Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Blaðsíða 15
Blaðamaður og ljósmyndri Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Það var bæði fróðlegt og skemmtilegt að hitta þessar metnaðarfullu og flottu konur. Í litlum klefa fremst í stærðar röri sitja flugmenn og flugstjórar landsins og flytja bæði vörur og farþega á milli landa og landshluta. Starfið er krefjandi, oft stressandi og stundum þreytandi og því fylgir mikil ábyrgð. Allir þessir litlu takkar, litlu ljósin sem blikka, allir þessir farþegar sem sitja aftur í og treysta flugmanninum fyrir lífinu. Það þarf að lyfta þessu ferlíki af jörðinni og fljúga því í gegnum ský, yfir fjöll og höf, stundum í stormi og hríð. Fyrir leikmann lítur það svona út. En flugmenn eru óhræddir við þess- ar áskoranir. Konur í miklum minnihluta Flugmannsstarfið er nokkuð sem blaðamaður gæti aldrei hugsað sér, enda ómögulegur flugfarþegi, hvað þá meir. En það eru til konur og menn, og þá aðallega menn, sem njóta þess að sitja fremst í litlum klefa, horfa á heiminn úr lofti og fimlega handleika takka og stýri af miklu öryggi. Starfið hefur alltaf verið, og er enn, karla- starf. Konum fer hægt og rólega fjölgandi í stéttinni en enn eru þær langt innan við 10 % af íslenska flotanum. Njóta sín í háloftunum Konurnar sem blaðamaður ræddi við eru á ólíkum aldri og fljúga fyrir mismunandi flugfélög. Þær eru allar ánægðar í starfi sínu og njóta sín vel í háloftunum. Þær hafa mismunandi reynslu að baki en allar hafa þær lagt á sig mikla vinnu til að komast við stjórnvölinn í flugstjórnarklefanum. Óhætt er að segja að blaðamaður mun anda léttar í næstu flugferð eftir að hafa fræðst um starfið. Vonandi heyri ég rödd þeirra í hátalaranum. Ég mun jafnvel steinsofna vitandi af þessum konum við stýrið. Konur háloftanna Flugstjórasætið vermir oftast karlmaður en konur eru að sækja í sig veðr- ið. Þó eru þær enn aðeins nokkur prósent af heildinni. Blaðamaður fann þrjár íslenskar konur sem stýra í háloftunum. Þær segja frá starfinu með- al karla, ábyrgðinni, óvæntum atvikum og ævintýralegum farþegum. Morgunblaðið/Árni Sæberg 14.2. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 2013. Þú ert sem sagt að fljúga og safna háskóla- gráðum í leiðinni? spyr ég. „Nei, ekki endilega að safna háskólagráðum en ég held að það sé komið gott núna, ég fer í nám til að auka þekkingu mína. Maður lærir svo lengi sem maður lifir,“ segir hún og brosir. Einnig starfar hún sem formaður Rannsóknar- nefndar samgönguslysa. „Ég er ekki með fimm í for- gjöf í golfi, þetta er einfaldlega mitt áhugamál,“ segir hún. Flugið ennþá karlastétt Geirþrúður var önnur konan til að verða ráðin sem flugmaður hjá Flugleiðum. Hún segist ekkert hafa ver- ið að velta því mikið fyrir sér. „Ég var líka í vélaverk- fræðinni og þar vorum við mjög fáar konur,“ segir hún. „En flugið er karlastétt. Það er karllæg menning í stéttinni því að karlar eru í miklum meirihluta. Ég hef lítið pælt í því, nema maður vildi náttúrlega falla inn í hópinn. En það voru til menn í fluginu á þessum tíma sem ég var að byrja sem fannst bara að það ætti ekki að ráða konur. Það var mín einlæga sannfæring að þetta myndi deyja út en mér finnst samt ennþá karl- remba í þjóðfélaginu. Það eru enn til karlmenn í minni stétt sem finnst að konur eigi ekki að vera flugmenn,“ segir hún og bætir við að henni finnist það ekki aldurs- tengt. Geirþrúður segir að henni finnist að hún hafi aldrei verið fyllilega tekin inn í hópinn. „Kvenflugmenn sem eru giftar flugmönnum, komast miklu betur inn í hóp- inn. Við sem ekki erum giftar flugmönnum erum meira fyrir utan hann. Ég er hvorki í flugmannahópnum né í flugfreyjuhópnum,“ segir hún en bendir á að auðvitað eigi hún fullt af góðum vinum í fluginu. Geirþrúður vinnur mjög óreglulegan vinnutíma og þarf oft að vakna mjög snemma á morgnana og stund- um nánast um miðjar nætur en segir að öll störf hafi kosti og galla. „Mér finnst gallarnir vera þessi óreglu- legi vinnutími,“ segir hún en verst finnst henni nætur- flugið. „Eitt næturflug er bara eins og þriggja daga vinna. Við flugfólkið verðum auðvitað þreytt eins og annað fólk,“ en hún segir að þau upplifi flugþreytu jafnt sem aðrir og það venjist ekki. Morgunblaðið/Ásdís Lítill laumufarþegi Eitt sinn þegar Geirþrúður var að fljúga til Amster- dam tók flugfreyjan eftir undarlegu krafshljóði sem kom fyrir ofan fremstu sætaraðirnar. „Þegar við lent- um í Amsterdam var hljóðið komið fyrir ofan salernið. Ég spurði flugvirkjana hvort það væri einhver hætta en þeir sögðu að það væri allt í lagi og ég flaug heim. Þetta undarlega hljóð hélt áfram og við héldum að þetta væri jafnvel lifandi dýr á bak við þil,“ segir hún. Þegar lent var í Keflavík komu flugvirkjar að athuga málið og opnuðu einhver vegghólf. „Út flaug lítill skógarþröstur! Hann hafði tekið sér far fram og til baka yfir Atlantshafið!“ Erum mjög vel þjálfuð Geirþrúður segist aldrei hafa orðið hrædd í starfinu. „Það hefur aldrei verið þannig að ég sæi ekki leið út úr því,“ segir hún. Henni finnst starfið ekki beint stressandi en segir þó að oft sé tímapressa. Ég spyr hvort hún hugsi aldrei að hún beri ábyrgð á lífi hundruðum manna á flugvélinni. Hún segir að það hvarfli að sér en hún og aðrir flugmenn séu mjög vel þjálfaðir og sífellt á námskeiðum að læra á nýja tækni og uppfæra kunnáttuna. Einnig þurfa flug- menn að vera vel upplagðir og vel hvíldir fyrir flug. „Við þurfum að passa vel upp á svefninn okkar. Okk- ur ber skylda til að hringja og segja ef okkur finnst við vera of þreytt. Ég hef gert það. Ég hef ekki náð að sofa fyrir flug og þá ber mér skylda til að tilkynna það. Ef þú lendir í bilun eða eitthvað, þá viltu vera úthvíldur,“ segir Geirþrúður sem hefur oft lent í minniháttar bilunum. „Við fáum bara svo góða þjálf- un að þegar við lendum í þannig aðstæðum, þá vitum við hvað við eigum að gera. Ég hef lent í að loftþrýst- ingur í flugvélinni hélst ekki eins og hann átti að vera og þá þurftum við að lækka okkur snöggt niður og setja á okkur súrefnisgrímur og snúa við. Ég lenti aftur í þessu núna í desember,“ segir hún. Í báðum þessum tilfellum gerðist það hægt þannig að við náð- um að lækka flugið áður en farþegar þurftu að nota grímur. Við höfðum alveg stjórn á ástandinu og eng- in hætta á ferðum,“ segir hún að lokum. Óþarfi að óttast hristing Talið víkur að flughræðslu. „Það er fullt af fólki sem er flughrætt og það er ekkert að því. Mér finnst að við ættum að gefa meiri gaum að fólkinu sem er flug- hrætt og halda betur utan um það. Ef maður er flug- hræddur, þá hefur það ekkert með rökrétta hugsun að gera. Fólk er búið að heyra það hundrað sinnum að flug er einn öruggasti ferðamáti í heimi. Miklu örugg- ara en að fara upp í bíl,“ segir hún og bendir á að fólk ráði ekki við það. Hún ráðleggur fólki að reyna að stunda slökun í flugvél, taka góða öndun og hlusta á tónlist. „Það eru tvöföld eða þreföld kerfi í flugvélum, ef eitt kerfi bilar tekur annað við, ef einn mótor bilar getum við bara flogið á hinum heim. Geirþrúður hefur látið sig þessi mál varða og stofnaði vefinn fitto- fly.com til að gefa farþegum og áhafnarmeðlimum góð ráð hvernig best sé að njóta flugsins. Rennibrautin blés upp Ég spyr um furðuleg atvik á ferlinum. Geirþrúður nefnir að eitt sinn þegar hún var flugfreyja á leið til Ísafjarðar hafi einn farþeginn verið með læti. „Það var maður með sveðju sem skar af sér beltið! Hann var eitthvað orðinn þreyttur á að vera með beltið spennt og skar það bara af! Við snerum við í bæinn. Í annað sinn þegar ég var flugfreyja gerðist óvænt atvik. Það var hálfgerð bilun í neyðarrennibrautinni og hún blés upp inni í vélinni. Það var spotti sem átti að vera inni í henni en lá úti og ég rak hælinn á skónum í hann og hún blés út. Þetta var í DC8 og við vorum að lenda í Keflavík,“ segir hún en vélin var full af fólki. „Rennibrautin blés upp og fór inn í eldhúsið og braut niður flugfreyjusæt- ið. Ég var bara heppin að hún skyldi ekki bara drepa mig eða kæfa mig bara! Það er svo mikill kraftur í þessu!“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.