Morgunblaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2016 Við Jón bróðir og fjölskyldur þökkum langa og gefandi sam- fylgd árin öll og sendum fjölskyld- um Laugu og Jóns Gunnars sam- úðarkveðjur. Jóhannes Torfason. Í dag kveðjum við móðurbróð- ur minn, Jón Gunnar Tómasson, eða Nóna eins og hann var ávallt kallaður í fjölskyldunni. Hann var ásamt tvíburasystur sinni, Maríu Kristínu, elstur í fimm systkina hópi þeirra hjóna Tómasar Jóns- sonar borgarritara og Sigríðar Thoroddssen húsfreyju. Þetta er samheldin fjölskylda og þegar ég ólst upp voru sam- skiptin tíð, farið í ferðalög saman, stunduð útivist og fjölmenn fjöl- skylduboð haldin um hátíðar. Það var alltaf tilhlökkunarefni að koma heim til Jóns og Laugu konu hans. Þau hjónin voru einkar samrýnd og samstíga og áttu fal- legt heimili og tóku höfðinglega á móti fólki. Leikir eru í hávegum hafðir í fjölskyldunni og í gegnum tíðina hafa þeir verið stundaðir af kappi í fjölskylduboðum og þá takast háir sem lágir á og ekkert gefið eftir. Og þótt Jón hafi vissu- lega setið á miklum virðingarstalli í þessum selskap, var kappið, eða keppnisskapið, svo sannarlega til staðar. Má jafnvel segja að þar hafi verið ríkulega skammtað, en alltaf þó með góðri blöndu af fjöri og glettni. Þegar ég fór sem strákur að spila golf fékk ég stundum að fljóta með honum og ógleyman- legar eru golfkeppnir þar sem þeir feðgar, Jón Tómasson og Tómas Jónsson, attu kappi við okkur frændur, Sigurð Tómasson og Tómas Sigurðsson. Það var taugastríð fram á síðasta högg, kryddað glettnum athugasemd- um og kímni. Þegar elsti sonur okkar, Sig- urður, fór svo að spila golf voru þau hjónin dugleg að kippa honum með sér á völlinn og sinntu honum afskaplega vel. Fyrir það, sem og allt annað sem hann hefur verið okkur, erum við afar þakklát. Eflaust minnast margir Jóns sem formfasts og virðulegs emb- ættismanns, sem hann vissulega var. En hann gaf sér tíma til að fylgjast með og skiptast á skoð- unum við okkur sem yngri vorum og honum kannski ekkert endi- lega alltaf sammála. Á sínum tíma þóttu mér áform um byggingu ráðhúss við Tjörnina mikið órétt- lætismál. Hann hafði veður af þessu og bauð mér í heimsókn á skrifstofuna sína til að sýna mér teikningar og í leiðinni segja mér sögur af afa mínum, en Jón var þá í sömu skrifstofu og hann hafði haft um árabil, á horni Austur- strætis og Pósthússtrætis. Eftir langt og gott spjall hvarf ég af braut handviss um að ráðhúsið þyrfti að rísa og nokkrum skemmtilegum sögum fróðari um það hvernig flækjumál í borgar- kerfinu hefðu verið leyst hér áður fyrr og hvar gagnlegustu leyni- hólfin væru í gömlu innréttingun- um á borgarskrifstofunum. Ég þakka fyrir góðar samveru- stundir gegnum árin, vináttu, skemmtilegheit og gagnlegar um- vandanir sem alltaf voru settar fram af hlýju og góðum hug. Fjöl- skyldu Nóna sendum við Ólöf og krakkarnir okkar dýpstu samúð- arkveðjur. Tómas Már Sigurðsson. Jón G. Tómasson var skrif- stofustjóri borgarstjórnar Reykjavíkur þegar ég settist þar á bekk sumarið 1974. Ég var borgarfulltrúi í 20 ógleymanleg ár og sótti mjög á fyrstu árunum í smiðju Jóns. Jón naut að verðleikum álits í borgarkerfinu og þeir embættis- menn voru til sem sýndu honum óttablandna virðingu. Kjörnir fulltrúar báru til hans traust, sama úr hvaða röðum þeir komu. Síðar varð Jón borgarlögmaður og nýttust hæfileikar hans þar einkar vel, lögfræðiþekking af bestu gerð, öguð vinnubrögð, eft- irfylgni, nákvæmni og festa. Reykjavíkurborg varð seint hlunnfarin færi Jón með mál hennar. Það kom í minn hlut að leggja til að Jón tæki við stöðu borgarrit- ara, þegar sá góði maður, Gunn- laugur Pétursson, hætti vegna aldurs. Borgarritari var æðsti embættismaður borgarinnar, næstur á eftir borgarstjóra og var jafnframt staðgengill hans. Jón G. Tómasson var hús- bóndahollur maður, en þó í sér- stökum skilningi. Hagsmunir borgarinnar og velferð hennar skipuðu húsbóndasætið, öllum öðrum ofar. Það skipti ekki máli hvaðan erindin bárust, frá borg- arstjóra, öðrum embættum eða utan að. Allir skyldu sæta því að fá útlistað hverjir væru hagsmunir borgarinnar í málinu og hvað kynni að liggja utan þeirra marka sem menn gætu leyft sér að mati borgarritara. Það var ekki al- gengt að haldið væri fram með mál sem Jón hafði gert alvarlegar athugasemdir við. En í þeim til- vikum sem bærir aðilar héldu sínu striki og fylgdu formreglum, eftir að hafa farið í gegnum athuga- semdir Jóns, fylgdi hann tillögun- um eftir það eins og þær væru hans eigin. Jón var borginni mjög drjúgur, bæði orðspori hennar og fjárhags- legri stöðu. Árið 1994 var Jón skipaður ríkislögmaður, sem er þýðingarmikið embætti í ríkis- rekstrinum, og hefur í raun mjög sjálfstæða stöðu, þótt embættið vinni náið með ýmsum ráðuneyt- um og stofnunum, ekki síst þeim sem falla undir fjármálaráðherra. Jón var ekki síður farsæll í hinu nýja starfi en í hinum fyrri. Hann reyndist sami happafengur fyrir ríkið og borgina áður. Við Ástríður áttum margar góðar stundir með þeim Jóni og Sigurlaugu, sem voru samrýnd og góð hjón sem notalegt var að vera með utan hins daglega amsturs. Sigurlaug fór aðeins fyrr og nú hafa þau bæði horfið úr heimi. Þeirra er saknað. Davíð Oddsson. Það er með hlýhug að ég rita þessi minningarorð um vin minn Jón G. Tómasson. Leiðir okkar lágu saman þegar ég hóf störf á borgarskrifstofunum fyrir 30 ár- um. Ég hafði heyrt að Jón væri einn vandaðasti og besti embætt- ismaður í íslensku stjórnkerfi. Það reyndist rétt. Eftir því sem ég kynntist honum betur komst ég að raun um að þar var ekkert of- sögum sagt. Þegar Jóni sem borgarritara áskotnaðist einhver vitneskja um viðkvæm borgarmálefni þá tjáði hann meirihlutanum að hann myndi skýra minnihlutanum frá – ólíkt því sem tíðkast í svokölluðum opnum og lýðræðislegum stjórn- kerfum seinni tíma. Jón taldi, sem rétt er, að allir borgarfulltrúar ættu jafnan rétt á öllum upplýs- ingum. Smátt og smátt þróaðist góð vinátta milli okkar. Þær urðu margar skíða- og golfferðirnar sem við hjónin fórum í með Jóni og Sigurlaugu. Þar kom fljótt í ljós að Jón var einstaklega mikill keppnismaður. Sérstaklega er minnisstæð keppni okkar við þá Peter Salmon og Ómar Kristjáns- son, sem eru báðir lág- forgjafarmenn í golfi. Það gladdi Jón óskaplega að við fórum með öruggan sigur af hólmi eftir þriggja ára keppnistímabil. Svip- að var í bridsspilamennskunni. Jón var alltaf einarður og flug- skarpur og keppnisskapið á rétt- um stað. Þótt ekki hafi farið hátt var Jón helsta driffjöðrin að byggingu golfvallarins að Korpúlfsstöðum. Af þeirri framkvæmd var Jón stoltur og hafði á orði að sennilega vildi hann helst að sín yrði minnst fyrir það verk. Á seinni árum urðu samveru- stundirnar fleiri og fleiri í Gríms- nesinu og var alltaf yndislegt að sækja Laugu og Jón heim í sum- arbústaðinn. Oft var spilað golf með Stefáni Hermannsyni og Kol- beini Péturssyni og svo grill og gleði að leikslokum. Utan um allt þetta hélt svo hún Lauga sem breiddi yfir umhverfið allt ein- stakan kærleik og hlýju. Við Kristín sendum Helgu, Tómasi, Sigríði og aðstandendum innilegar samúðarkveðjur. Ólafur Jónsson. Fyrir hartnær níu tugum ára stendur lítill drengur í varpanum hjá bárujárnsklæddu húsi vestur undir sjó á holti sem enn er kennt við Grímstaði. Pilturinn horfir fyrst til vesturs – á sjóinn sem stutt undan fellur að grýttri fjöru og yfir á nes þar sem honum hafði verið tjáð að lægju hans rætur. Eftir að hafa horft um stund á þessa strönd handan fjarðarins og svart grjótið í fjörunni beindi hann sjónum í átt að landinu í austri og norðri og í norðrinu, langt á bak við há fjöll, lágu aðrar rætur og sumar mjög djúpt. Nær í austri voru mörg lágreist hús – bær sem var að verða til og dreng- urinn segir við sjálfan sig: „Þó þarna séu bara melar og holt og kannski vatnsmýri þá er þetta mitt land – þetta er minn bær og þetta verður mín borg – hér ætla ég að vera þegar ég verð stór.“ Þessi texti var ritaður árið 2000 í aldarminningu Tómasar Jóns- sonar föður Jóns Gunnars Tóm- assonar mágs míns sem hér er minnst – þeir áttu sömu rætur og þeirra saga tengdist borginni á svipaðan hátt og borgin var þeirra borg beggja. Og Jón ólst upp í borginni, ung- ur á Túngötunni og síðar til full- orðinsára á Víðimelnum þar sem foreldrar hans byggðu sér bólstað til framtíðar. Á Víðimelnum var glaður hópur að alast upp og nema fræði til að geta unnið landi sínu gagn á þeim árum sem í hönd fóru. Jón Tómasson lauk námi í lög- ræði við Háskóla Íslands og við- bótarnámi vestur í Bandaríkjun- um. Alvörustarfsferill Jóns hefst sem sveitarstjóri hjá Seltjarnar- neshrepp. Sagan segir að á fyrstu árum þar hafi kapp og nákvæmni Jóns verið svo með eindæmum að hann hafi hringt í endurskoðenda Seltjarnarnesbæjar á nýársdag til að endurskoða reikninga liðins árs. Eftir fá ár á Nesinu venti þó Jón kvæði í kross og gerðist lög- reglustjóri og jafnframt sveitar- stjóri í Bolungarvík. Reyndist hann afburða traustur í öllum sín- um verkum í Víkinni og þar að auki svo mikill landsbyggðarmað- ur að okkur hinum óbreyttu í dreifðum sveitum fannst næstum nóg um. En borgin átti sín tök í Jóni og einn daginn var ekið á Ós- hlíð og um firði – alla leið í Austur- stræti og hafin vinna hjá borginni sem ól hann – hafði enda ætíð skynjað að þar yrði hans vett- vangur til starfa. Jón fastnaði sér konu um það bil er hann hafði lokið námi. Hún var frá Garðskaganum þar sem landið er flatt en fólkið svipmikið og meir í ætt við ölduna við ströndina en landið og þannig var hún Sigurlaug kona Jóns – komin af útgerðarmönnum og skörung- um til orðs og æðis. Þau voru sam- hent hjón, meir en daglegt er, og oftast nefnd bæði í einu, Nóni og Lauga, en svo voru þau kölluð af þeim er best þekktu. Þau reistu sér hús í Fossvoginum og þangað var gott að koma og þar ólust upp börn þeirra þrjú Helga, Tómas og Sigríður María. Að starfstíma loknum áttu þau Lauga og Nóni marga góða daga í sumarbústaðnum við Sogið og á ferðalögum með góðu fólki og við dvöl þar sem leikið var golf. Að leiðarlokum vil ég og fjöl- skylda mín þakka allar góðar samverustundir á liðnum dögum og sendum börnum og öðrum ætt- ingjum og vinum innilegar sam- úðarkveðjur. Jóhannes Sigvaldason. Látinn er samstarfsmaður okk- ar og vinur, Jón G. Tómasson. Við minnumst hans með hlýju og þakklæti. Jón var skipaður ríkis- lögmaður 1994 og tók til starfa í desember það ár. Hann var skarp- greindur, skipulagður í öllum vinnubrögðum og afkastamikill. Það vafðist ekki fyrir Jóni að taka ákvarðanir. Hann tók alla emb- ættisfærslu sína alvarlega. Það var heldur ekki laust við keppn- isskap á stundum. Hann var okk- ur ljúfur vinnufélagi. Stundum hæðinn og hló innilega. Þegar Jón fékk lausn frá emb- ætti að ósk sinni samdist honum svo um að flytja til enda þau dómsmál sem hann hafði þá til meðferðar. Við nutum því sam- vista við hann í drjúgan tíma til viðbótar og hann heimsótti okkur oft og einatt eftir að síðasta málið var í höfn. Hann kom færandi hendi með randalínu og sitthvað í gogginn, spjallaði við okkur og sló á létta strengi. Hann stóð alltaf upp eftir veikindi og áföll síðustu árin, enda hraustur að upplagi. Eitt skiptið kom hann þó niðurlút- ur og sár, en Sigurlaug eiginkona hans hafði þá látist. Við sáum að Jón yrði aldrei samur aftur, svo ákaflega þungbær var honum þessi missir. Við þökkum fyrir samfylgdina og vinskapinn. Börnum hans og fjölskyldu sendum við hugheilar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Jóns G. Tómassonar. Einar Karl, Guðrún Margrét, Skarphéðinn og Stefanía. Góður vinur og samstarfsmað- ur í mörg ár er fallinn frá. Leiðir okkar Jóns G. Tómassonar lágu saman á borgarskrifstofunum. Á borgarstjóraárum mínum var hann einn minn nánasti sam- starfsmaður, samviskusamur, skarpur lögfræðingur og ná- kvæmur í öllum embættis- færslum. Það var gott að vinna með Jóni. Þegar ég hætti hjá borginni tókum við okkur saman fjórir samstarfsmenn og fórum í veiði- túra með konum okkar. Lengst af veiddum við í Fróðá á Snæfells- nesi og áttum þar margar góðar stundir. Við kölluðum okkur Fróðár- klúbbinn. Eitt árið tókum við okk- ur til og héldum til London og Egyptalands.Við fórum á knatt- spyrnuleik í London og upplifðum síðan þær stórkostlegu minjar sem Egyptaland hefur upp á að bjóða og einstaklega fjölbreytt mannlíf. Þeir dagar gleymast seint og oft höfum við rifjað þá upp síðan. Eitt sumarið fór hópurinn til Skotlands og ferðaðist um skosku hálöndin. Þar gistum við í köstul- um, nutum náttúrufegurðarinnar, heimsóttum viskíverksmiðjur og auðvitað höfðu Jón og Lauga golf- settið með en það var ávallt hluti af þeirra farangri. Síðan tókum við okkur til og ferðuðumst um Ísland og tókum ákveðinn landshluta fyrir á hverju sumri, skoðuðum sögustaði og náttúruminjar og upplifðum fólkið og landið. Jafnframt hittumst við á heim- ilum hvers annars a.m.k. einu sinni á vetri. Þessi ævintýri okkar stóðu yfir í næstum 35 ár. Það skyggði þó á að skörð komu í hópinn. Fyrstur féll frá Þórður Þ. Þorbjarnarson, borgar- verkfræðing,ur á besta aldri. Því næst Sigurlaug Aðalsteinsdóttir, kona Eggerts Jónssonar borgar- hagfræðings. Hún féll frá í blóma lífsins. Fyrir um tveimur árum andaðist svo Sigurlaug Jóhannes- dóttir (Lauga), kona Jóns G. Tóm- assonar. Helmingur hópsins er því fallinn frá. Andlát Sigurlaugar fékk mjög á Jón G. Tómasson enda voru þau einstaklega samhent hjón. Hann virtist ekki ná sér á strik eftir það. Síðustu árin voru honum því erfið. Við Sonja söknum góðs vinar og sendum okkar bestu samúðar- kveðjur til hans nánustu ættingja. Birgir Ísl. Gunnarsson. Við Jón Gunnar, alltaf nefndur Nóni í okkar hópi, settumst sam- an í 1. bekk Menntaskólans í Reykjavík haustið 1945, eða fyrir rúmum 70 árum þá rétt sloppnir frá æskuárunum og að flestu leyti óharðnaðir. Hann var algert borg- arbarn og ég sveitabarn, þótt ég hefði setið í barnaskóla í borginni. En eitthvað var það sem tengdi okkur, þannig að við gengum í fóstbræðalag og skiptumst á 5-eyringum því til staðfestingar. Þessa 5-eyringa höfðum við alltaf með okkur í próf og þeir áttu þátt í því að við féllum aldrei, hvort sem var árin í MR eða í HÍ. Þessi vina- tengsl stóðu alltaf til hinstu stund- ar, aldrei man ég eftir að við ræddum þau enda sjálfsagt mál sem þarfnaðist ekki endurskoðun- ar. Hver þessi tengsl voru er ekki alveg ljóst en mig grunar ástæðu þeirra sem var og er okkar einka- mál. Ég kom mikið á Víðimelinn, húsráðendur, Sigríður og Tómas, voru mér góð og Tómas bauð mér oft inn á kontórinn sinn til við- ræðna sem mér þótti vænt um og gaf mér sjálfstraust. Við eignuðumst einstakar eig- inkonur, Laugu og Önnu Möggu, og með þeim áttum við okkar góðu börn. Við Nóni völdum hvor sína leið í háskólanum en fylgdumst ávallt vel hvor með öðrum, í námi og störfum og fjölskyldumálum, hvort sem var varðandi lögfræði- leg efni, heilsufar fjölskyldnanna eða annað í okkar lífi. Árið 1986 féll einn bekkjar- bræðra okkar, Axel Einarsson, frá og eftir sátu þeir þrír, Nóni, Matthías Á. Mathiesen og Rúnar Bjarnason í bridsklúbbi, sem hafði verið stofnað til á skólaárun- um. Vegna áskorana þeirra um þátttöku sem nýr fjórði maður tók ég boðinu en gallinn var sá að ég var alveg óreyndur. Var því send- ur í bridsskóla og þóttist kunna nokkuð eftir það en það reyndist allt vitlaust sem ég gerði enda spiluðu þeir eftir einhverju heima- löguðu Vínarsagnkerfi ættuðu af Víðimelnum. Mér fannst Nóni oft sjá mín spil í gegnum bakhlið þeirra en hann las og vann úr sögnunum á sama hátt og hann gerði í öðrum verkum sínum. Klúbburinn leið undir lok með veikindum Matta árið 2010. Við hjónin sendum systkinum og börnum Nóna og fjölskyldum þeirra kærar kveðjur og þakkir fyrir samstöðu alla tíð. Jónas Hallgrímsson. Með Jóni G. Tómassyni hverfur á braut einstakur samferðamaður og góður vinur. Ég var með hon- um og undir hans forystu sem stjórnarformanns í stjórn Spari- sjóðs Reykjavíkur og nágrennis í 25 ár. Á svo löngum ferli kynntist ég Jóni vel og fann hvern mann hann hafði að geyma. Jón var formaður í stjórn SPRON í nær þrjá áratugi. Það tímabil má með réttu nefna blómaskeið sjóðsins. Starf stjórn- arformanns getur verið bæði flók- ið og vandasamt og kom þar vel í ljós hve fær lögmaður hann var og vel metinn, mannvinur og heiðar- legur í alla staði. Nám hans við Columbia-háskólann í New York reyndist honum farsælt vega- nesti. Það mátti treysta því að öll mál sem hann lagði fyrir stjórnina væru vel ígrunduð og undirbúin. Hann var fastur fyrir en aldrei ósanngjarn. Og vel kom sér löng og fjöl- breytt reynsla hans af störfum fyrir Reykjavíkurborg og ríki, sem sveitarstjóri á Seltjarnarnesi og lögreglustjóri í Bolungarvík. Ég tel að tíminn í Bolungarvík hafi verið honum eftirminnilegur því að oft minntist hann á veru sína þar. Lengstur var starfsaldur hans sem borgarlögmaður og borgarritari. Störf hans sem rík- islögmaður og lögmaður sem oft var kallaður til hæstaréttar til að leggja sitt lóð á vogarskálar sýna enn fremur hve vel hann var met- inn í lögmannsstétt. Við vorum heppnir að kynnast frábæru fólki sem var í stjórn SPRON um lengri eða skemmri tíma. Framkvæmdastjórn sjóðs- ins var undir styrkri stjórn Bald- vins Tryggvasonar, og síðar Guð- mundar Haukssonar. Þetta var samheldinn hópur sem bar hag sjóðsins fyrir brjósti. Frá upphafi var lögð áhersla á að samhugur ríkti meðal starfsmanna. Enda hélst sjóðnum vel á góðu starfs- fólki sem ílengdist í starfi og leiddi til þess að starfsandinn þróaðist á löngum tíma og var afar góður og metnaðarfullur. Auk þessa góða starfsanda skapaðist hefð fyrir því að SPRON veitti fjölmörgum samfélagsmálum víðtækan stuðn- ing. Samskipti voru góð utan stjórnarfunda og naut Jón sín vel og var glaður á góðri stund. Þau Sigurlaug og Jón voru höfðingjar heim að sækja og eigum við ynd- islegar minningar af þeim vina- fundum. Þegar ég hugsa til baka til okk- ar langa samstarfs sem aldrei bar skugga á er mér söknuður í huga og eftirsjá. Ég minnist með þakk- læti vináttu og trausts Jóns G. Tómassonar. Við Sigríður sendum innilegar samúðarkveðjur til barna Jóns, þeirra Helgu Matt- hildar, Tómasar og Sigríðar Mar- íu og fjölskyldunnar allrar. Hjalti Geir Kristjánsson. Með fráfalli Jóns G. Tómasson- ar er einstakur heiðursmaður fall- inn frá. Þegar Jóns G. Tómassonar er minnst koma hugtökin virðing og traust fyrst upp í hugann. Jón var stjórnarformaður í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis lengur en nokkur annar, eða í 28 ár. Leið- ir okkar lágu saman þegar ég var ráðinn í starf sparisjóðsstjóra, ár- ið 1996. Samstarf hans við aðra stjórnarmenn og starfsfólk SPRON var til mikillar fyrir- myndar. Hann var traustur og skipulagði störf sín vel. Jón kynnti sér mjög vel þau mál sem til um- ræðu voru á vettvangi stjórnar og mótaði afstöðu sína til þeirra á eigin forsendum. Hann sinnti starfi sínu af áhuga og hafði mik- inn metnað fyrir starfi sparisjóðs- ins. Jón bjó að mikilli reynslu úr störfum sínum fyrir ríki og sveit- arfélög og bar glöggt skyn á allt starfsumhverfi sjóðsins. Þegar við bættust miklir hæfileikar hans á vettvangi lögfræði og mikil reynsla á sviði stjórnunar gat hann miðlað okkur sem með hon- um störfuðu af víðsýni sinni og fagmennsku. Jón var kröfuharður gagnvart þeim sem með honum unnu. En það samstarf var ljúft enda gerði hann ævinlega mestar kröfur til sjálfs sín. Þegar Jón hafði myndað sér skoðun á málum og tjáð sig um þau var sem þau orð væru meitluð í stein. Hann var orðheldinn og lét ekki undan þrýstingi á ákvarðanir sínar. Við rekstur á fjörmiklu fjármálafyrir- tæki koma óhjákvæmilega þær stundir að deilur skapist um ein- hver mál. En með slíkt bakland sem Jón mótaði gátu starfsmenn tekist á við öll verkefni sem þeir stóðu frammi fyrir. Jón ræktaði ekki bara starf sitt í fundarherbergi stjórnar. Hann gerði sér far um að kynnast starfsfólki SPRON með heim- sóknum á vinnustaði þess og átti spjall við þá starfsmenn sem hann hitti. Hann sótti ævinlega árshátíðir sparisjóðsins með konu sinni, Sig- urlaugu heitinni, og þar voru þessi samrýndu, fallegu og vinsamlegu hjón ævinlega hrókar alls fagnað- ar. Því miður verðum við hjónin erlendis þegar jarðaför Jóns fer fram og náum við ekki að kveðja hann þar en það er með mikilli virðingu og væntumþykju sem við minnumst Jóns G. Tómassonar. Blessuð sé minning þeirra hjóna, Sigurlaugar og Jóns. Guðmundur Hauksson og Áslaug Björg Viggósdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.