Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2016, Page 46
LESBÓK Alan Macniven, dósent í sænsku, og Guy Puzey, lektor í norsku, báðirvið Edinborgarháskóla, halda fyrirlestra í Lögbergi á þriðjudag kl. 16 á
vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.
Fyrirlestrar í Lögbergi
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.2. 2016
ÁReykjavöllum í Biskupstungum býrUnnur Malín Sigurðardóttir meðmanni sínum og ungum syni. Hún lét
gamlan draum rætast fyrir tæpum tveimur ár-
um og flutti úr borginni í sveitina og segist vera
sest þar að. Enda er nóg að gera hjá henni og
menningarlífið blómstrar en hún syngur í kór
Skálholtskirkju, leikur í leikritinu Brúðkaup og
semur tónlist meðfram barnauppeldi.
Fékk trompet í hendurnar
Unnur er dóttir Sigurðar Örlygssonar listmál-
ara og Ingveldar Róbertsdóttur, prófarkalesara
og þýðanda. Hún ólst upp í stórum systkinahópi
en þau eru sjö talsins, þar af fimm alsystkini.
Unnur hneigðist snemma til lista, teiknaði og
málaði en tónlistin varð ofan á. „Ég átti mjög
yndislega æsku. Við systkinin spilum öll á hljóð-
færi. Það var þannig að þegar ég var níu ára þá
kom inn í bekkinn Páll Pampichler Pálsson og
spurði hvort einhver vildi læra á hljóðfæri og ég
rétti upp hönd. Ég fékk trompet í hendurnar og
fór bara heim og tilkynnti mömmu og pabba að
ég væri að fara að læra á trompet,“ segir Unnur
og brosir því foreldrunum var fyrst brugðið því
þau höfðu ekki efni á að senda öll börnin í tón-
listarnám. En með nýjum niðurgreiðslum frá
ÍTR og systkinaafslætti gekk það allt upp. „Við
höfðum nóg en ekkert umfram það,“ segir Unn-
ur sem fór snemma að bera út blöð og bjarga
sér sjálf.
Umvafin tónlist
„Ég byrjaði á trompet en skipti svo við 12, 13
ára aldurinn yfir í barítón horn (euphonium) og
spilaði alltaf í Lúðrasveit Vesturbæjar. Núna í
dag spila ég á miklu fleiri hljóðfæri,“ segir Unn-
ur sem ólst upp við að hlusta mikið á tónlist.
„Við vorum bara umvafin tónlist. Mamma og
pabbi voru bæði heimavinnandi og pabbi spilar
alltaf tónlist við vinnuna, klassík og djass. Hann
keypti alveg gríðarlega mikið inn af tónlist, af
diskum. Ég dýrkaði djass og var líka rosalega
flink í að þekkja raddir. Pabbi prófaði mig
reglulega: Hver er að syngja? Ég var búin að
þjálfa upp eitthvert eyra án þess að gera mér
grein fyrir því,“ segir hún. „Ég vissi ekki einu
sinni að það væru til fleiri útvarpsstöðvar held-
ur en gufan fyrr en ég var tólf ára!“ segir Unnur
og hlær.
Snerti ekki lúður í sex ár
Síðar stundaði Unnur söngnám í FÍH hjá Jó-
hönnu Linnet samhliða menntaskólanámi og
hélt áfram að læra á barítónhornið. Hún er
stúdent frá myndlistarbraut Fjölbrautaskól-
ans í Breiðholti þar sem hún fann sína hillu eft-
ir að hafa prófað tvo aðra menntaskóla. Öll
unglingsárin var Unnur í lúðrasveitum en
hætti um tvítugt. „Ég var orðin dáldið þreytt á
því og svo þótti það ekkert töff heldur,“ segir
hún og hlær. „Þá þurfti ég að skila lúðrinum
því ég hafði bara haft hann í láni. Þannig að ég
snerti ekki lúður í heil sex ár. Það var ekki fyrr
en ég byrjaði í Söngskólanum í Reykjavík og
það voru jólatónleikar að nokkrir krakkar
báðu mig að vera með í að stofna lúðrasveit
Söngskólans í Reykjavík en hún var stofnuð
bara fyrir þessa einu jólatónleika og leystist
upp að þeim loknum. Ég fékk þá lánaðan lúður
aftur og þá var þetta svo gaman og ég fékk að
hafa hann áfram. En fyrst ég var komin með
bakteríuna aftur fyrir lúðrablæstri ákvað ég að
ganga aftur til liðs við Lúðrasveit Reykjavík-
ur,“ segir Unnur.
Systkinin saman í Ojba Rasta
„Á sama tíma og ég var í lúðrasveitinni fór ég að
spila með Ojba Rasta,“ segir Unnur en sú
hljómsveit er reggae-band. Í hljómsveitinni eru
bræður hennar Arnljótur og Gylfi og Vala systir
hennar ásamt sex öðrum meðlimum en þau
systkinin eru öll mjög músíkölsk. Þegar Unnur
byrjaði með Ojba Rasta breyttist hljómsveitin
úr „cover“-bandi og fór að semja eigin tónlist.
Þau gáfu út plötu árið 2012 og aðra 2013. „Allir
sem eru í hljómsveitinni eru þar virkilega af
ástríðu. Ég elska að spila með Ojba Rasta, það
er svo gaman hjá okkur!“ segir Unnur. „Þetta
er reggae-band með okkar tvisti. Það er til
dæmis ekki hefðbundið að vera með euphonium
(barítónhorn) í reggae-bandi,“ segir Unnur sem
spilar einnig á melódikku og syngur bakraddir.
Unnur er nú einnig nýfarin að spila mikið á raf-
magnsgítar og hefur kennt sjálfri sér á píanó.
Hún hefur mjög gaman af því að prófa ný hljóð-
færi. „Það er svo gaman þegar maður byrjar að
tengja á milli hljóðfæranna.“
Beðin um að semja verk
Unnur er nýfarin að semja sína eigin tónlist.
„Ég er að semja fyrir kór, hörpu og slagverk og
hef verið að fikra mig áfram fyrir aðrar hljóð-
færasamsetningar en meira í klassískum stíl.
Svo er ég að semja popplög og svo spuna. Með
röddina eða á hljómborðið,“ segir hún.
„Ég hafði aldrei trú á mér sem tónskáldi sem
krakki. Það var svo fyrir tveimur árum að ég
var beðin um að skrifa verk fyrir Duo Harpverk
að ég sagði já. Það var fyrir hörpu og slagverk.
Þá settist ég niður og byrjaði að skrifa. Katie
Buckley og Frank Aarnink í Duo Harpverk eru
mjög færir hljóðfæraleikarar og fá oft ung tón-
skáld til að semja fyrir sig,“ segir Unnur sem er
ekki lærð í tónsmíðum. „Frank þekkti mig því
hann spilaði með lúðrasveit Reykjavíkur og við
vorum miklir vinir. Hann spurði mig bara hvort
ég væri ekki til í að semja eitthvað en þá hafði
ég aldrei samið neitt,“ segir Unnur sem hefur
nú þegar samið nokkur verk fyrir þau.
Hugmyndin vatt upp á sig
Á miðvikudaginn 17. febrúar verða frumflutt í
Skálholtskirkju verk eftir Unni og tvö önnur ung
tónskáld. „Eftir að ég flutti í sveitina fór ég að
syngja með Skálholtskórnum. Ég komst í kynni
við fullt af fólki í gegnum það. Skálholtskirkja er
með unaðslegan hljóm. Ég var þá með verk í bí-
gerð fyrir Duo Harpverk en fannst það svo vera
meira fyrir kórinn að syngja þannig ég ákvað að
breyta því og samdi texta og útsetti það fyrir kór,
hörpu og slagverk,“ segir Unnur en eftir mikið
skipulag var ákveðið að setja allt í gang og sótti
Unnur um styrk hjá Samtökum sunnlenskra
sveitarfélaga sem hún fékk síðastliðið vor. „Það
var fyrst meiningin að halda tónleikana í nóv-
ember. En Frank stakk upp á að hafa annað tón-
skáld með og stakk upp á Hreiðari Inga Þor-
steinssyni. Og ég var sátt við það. Svo hitti ég
Hilmar Örn (Agnarsson) sem stjórnar Kamm-
erkór Suðurlands og hann var spenntur að fá að
vera með líka. Og jafnvel að bæta við fleiri tón-
skáldum, og þá kom Georg Kári Hilmarsson,
sonur hans, inn í þetta,“ segir hún. „Nú var þetta
orðið dáldið stórt, búið að bæta við öðrum kór og
tveimur tónskáldum þannig að ég sótti um annan
styrk,“ segir Unnur. Tónleikarnir eru nú loks að
verða að veruleika og bera yfirskriftina Hljóm-
askál. Frumflutt verða sex verk, eitt eftir Georg,
eitt eftir Hreiðar og fjögur eftir Unni.
Melódísk með klassísku ívafi
Unnur hefur setið við í sveitakyrrðinni og látið
tónlistina streyma fram úr hugarfylgsnum sín-
um. Hún segist stundum fá hugmyndir og verða
að semja strax og láta annað sitja á hakanum á
meðan, en stundum þarf hún einfaldlega að setj-
ast niður og byrja. „Það er ótrúlega mismun-
andi hvernig þetta kemur til mín,“ segir hún.
Unnur segir tónlistarmanninn KK hafi hjálp-
að sér að öðlast öryggi í tónsmíðunum. „Sonur
hans er góður vinur okkar og við hjálpuðum KK
með málningarvinnu heima hjá honum. Hann
launaði mér með því að gefa mér átta rása upp-
tökutæki. Þá fór ég að prófa að taka upp rödd-
ina mína og vinna spunatónlist á þessa græju,“
segir Unnur.
Hún segir tónlistina melódíska með bæði
klassísku og poppuðu ívafi og er að finna sig vel
í tónsmíðunum. „Mér finnst það reglulega
skemmtilegt. Þegar ég var búin að semja fyrsta
verkið og heyrði það flutt, sá ég hvernig það
breyttist í meðförum hljóðfæraleikaranna. Svo
lenti maður í alls kyns hindrunum og ég þurfti
að einfalda útsetningar. Það er til dæmis ekki
hægt að spila hratt á hörpu,“ segir hún og er
hvergi nærri hætt að semja tónlist.
Tónleikarnir Hljómaskál hefjast klukkan
19.30 hinn 17. febrúar og eru miðar seldir við
innganginn.
Tónlist hefur fylgt Unni
Malín Sigurðardóttur
alla ævina en hún er ný-
farin að semja tónverk.
Morgunblaðið/Ásdís
Semur tónlist í sveitasælunni
Á miðvikudaginn 17. febrúar eru tónleikar í Skálholti sem bera yfirskriftina Hljómaskál. Þar verða frumflutt
verk eftir þrjú ung tónskáld. Unnur Malín Sigurðardóttir er ein þeirra en tónlist hefur fylgt henni frá unga aldri.
Hún er nú að hasla sér völl sem tónskáld en flutt verða fjögur ný verk eftir hana á tónleikunum.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
’
Þegar ég var búin að semja
fyrsta verkið og heyrði það
flutt, sá ég hvernig það breyttist í
meðförum hljóðfæraleikaranna.
Svo lenti maður í alls kyns
hindrunum og ég þurfti að
einfalda útsetningar.