Morgunblaðið - 20.04.2016, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 2016
Bergþóra Jónsdóttir
beggaj@gmail.com
Stór hluti starfsmanna í heimaþjón-
ustu verður var við ofbeldi gegn
öldruðum. Þetta segir Sigrún
Ingvadóttir, félagsráðgjafi og
deildarstjóri Þjónustumiðstöðvar
Laugardals og Háaleitis í Reykja-
vík.
Samkvæmt skilgreiningu Alþjóða
heilbrigðisstofnunarinnar felst of-
beldi gagnvart öldruðum í einstakri
eða endurtekinni athöfn eða skorti á
athöfnum af hálfu þess/þeirra aðila
sem hinn aldraði ætti að geta
treyst. Þetta atferli veldur hinum
aldraða skaða eða andlegri þján-
ingu.
Sigrún segir að starfsmenn í
heimaþjónustu séu í lykilaðstöðu til
að greina ofbeldi gegn öldruðum og
koma þolendum til hjálpar. Mikil-
vægt sé því að veita starfsfólkinu
ráðgjöf og gefa því skýrar leiðbein-
ingar og stuðning og ekki síður að
það sé vel þjálfað til þess að greina
og meðhöndla grunsemdir um of-
beldi.
Á námsstefnu sem haldin var á
vegum Öldrunarráðs Íslands þann
14. apríl var fjallað um ofbeldi og
viðbrögð gegn ofbeldi á öldruðum.
Þar kynnti Sigrún niðurstöður
rannsókna sem gerðar voru 2007 og
svo aftur 2014. Spurningalisti sem
lagður var fyrir í rannsókninni er
byggður á erlendum rannsóknum
og viðtölum við stjórnendur.
Helstu niðurstöður voru á þá leið
að bæta þyrfti þjónustu við veikasta
hópinn og sérstaklega þá sem
stæðu höllum fæti félagslega. Bent
hefur verið á að mikilvægt sé fyrir
stefnumótun um forvarnir að sam-
eiginlegur skilningur sé á hugtakinu
„ofbeldi gagnvart öldruðum“. Það
verði því að teljast brýnt að auka
fræðslu um forvarnir og viðbrögð
þegar upp komi grunur um ofbeldi.
Gert er ráð fyrir að eldri borg-
arar verði rúmlega 20% þjóðarinnar
eftir um 40 ár. Jafnframt muni
fjölga mikið í elsta aldurshópnum,
80 ára og eldri. Í umræðunni síðast-
liðinn ár er talað um að fjölgun
aldraðra ásamt þjóðfélagslegum
breytingum geti haft í för með sér
að tilvikum ofbeldis fjölgi gegn
öldruðum.
Reykjavíkurborg lætur reglulega
gera úttekt á högum eldri borgara
og var sú síðasta gerð í nóvember-
desember 2012 á vegum Capacent
Gallup. Fólk á aldrinum 67-87 ára
af öllu landinu var spurt um hagi
sína, úrtakið var 993 manns. Þar
kom fram að 6,4% sögðust hafa orð-
ið vör við að eldri borgari væri van-
ræktur eða beittur ofbeldi af sam-
félagi eða skyldmennum, að sögn
Sigrúnar.
Komast þarf að rót vandans
Ólafur Þór Gunnarsson öldrunar-
læknir, sem líka hélt erindi á náms-
stefnunni, velti því fyrir sér hvort
almenningur áliti að aldraðir væru
vandamál og hvort öldrunarfor-
dómar væru til staðar hér á landi.
Heyra mætti setningar eins og:
„Spítalinn er fullur af gömlu fólki,
það er ekki hægt að sinna aðgerð-
um á ungu hraustu fólki því við
fáum ekki pláss, gamalt fólk er í allt
of dýrum plássum.“ Stöðugur áróð-
ur væri í samfélaginu um að kostn-
aður við öldrunarþjónustu væri að
aukast. Eldra fólk væri byrði og
vandamál fyrir sveitafélögin. Nær
aldrei væri talað um aldraða sem
auðlind. Hann vill komast að rót
vandans.
„Er eitthvað í samfélaginu okkar
sem lætur okkur finnast það í lagi
að tala svona?“ spurði Ólafur.
Hann sagði að í raun og veru
væri gamla fólkið ekki vandamálið
heldur heilbrigðisstofnanirnar. Þörf
væri á hugarfarsbreytingu í sam-
félaginu öllu í garð eldra fólks.
Einnig þyrfti starfsfólk í öldrunar-
geiranum að vera háværara. Öldr-
unarfordómum þyrfti að útrýma því
þeir væru svo sannarlega til staðar í
samfélaginu.
Hugarfarsbreyting
þörf í garð aldraðra
Ofbeldi gegn öldruðum til staðar í samfélaginu
Morgunblaðið/Ásdís
Aldraðir Vísbendingar eru um að ofbeldi í garð aldraðra viðgangist.
kr. 25.900
Bankastræti 12 / 101 Reykjavík
Sími 551 4007 / www.skartgripirogur.is
kr. 7.900
kr. 12.900
kr. 19.900
kr. 27.900
kr. 19.900
kr. 14.500
frá kr. 19.500
frá kr. 56.900
kr. 22.000
kr. 19.900
Ný
kjólasending
Vertu upplýstur!
blattafram.is
VANDINN LIGGUR
OFT HJÁ OKKUR
SJÁLFUM.
SAMÞYKKIR ÞÚ
KYNFERÐISOFBELDI?
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
„Auðvitað finnst mér leiðinlegt að
maðurinn hafi meiðst en mér finnst
þetta sérkennilegur dómur. Það er
mín skoðun,“ segir Einar Sigmar
Ólafsson, sem var dæmdur í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær að bera
skaðabótaskyldu að tveimur þriðju
hlutum vegna flugeldaslyss sem varð
árið 2014. Einar hefur flutt inn flug-
elda og selt þá undir merkjum Alvöru
gæðaflugelda undanfarin ár.
Sá sem slasaðist keypti flugelda
frá Alvöru gæðaflugeldum og skaut
þeim upp á Selfossi um miðnætti á
gamlárskvöld.
Hann slasaðist alvarlega, einkum á
vinstri hendi, þegar hann skaut ein-
um þeirra upp. Svo virðist sem kúla á
toppi flugeldsins hafi dottið af og fall-
ið í jörðina og heldur stefnandi því
fram að hún hafi rúllað í átt að sér.
Hann kvaðst hafa tekið hana upp og
engan neista eða loga hafi þá verið að
sjá í henni. Ætlaði hann að setja kúl-
una í ruslið og hélt á henni í vinstri
hendi þegar hún sprakk með þeim af-
leiðingum að hann slasaðist.
Í læknabréfi Landspítalans, dag-
settu 1. janúar 2014, sem lagt var
fram sem málsgagn, kemur fram að
áfengismagn í blóði mannsins hafi
verið 1,51 prómill er hann kom til
meðferðar á slysadeild Landspítal-
ans.
Uppfyllti ekki kröfur
Í dómnum kemur fram að
flugeldurinn sem maðurinn skaut
upp og olli slysinu, hafi ekki verið rétt
merktur. „Ljóst er að flugeldurinn,
sem stefnandi skaut upp 31. desem-
ber 2013, uppfyllti ekki kröfu reglu-
gerðar nr. 592/2003 um merkingar og
leiðbeiningar á íslensku. Verður því
að leggja til grundvallar að flugeldur-
inn hafi ekki verið svo öruggur sem
stefnandi mátti vænta þar sem hann
var ekki boðinn og kynntur í sam-
ræmi við ákvæði fyrrgreindrar
reglugerðar,“ segir í dómnum.
Í skýrslum dómkvaddra mats-
manna kom fram að flugeldurinn
væri samsettur sem ein eining. Mats-
mennirnir staðfestu einnig það sem
fram kemur í matsgerð þeirra, að
leiðbeiningarnar sem festar voru á
flugeldinn hefðu verið ófullnægjandi.
Í matsgerðinni er rakið að eftir-
farandi leiðbeiningar sé að finna með
stóru letri á umbúðum pakkningar
með þremur flugeldum: „WARN-
ING FOR ROCKETS Advorun.
Skjotid flugeldinum utandyra ur
oruggri undirstodu. Tendrid kveik-
inn med utrettri hendi og vikid strax
fra. Geymist a oruggum stad. Please
keep 200m distance from the pro-
ducts.“ Þá voru einnig danskar leið-
beiningar prentaðar með smáu letri
og festar á hvern flugeld fyrir sig.
Í samtali við Morgunblaðið sagðist
Einar ekki hafa haft tækifæri til að
fara ítarlega yfir dóminn, en sér
þætti skrýtið að skortur á íslenskum
merkingum firrti manninn ábyrgð á
eigin gjörðum. „Mér sýnist af frá-
sögn mannsins um smátt letur með
erlendu tungumáli um aðvaranir að
það firri hann ábyrgð að haga sér
skynsamlega með flugeld,“ sagði
Einar.
Honum var gert að greiða 1,2 millj-
ónir króna í málskostnað, sem rennur
í ríkissjóð. Hann hefur ekki ákveðið
hvort hann áfrýjar dómnum og
hyggst ráðfæra sig við lögmenn sína.
Flugeldurinn
var illa merktur
Sölumaður dæmdur fyrir flugeldaslys
Morgunblaðið/Ómar
Flugeldar Margt ber að varast þegar
þeim er skotið upp á gamlárskvöld.
Ríkissaksóknari
hefur áfrýjað
sýknudómi Hér-
aðsdóms Suður-
lands yfir þeim
Annþóri Krist-
jáni Karlssyni og
Berki Birgissyni
vegna dauða
samfanga þeirra
á Litla-Hrauni til
Hæstaréttar.
Óvíst er hvort málið kemst á dag-
skrá Hæstaréttar fyrir sumarfrí.
Helgi Magnús Gunnarsson vararík-
issaksóknari segir að áhöld séu um
að málflutningur nái að fara fram
fyrir sumarleyfi.
„Við erum ósammála mati
Héraðsdóms og teljum að fullnægj-
andi sönnun sé komin fram um að
þeir hafi framið það brot sem þeim
er gefið að sök,“ segir Helgi.
Áfrýja sýknudómi
Annþórs og Barkar
Helgi Magnús
Gunnarsson
fasteignir