Morgunblaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2016 Hressandi sveifla Þessi unga hnáta sveiflaði sér hress og kát í bragði í aparólu við Austurbæjarskóla í blíðunni. Eggert Morgunblaðið birti þann 18. mars sl. ítar- lega ádeilu mína á borgarstjórn fyrir hrikalegt ástand gatna borgarinnar, ranga hönnun samgöngu- kerfisins og fleira undir yfirskriftinni „Steinald- arborgin Reykjavík“. Fleiri gagnrýndu borg- ina um svipað leyti fyrir svipaðar sakir. Hvorug- ur fyrirsvarsmanna þessara mála, borgarstjórinn eða formaður um- hverfis- og skipulagsráðs, hafa fram að þessu haft manndóm til að svara gagnrýni minni. Hins vegar birtist í blaðinu þann 26. mars sl. grein eftir Halldór Torfason, framkvæmda- stjóra Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf., sem virðist hafa verið ætl- að að svara framkominni gagnrýni. Borgin átti síðast þegar ég vissi 70% í þessari malbikunarstöð og Aflvaki ehf. 30%, en borgin var einnig talin eiga hlut í Aflvaka ehf. Þriggja manna stjórn malbikunarstöðvar- innar var jafnan skipuð borgar- fulltrúum. Samkeppni verktaka í út- boðum borgarinnar varðandi malbikun kann að vera keppinautum Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf. erfið, ef eignarhaldið er enn svona. Vegna þessara nánu tengsla svo og vegna þagnar fyrrnefndra fyrirsvars- manna borgarinnar tel ég fullvíst að annar hvor þeirra hafi falið Halldóri Torfasyni að rita svar- grein í sinn stað, svo að þeir sjálfir þyrftu ekki opinberlega að óhreinka pólitíska ásýnd sína og axla ábyrgð á gjörðum sínum og athafnaleysi. Þessi greiðasemi grein- arhöfundar við borgar- yfirvöld verður eflaust endurgoldin síðar, sbr. máltækið: „Æ sér gjöf til gjalda.“Höfundur lýsir því í upphafi greinarinnar, að gagnrýnendur hafi verið fullyrðinga- samir og staðhæfingum þeirra hafi ekki fylgt rökstuðningur. Höfundur skreytir fyrirtæki sitt með stjórn- unarstöðlunum ISO 9001 ogISO 14001 og segir jafnframt að fram- leiðsluvörur fyrirtækis síns séu CE- vottaðar. Ekkert af þessu sjálfshóli höfundar kemur í raun grein minni við, enda hlýtur það fyrst og síðast vera ákvörðun veghaldarans, Reykja- víkurborgar, hvaða gæðakröfur eru settar við gerð og viðhald gatna, ss. hvernig undirbygging er og hversu hart steinefni sé notað í blöndun mal- biks, þ.e. hvort tjaldað skuli til einnar nætur eða fleiri. Áskilnaður um að nota bæri grjótmulning úr harðara bergi en hér á landi finnst yki vita- skuld á kostnaðinn og tilboð verktaka yrðu þá eðlilega hærri. Það er því al- farið á ábyrgð borgarinnar að gatna- kerfið skuli vera orðið handónýtt. Þá hef ég spurnir af því, að borgin hafi um árabil látið í sparnaðarskyni leggja út mjög þunnt malbik á göt- urnar, sem vitaskuld bitnar á ending- unni. Heyrst hefur líka að þunna mal- bikið skapi vandamál þegar kemur að heilfræsingu gatna með stórvirkum vélum leigðum að utan. Nú sjást víða merkingar á götunum umhverfis hin- ar fjölmörgu holur. Merkingarnar sýna að borgin hyggst enn ráðast í stagbætingu ónýtra gatna fremur en að leggja yfir þær nýtt malbik. Vænta má þess að borgin láti enn um sinn nota við holuviðgerðir löngu úr- eltar aðferðir sem endast í 1–2 ár í stað þess að fá til þess verktaka sem beitir nokkru dýrari aðferðum, t.d. svokallaðri geislameðferð sem notuð hefur verið í Bandaríkjunum í ára- tugi, eða láti þétta samskeytin með heitum tjörutaumi, eins og víða er gert á norðlægum slóðum. Fyrir utan fráleitt gatnaviðhald, hefur borgin boðað að götur skuli ekki lengur þvegnar. Með því sparist 3,5 m.kr. Einnig hefur heyrst af sparnaðar- úrræðum borgarinnnar gagnvart börnum á skyldunámsaldri sem nauðsynlega þurfa aukinn stuðning í námi. Þessi ömurlegu sparnaðarúr- ræði leiða væntanlega með öðru til þess að borgin getur staðið undir kostnaði við fráleit áform sín um þrengingu Grensásvegar, sem kosta munu um 170 m,kr. eða meira. Á meðfylgjandi ljósmynd tekinni 4. maí 2016 á Réttarholtsvegi má sjá tvo málaða hringi og er hringurinn fjær utan um örlitla holu á löngum ónýt- um samskeytum sem eru orðin gal- opin. Þarna er u.þ.b. 1–2ja ára gömul malbiksbót orðin gjörónýt, þar sem ekki hefur verið gengið rétt frá henni. Eftir Björn Ólaf Hallgrímsson » Þurfa borgaryfirvöldað leita til malbik- unarverktaka um að svara gagnrýni á borg- ina fyrir viðhald gatna? Björn Ólafur Hallgrímsson Höfundur er lögfræðingur og býr í Reykjavík. Enn um steinaldarborgina Reykjavík Ónýtt Malbiksbót sem ekki hefur verið gengið rétt frá í upphafi. Árleg Álfasala SÁÁ hefst í dag og stendur næstu daga. Álfasalan er stærsta fjáröflunarverkefni SÁÁ ár hvert en hún fer nú fram í 27. skipti. Líkt og undanfarin ár er slagorð Álfasölunnar í ár: „Álfurinn fyrir unga fólkið“. Þannig er undirstrikuð áhersla á meðferðarúrræði samtakanna fyrir ungt fólk og einnig fyrir börn og aðra aðstandendur þeirra sem eiga við áfengis- og vímu- efnavanda að stríða. Frá árinu 2000 hefur SÁÁ rekið unglingadeild á sjúkrahús- inu Vogi en frá því að sjúkrahúsið var byggt hafa yfir 8.000 einstaklingar yngri en 25 ára lagst þar inn. SÁÁ veitir einnig sálfræðiþjónustu fyrir börn alkó- hólista. Um 1.100 börn hafa nýtt þá þjónustu sem er kostuð með tekjum af Álfinum og öðrum styrkjum. Tekjur af Álfasölu standa líka undir þjónustu SÁÁ við aðra aðstandendur en allir aðstandendur fólks í áfengis- og vímuefnavanda getur fengið viðtöl, ráðgjöf og setið á fyrirlestrum og fengið námskeið í fjölskyldumeðferð hjá SÁÁ. Hundruð manna um land allt starfa við Álfasöluna, bæði einstaklingar en einnig fjölmargir hópar sem nýta sölulaun til að kosta starfsemi á vegum íþróttafélaga og ýmissa samtaka, hver í sinni heimabyggð. Frá 1990 hefur Álfurinn skilað um 600 milljónum króna sem hafa að öllu leyti runnið inn í heilbrigðisþjón- ustu SÁÁ við áfengis- og vímuefnasjúklinga. Þótt stjórnvöld hafa stutt vel við starf samtakanna í gegnum árin er það beinn stuðningur almennings sem hefur gert gæfumuninn. Þjóðin hefur stutt við bakið á SÁÁ og tryggt að samtökin geti veiti vímuefna- og áfengis- sjúklingum og fjölskyldum þeirra eins góða þjónustu og kostur er. Ef ekki væri vegna stuðnings almennings þyrfti að draga umtalsvert úr öllu starfi SÁÁ. Við sem störfum fyrir SÁÁ erum þakklát og finnum til auðmýktar vegna alls þess velvilja sem SÁÁ hefur notið og biðjum ís- lensku þjóðina nú um að standa enn sem fyrr þétt við bak samtakanna. Styðjum SÁÁ – Kaupum Álfinn! Kaupum Álfinn fyrir unga fólkið Eftir Arnþór Jónsson Arnþór Jónsson »Ef ekki væri vegna stuðn- ings almennings þyrfti að draga umtalsvert úr öllu starfi SÁÁ. Höfundur er formaður SÁÁ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.