og skáldsög- um, og húmorinn sem löngum hefur verið eitt af einkennum skrifa Þór- arins. Honum finnst smásagan vera skyld ljóðinu. „Ég minntist á þetta orð Halldórs Laxness, þanþol, en ég hef ekkert síður í ljóðagerð og smá- sögum verið að kanna það sem við getum kallað þjappþol máls og forms. Hvað þolir það að vera press- að mikið saman? Flestar smásög- urnar mínar eru frekar stuttar. Skilgreiningin á smásögu er reynd- ar mjög loðin – og ég hef skifað smásögu um það! Og í þeim er oft ákveðin stemning eða grunnhug- mynd sem gengur upp. Hins vegar eru allar skáldsögur mínar utan ein, Skuggabox, sögulegar. En þó að þær byggist flestar á frásögnum um menn sem voru til þá er í þeim ákaf- lega mikið rými til að skálda eitt- hvað upp. Og ég held að sú viðleitni að byggja á húmor og óvæntum uppákomum sé ekkert síður til stað- ar þar en í smásögunum.“ – En hafa skáldsögurnar lengri meðgöngutíma en önnur verk? „Já, þær eiga sér venjulega lang- an aðdraganda. Spretta oft upp úr einhverju grúski. Og grúsk er mjög hættulegt! Það er svo erfitt að setja sér hömlur, hvar á að stoppa, hve- nær á maður að klippa á þá jarð- tengingu sem heimildirnar veita, og hvað má maður skrifa um fólk sem var til? Svo er annað með skáldsögur, þó það sé banalt að segja það; þær eru lengri en smásögur og því er maður lengur að skrifa þær!“ – Undanfarna áratugi hefur þú starfað við skriftir og iðulega fengið ritlaun, eins og margir aðrir at- vinnulistamenn. Það hefur vænt- anlega aðveldað þér að sitja við? Ekki á vísan að róa „Já, mikil ósköp. Í starfi eins og þessu er náttúrlega ekki á vísan að róa hvað tekjur varðar. En það þýð- ir ekki að kvarta yfir því, þetta er ákvörðun sem ég tók, og fyrir lif- andis löngu er það komið upp í vana að vita aldrei með vissu hvað er framundan. Til að geta komist þokkalega af fjárhagslega þurfa nokkrir hlutir því helst að ganga upp. Eitt er að komast í starfslaun, en þau nægja aldrei handa öllum og ekkert gefið að maður fái þau. Það eina sem maður á skýlausan rétt á er að sækja um – og því geri ég það að sjálfsögðu. Mitt hlutverk er að reyna að halda gangandi þessu skrifbatteríi sem ég er. Þegar bæk- ur síðan koma út – og það er heldur ekkert á vísan að róa með það hve- nær verk klárast –, þá fara tekjur af þeim eftir sölu, og hún er ekki fyrir- fram gefin. Enn ein tekjustoðin hjá höfundi eins og mér eru verkefni sem ég tek að mér. Yfirleitt þýðing- ar eða hitt og þetta smálegt: blaða- skrif, ávörp, erindi, hugmyndavinna svo sem tillögur að nöfnum á stofn- anir, fyrirtæki og þvottaduft, eitt- hvað svoleiðs. Vitaskuld munar um það fyrir alla listamenn að fá starfslaun, að maður tali nú ekki um það sem almenning- ur fær í staðinn.“ – En erfiljóð eru horfin af feril- skrá skálda í dag, eða hvað? „Já, erfiljóð eru líklega horfin að mestu en ég fékk í fyrra mjög gott tækifæri sem hirðskáld. Það var lærdómsríkt og gefandi. Ég fékk þessa líka fínu skyrtuhnappa frá Svíakonungi sem reyndist mestur mildingur hátignanna.“ Hér rifjar Þórarinn upp að í tengslum við þýð- ingu og útgáfu allra Íslendingasagn- anna á Norðurlandamálin hafi hon- um verið falið að yrkja drápur og flytja þær Danadrottningu og kon- ungum Noregs og Svíþjóðar. Var ekki sérstakt að vera í þeim gömlu virðingarsporum íslenskra skálda? „Þetta var mjög skemmtilegt,“ segir hann. „Þjóðhöfðingjarnir höfðu verið fengnir til að skrifa hver sinn formála og svo þegar til stóð í kynningarskyni að afhenda hverju fyrir sig kassann með dótinu í, þá fékk einhver þá ágætu hugmynd, til að þetta vekti kannski meiri athygli, að fá íslenskt skáld til að mæra þjóðhöfðingjana á staðnum. Leitað var til mín og byrjað á Danadrottn- ingu á vori, svo komu kóngarnir seinna um haustið.“ – Settirðu þig í hátíðlegar stell- ingar? „Já já, og það gekk allt vel fyrir sig. Þetta voru dróttkvæðar drápur, nokkuð snúið form, ekki ólíkt því að leysa krossgátur. Ég ákvað fyrir- fram hversu mörg erindin skyldu vera og um hvað drápan fyrir hvern og einn fjallaði og svo fengu allir það sama, lögð var áhersla á að þarna sé þessi forni arfur kominn á nýju formi. En ég þurfti að troða boðskapnum í erindin, og svo hverju í sína spennitreyju. Og auðvitað mæra drottningu og kónga, bara ekki allt of mikið, því eins og Snorri sagði verður oflof háð.“ Morgunblaðið/Einar Falur Þórarinn hefur nú, með aðstoð Halldórs sonar síns sem er tölv- unarfræðingur og tónlistar- maður, opnað heimasíðu: thor- arinn.eldjarn.is. Á síðunni eru flokkar helstu verka Þórarins, smásögur, skáldsögur, ljóðabækur og þýð- ingar, tilvitnanir í skrif hans og segir hann að á næstunni bætist við ýmiskonar efni, ritdómar og slíkt. „Þá ætla ég að birta alls- kyns ræður, erindi og ávörp, hitt og þetta sem ég á í rosaleg- um sarpi og þetta er ágætur vettvangur til að birta það á,“ segir hann og bætir við að fólk geri síauknar kröfur um að upp- lýsingar sem þessar séu að- gengilegar á netinu. „Þá ætla ég jafnvel að birta á vefnum nýtt efni, kasta fram stökum og kommentera á hitt og þetta. Nú get ég líka vísað á vefinn þegar menntaskólanemar hringja, segjast vera að skrifa ritgerð og vantar upplýsingar.“ Þórarinn hefur sent frá sér fjölda bóka: kvæði, skáldsögur og smásögur. Nýtt efni á heimasíðu N ýbýlavegur8.-200 Kópavogur-S:527 1717 - dom usnova@ dom usnova.is -w w w .dom usnova.is Fasteignasala venjulega fólksins... Iðavellir 13, 230 Reykjanesbæ, Frábær staðsetning hentar vel fyrir fiskverkun/ bílaleigu/ bílasölu eða allt það sem tengist því að vera snöggur uppá flugvöll. Óskað er eftir tilboðum í eignina 1135m2 Fasteignamat 96.600.000 kr. Brunabótamat 194.300.000 kr. Björgvin Þ. Rúnarsson Símanúmer 855-1544 bjorgvin@domusnova.is Haukur Halldórsson Hdl, löggiltur fasteignasali haukur@domusnova.is ’ Í starfi eins og þessu er náttúrlega ekki á vísan að róa hvað tekjur varðar. En það þýðir ekki að kvarta yfir því, þetta er ákvörðun sem ég tók, og fyrir lifandis löngu er það komið upp í vana að vita aldrei með vissu hvað er framundan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.