Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Blaðsíða 28
MATUR Algeng mistök eru að ofelda fiskinn og verður hann þá þurr og vond-ur. Fiskur þarf oftast mun styttri eldunartíma en fólk heldur. Taktu
hann frekar út of snemma en of seint og láttu hann standa smástund.
Að elda góðan fisk
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.2. 2016
Þorskurinnhefur allatíð verið
okkar verðmæt-
asti nytjafiskur
og er svo enn í
dag. Það þótti
heldur ófínt í
gamla daga að
borða þorsk
hérlendis á með-
an hann var eft-
irsóttur á er-
lendan markað.
Í dag eru sem
betur fer Ís-
lendingar búnir
að uppgötva að hann er lostæti, og þá sér-
staklega hnakkastykkið. Þorskurinn býður
upp á endalausa möguleika til að leika sér í
matargerð. Óskar er ekkert að flækja hlutina
og kennir okkur hvernig á að galdra fram
fimm stjörnu máltíð á örskömmum tíma. Þeg-
ar hráefnið er ferskt úr sjónum er erfitt að
klúðra matnum. Óhætt er að mæla með
þorski með beikoni og Brie, hvort sem það er
hversdags eða spari.
Takið afgangana af beikon
brie-þorskinum og skerið
beikonið og ostinn í litla
bita og tætið þorskinn
niður. Setjið þetta á
pönnu með olíu (á með-
alhita) ásamt kartöflunum
og hrærið varlega í með
sleif á meðan þetta er að
hitna. Kryddið með
nokkrum dropum af chili-
olíu eða chilidufti. Kreistið
yfir ¼ af sítrónu þegar
þetta er komið á diskinn.
Berið fram með baguette.
Beikon-
brie-ragú Takið afganga af beikon
brie-þorski og setjið á
bretti, skerið niður smátt
og setjið í skál. Bætið út í
skálina 1 eggi, 2 litlar msk
hveiti og nokkrum drop-
um af chiliolíu eða chili-
dufti og ¼ af sítrónu
kreist út í. Best er að
nudda þessu saman með
höndunum og búa til
klatta ca. 1 cm þykka.
Steikið á heitri pönnu
1-1½ mín. á hvorri hlið.
Berið fram með fersku
salati eða hrísgrjónum og
sósu eftir smekk.
Stökkir ljúffengir fiskiklattar
6-700 g litlir þorskhnakkar
500 g sætar kartöflur
1 bréf beikon
ólífuolía
½ msk rósmarín
½ Dala Auður eða Brie
1 tsk pipar
salt
fersk salvía (má sleppa)
Hitið ofninn í 180°C. Skerið
sætu kartöflurnar í teninga.
Setjið smá olífuolíu á pönn-
una og steikið beikonið
(meðalsteikt) og setjið á
disk. Bætið svo aðeins olíu á
pönnuna og steikið sætu
karftöflurnar á í 2-3 mín. upp
úr beikonfeitinni. Kryddið
með rósmarín og pipar.
Skellið kartöflunum í eldfast
mót og bakið þær í ofninum í
15-20 mín. (fer eftir stærð).
Þegar kartöflurnar eiga um
10 mínútur eftir gerum við
fiskinn kláran. Hellið um 1-2
matskeið af olíu á fiskinn og
veltið honum aðeins í olíu-
nni. Kryddið með smá pipar
og salti. Leggið þorskinn of-
an á sætu kartöflurnar og
beikonið ásamt ostinum þar
ofan á. Bakið í ofni í ca 10
mín. Gott að skreyta með
ferskri salvíu eða einhverju
grænu kryddi.
Þorskhnakkar í sparifötum
Í nýjasta þætti af
Korter í kvöldmat
eldaði Óskar
Finnsson dásam-
lega þorsk-
hnakka með
beikoni og
Brie. Hann
mælir með að nýta afgangana í
tvo einfalda en bragðgóða rétti.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Óskar eldar þorskhnakka
með beikoni og Brie osti.
Morgunblaðið/Ásdís
ÞESSA RÉTTI ER HÆGT AÐ BÚA TIL ÚR AFGÖNGUNUM
Beikon
Brie
þorskur