Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Síða 35
14.2. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
CK2 er nýr ilmur frá
Calvin Klein fyrir
bæði kyn. Ilmurinn er
ferskur og felur m.a. í
sér mandarínur, sand-
alvið og fjólur.
Diorskin Nude Air Glowing
Gardens er nýtt ljómapúður frá
Dior í tveimur litum.
Sigurborg@mbl.is
Nýtt
Zara
7.995 kr.
Síð blá skyrta
klikkar ekki.
Net-a-porter.com
68.004
Horsebit-leðurskórnir
væru dásemd í sumar.
Í þessari viku …
Sigurborg Selma
sigurborg@mbl.is
Skyrtur og bláar gallabuxur eru ofarlega á óska-
listanum þessa dagana. Gallabuxur eru alltaf í
tísku en nú eru sniðin afar fjölbreytt og áhuga-
verð. Ég hef líka aðeins reynt að lífga upp á fata-
skápinn og færa mig meira út í ljósa liti og léttari
flíkur með hækkandi sól sem getur reynst kúnst
þegar hitastigið er nánast alltaf undir frostmarki.
Hér gefur að líta minn óskalista þessa vikuna.
Zara
6.995 kr.
Töff snið á gallabuxum
sem er vinsælt núna
og áberandi til að
mynda hjá J brand og
Victoriu Beckham.
Bobbi Brown
4.139 kr.
Í frostinu eiga varirnar til
að verða viðkvæmar.
Þennan varasalva er ég
alltaf með í töskunni.
Maria Black
19.264 kr.
Þetta gullhálsmen væri
æðislegt við nýja hring-
inn minn frá merkinu.
Lindex
Bh: 4.795 kr.
Buxur: 2.485 kr.
Nærfötin frá Ellu M eru falleg og þægileg.
UN women kynnti í vikunni nýjar
húfur með slagorðinu Fokk of-
beldi. Fokk ofbeldi er átak sem
vekja á fólk til vitundar á flótta
kvenna í leit að öruggara lífi fyrir
sig og börnin sín og rennur ágóði
sölunnar til verkefna UN Women
álandamærastöðvum í Evrópu.
Húfan er fáanleg í verslunum
Eymundsson um land allt dagana
11. - 25. febrúar og kostar 3.900
krónur.
Ljósmyndarinn Saga Sigurð-
ardóttir myndaði glæsilega her-
ferð átaksins.
HERFERÐIN
FOKK OFBELDI
Ofbeldi gef-
ið fingurinn
Síðastliðinn föstudag tilkynnti breska tískuhúsiðBurberry breytingar á háttum hússins. Burberry mun nú sameina herra- og dömulín-
ur sínar í tvær árlegar sýningar, sem áður voru fjórar.
Sömuleiðis mun húsið bjóða upp á sölu fatnaðarins sem
sýndur er á tískuvikunni í verslunum og á internetinu
strax eftir að tískusýningunni lýkur.
Breytingarnar munu eiga sér stað í september næst-
komandi. Þá mun húsið eingöngu sýna línur sínar í
september og febrúar hér eftir.
Tískuhúsin Versus Versace og Thakoon hafa einnig
verið að vinna með svipaða viðskiptahugmynd, það er
að segja selja línur sínar um leið og tískusýningunni
lýkur.
Listrænn stjórnandi Burberry, Christopher Bailey
sendi frá sér tilkynningu í vikunni þar sem hann sagði
meðal annars að sýningar tískuhússins hefðu verið að
þróast mikið undanfarið. „Frá beinni útsendingu á net-
inu í að panta beint af sýningarpallinum í beina útsend-
ingu á herferðum á samfélagsmiðlum er þetta næsta
skref í skapandi ferli sem mun bara halda áfram að
þróast,“ útkýrði Bailey.
Burberry hefur verið framarlega þegar kemur að því
nýta sér nýja tækni og þróun. Vörumerkið hefur lagt
áherslu á að auka stafræna markaðssetningu með her-
ferðum bæði á Instagram og Snapchat, ásamt því að
stofna rás á Apple Music.
Tískuhúsið mun því fylgja vaxandi lista hönnuða sem
fara sínar eigin leiðir og forðast því hið hefðbundna
form tískuviknanna.
Það verður því forvitnilegt að fylgjast með hvernig
málin þróast hjá einu stærsta tískuhúsi Bretlands í
febrúar og einnig að sjá hvaða hönnuðir gætu fylgt for-
dæmi Burberry í kjölfarið.
Burberry er eitt
stærsta tískuhús
Bretlands og er af-
ar framarlega í staf-
rænni markaðs-
setningu.
AFP
Breytingar hjá Burberry
Tískuhúsið Burberry tilkynnir breytingar á háttum fyrirtækisins. Það mun
sameina herra- og dömulínur sínar í tvær árlegar sýningar ásamt því að bjóða
upp á sölu fatnaðarins sem sýndur er á tískuvikunni að sýningu lokinni.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Nýjasta nagalakkið
frá Chanel er
Sunrise trip. Lakk-
ið er dimmfjólublátt
og dramatískt.