Víkurfréttir - 14.12.1995, Síða 13
VÍKURFRÉTTIR
JÓLABLAÐ 1995
ánægt ineð vöruna. Það er
gaman að geta gefið svona
persónulegar gjafir. Hins veg-
ar er óhernju mikil vinna í
þessu öllu saman og þetta er
dýrt áhugamál. Maður byrjar á
því að búa til búkinn, sauma
svo allan fatnaðinn, í raun og
veru skapar maður hverja
brúðu frá grunni.“
-Það má kannski segja að þú
sért eins konar „skúlptúristi,"
skapir verur með höndunum
eins og myndhöggvari.
„Já, það má segja það. Auð-
vitað hef ég ekki búið til snið-
in sjálf, en maður verður að
velja efni og liti og geta séð
hvað gengur saman."
Vill njóta jólanna
-Áttu brúður fyrir hverja há-
tíð, t.d. páska brúður osfrv.?
„Já, núna fyrir jólin ætlaði
ég að setja upp fæðingu Jesú
með brúðum, en ég hafði því
miður ekki tíma í það.
Kannski fyrir næstu jól."
-Þú hlýtur að komast í ofsa-
legt jólaskap við að sitja og
búa til þitt eigið jólaskraut og
jólagjafir?
„Já, mikil ósköp. Eg sit
hérna og skoða blöð og hugsa
með mér hvað mig langi mikið
til að gera þetta og þetta og
svo er allt orðið fullt af efnum
og dóti upp um öll borð!“
Sigríður bjó í mörg ár í
Ameríku og segir jólahald sitt
svolítið í anda við það sem
tíðkast þar. „Ég held venjuleg
íslensk jól, en ég set jólaljósin
upp fyrr en aðrir. I Ameríku
tíðkast það að setja jólaskraut-
ið upp daginn eftir þakkar-
gjörðarhátíð og ég hef reynt að
halda í þá reglu að vera búin
að koma öllu skrauti upp 1.
desember. Mér fínnst svo gott
að hafa ljósin í skammdeginu.
Fyrst set ég upp seríurnar í
gluggana og svo tréð og
skrautið hér innanhúss. Jólin
eru svo falleg og dýrleg að ég
vil njóta þess að hafa þau sem
lengst.“
IÓLASKRAUT-ÝMISTI1.BOÐ
ALLT fiÐ 50°/o AF
liiiCR
HAFNARCÖTU 36 - KEFLAVÍK
SÍMI421 3066
.Woipqi- Finn»wuli. Ikilhmdi
kariar eru
f ra m
I\onur eru
frá Venus
Bók sem bætir samskipti
og styrkir sanibönd
"-*** *** STO cW8i<i'
—bvetjandi oggpfandi loning..."
E
co
1<
o
>
Fyrir fólk
Gefðuþér
ogþínum
gleðilcg
jól
„Fátt myndi koma íslenskum bömum betur en að foreldrar
þeirra lærðu árangursríkar aðferðir til að leysa ágreining, að-
ferðir sem börnin hefðu sem veganesti út í lífið. Þær er að
finna í þessari bók og nýtast vonandi sem flestum.”
- Unnur Halldórsdóttir, formaður Heimilis og skóla,
lands-samtaka foreldra.
„...Bókin er mikilsvert framlag til jafnréttis og meiri skiln-
ings milli karla og kvenna. Hún auðveldar okkur að virða
til-finningalegar þarfir hvers annars og lifa í sátt og sam-
lyndi. - Gefandi bók.“
-Birna Benediktsdóttir,
Formaður starfsmannafélags Flugleiða.
„John Gray bregður upp mjög athyglisverðri mynd af því
hversu ólík kynin eru og hvað hægt er að gera lífið miklu ár-
angursríkara með því að virða þá einföldu staðreynd að kon-
ur þurfa skilning og karlar þurfa traust.“
-Hildur Petersen,
framkvœmdastjóri Hans Petersen hf.