Morgunblaðið - 10.05.2016, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2016
„Hundurinn minn var búinn að
vera í meðferðum hjá dýralækni
í heilt ár vegna húðvandamála
og kláða, þessu fylgdi mikið
hárlos. Hann var búinn að vera
á sterum án árangus. Reynt
var að skipta um fæði sem bar
heldur ekki árangur. Eina sem
hefur dugað er Polarolje fyrir
hunda. Eftir að hann byrjaði að
taka Polarolje fyrir hunda hefur
heilsa hans tekið stakkaskiptum.
Einkennin eru horfin og hann er
laus við kláðann og feldurinn
orðinn fallegur.“
Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi
Sími 698 7999 og 699 7887
Náttúruolía sem
hundar elska
Við Hárlosi
Mýkir liðina
Betri næringarupptaka
Fyrirbyggir exem
Betri og sterkari fætur
NIKITA
hundaolía
Selolía fyrir
hunda
nú, heldur í raun og veru einstakt í
sögu forsetakosninga og lýðveldis-
ins, að jafn öflugur fyrrverandi for-
sætisráðherra og fremsti fræðimað-
ur þjóðarinnar gangi fram á völlinn
og gefi kost á sér til að sinna þessu
embætti sem þeir báðir hafa haft
langvarandi tengsl við, þótt með
ólíkum hætti sé.“
Þá segir hann að jafnframt hafi
komið í ljós, fyrst með könnun
Fréttablaðsins sem birt var 5. maí
sl., að líkur gætu verið til þess að
frambjóðandi, í því tilviki Guðni Th.
Jóhannesson, myndi njóta stuðnings
sem væri álíka mikill þeim sem Ólaf-
ur sjálfur og Vigdís Finnbogadóttir
fengu þegar þau voru kosin fyrst.
„Það gerði það að verkum að ég fór
þá strax 5. maí að velta því fyrir mér
að nú væru kannski að myndast, sem
betur fer, þær kringumstæður að
þjóðin væri loksins eftir fjögurra
mánaða leit að finna sér einstakling
sem gæti notið nægilegs stuðnings.
Þá setti ég á blað nokkrar hugleið-
ingar út frá mínum fyrri rökstuðn-
ingi, og ég gerði það aftur 6. maí.
Þegar Davíð Oddsson, fyrrverandi
forsætisráðherra, ákvað síðan að
gefa kost á sér má segja að rök-
semdafærslan sem ég lagði til
grundvallar hafi leitt að skýrri nið-
urstöðu sem ég tilkynnti svo í morg-
un [innsk. blm.: gærmorgun],“ segir
hann.
Ótengt umfjöllun um Dorrit
Aðspurður segir Ólafur að ákvörð-
unin sé alfarið ótengd umfjöllun fjöl-
miðla síðustu vikur um tengsl eigin-
konu hans, Dorritar Moussaieff, við
aflandsfélög. „Nei, hún hefur ekki
haft nein áhrif í þessum efnum enda
var margt rangt sagt og ýkt í þeirri
umræðu. Eins og fram hefur komið
af hálfu Dorritar, gagnstætt því sem
fullyrt hefur verið í ýmsum fjölmiðl-
um, hefur hún ekki átt nein viðskipti
við þennan svissneska banka eða
komið nálægt þessu Jaiwick-
fyrirtæki.
Því miður voru alls konar rang-
færslur uppi í þeirri umræðu en þær
hafa nú verið leiðréttar svo að sá
þáttur hafði ekki neitt með þetta að
gera,“ segir hann og bætir við að
grundvallarákvarðanir af þessu tagi
byggist fyrst og fremst á sjónarmið-
um sínum gagnvart forsetaembætt-
inu og farsæld þess og síðan þeim
stuðningi sem það verði að njóta
meðal þjóðarinnar svo að farsæld
sambúð forsetans og þjóðarinnar
geti áfram verið grundvöllur að
traustu lýðveldi á Íslandi.
Gengur sáttur frá borði
En er Ólafur sáttur við ákvörð-
unina? „Já, ég er eiginlega meira en
sáttur. Ég er mjög glaður í mínu
hjarta og mínum huga,“ segir Ólafur
og bætir við að hann hlakki til fram-
haldsins. Þá segir hann að þrátt fyr-
ir að atburðarásin í apríl hafi verið
með óvenjulegum hætti virðist lend-
ingin vera slík að þjóðin geti á far-
sælan hátt valið sér nýjan forseta og
hann gengið ánægður til nýrra og
heillandi verkefna.
Spurður hvort eitthvað standi upp
úr eftir 20 ára setu sem forseti Ís-
lands segist Ólafur ekki geta nefnt
eitthvað eitt. „Ég vona hins vegar að
verk mín á þessum árum hafi annars
vegar sýnt þjóðinni að forsetaemb-
ættið geti með afgerandi hætti ráðið
örlögum þjóðarinnar á ögurstundu
og einnig greitt götu nýrra og
brýnna viðfangsefna, bæði fyrir Ís-
lendinga og alþjóðasamfélagið.“
Ólafur kveður glaður í hjarta
Ólafur Ragnar Grímsson býður sig ekki fram til endurkjörs Hafði íhugað að draga framboðið til
baka í um viku Gengur sáttur frá borði eftir 20 ár sem forseti Heillandi verkefni fram undan
Morgunblaðið/Eggert
Í Mosfellsbæ Hús Ólafs Ragnars Grímssonar og Dorritar í Mosfellsbæ.
Morgunblaðið/Frikki
Í fimmta sinn Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff á inn-
setningarathöfninni 2012 þegar Ólafur tók við embætti í fimmta sinn.
Fram undan hjá Ólafi taka við
verkefni á sviði norðurslóða-
mála og baráttan fyrir um-
hverfisvernd og hreinni orku
og gegn loftlagsbreytingum.
„Ég hlakka til að fá frelsi og
meiri tíma til að geta sinnt
því sem ég held að muni
gagnast Íslandi og okkur öll-
um á margvíslegan hátt, og
vera laus undan þeim tíma-
freku og reglubundnu verk-
efnum og skyldum sem á for-
setanum hvíla.“
Eftir brottför frá Bessa-
stöðum hyggst Ólafur flytja í
hús í Mosfellsbæ sem hann
keypti ásamt Dorrit Mousa-
ieff, eiginkonu sinni, fyrir fjór-
um árum. „Það hefur beðið
eftir okkur í þessi fjögur ár,
en Dorrit hefur auðvitað
áfram haldið sitt heimili í
London. Ég reikna með að
verja einhverjum tíma hér og
síðan mun ég sjálfsagt verja
töluverðum tíma erlendis
bæði vegna búsetu Dorritar
þar og einnig vegna þeirra al-
þjóðlegu verkefna sem ég
mun sinna og jafnvel hefur
verið leitað eftir að ég muni
sinna í enn frekari mæli þegar
ég er laus undan þessum dag-
legu skyldum.“
Hvað tekur
við hjá Ólafi?
FLYTUR Í MOSFELLSBÆ
Morgunblaðið/RAX
Á Bessastöðum Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergs-
dóttir árið 1997, ári eftir að Ólafur tók við embættinu fyrst.
VIÐTAL
Ingileif Friðriksdóttir
if@mbl.is
„Ég er mjög glaður í mínu hjarta og
mínum huga,“ segir Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, um
ákvörðun sína um að bjóða sig ekki
fram til endurkjörs. Ákvörðunina til-
kynnti hann í yfirlýsingu í gærmorg-
un, en í samtali við Morgunblaðið
segist hann hafa farið að endur-
hugsa framboð sitt fyrir um viku.
Ólafur Ragnar segir það fyrst og
fremst hafa verið samverkandi þætti
sem gerðu það að verkum að hann
ákvað að falla frá fyrri ákvörðun
sinni um að bjóða sig fram, en lands-
lagið sé verulega breytt frá því í
fyrri hluta aprílmánaðar þegar hann
tilkynnti um framboðið.
„Sá tími var í raun og veru ein-
stakur í sögu lýðveldisins því þar
fóru saman fjölmennustu mótmæli í
áratugi við Alþingishúsið, sem vöktu
athygli víða um heim, og afsögn for-
sætisráðherra eftir tilraun til þing-
rofs auk þess sem alþingiskosning-
um var flýtt, sem er ansi sérstakt og
eftirminnilegt.
Til viðbótar voru rúmir þrír mán-
uðir liðnir frá því að ég tilkynnti í ný-
ársávarpinu að ég myndi hætta en
þrátt fyrir það hafði ekki komið
fram, þó að gríðarlegur fjöldi nafna
hefði verið nefndur í tengslum við
forsetaembættið og margir boðið sig
fram, neinn frambjóðandi sem virt-
ist hafa nægilegan stuðning meðal
þjóðarinnar til að geta gegnt þessu
embætti,“ segir Ólafur og bætir við
að það hafi leitt til þess að hann hafi
látið undir þrýstingi um að bjóða sig
aftur fram, „en þó með því skilyrði
eins og ég nefndi í yfirlýsingu minni
að ef þjóðin gæti sameinast um ann-
an frambjóðanda þá myndi ég taka
því vel.“
Tveir sterkir frambjóðendur
Þegar Guðni Th. Jóhannesson
sagnfræðingur og Davíð Oddsson,
ritstjóri Morgunblaðsins, hafi stigið
fram á sjónarsviðið með sín framboð
hafi hann því farið að hugsa um að
draga framboðið til baka. „Þarna
koma fram tveir einstaklingar sem
báðir eru með einstök tengsl við for-
setaembættið; annars vegar sá ís-
lenski fræðimaður sem mest hefur
skrifað um forsetaembættið og
rannsakað það, og hins vegar sá for-
ystumaður í íslenskum þjóðmálum
sem lengst stjórnmálamanna hefur
setið í ríkisráðinu og verið forsætis-
ráðherra lengst allra á lýðveldistím-
anum. Það er ekki aðeins merkilegt
Ólafur Ragnar Grímsson hafnar því að
niðurstöður skoðanakönnunar MMR
sem birtar voru í gærmorgun hafi haft
eitthvað með ákvörðun hans að gera,
enda sýni reynslan á könnunum í for-
setakosningum að „fylgi einstaklinga
geti sveiflast upp eða niður með skjót-
um hætti og það er í sjálfu sér ekki
mjög marktækt“.
Ólafur nefnir sem dæmi skoðana-
könnun sem gerð var árið 1996, um
tveimur mánuðum fyrir forsetakosn-
ingar, þar sem fylgi hans mældist um
70% en eftir niðurstöður kosninganna
var fylgi hans um 40%. „Svo að þessi
könnun skipti nákvæmlega engu máli í
þessu samhengi.“
Niðurstöður fyrrnefndrar könnunar
MMR hafa vakið athygli, en þar mælist
Guðni Th. Jóhannesson með 59,2%
fylgi en Ólafur Ragnar kom þar á eftir
með 25,3% fylgi. Davíð Oddsson til-
kynnti framboð sitt þegar um 3/4 hluta
gagnaöflunarinnar var lokið en var
bætt við sem svarmöguleika um leið og
hann tilkynnti framboð sitt á sunnu-
dag. Því fengu aðeins 27% svarenda
Davíð Oddsson sem svarmöguleika.
Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, for-
stöðumaður Félagsvísindastofnunar
Háskóla Íslands, segir niðurstöður
slíkrar könnunar ekki sýna stöðuna
eins og hún sé í dag, heldur frekar
hvernig hún hafi verið fyrir helgi.
„Þetta breytist ört, svo að það verður
hreyfing á þessu eitthvað áfram,“ segir
hún. Þorlákur Karlsson, rannsóknar-
stjóri hjá Maskínu, tekur í sama
streng og segir að ekki sé óeðlilegt að
birta slíkar kannanir en þeim verði að
taka með fyrirvara.
Stefanía Óskarsdóttir, dósent við
stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands,
segir erfitt að spá fyrir um úrslit kosn-
inganna á þessu stigi. „Það er svolítið
snúið að spá í þetta vegna þess að mað-
ur veit ekki hversu mikinn styrk nýj-
asti frambjóðandinn, Davíð Oddsson,
hefur. Sumir búast við að hann verði
geysilega öflugur en það er engin mæl-
ing komin fram, svo að það er erfitt að
segja til um það,“ segir hún. „Svo get-
ur auðvitað ýmislegt komið fram í
kosningabaráttunni“.
„Þessi könnun skipti
nákvæmlega engu máli“
Könnun MMR sýni ekki stöðuna eins og hún er í dag