Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Blaðsíða 18
Loðfeldir og loðskraut af ýmsu tagi var
áberandi á tískuvikunni enda loðfeldir
með sterkan talsmann í borginni í formi
skinnasölufyrirtækisins með meiru
Kopenhagen Fur. Efniviðurinn var
minkaskinn og selskinn og allt þar á
milli. Sígildir pelsar sáust líka en yfir-
hafnirnar fengu ennfremur unglegri
svip með litríkum feldum og eru
fyrir bæði karlmenn
og konur.
Ljósmyndir/Copenhagen Fashion Week
Asger Juel
Larsen
By Malene
Birger
Jesper
Høvring
Loðfeldir
Birger
Christensen
Freya
Dalsjø
TÍSKUVIKAN Í KAUPMANNAHÖFN
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.2. 2016
T
ískuvikunni í Kaupmannahöfn er nýlokið en hún setur sterk-
an svip á borgina þessa daga sem hún stendur yfir. Ólíkt
mörgum öðrum tískuvikum er almenningi boðið að taka þátt
í ýmsum viðburðum, stórir skjáir sem sýna frá lokuðum
sýningum eru settir upp fyrir framan Ráðhúsið, heimavöll
tískunnar, og líka á Amager-torgi.
Fyrir utan Ráðhúsið voru sýningar haldnar á fleiri áberandi stöðum
í borgarmyndinni eins og D’Angleterre-hótelinu og Rundetårn. Sunnu-
dagsblað Morgunblaðsins fékk tækifæri til að fylgjast með mörgum
þeirra að þessu sinni.
Bæði dönsk tískumerki og hönnuðir annars staðar frá, alls um 25
talsins, sýndu á þessari stærstu tískuviku Norðurlandanna. Að þessu
sinni var aukin áhersla á herratísku, enda vex markaðurinn fyrir
herraföt hraðar en hjá kventískumerkjum.
Opnunarsýningin var frá Tonsure, verðlaunuðu og rísandi herrafata-
merki. Teymið á bak við merkið skipa Malte Flagstad, fyrrverandi
hönnuður hjá Maison Martin Margiela og Adam El-Zayat Hjorth, sem
sér um sölu- og markaðsmálin.
Stuðningur frá krónprinsessunni
Hjorth þessi skartar yfirvararskeggi eins og svo margir ungir menn í
Kaupmannahöfn en þeir eldri eru líklegri til að vera með alskegg.
Stallaklipping nýtur líka mikilla vinsælda og var að minnsta kosti einn
ungur maður sem sportaði yfirvararskeggi við stallaklippinguna.
Spurning hvort þessi tíska eigi eftir
að ná til Íslands?
Fataiðnaðurinn er stór í Dan-
mörku og mætti Mary, krónprins-
essa Dana, á opnunarsýninguna til
að sýna stuðning sinn við tískuvik-
una.
Sýningarnar eru auðvitað staður
þar sem fólk kemur til að sýna sig og
sjá aðra og var bloggdrottningin
Pernille Teisbæk ekki langt undan en hún er orðin táknmynd nor-
rænnar tísku á alþjóðlegum vettvangi og er reglulega tekin fyrir á
Vogue.com.
Umfram allt snýst þetta þó um sýningarnar og fötin sem hönnuðir
kynntu fyrir haustið 2016.
Henrik Vibskov heldur tryggð við heimahagana og sýndi í höfuð-
borginni en hann er einn af fáum dönskum hönnuðum sem jafnan
frumsýna línur sínar á tískuviku í París. Hann er eitt af þekktari nöfn-
um tískuvikunnar en þar má líka nefna tískuhús By Malene Birger og
Ganni. Nýrri nöfn sem vakið hafa mikla athygli undanfarin misseri eru
Freya Dalsjø og Asger Juel Larsen.
Máðar kynjalínur
Gaman er að segja frá því að kynjalínan er ekki eins bein og hún hefur
alltaf verið. Í þetta skiptið var áberandi að herratískan var ekki síður
djörf og skapandi en kvenfatatískan. Karlar klæddust jafnvel leggings
og pilsum og konur herralegum fötum.
Á herrasýningum voru konur heldur ekki skildar útundan, og öfugt,
en til dæmis lokaði hin danska þekkta fyrirsæta Caroline Brasch Niel-
sen sýningunni hjá Tonsure.
Á meðfylgjandi myndum verða tekin fyrir þrjú þemu, loðfeldir voru
áberandi á tískuvikunni sem og tíundi áratugurinn og síðan verður
skyggnst sérstaklega inn í heim herranna.
Djarfir
herrar og
dýrðar
dömur
Tískuvikan í Kaupmannahöfn fór fram í fyrstu
viku febrúar en þar sýndu hönnuðir tískuna
fyrir haustið 2016. Sunnudagsblað Morg-
unblaðsins fylgdist með sýningunum.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
’
Bæði dönsk tískumerki
og hönnuðir annars
staðar frá, alls um 25 tals-
ins, sýndu á þessari stærstu
tískuviku Norðurlandanna.