Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.12.1995, Qupperneq 17

Víkurfréttir - 14.12.1995, Qupperneq 17
VÍKURFBÉTTIR JÓLABLAÐ 1995 15 veðurspána nánar áður en þið leggið af stað.“ ... Nú voru sigmenn, spil- menn og læknir ræstir út til að fara með þyrlunum tveimur í ferðina til Austfjarða. ... Jim Sills hafði þegar ákveðið hvernig staðið yrði að fyrsta áfanga ferðarinnar þegar mennirnir voru að koma sér fyrir um borð í vélunum tveim- ur: „Allir voru koninir um borð klukkan tuttugu mínútur yfir tíu. Enn höfðum við ekki feng- ið endanlegt leyfi til að fljúga alla leið til Austfjarða. Verið var að meta veðuraðstæður fyr- ir austan. Ég ákvað þó að fara með Herkúlesvélinni að suður- ströndinni eins og ráð hafði verið fyrir gert í æfingaferð- inni. ... Tveimur mínútum eftir flugtak var okkur tilkynnt að við ættum að fljúga alla leið til Austfjarða. Ég skynjaði mikla spennu hjá félögum mínum í vélinni.... Við höfðum ekki flogið meira en tíu kílómetra frá Keflavíkurflugvelli að hæðun- um á Reykjanesi áleiðis að suðurströndinni þegar ókyrrðin skall á. Veðrið gjörsamlega hamraði á vélinni....“ Eftir að Bandaríkjamennirnir lögðu af stað á þyrlunum tveimur voru Gísli og félagar hans í Vöðlavík orðnir nokkuð vissir um að sex menn sæjust uppi á þaki Goðans. Þessum upplýsingum var komið áleið- is. Nú var fyrst Ijóst hve mörg- um þurfti að bjarga. John Blumentritt flugstjóra leist ekki á blikuna þegar hann fékk boðin í gegnum talstöð frá stjórnstöð varnarliðsins: „Okkur var sagt að sex menn væru á lífi en einn af skipbrotsmönnunum hefði far- ið fyrir borð og væri sennilega saknað.... „Nei,“ hugsaði ég. „Við eig- um langt flug fyrir höndum og einn mannanna er þegar farinn í sjóinn. Verða allir sjómenn- irnir farnir þegar við komumst loks austur?“ Jim Sills var einnig mjög brugðið en ákvað að einbeita sér að fluginu austur þar til frekari upplýsingar bærust: „Ég ákvað að taka stefnuna austur fyrir Grindavík enda minnkaði ókyrrðin litillega þegar við fjarlægðumst Reykjanesfjallgarðinn. Við náðum þó ekki að halda vélun- um í meira en 50 metra hæð. Mótvindurinn var gífurlegur - þetta var miklu verra en við höfðum reiknað með. ... Þyrlurnar voru nánast komnar niður í ljósastaurahæð. Ég sá illa fram fyrir þyrluna og mæl- arnir sýndu að ísing var farin að hlaðast á vélina. „Við hlustuðum á fjarskipta- samtölin í Reykjavík og heyrð- um að TF-SIF, þyrla Land- helgisgæslunnar, hafði lagt af stað ... Ég setti mig í spor ís- lensku flugmannanna ... þyrlan þeirra var ekki með afísingar- búnað og mun aflminni en okkar vélar." Blumentritt flaug fast á eftir vél Sills og áhöfn hans fór nú að svipast um eftir íslensku þyrlunni. Blumentritt sá að flugmaður hans var að rýna út um gluggann vinstra megin í flugstjórnarklefanum: „Ég sé íslensku þyrluna," sagði Henderson við mig. „Stuttu síðar tilkynntu Islend- ingamir okkur að þyrlan þeirra væri að snúa við. Ég leit á Henderson. Þetta boðaði ekki gott. ... Einn skipverji er þegar farinn og nú verða íslensku þyrluflugmennirnir að hætta við út af veðri...." Stuttu eftir þetta tilkynnti stjórnstöðin mér að Herkúles- vélin yrði að snúa við og lenda í Keflavík. Afísingarbúnaður- inn á öðrum vængnum, þar sem eldsneytistankarnir eru, hafði ofhitað hann. ... Nú vor- um við búnir að missa af tveimur fylgdarvélum - þyrlu Landhelgisgæslunnar og Herkúlesvélinni. ... Mér fannst á vissan hátt að við hefðum verið yfirgefnir." Jim Sills og félagar hans brutust enn áfram á þyrlunum tveimur: „Veðrið versnaði stöðugt hjá okkur. Hraðamælarnir gáfu til kynna að þyrlurnar væm á 260 kílómetra hraða en mótvindur- inn gerði hins vegar að verkum að raunverulegur hraði var helmingi minni, aðeins 130 kílómetrar á klukkustund. Vindhraðinn var 11-12 vind- stig á móti okkur. ... Ég frétti frá stjómstöðinni í Keflavík að björgunarmennimir í fjömnni í Vöðlavík hefðu nýlega sagt að élin væru orðin svo dimm á slysstað að ekki sæist lengur til bátsins...." Gísli og félagar hans voru nú að fá fyrstu óyggjandi frétt- irnar af þyrlunum tveimur: „... Nú lifnaði aðeins yfir okkur. Við urðum að reyna með einhverju móti að koma þessum upplýsingum til skip- brotsmannanna. Við ákváðum að líkja eftir þyrluspöðum með því að rétta út hendurnar og snúa okkur í hringi. Þegar við gerðum þetta sáum við að það lifnaði heldur betur yfir sjómönnunum úti á víkinni. ... Nú var bara að vona að vélamar kæmust - það eina sem skipti máli vom þyrlur." Blumentritt og áhöfn hans höfðu gott forskot á vél Sills þegar flogið var með fram ströndinni. Lítið sást út um glugga vélar hans - flugmenn- irnir horfðu á mælaborðið ... ♦ Vél Blumentritts flýgur að flakinu. Bergvík VE 505 er í forgrunni. Mynd: Gt'sli Guðjónsson. Hinn lágvaxni og snaggaralegi flugstjóri lét ekki deigan síga: „Við merktum eyjar og sker sem við sáum á kortunum inn á ratsjána. Henderson fylgdist með út um gluggana meðan ég stjórnaði þyrlunni. Þegar við nálguðumst sker sem við sáum á ratsjánni sagði Henderson mér til. „... Svona þræddum við okk- ur áfram eftir ströndinni áleiðis að slysstað. Þetta virtist ætla að ganga. Vindurinn stóð af austri og ókyrrðin var farin að réna. Snjókoman var þó mikil og skyggnið slæmt og stutt í að færi að dimma. Við nálguð- umst nú Vöðlavík....“ Sills reyndi að fljúga þyrlu sinni eins hratt og mögulegt var: „Við náðum aðeins um 140 kílómetra hraða og stundum var skyggnið ekki neitt. Við gátum því ekki stuðst við nein kennileiti." Loftið var þrungið spennu. Fram að þessu höfðum við verið í sambandi við Blu- mentritt og áhöfn hans. Hann sagði að þeir væru nánast komnir ...“ Nú var stóra stundin ... að renna upp hjá Blumentritt flug- stjóra....: „Við flugum fyrir nesið og sáum nú hvað var að gerast. Við Henderson komum báðir auga á bát eða skip úti á vík- inni og ég hægði á þyrlunni. Ég varð agndofa. Hópur manna stóð uppi á þaki skipsins sem var hálf- sokkið í briminu... Sendum sjóðsfélögum og öörum Sudurnesjamönnum l)itg()Ct(iir jóln- og mjáieó^Utv. Þökkum samstarfiö á árinu. Lífeyrissjóöur Suöurnesja SnMOOUlÍsfl/líÓÓsÍnSy SLtei/í&y O R I Ð Sölustaður í Ahaldahúsi við Vesturbraut í Keflavík ALLA VIRKA DAGA KL. 17:00 TIL 22:00 LAUGARDAGA 0G SUNNUDAGA KL. 13:00 TIL 22:00 JOLME - GREM KROSSAR BORDSKRAIT JÓLATRÉSFÆTER KIWANISKLÚBBURINN KEILIR E EURDCAAD

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.