Morgunblaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2016 ✝ Oddur Guð-mundur Jóns- son fæddist 2. jan- úar 1926 á Ytri Veðrará í Önund- arfirði. Hann lést 2. maí 2016. Foreldrar hans voru Jóna Guðrún Jónsdóttir ljósmóð- ir, og Jón Guðmundur Guð- mundsson, bóndi. Vegna veikinda móður sinn- ar gat Oddur ekki alist upp hjá henni og það varð úr að æsku- vinkona og jafnaldra hennar, Guðrún Þorvaldsdóttir, tók hann í fóstur, þá aðeins 14 daga gamlan. Guðrún bjó á Kropps- stöðum í Önundarfirði á heimili foreldra sinna, Kristínar Hall- dórsdóttur og Þorvaldar Þor- valdssonar, ásamt sex systk- inum sínum og fór Oddur þang- að með henni og ólst upp við mikið ástríki á því heimili eða þar til hann var 17 ára gamall. Oddur fór til Reykjavíkur í janúar 1943 ásamt fóstru sinni ritari, gift Jóni Mar Þórarins- syni grunnskólakennara. Dætur þeirra eru Erna Heiðrún og Arna Margrét. Maki Ernu er Guðmundur Freyr Ómarsson. Þau eiga tvö börn, Pétur Ómar og Eydísi Jónu. Fyrir átti Jón börnin Þórönnu og Ingvar Mar. 2) Gunnar Örn Oddsson raf- virkjameistari, kvæntur Jillian Janet Bredwood lögfræðingi. Börn þeirra eru Liam Jared og Ramla Ísabelle. 3) Elín Jak- obína Oddsdóttir skurðhjúkrun- arfræðingur. Elín á fjögur börn: Gunnhildi Völu, Valgerði Önnu og Agnesi Nínu Hannes- ardætur og Odd Krumma Magnússon. Gunnhildur er í sambúð með Arnari Jan Jóns- syni. Þau eiga dótturina Ragn- heiði Elínu. Oddur og Erna hófu búskap á Lindargötu 29 en árið 1958 fluttu þau að Hjarðarhaga 15 og bjuggu þar til 1970 er þau fluttu í Efstasund 87. Þar bjuggu þau til 1987 og fluttu þá á Háaleitisbraut 107. Oddur bjó á Grund í Reykjavík frá september 2015. Útför Odds fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 10. maí 2016, klukkan 13. og hóf nám í raf- virkjun hjá Sigurði Bjarnasyni, rafvirkjameistara. Námið tók fjögur ár en á sama tíma stundaði Oddur nám í rafvirkjun í Iðnskólanum í Reykjavík og út- skrifaðist þar á þremur árum með I. einkunn. Oddur fékk sveinspróf 1947 og varð rafvirkjameistari 1950. Oddur vann hjá Sigurði samfleytt til 1955 utan tveggja ára sem Odd- ur vann sem rafvirki á strand- ferðaskipinu Heklu. Í júní 1955 réð Oddur sig til Rafmagns- veitu Reykjavíkur sem raf- magnseftirlitsmaður en árið 1974 varð Oddur yfireftirlits- maður og síðan deildarstjóri til starfsloka 1996. Þann 28. maí 1950 kvæntist Oddur Ernu Heiðrúnu Jóns- dóttur en hún lést 13. maí 1989. Þau eignuðust þrjú börn sem eru: 1) Jóna Guðrún Oddsdóttir Oddur tengdafaðir minn er látinn í hárri elli, sáttur og saddur lífdaga. Hann fæddist í Önundarfirði og var settur í fóstur nýfæddur. Guðrún fóstra hans sinnti drengnum af hlýju og kostgæfni og gaf af því sem hún hafði. Oddur óx úr grasi og fluttu þau til Reykjavíkur 1943. Þar stundaði Oddur nám í raf- virkjun og varð rafvirkjameist- ari. Guðrúnu fórst uppeldis- hlutverkið vel úr hendi og naut hún samvista við fjölskyldu Odds til æviloka. Oddur kvænt- ist Ernu Heiðrúnu Jónsdóttur og bjuggu þau í farsælu hjóna- bandi þar til Erna féll frá 1989, langt um aldur fram. Oddur og Erna eignuðust þrjú börn, Jónu Guðrúnu, Gunnar og Elínu Jak- obínu og bera þau vott þess að hafa alist upp við hlýju, gott at- læti og traust. Ernu kynntist ég ekki en af orðum fólksins hennar er mér ljóst að þar fór heilsteypt, hjartahlý og alltum- faðmandi móðir. Oddur starfaði mestalla ævi hjá Rafveitunni og skilaði starfi sínu af stakri samviskusemi og natni. Af samtölum við hann mátti heyra að hann hefði notið starfsins. Hann vann einnig sem rafvirkjameistari á stóru fraktskipunum og sigldi með þeim víða um heim. Oddur naut ferðanna en saknaði fólksins síns þegar hann var í burtu. Lífið gekk út á að færa björg í bú og koma börnunum á legg. Oddur sinnti uppeldishlutverk- inu vel og lagði sig fram við að kenna börnum sínum bæði til verka og siða. Fyrir tæpum tveimur vikum þegar ég og Gunnar sonur hans vorum að keyra austan úr Mýr- dal ræddi Gunnar um föður sinn og hvernig hann hafði kennt honum til verka varðandi viðgerðir og viðhald húsa, og hversu vel það hefði gagnast honum í lífinu. Einnig ræddi hann um sumrin þegar hann var á barnsaldri og minntist tjaldferðalaga fjölskyldunnar vítt og breitt um landið. Oddur kenndi börnum sínum að þekkja kennileiti og leiðir um landið, sýndi þeim fegurstu staðina og kenndi þeim að veiða. Eftir fráfall Ernu naut Odd- ur lífsins ekki á sama hátt og áður en þau hjón höfðu verið afar samhent í öllu sem þau gerðu. Oddur meiddist fyrir átján árum og hafði af því þrautir upp frá því. Þetta réð miklu um til hvers hann treysti sér og hafði þau áhrif síðustu árin að hann fór lítið af bæ en börn hans og barnabörn voru tíðir gestir á heimili hans. Hann var sérstaklega góður heim að sækja. Alltaf var lagt á borð og gefið með, spurt mikið og spjallað. Aðaláhugamál Odds voru börnin og barna- börnin og hann var óþreytandi að tala bæði við þau og um. Oddur hafði brennandi áhuga á því sem maður var að gera hverju sinni og fylgdist vel með bæði börnum sínum, barna- börnum og tengdabörnum. Oddur hafði mikinn áhuga á landsmálunum og má segja að hann hafi verið fréttafíkill. Þeg- ar ég missti af fréttum vegna anna var einfaldast og skemmtilegast að fara til Odds eða hringja í hann því þá fékk maður bæði fréttirnar, skýring- ar og skraf. Ég kveð tengdaföður og vin með trega og hlýju og votta börnum hans og barnabörnum mína dýpstu samúð. Magnús. Mörg voru þau skipti sem við trítluðum upp tröppurnar á Efstasundi 87 og hringdum dyrabjöllunni. Oddur kom til dyra, heilsaði hress í bragði og bauð okkur inn. Þar tók Erna brosandi á móti okkur. Heimili Odds og Ernu stóð okkur krökkunum í vinahóp Gunna og Ellu ávallt opið. Þar áttum við margar góðar stundir og í minningunni finnst okkur við hafa eytt góðum hluta ung- lingsáranna í herbergjum Ellu og Gunna og hlustað á tónlist. Eftir því sem árin hafa liðið kann maður æ betur að meta hve dýrmætt það var að finna hlýjuna sem ávallt stafaði frá þeim hjónum og mikilvægi þess að vera velkomin. Oddur var mikill fjölskyldumaður og bjuggu þau Erna börnum sín- um gott heimili, sem einkennd- ist af samheldni og stöðugleika. Kærleiksríkt viðmót þeirra í okkar garð skipti miklu máli á unglingsárunum, það styrkti sjálfsmynd okkar og kenndi okkur að umgangast börn og unglinga af virðingu. Á kveðjustund minnumst við Odds með þakklæti og sendum börnum hans, barnabörnum og öðrum ástvinum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Svala, Anna Sigríður, Páll Heimir og Jón Atli. Látinn er í hárri elli kær vin- ur og samstarfsmaður sem gott er að minnast við ævilok. Oddur var einstaklega minn- ugur á liðna atburði sem tengd- ust starfi hans hjá Rafmagns- veitu Reykjavíkur, þar sem hann starfaði í yfir fjörutíu ár. Við lok starfa sinna hjá Raf- magnsveitunni féllst Oddur á að segja undirrituðum frá ýms- um þáttum starfsins, sem voru í mótun hjá fyrirtækinu og er sú grein varðveitt í starfs- mannablaði RR. Það er fróðlegt og mikilvægt að eiga slíkar heimildir. Í við- talinu lýsir hann athyglisverð- um verkefnum, tæknilegum að- stæðum, vinnumarkaði og tíðaranda. Þetta viðtal lýsir því vel hversu sterk bönd bundust á meðal starfsmanna gömlu Rafmagnsveitunnar og hversu vænt þeim þótti um störf sín og fyrirtækið. Gríðarleg umbylting hefur orðið í aðstæðum og tækni á rafmagnssviðinu. Oddur byrjaði að vinna í inn- lagnadeild 8. júní 1955, sem þá var til húsa í Tjarnargötu 11, í gamla íþróttahúsinu, þar sem nú er Ráðhús Reykjavíkur. Skrifstofan var til húsa á Tjarnargötu 12. Vinnuvikan var til kl. 12 á laugardögum og oft eftirvinna fram á kvöld á laugardögum við uppsetningu mæla á heimilum. Vinnan gat verið langvarandi á hverju heimili, Oddur, ásamt öðrum, hafði það verk að yf- irfara allar raflagnir á heim- ilinu í leiðinni. Mælamaðurinn var því oft settur inn í heimilis- aðstæður. Mælamenn nutu kaffiveitinga og bakaðs með- lætis og ef heimilismenn þurftu að fara voru lyklar afhentir starfsmönnum, eða þeir beðnir að læsa á eftir sér þegar þeir færu. Traustið í garð starfs- manna var svo mikið. Þeir sem yfirfóru rafmagnsmál heimilis- ins voru traustsins verðir. Eng- in skilríki báru starfsmenn fyrr en um 1980. Öðru athyglisverðu verkefni á þessum upphafsárum hans sinnti Oddur en það tengdist því að koma þurfti á tengingum við skipin í höfninni til að þau þyrftu ekki að keyra dísilvélar sínar í höfn. Unnið var við að koma upp tenglakerfi svo ekki þyrfti á sérþjónustu Rafmagnsveitunn- ar að halda í hvert sinn sem skip lagði að en á meðan þurfti að sinna hverju skipi. Þessari vinnu lauk 1983 þegar Höfnin tók við rekstrinum. Á þessum árum voru 220 verktakar sem höfðu rétt til að tilkynna verk til úttektar á Rafmagnsveitunni. Oddur nefnir að starfsmenn hafi verið afar lánsamir því kaf- að var inn í rafmagnstöflur alla daga og gæði efnis ekki alltaf upp á marga fiska á þessum tíma. Aldrei upplifði hann stórslys við þessar hættulegu aðstæður, þótt margir þekktu til bruna á fingrum og roða á andliti, eins og hann lýsir. Fjölmargt annað áhugavert fyrir tæknimenn nefnir Oddur í þessu viðtali í starfsmannablaði Rafmagnsveitunnar, sem vissu- lega er vert að skoða. Þar skil- ur hann eftir sig merka sögu. Minning um ljúfan dreng er kær. Ættingjum sendi ég inni- legar samúðarkveðjur. Guðmundur K. Egilsson. Oddur G. Jónsson Í sorginni finnur maður oft styrk sinn. Fallinn er frá, allt of snemma, elskulegur faðir minn. Ég á svo margar góðar minn- ingar með honum, það væri efni í heila ritgerð að skrifa það allt saman. Þegar ég var ungur drengur, í kringum 12 ára ald- urinn, var pabbi eins og oft áð- ur að keyra túrista um landið og bauð mér að koma með. Þetta var um hásumar og veðr- ið gott. Ég fór með honum að sjá all- ar helstu perlur landsins og sá allt sem hægt var að sjá. Pabbi var uppfullur af fróðleik, og fræddi mig um land og þjóð, það sem ég veit um landið er pabba að þakka. Þetta er tími sem ég mun aldrei gleyma, tvær vikur á rúntinum með pabba, bara við tveir og útlend- ingarnir. Pabbi var ekki sá besti í enskunni þannig að ég var nokkurskonar túlkur í þessari ferð. En pabbi gat samt alltaf reddað sér með enskuna, hann bætti bara nokkrum íslenskum Guðbrandur Ingi Hermannsson ✝ GuðbrandurIngi Her- mannsson fæddist 12. júní 1947. Hann lést 11. apríl 2016. Útför Guðbrands fór fram 19. apríl 2016. orðum við og handabendingum og allir skildu hann, ekki vanda- málið. Þetta er ein besta æskuminning sem ég á, en þær eru samt svo margar og góðar með pabba. Minningarnar um hann lifa í gegnum ástvini hans um ókom- in ár. Hann átti marga að, öllum líkaði vel við hann enda mikill snillingur og fagmaður. Alla tíð í gegnum súrt og sætt hefur hann viljað gera allt fyrir mig, hann hjálpaði mér svo mikið, veit ekki hvar ég væri án hans hjálpar, sakna hans rosalega mikið. Hefði ég vitað að hann ætti svona stutt eftir hefði ég eytt öllum mínum tíma með honum, en maður getur ekki vitað svona hluti fyr- irfram og ég ætla að einbeita mér að öllum góðu stundunum. Elsku pabbi, þú fjallmynd- arlegi maður, fólk segir að ég sé nánast alveg eins og þú í út- liti og það er sannur heiður að vera líkt við þig, þú munt lifa í mér það sem eftir er. Takk fyrir allt, hvíldu í friði, þín verður alltaf sárt saknað og ég hef örugglega ekki sagt þetta oft. Ég elska þig ávalt, pabbi minn. Hermann Ingi. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SNÆBJÖRN AÐALSTEINSSON, fyrrverandi lögreglumaður, Barðastöðum 7, Reykjavík, lést að morgni 29. apríl. Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11. maí klukkan 15. . Kristín Lárusdóttir, Steinunn Snæbjörnsdóttir, Magnús Þórarinsson, Aðalsteinn Snæbjörnsson, Elsa S. Bergmundsdóttir, Lára G. Snæbjörnsdóttir, Magnús Þ. Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir mín, dóttir, systir, tengdamóðir, amma og frænka, JÓHANNA HÁKONARDÓTTIR, Hólabraut 10, Hafnarfirði, lést á Líknardeildinni í Kópavogi þann 3. maí sl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 17. maí klukkan 13. . Sigurlaug Helga Teitsdóttir, Tómas Joensen, Sigurlaug Helga Leifsdóttir, Leifur Hákonarson, ömmustrákar og aðrir aðstandendur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN K. ÞÓRÐARSON, múrarameistari, Boðaþingi 12, Kópavogi, lést að morgni miðvikudags 4. maí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 13. maí klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarsjóð Oddfellow-stúku Þorfinns Karlsefnis. . Úndína Gísladóttir, Gyða Jónsdóttir, Þorgrímur Hallgrímsson, Guðbjörg Jóna Jónsdóttir, Eiríkur Bragason, Sigrún Ísabella Jónsdóttir, Gísli Hjálmtýsson, barnabörn og barnabarnabörn. KÁRI EIRÍKSSON listmálari lést 1. maí síðastliðinn. Útför fer fram frá Laugarneskirkju í Reykjavík miðvikudaginn 11. maí klukkan 11. . Kári Kárason, Inga Kjartansdóttir, Harpa Káradóttir, Dagur Kári Kárason. Ástkær sambýliskona, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, NANNA GUÐRÚN INGÓLFSDÓTTIR, Hlíðatúni 7, Höfn, Hornafirði, lést á heimili sínu 3. maí síðastliðinn. Útförin fer fram frá Hafnarkirkju 14. maí klukkan 14. . Sigurþór Sigurðsson, Ingólfur Bragi Valdimarsson, Guðleif Kristbjörg Bragadóttir, Kristjón Elvarsson, Hilmar Bragason, Dagnija Karabesko, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, og afi, KRISTÓFER MAGNÚSSON, tæknifræðingur, Hafnarfirði, lést á Sólvangi, Hafnarfirði, 26. apríl sl. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. . Magnús Jón Kristófersson, Hrafnhildur Jóna Þórisd., Laufey Ósk Kristófersdóttir, Júlíus Finnsson, afabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.