Morgunblaðið - 20.04.2016, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 20.04.2016, Blaðsíða 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 2016 Slæm fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar hef- ur kallað á mikið að- hald, sparnað og niður- skurð fjárveitinga til rekstrar leik- og grunn- skóla borgarinnar. Skólastjórnendur kvarta sáran yfir mikl- um hagræðingar- kröfum og nú er svo komið að erfitt er að sjá hvernig er unnt að veita nemendum og fjölskyldum þeirra þá þjónustu sem lög og reglur hafa gert ráð fyrir hingað til. Skólastjórnun – fagleg forysta eða fjármálastjórnun? Þrátt fyrir mikinn niðurskurð fjár- veitinga á síðustu árum hefur skóla- stjórnendum tekist með undraverðum hætti að halda uppi metnaðarfullu skólastarfi bæði í leikskólum og grunn- skólum og má telja þá orðna snillinga í útsjónarsemi, nýtingu og jafnvel end- urnýtingu hverrar krónu. Umfang skólastjórnendastarfsins er óendanlega margþætt og nær í dag langt út fyrir faglega menntun og for- ystuhæfileika í stjórnun, góða innsýn í farsælt og metnaðarfullt skólastarf, verkefnastjórnun og faglega forystu er kemur að innleiðingu nýrrar aðal- námskrár, framsýni og lipurð í mann- legum samskiptum. Þó svo að það sé almennt ekki tekið fram í auglýsingum um lausar stöður skólastjórnenda í leikskólum og grunnskólum að krafist sé sérstakrar menntunar og reynslu í fjármálastjórnun þá er það líklega löngu orðið tímabært. Hvar er góðærið? Skólastjórnendur hafa lýst áhyggj- um sínum yfir því að vart sé lengur hægt að sinna skólastarfinu sem skyldi. Þrátt fyrir að almennt sé talað um uppgang í þjóðfélaginu þá er fjár- hagsstaða borgarinnar orðin svo slæm að hagræðingarkröfur upp á allt að 900 milljónir má finna á sviði skólamála borgarinnar. Rekstur skóla og frí- stundamála þarf að draga saman um hvorki meira né minna en 670 milljónir og síðan þarf að hagræða um einar 200 milljónir til viðbótar vegna ákveðinna umbótaþátta í skólastarfinu sem stefnt er að. Hvernig á slíkur sparnaður að takast án þess að það komi niður á kennslu og þjónustunni við börnin? Forgangsröðun á villigötum Lengi má deila um hvaða leiðir eru farnar í fjárhagslegri hagræðingu borgaryfirvalda og þeirri forgangs- röðun sem verður fyrir valinu hjá ríkjandi meirihluta þegar fjármunir eru veittir til verkefna á hinum ýmsu framkvæmdasviðum. Sagt er að ekki sé heimilt að færa fjárveitingar á milli sviða þannig að þó ákveðið væri að fresta ákveðnum gatnafram- kvæmdum, eins og til dæmis vinnu við þrengingu Grensásvegar, þá væri ekki leyfilegt að nýta frekar þær ca. 170 milljónir sem ætlaðar eru til þeirra framkvæmda til að koma til móts við rekstrarvanda á skóla- og frístunda- sviði. Þar sem fjárhagsstaða borgarinnar er svo slæm sem raun ber vitni, hlýtur að vera raunhæft að huga að breyt- ingum á reglugerðum til að hægt sé að lána og veita fé tímabundið á milli sviða. Leikskólabörnin send heim Nú þegar svo mikið skal sparað og svo grimmt er skorið niður vaxa einnig áhyggjur foreldra af velferð barna sinna og þeirri þjónustu sem almennt má gera ráð fyrir að börnin fái í skól- anum. Fyrir nokkru voru fréttir af því að dæmi væru um að leikskólastjórar sæju sér ekki annað fært en að senda hluta leikskólabarnanna heim áður en leikskóladegi lyki vegna manneklu, til að hægt væri að tryggja öryggi þeirra barna sem þá eru eftir. Á sama tíma heyrist fullyrt að þessi neyðaraðgerð leikskólastjóra tengist ekki fjársvelt- inu, þ.e. hagræðingunni. Hvernig er hægt að fullyrða það? Það er ekki hægt að neita því að sí- aukinn sparnaður hlýtur að hafa íþyngjandi áhrif á starfsfólkið. Aukið vinnuálag getur orsakað aukin veikindi og mann- eklu. Áhrif á vinnustaði Hvernig horfir það við atvinnurekendum þegar starfsfólk þarf að fara fyrr heim vegna þess að leikskólinn getur ekki sinnt börnum starfs- manna nema hluta þess tíma sem við- komandi á að sinna starfi sínu á vinnu- staðnum? Hverjir greiða atvinnu- rekandanum það tjón sem hann getur orðið fyrir vegna fjárhagslegrar hag- ræðingar á leikskólum barna starfs- manna? Foreldrarnir verða fyrir vinnutapi og hugsanlega fá þeir þá ekki greidd full laun. Fá foreldrarnir sem lenda í þessu endurgreiddan hluta leikskólagjalda vegna þess tíma sem barnið verður af leikskólavistun af þessum sökum? Hvað var í matinn í dag? Unnið er að mikilli hagræðingu í mötuneytum leikskóla og grunnskóla. Leikskólastjórar telja sig ekki geta sparað meira í mat barnanna en á sama tíma þurfa einstaka leikskólar að kaupa aðsendan mat vegna þess að matráður er lengur starfandi við leik- skólann. Sökum sparnaðar í viðhaldi tækja á undanförnum árum er einnig svo komið að víða þarf að gera tals- verðar og kostnaðarsamar breytingar í eldhúsum leik- og grunnskóla borg- arinnar. Ein leið til fjárhagslegrar hagræðingar er því að samnýta eld- unaraðstöðu með öðrum skólum þar sem það þykir henta, auk þess sem leitað er magntilboða í hráefni. Hér er þó skýr krafa um að sparnaðurinn má ekki með nokkrum hætti koma niður á gæðum og næringargildi matarins. Leitum lausna Víða í borgarkerfinu má vafalítið finna peninga sem betur má nýta. Hvað skiptir mestu máli? Hvaða fram- kvæmdum má fresta? Leitum lausna, þorum að breyta því sem betur má fara. Fjárhagsleg hagræðing í leik- og grunnskólum Eftir Jónu Björgu Sætran Jóna Björg Sætran » Fjárhagsleg hag- ræðing í leik- og grunnskólum hefur gengið svo langt að vandséð er hvernig verður unnt að sinna grunnþjónustu. Höfundur er borgarfulltrúi Fram- sóknar og flugvallarvina. Situr í skóla- og frístundaráði. Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is AUDI A6 2.0 TDI nýskr. 05/2012, ekinn 50 Þ.km, diesel, sjálfskiptur, leður, eins og nýr. VERÐ 5.990.000 kr. Raðnr. 254089 M.BENZ C 220 BLUETEC AVANTGARDE 10/2014, ekinn 9 Þ.km, dísel, sjálfskiptur 7 gíra, mjög vel búinn aukahlutum. TILBOÐ 6.977.000 kr. Raðnr. 254705 KIA SPORTAGE LUXURY 4WD nýskr. 01/2015, ekinn 51 Þ.km, diesel, sjálfskiptur, leður o.fl. Verð 5.350.000 kr. Skipti á ódýrari. Raðnr. 286865 AUDI A6 2.0 TDI S-LINE nýskr. 08/2014, ekinn 16 Þ.km, disel, sjálfskiptur, mjög vel búinn og flottur! OKKAR BESTA VERÐ 7.490.000 kr. Raðnr.254356 BMW 520D XDRIVE M-PACK F10 nýskr. 04/2015, ekinn 5 Þ.km, dísel, sjálfskiptur. TILBOÐSVERÐ AÐEINS 8.750.000 kr. Raðnr.254416 BMW 520D TOURING F11 03/2011, ekinn 175 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, buffaloleður o.fl. Verð 4.777.000 kr. Raðnr.254001

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.