Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Page 31
12 dl Kornax-brauðhveiti
3 dl hveitiklíð
1 msk sykur
1 tsk salt
5 tsk þurrger
6 dl mjólk, volg
2 msk matarolía
mjólk til penslunar
Blandið saman þurrefnum og
þurrgeri. Hellið olíu og mjólk
saman við og hrærið deigið
saman með sleif. Látið hefast
við stofuhita í um 30 mín.
Hnoðið deigið og bætið hveiti
saman við eftir þörfum. Mótið
síðan bollur og raðið á bökunar-
plötu. Leyfið þeim að hefast í
15-20 mín og penslið síðan með
mjólk. Bakið í miðjum ofni við
200°C í 15 mín. Frá Gulur, rauð-
ur, grænn og salt, grgs.is.
Bestu morgunverðarbollurnar
500 g Kornax-hveiti
4 dl kalt vatn
1⁄4 tsk þurrger
½ tsk salt
Blandið öllum hráefnum saman í
skál. Deigið verður svolítið klístr-
að og blautt en þannig á það að
vera. Setjið plastfilmu yfir skálina
og látið deigið standa við stofuhita
í minnst 12-24 klst. Gott er að
skella í þetta brauð áður en farið
er að sofa, þá er annaðhvort hægt
að baka það um morguninn eða
þegar komið er heim úr vinnu og
bera það fram með kvöldmatnum.
Eftir 12-24 klst stráið þið hveiti á
borðflöt og leggið deigið ofan á,
hnoðið í smástund eða þar til deig-
ið er hætt að vera klístrað. Leggið
viskastykki yfir deigið og leyfið því
að hefast í klukkustund til viðbótar.
Hitið ofninn í 250°C. Setjið ofnpott
með loki inn í ofn í 15 mínútur.
(Potturinn verður að vera heitur
þegar deigið fer í hann.) Setjið
deigið í pottinn og bakið í 30 mín-
útur með lokinu á og í 15 mínútur
til viðbótar án loks. Leyfið brauð-
inu að kólna svolitla stund áður en
þið berið það fram. Frá evalauf-
eykjaran.com.
Pottabrauðið vinsæla
14.2. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31
700 g spelti
3 tsk vínsteinslyftiduft
1 tsk salt (Himalaya- eða
sjávarsalt)
ca. 500 ml sojamjólk
1 msk sítrónusafi
1 msk kókosolía, fljótandi
2 tsk hlynsíróp eða 5 drop-
ar hreinir steviadropar
10 sólþurrkaðir tómatar án
olíu
10 grænar ólífur
Blandið saman í stórri skál
spelti, salti og vínsteins-
lyftidufti. Hrærið hlynsíróp
og kókosolíu saman og hell-
ið út í speltið. Blandið sam-
an 50 ml sojamjólk og sí-
trónusafanum. Látið
standa á borðinu þangað til
mjólkin fer að mynda kekki
(í um 15 mínútur). Bætið
út í speltið.
Hrærið allt saman og
bætið afganginum af soja-
mjólkinni saman við spelt-
ið. Þið gætuð þurft meira
eða minna af mjólkinni.
Saxið ólífur og sólþurrk-
aða tómata smátt og setjið
út í deigið.
Hrærið deigið varlega
saman. Hrærið alls ekki of
mikið (veltið því til svona 8-
10 sinnum, rétt svo til að
blanda öllu saman).
Gætið þess að deigið
verði ekki of blautt. Deigið
á að vera þannig að hægt sé
að móta bollur með góðu
móti án þess að hægt sé að
hnoða það.
Skiptið deiginu í 12 hluta
og mótið bollur. Einnig er
gott að nota ískúluskeið.
Bakið við 225°C í 15-20
mínútur.
Gott að hafa í huga að í
staðinn fyrir sólþurrkaða
tómata og ólífur má nota
t.d. rúsínur, furuhnetur,
ristuð sesamfræ, sinn-
epsfræ, graskersfræ og
margt fleira. Frá cafesigr-
un.com.
Brauðbollur Sigrúnar
Ostakex með sesamfræjum
2 dl spelt (fínt eða gróft eða hvort tveggja)
1½ dl sesamfræ
½ dl sólblómafræ
½ dl chiafræ
1 tsk sjávarsalt
½ dl ólífuolía
1-1½ dl heitt vatn
2 dl rifinn parmesan eða annar bragðmikill ostur (má sleppa osti)
Hitið ofn í 200°C. Blandið öllu nema ostinum vel saman í skál.
Setjið vatnið smám saman út í blönduna. (Þið þurfið e.t.v.
ekki að nota það allt.) Deigið á að vera eins og frekar þykkt
og blautt brauðdeig. Takið eina örk af bökunarpappír (á
stærð við bökunarplötu) og leggið á borð, setjið deigið á
pappírinn og leggið aðra bökunarpappírsörk ofan á. Fletjið út
með kökukefli þangað til deigið fyllir næstum út í örkina. Fjar-
lægið efri bökunarpappírinn, stráið ostinum yfir og skerið för
í deigið, t.d. með pítsuhníf, í þá stærð sem þið vijið hafa kexið.
Leggið á bökunarplötu og bakið í 15 mínútur eða þar til gull-
inbrúnt. Frá eldhusperlur.com.