Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Blaðsíða 53
14.2. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
ÓSKARINN Kate Winslet getur ekki hugsað sér að
sniðganga Óskarsverðlaunahátíðina eins og sumir ætla
að gera til að mótmæla „hvítri“ óskarshátíð. Ástæðan:
Leonardo DiCaprio.
„Ég hef mjög sterklega á tilfinningunni að þetta verði
ár Leos,“ sagði Winslet við fréttamenn á frumsýningu á
mynd sinni Triple 9 í London. Þessi fyrrverandi sam-
leikari hennar í stórmyndinni Titanic er tilnefndur fyrir
bestan leik í aðalhlutverki í myndinni The Revenant.
„Hann er nánasti vinur minn í heiminum og ég gæti ekki
hugsað mér annað en að mæta til að styðja hann.“
Fleiri ástæður liggja ennfremur að baki. „Þetta hefur
verið svo frábært ár fyrir konur. Mér þætti ég vera að
bregðast eigin kyni ef ég færi ekki,“ sagði hún.
Kate styður Leo
Kate ætlar
að mæta.
AFP
KVIKMYNDIR Margir hafa eflaust saknað gamanleikkonunnar
Goldie Hawn á hvíta tjaldinu en hún hefur ekki leikið í
kvikmynd frá því að The Banger Sisters var frum-
sýnd árið 2002. Önnur gamanleikkona, sem er núna
einhver sú allra vinsælasta í heimi, ætlar heldur
betur að bæta úr þessu. The Hollywood Reporter
greinir frá því að Amy Schumer sé búin að fá
Hawn til liðs við kvikmynd sem hún er með í bí-
gerð. Myndin hefur ekki fengið nafn en við
stjórnvölinn er Jonathan Levine, leikstjóri
The Night Before. Hawn mun að sjálf-
sögðu leika móður Schumer og er
öruggt að þessar tvær eiga eftir að
verða góðar saman.
Goldie Hawn snýr aftur
Hawn ætlar að
leika móður
Amy Schumer.
Stórskemmtileg sýningvar opnuð íLouisiana-nútíma-
listasafninu norður af Kaup-
mannahöfn í byrjun febr-
úar. Sýningin nefnist Eye
Attack og einblínir á tíma-
bilið 1950-1970. Sjónum er
beint að „op list“ og „kínet-
ískri“ list þessara ára.
Mesta áherslan er á tvo
listamenn, hinn ungverska
Victor Vasarely og hina
bresku Bridget Riley. Þetta
er yfirgripsmikil sýning sem
virkilega gaman er að skoða
því verkin snúast alla jafna um að blekkja
augað, listaverkin virðast hreyfast og bylgjast
og leikið er með þrívídd.
„Kínetísk“ list byggist á því að verkin
breytast eftir því sem áhorfandinn hreyfir
sig, hreyfing hans er nauðsynleg til að upplifa
verkið. Börn á skólaaldri ættu að hafa gaman
af sýningu sem þessari en í Louisiana er líka
boðið upp á sérstaka barnavinnustofu. Húsið
sjálft og umhverfi er líka sérlega
fallegt og býður upp á útivist í leið-
inni og setu við arineld í skemmti-
legri kaffistofu.
Ennfremur eru tvær stórar inn-
setningar sem leika sér með rýmið
og trufla skynjun þar sem unnið er
með þrívídd og spegla.
Verkin eru jafnan áleitin og
skapa mörg heilmikið áreiti með
blikkandi ljósum, hreyfanlegum
listaverkum og skerandi röndum.
Öryggisverðir safnsins gengu þó
ekki um með sólgleraugu líkt og
sögur fara af um sýningu af þessu
tagi í MoMa í New York á sjöunda
áratugnum.
Þessar listastefnur voru stórir áhrifavaldar
í dægurheiminum og settu til dæmis mikið
mark á auglýsingar, plötuumslög, lógó og
fatahönnun. Sýningin gerir þessum kafla sér-
lega góð skil og telur upp helstu strauma og
stefnur í poppmenningu þessa tíma og hvern-
ig þetta tengist. Eitt dæmi um áhrif „op list-
ar“ má sjá hér til hliðar á forsíðu bandaríska
tískutímaritsins Vogue frá árinu 1965. „Op
listin“ átti líka vel við hugvíkkandi eiturlyfja-
strauma tímabilsins og ást almennings á
geimferðum og vísindaskáldskap.
Victor Vasarely, Vega Or, 1969.
Árás á augað
„Op list“ á forsíðu Vogue í
júní 1965.
Skarpar línur og skynvillur ráða ríkjum í nýrri sýningu í
danska listasafninu Louisiana. List af þessu tagi hefur haft
mikil áhrif á dægurmenningu.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Mynd/Louisiana
Þrátt fyrir að koma úr ólíkum átt-
um virtist fara vel á með Justin
Bieber og Courtney Love á tísku-
sýningu Saint Laurent í Los Angel-
es í vikunni. Love birti meira að
segja mynd á Instagram af sér og
Bieber að heilsast og textinn með
myndinni hjóðaði svo: „Sannkall-
aður heiðursmaður“. Ekki skorti
stjörnufansinn á sýningunni sem
fram fór í Hollywood Palladium en
á Instagram-myndinni sáust líka
Krist Novoselic úr Nirvana og Kim
Gordon úr Sonic Youth. Fötin frá
Saint Laurent eru líka einstaklega
rokkvæn.
AFP
Saman á Saint Laurent
AFP
:
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 miðvikudaginn 2. mars.
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Fermingarblað
Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn
4. mars
SÉRBLAÐ
Fermingarblaðið er eitt af vinsælustu
sérblöðum Morgunblaðsins
og verður blaðið í ár
sérstaklega glæsilegt.
Fjallað verður um allt
sem tengist fermingunni.
FERMINGAR