Morgunblaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 131. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Ólafur Ragnar hættur við … 2. „Svo fékk ég ekkert“ 3. Guðni Th. með afgerandi forystu 4. Greta færist ofar hjá veðbönkum »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tónlistarkonurnar Elín Ey, Myrra Rós og hin írska Rosa Nutty halda tónleika saman á Café Rosenberg í kvöld kl. 21. Nutty er ung, írsk vonar- stjarna á hraðri uppleið og flytur angurværa tónlist með þjóðlegum írskum undirtóni. Hún talar gelísku reiprennandi og bregður því forna tungumáli gjarnan fyrir sig. Nutty hefur vakið athygli fyrir færni sína á gítar, kraftmikinn söng og hugvekj- andi textagerð. Ljósmynd/Francesco Taurisano Elín, Myrra og Nutty saman á Rosenberg  Tríó píanóleikarans Önnu Grétu Sigurðardóttur leikur á djasskvöldi Kex hostels í kvöld kl. 20.30. Auk Önnu skipa tríóið Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur. Í seinni hluta dagskrár- innar bætist svo saxófónleikarinn Sigurður Flosason í hópinn. Anna og félagar munu flytja valda djassstand- arda og að vanda er aðgangur að tónleikunum ókeypis. Anna stundar framhaldsnám við Tónlistar- háskólann í Stokk- hólmi og hlaut Ís- lensku tónlist- arverðlaunin 2015 sem bjartasta vonin í flokki djass- og blús- tónlistar. Kex hostel er á Skúlagötu 28. Tríó Önnu og Sig- urður á djasskvöldi Á miðvikudag Norðlæg eða breytileg átt, 5-10 m/s. Skýjað og þurrt að mestu og hiti 3 til 10 stig en yfirleitt léttskýjað sunnan- og suðaustanlands og hiti 6 til 15 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 8-15 m/s um landið norðvest- anvert en annars 5-10 m/s. Heldur hvassara um kvöldið og sums staðar hvassir vindstrengir við fjöll norðvestanlands. VEÐUR Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson komu á óvart með vali í nokkrar stöður í gær þegar þeir tilkynntu endanlegan 23 manna landsliðshóp Íslands fyrir lokakeppni Evrópumótsins í Frakklandi. Þeir völdu Hjört Hermannsson, Sverri Inga Ingason og Hörð Björgvin Magnússon fram yfir reynd- ari menn og skildu einnig Gunnleif Gunnleifsson markvörð eftir. »1 EM-valið kom ýmsum á óvart Keppni í Pepsi-deild kvenna hefst á morgun og fram undan er afar áhuga- vert mót. Morgunblaðið skoðar í dag fimm liðanna, þar á meðal Val, sem gerir nú aftur tilkall til Íslands- meistaratitilsins eftir mestu lægð í sögu félagsins. Álitsgjafi Morgun- blaðsins telur líklegt að KR muni kveðja deildina í sumar en fram undan sé þriggja liða fallbarátta. »4 Valur aftur í titilbaráttu – þriggja liða fallstríð? ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðs- prestur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra, lét áratugagamlan draum rætast sem saxófónleikari þegar hann hélt burtfarartónleika í tónlist- arsal Félags íslenskra hljómlistar- manna á dögunum. Prófið á sér langan aðdraganda. „Þetta hefur verið langt ferli og mikil vinna en óhemju skemmtilegt,“ segir hljóðfæraleikarinn, sem er tvöfaldur doktor í guðfræði og hefur skrifað mikið um guðfræðileg efni, meðal annars átta bækur og ótal greinar, þá nýjustu um íslam í tímaritinu Skírni. „Útskriftin er stór stund fyrir mig og má líkja henni við þriðja doktorinn,“ áréttar hann. Stefán S. Stefánsson, saxófónleik- ari og tónskáld, Gunnar Hrafnsson bassaleikari, Ásgeir Hermann Stein- grímsson trompetleikari, Benóní Torfi Eggertsson trommuleikari, Sveinbjörn Jakobsson gítarleikari og Sigurjón voru saman í hljómsveitinni Evusonum í menntaskóla, en eftir það skildi leiðir. „Á meðan Stefán, Gunnar og Ásgeir héldu áfram á tón- listarbrautinni gerðist Benóní endur- skoðandi, Sveinbjörn tannlæknir og ég prestur,“ rifjar Sigurjón upp. Seg- ist hafa byrjað að spila á saxófón 13 ára gamall, en vegna þess að hann hafi stöðugt rekist á vegg hafi hann farið í saxófóntíma samfara háskóla- náminu hér heima. „Að loknu dokt- orsnámi erlendis hitti ég Bjössa Thor og við tókum upp á því að halda djassmessur, sem við höfum gert í 25 ár. Ég byrjaði líka að læra tónlist hjá Ólafi Jónssyni tenórleikara, fyrst í einkatímum og síðan lét hann mig fara í Tónlistarskóla FÍH. Hann hefur ýtt á mig að ljúka náminu undanfarin sex til sjö ár og allt í einu er því lokið.“ Námið og kirkjan Sigurjón segir að tónlistarnámið nýtist vel í kirkjunni, meðal annars í safnaðar- og öldrunarstarfinu, þar sem hann geti spilað fyrir fólkið og rætt við það á milli laga. Hann spili líka í bænastundum og hafi hug á að bjóða upp á djassmessur. „Það þarf að brjóta niður múra innan guðsþjón- ustunnar, þar sem tónlistin er einn hluti, messan eða hið talaða orð annar og rýmið þriðji hluti, sýna hvernig þetta tengist allt saman og myndar eina heild. Að því vil ég vinna,“ segir hann og bendir á að frásagnir í ritn- ingunni séu grundvöllur að byggingu kirkna og í þekktum tónlistarverkum sé auk þess að finna útleggingu á ritningartextum sem lagt sé út af í hverri guðsþjónustu. Um þessa texta gildi það sama og um standarda í djassi, misjafnlega sé lagt út af þeim. „Djúpur guðfræðiáhugi hefur þannig haldið mér að tónlistinni og djass- áhugi minn er ekki aðeins við hliðina á guðfræðinni heldur líka afleiðing hennar.“ Þó að Sigurjón hafi spilað á saxó- fón frá fermingaraldri segist hann eiga langt í land og detta ekki í hug að bera sig saman við félagana sem spiluðu með honum á lokatónleik- unum eða aðra þekkta, íslenska saxó- fónleikara. „Þessir kappar eru í ann- arri vídd og ungu krakkarnir í Tónlistarskóla FÍH eru frábærir. Námið hefur hjálpað mér að skilja hvað þetta tónlistarfólk er að gera og aukið ánægju mína við að hlusta á tónlist. Það er eins og það hafi opnað fyrir mér nýjan heim og óneitanlega aukið lífshamingjuna.“ Aukin hamingja með tónlistinni  Tvöfaldur doktor í guðfræði með burtfarartónleika sem saxófónleikari Morgunblaðið/Árni Sæberg Burtfarartónleikar Sigurjón Árni Eyjólfsson í TFÍH. Gunnar Hrafnsson er á bassa, Magnús Trygvason Eliassen á trommur og Björn Thoroddsen á gítar. Íris Björk Símonardóttir og stöllur hennar í Gróttu eru komnar með tvo vinninga og eru í kjörstöðu í úrslita- rimmunni um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna eftir 10 marka sigur á Stjörnunni í TM- höllinni í Garðabæ í gærkvöldi, 28:18. Gróttuliðið þarf einn vinning til viðbótar til þess að hreppa Ís- landsbikarinn annað árið í röð. Stjarnan má hins veg- ar ekki við fleiri tapleikj- um ætli liðið sér Íslandsmeistara- titilinn. »2 Grótta komin í kjör- stöðu eftir annan sigur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.