Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.2. 2016
Bíllinn olli samgöngubyltingufyrir rúmlega öld, fyrst íBandaríkjunum en smám
saman um nær allan heim. Menn hafa
þvegið og bónað, dáðst að fákunum
og metist um hver væri bestur, ekki
síður en hestamenn. Hljóðið verður
að vera rétt, lakkið sindrandi, kraft-
urinn svo mikill að aldrei þrjóti. Bíll-
inn er ekki bara samgöngutæki held-
ur stöðutákn. Og hann er ómissandi
hluti af menningararfi 20. aldarinnar,
til staðar í bókmenntum, tónlist, kvik-
myndum. Og oft ástalífi ungmenna.
Vagnhestarnir óteljandi voru að
kæfa New York í fjallháum haugum
af hrossataði fyrir tíma bílsins og nú
vilja margir fækka bílum, jafnvel
gera einkabílinn útlægan. Láta tölvur
stýra bílnum, tryggja að ekki séu
hvarvetna raðir af bílum sem aðeins
nýtist einum manni þá stundina. Nota
eingöngu rafbíla og deila þeim skyn-
samlega. Losna við dauðaslys, um-
ferðarteppur í borgunum, mengun og
fleira illt sem bíllinn veldur. En það
sem heillar marga við þetta tákn
ferðafrelsisins deyr óhjákvæmilega,
bíllinn verður óspennandi eins og
færiband.
Menn vilja nýta bílana betur svo að
ekki þurfi að leggja svona mikið land
undir götur, bílastæði og bílskúra í
borgunum. En margt getur tafið fyrir
þeim draumum.
Hægt er að stýra farþegaþotum frá
jörðu, sleppa alveg flugmönnunum en
það er ekki gert. Flugfélögin vita að
fjölmargir farþegar myndu ekki
treysta slíku farartæki þótt langflest
flugslys verði vegna mannlegra mis-
taka flugmanna. Sálræna hindrunin
er öflug, við viljum að einhver geti
gripið inn.
Tregðan og tortryggni út í tölvurn-
ar er ekki alveg ástæðulaus. Illvirkjar
gætu t.d. tekið stjórnendur á jörðu
niðri í gíslingu og haft þá ráð okkar í
hendi sér. Og hvort sem um er að
ræða árásir hryðjuverkamanna eða
óvæntar náttúruhamfarir finnst
flestu fólki óþægilegt að vera við slík-
ar aðstæður eins og ósjálfbjarga leik-
soppar í höndum ofurflókinna tækja.
Kannanir sýna að þetta á þó mun
frekar við um fólk á miðjum aldri og
eldra en yngra fólk sem hefur vanist
hátækni frá blautu barnsbeini.
Áfram verður þörf fyrir bílstjóra í
hernaði, á mjög afskekktum svæðum
og við mjög sérstakar aðstæður. En
ef miðstýrt tölvukerfi nýtti sér gervi-
tungl til að stjórna allri bílaumferð í
borg eða jafnvel heilu landi væri veik-
leikinn fyrir hendi; hakkari gæti á
endanum brotist inn í kerfið.
Margir segja samt óhjákvæmilegt
að söðla um. Þeir benda á að tölva
við stýrið sé ekki óútreiknanleg
eins og mannskepnan, aldrei drukkin
eða dópuð, ekki önnum kafin í snjall-
símanum, aldrei þreytt. Hún fari allt-
af eftir umferðarreglum. Tölvan sé
einfaldlega miklu hæfari en fólk til að
annast akstur.
Breytt byggðamynstur
En ef bæði eru menn og tölvur að
keyra á vegunum er hætt við að slys-
in verði áfram mörg, sama hve vel
forrituð tölvan er. Hún er búin til af
mönnum en getur ekki séð allt fyrir.
Þess vegna er nú rætt um að ekki sé
til neinn millivegur: allir bílar verði að
vera undir styrkri stjórn tölvu. Þá
fyrst verði hægt að gera umferðar-
slys að mestu að fjarlægri minningu
um liðna tíma.
Margt hversdagslegt mun hverfa.
Smám saman munu ökuskírteini
verða óþörf, umferðarlagabrot hverfa.
Tekjur tryggingafélaga munu snar-
minnka. Leysa þarf líka flókin vanda-
mál. Hver ber ábyrgðina ef sjálfkeyr-
andi bíll veldur óhappi? Eigandinn,
framleiðandinn, hönnuðurinn? Getur
gervigreind í bíl tryggt að hann taki
siðferðislega „rétta“ ákvörðun þegar
allir kostirnir eru bara mismunandi
slæmir og kosta mannslíf?
Dómsmálin gætu orðið snúin og
bakslag komið í þróunina. En að auki
má ekki gleyma efnahagslegu og fé-
lagslegu afleiðingunum af því að gera
starf atvinnubílstjóra að mestu óþarft
í heiminum, ef til vill á fáeinum ára-
tugum. Erfitt er að giska á heildar-
tölu en líklegt er að um meira en
hundrað milljón störf sé að ræða, þar
af minnst 10 milljón störf í Bandaríkj-
unum einum.
Störf fjölmargra sem tengjast
óbeint bílkeyrslu munu líka hverfa.
Stórir vörubílar eru notaðir geysilega
mikið til langra ferða þar sem þeir
eru að sjálfsögðu sveigjanlegri flutn-
ingatæki en lestirnar. Í yfir 40 af alls
50 ríkjum Bandaríkjanna eru vörubíl-
stjórar fjölmennasta atvinnustéttin,
alls hátt á aðra milljón manna.
Þeir aka gjarnan um tiltölulega fá-
menn svæði og þurfa þar þjónustu,
veitingar og jafnvel gistingu auk elds-
neytis á bílana. Oft eru smábæir við
þessa vegi mjög háðir þessum bíl-
stjórum og myndu að lokum leggjast
niður án þeirra. Byggðamynstur
myndi víða gerbreytast. Heimurinn
myndi gerbreytast, eins og hann hef-
ur alltaf gert.
Bara eins og
hvert annað
færiband
Spáð er að hefðbundinn bíll muni á næstu áratug-
um víkja fyrir tölvustýrðum samgöngutækjum.
Framfarir – en milljónir munu missa vinnuna.
Burt með
tölvurnar!
Ef bílstjórastéttin yrði óþörf
á fáeinum áratugum gætu
viðbrögðin sums staðar
minnt á tíma vélbrjótanna (e.
luddites) í Bretlandi í upphafi
vélvæðingar. Hópar manna
sem misst höfðu vinnuna
réðust á vélar og brutu þær.
Ef taldir eru með allir sem
tengjast einhvern veginn
akstri trukka í Bandaríkjun-
um er sennilega um meira en
fimm milljón störf að ræða
sem flest myndu tapast. Og
akstur er að verða eitt fárra
starfa sem lítt menntað fólk
vestra getur sinnt.
Hugmyndir manna um aðstæður farþeganna í ökumannslausum bílum framtíðarinnar sýna að gert er ráð fyrir áhyggju-
lausri ferð. Síðan er bara að vona að tölvurnar bregðist ekki þegar enginn á sér ills von.
’
Hefurðu nokkurn tíma tekið eftir því að allir
sem aka hægar en þú eru hálfvitar en allir sem
fara hraðar en þú eru brjálæðingar?
Jeremy Clarkson, breskur bílasjónvarpsmaður.
ERLENT
KRISTJÁN JÓNSSON
kjon@mbl.is
AND
KUS Sjálfstæð
astofnun, SCPR,
tökin í Sýrlandi
afi kostað alls
nd manns lífið.
úsund hafi
kum og um
d að auki vegna
brigðiskerfisins
á mat og fleiri
m. Sameinuðu
hættu að birta
mannfalliðtö
og hálfu árify
rts á traustum
N
y
m
Ne
er
n
kjö
ebu 2
BANDARÍKIN
ST LOUIS Alþjóðleg
LIGO-eðlisfræðistofn
skýrði frá því á fimmt
að henni hefði tekist a
greina þyngdarbylgjur
samruna tveggja svart
fyrir um þrem milljörð
ára. Niðurstaðan þyki
sköpum í stjarneðlisfr
og sanna kenningar A
Einsteins fyrir um 100
en hann sagði fyrir um
bylgjur af þessu tagi.
AL AÍT
F
daga fer
g va yKúb f
Þar va yr
patr