Morgunblaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2016 ✝ Friðþjófur Bragason, Bubbi, fæddist í Hafnar- firði 24. október 1954. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 1. maí 2016. Foreldrar hans eru Bragi Friðþjófs- son, f. 31. júlí 1932, og Svala Jónsdóttir, f. 9. september 1930. Systkini Friðþjófs eru: a) Sigurborg, f. 25. október 1950, b) Dagbjört Jóna, f. 17. september 1952, c) Guðrún, f. 21. apríl 1956, d. 31. janúar 2015, d) Björk, f. 14. október 1957, e) Roger, f. 20. október 1958. Friðþjófur hóf sambúð með Ellen Ásthildi Ragnarsdóttur, f. 10. janúar 1957, árið 1975. Þau giftu sig 6. desember 2015. For- eldrar Ellenar voru Ragnar Sig- urður Sigurðsson, f. 2. júlí 1913, d. 22. október 1985, og Björg Er- lingsdóttir, f. 9. mars 1930, d. 2. nóvember 2008. Börn þeirra eru: 1) Bragi, f. 17. ágúst 1978, d. 17. ágúst 2009. 2) Ragnar Þórður, f. 25. jan- úar 1982, d. 9. apríl 1982. 3) Róbert, f. 3. febrúar 1984. 4) Ragna Björg, f. 18. október 1990. Sambýlismaður Rögnu Bjargar er Páll Eliasen, f. 24. janúar 1990. Friðþjófur var í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði. Hann var lengst með eigin rekstur sem sendi- bifreiðastjóri en vann áður við ýmis störf. Friðþjófur fékk alvar- leg hjartaáföll hvað eftir annað fyrir nokkrum árum og gekk seint að leiða í ljós hvað hrjáði hann. Það háði honum mjög. Einnig fékk hann áverka af slys- um í starfi. Þeir urðu ekki bættir að fullu. Hann var því öryrki hin síðari ár sín. Útför Friðþjófs verður gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, 10. maí 2016, klukkan 13. Og nú fór sól að nálgast æginn, og nú var gott að hvíla sig, og vakna upp ungur einhvern daginn með eilífð glaða kringum sig. Nú opnar fangið fóstran góða og faðmar þreytta barnið sitt; hún býr þar hljótt um barnið móða og blessar lokað augað þitt. Hún veit hve bjartur bjarminn var, þótt brosin glöðu sofi þar. (Þorsteinn Erlingsson) Elsku bróðir minn. Ég minnist þín best fyrir það hvað þú varst góður í þér. Það birtist mér á margan hátt. Við ólumst ekki upp saman en vor- um þó oft samvistum og áttum góðar stundir saman. Þú varst fjörugur og oft á hlaupum, næst- um óstöðvandi. Þá gættir þú ekki alltaf að þér, síst í því hvað tímanum leið. Þú áttir erfitt með að einbeita þér að námi, en ég vissi þó þær stundir að þú gast sökkt þér niður í það sem þér þótti forvitnilegt og sá vel að þú hafðir hæfileika til að læra af bók. Þú varst mjög handlaginn og leystir með hugkvæmni úr mörgu sem aðrir hefðu gefist upp við. Það kom sér oft vel þegar þú fórst að vinna fyrir þér, til dæmis í sambandi við vélar og tæki, einkum sem sendibílstjóri. Þú varst alltaf ákafur safnari og undanfarin ár, þegar þú gast ekki lengur stundað akstur sendibifreiðarinnar vegna veik- inda og afleiðinga slysa, undir þú löngum við að raða upp stóru safni þínu og fægja alla hlutina af mikilli natni. Mér fannst sér- staklega vænt um þegar þú sýndir mér safnið þitt fyrir stuttu, þá hafðir þú raðað því öllu upp að nýju. Við nutum bæði þeirrar stundar. Við hjónin trúum því að þú sért nú í friði með þeim ástvin- um þínum sem horfnir eru af þessum heimi. Við biðjum Guð um styrk ykkur til handa, kæru Ellen, Ró- bert og Ragna Björg, og öðrum sem næst þér stóðu. Sigurborg Bragadóttir og Karl Helgason. Friðþjófur Bragason ✝ Árni ÁgústGunnarsson fæddist 2. mars 1938 á Ísafirði. Hann lést á heimili sínu 18. apríl 2016. Foreldrar Árna voru hjónin Gunnar Pálsson skipstjóri, f. 25. september 1914, d. 19. apríl 1971, og Salvör Ebeneser- dóttir húsmóðir, f. 30. janúar 1917, d. 21. janúar 2004. Systkini Árna eru Gunnar Kristinn, f. 12. ágúst 1939, og Ebba Halldóra, f. 27. apríl 1944. Hinn 16. júní 1968 gekk Árni að eiga Agnesi Egilsdóttur, f. 8. júlí 1936, kennara frá Siglufirði. Börn þeirra eru: 1) Gunnar, f. 4. maí 1969, viðskiptafræðingur, og eitt barnabarn. 4) Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir, f. 17. mars 1959, kennari, maki Ólafur Þ. Stefánsson rafmagnstæknifræð- ingur. Börn þeirra eru Egill Már, f. 1978, Ólöf Ásta, f. 1989, og þrjú barnabörn. Árni ólst upp á Ísafirði til 18 ára aldurs er hann fór í Verzl- unarskóla Íslands og lauk þaðan stúdentsprófi 1959. Árni útskrif- aðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið 1967. Hann starfaði hjá Vinnuveitenda- sambandi Íslands árin 1967-1972. Árin 1972-1974 var hann fram- kvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Fasteignasali í Reykjavik 1975-1976. Fram- kvæmdastjóri Þorláksvarar hf. og Stíganda sf. í Þorlákshöfn 1976-1978. Framkvæmdastjóri Suðurnesjaverktaka hf. frá 1978- 1990 þegar fyrirtækið hætti rekstri. Sjálfstætt starfandi frá 1990 til dánardags. Útför Árna fer fram frá Garðakirkju í dag, 10. maí 2016, kl. 15. maki Hlédís Sveins- dóttir arkitekt. Börn Gunnars eru Agnes Eyja, f. 1993, og Guðmundur, f. 1997. 2) Anna Guð- rún, f. 30. nóvember 1972, lögmaður. Dætur Önnu Guð- rúnar og Valdimars Sverrissonar ljós- myndara eru Hildur Anna, f. 2002 og Lára Margrét, f. 2011. Börn Agnesar af fyrra hjóna- bandi með Sveinbirni Finnssyni, d. 1959, eru: 3) Finnur Svein- björnsson f. 31. janúar 1958, hag- fræðingur, maki Dagný Hall- dórsdóttir rafmagnsverkfræð- ingur. Börn þeirra eru Guðrún Halla, f. 1984, Sveinbjörn f. 1989, Elsku pabbi minn. Þú varst minn dyggasti stuðn- ingsmaður. Alltaf gat ég leitað til þín, traustur og ráðagóður varstu. Þú hlustaðir með ró og yfir- vegun, bentir mér á nýja fleti, ný sjónarhorn viðfangsefnisins og einhvern veginn varð allt viðráð- anlegra eftir samtal við þig. Síð- ustu daga hef ég talað til þín og þú hefur veitt mér styrk og hugg- un í þeim verkefnum sem ég er að kljást við. Ég finn sterkt fyrir nærveru þinni og er ég þakklát fyrir það. Ég kveð þig, elsku pabbi minn, með sömu orðum og þú kvaddir mig iðulega með: „Þú veist hvað mér þykir óskaplega vænt um þig.“ Ég vissi það alla tíð og það var gagnkvæmt. Þín dóttir, (Dúan þín) Anna Guðrún. Elsku afi minn. Síðustu daga hef ég verið að hugsa mikið til þín og hversu óraunverulegt það sé að þú sért ekki lengur hér hjá okkur. Ég hugsa til allra fjöruferðanna sem ég fór með ykkur ömmu og þá sérstaklega til þess þegar þú skrifaðir nafn mitt með stórum stöfum í sandinn, en það gerðir þú alltaf. Þegar ég var í pössun hjá ykk- ur ömmu og amma lagði sig, þá varst þú vanur að setjast hjá mér og við teiknuðum saman. Amma var alltaf með skál í ísskápnum með súkkulaðimolum í og fékk ég alltaf einn mola eftir hádegismat- inn. Það sem amma vissi ekki var að þú gafst mér alltaf aukamola og var ég ánægð með það. Ég man að þegar ég var lítil settist ég alltaf hjá þér og þú last fyrir mig Ferdinand í Morgun- blaðinu og hafði ég alltaf gaman af því. Þú kenndir mér að taka betur eftir fallegum hlutum í nátt- úrunni eins og til dæmis fjöllun- um í kring, fuglunum og tunglinu, er ég afar þakklát fyrir það. Þú spurðir mig alltaf þegar við hittumst hvernig ég hefði það og hvernig mér gengi í skólanum. Alltaf þegar við kvöddumst þá lagðir þú hendur þínar á vanga mína, kysstir mig á ennið, brostir og sagðir: „Alltaf er jafngaman að hitta þig.“ Ég vil þakka þér, elsku afi, fyrir allar þessar góðu stundir og þú munt ávallt fylgja mér. Þín, Hildur Anna. Árni Ág. Gunnarsson ✝ Dúfa Kristjáns-dóttir fæddist 11. ágúst 1934 á Akureyri. Hún lést 10. apríl 2016 á dvalarheimilinu Hlíð. Foreldrar henn- ar voru Soffía Jó- hannesdóttir, f. 22. júlí 1899, d. 3. júní 1962, og Kristján Jakobsson, f. 12. október 1901, d. 25. janúar 1963. Hún var yngst fjögurra systk- ina. Hún var gift Óskari Ingimars- syni og voru þau lengst búsett í Kot- árgerði 2 á Ak- ureyri. Þau áttu saman þrjú börn, Óskar Hauk, Krist- ján og Rósu. Barna- börn þeirra eru sjö og barna- barnabörnin eru fjögur. Útförin fór fram 22. apríl 2016. Nú er Dúfa farin og við sem heima sitjum yljum okkur við minninguna. Dúfa var mikill gleðigjafi og glens og hlátur fylgdi hlýrri og góðri nærveru hennar. Hún var dugleg að rækta tengslin við ættmenni og fjöl- skylduveislur voru hennar stóru stundir. Hún undirbjó þær af kostgæfni og allir á heimilinu þurftu að taka þátt. Það dugði sjaldan minna en að þrífa allt í hólf og gólf, elda eða baka eftir því sem við átti. Hún var hand- lagin og lengi saumaði hún eða prjónaði flestar flíkur sem fjöl- skyldan gekk í eins flott og það gat orðið. Hún hafði jafnframt áhuga á leirkerasmíði, postulíns- málun, vatnslitamálun og margs- konar hannyrðum og listum. Henni féll sjaldan verk úr hendi og var stöðugt að reyna nýja hluti. Dúfa reyndi fyrir sér í at- vinnurekstri, um tíma rak hún Sólbaðsstofu Dúfu. Hún var þó framsýnust þegar hún fékk þá hugmynd að leigja túristum, á sumrin, nánast allt húsið sitt en þá kom það fyrir að fjölskyldan svaf á eldhúsgólfinu, svo fullt var á stundum. Við höfum kallað þetta Airbnb-tímabilið. Lengst af vann hún þó með börnum og fannst það gefa sér mikið. Dúfa hafði gaman af spjalli og gaf sér því oft tíma heima í stofu að spjalla við okkur um alla heima og geima. Þá fann maður vel hvað maður átti góðan að. Við söknum hennar og óskum friðar. Óskar Haukur Óskarsson, Kristján Óskarsson, Rósa Óskarsdóttir, barnabörn og langömmubörn. Dúfa Kristjánsdóttir Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR INGIBJARGAR LÁRUSDÓTTUR, Diddu á Bakka. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi, Guð blessi ykkur. . Lárus Björgvin Jónsson, Sigrún Zophoníasdóttir, Bjarni Jónas Jónsson, Olga Jónsdóttir, Jakob Jóhann Jónsson, Katrín Líndal, Sveinn Eggert Jónsson, Ólafur Þórir Hansen, Jón Baldvin Jónsson, Lilja Björg Gísladóttir, ömmu- og langömmubörn.Áskær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR KRISTINN DANÍELSSON, Sautjándajúnítorgi 7, Garðabæ, andaðist þann 24. apríl á líknardeild Landspítala. Aðstandendur þakka auðsýnda samúð og vinarhug. Sérstakar þakkir til heimahjúkrunar Karítas og starfsfólks Líknardeildar, Kópavogi. . Pálína Karlsdóttir, Kristján Sigurðsson, Guðrún Sigurðardóttir, Kristín Sigurðardóttir, Pétur Hugus, Pálína Harðardóttir, Ása Dís Kristjánsdóttir, Anton Hilmarsson, Sigurður Kristjánsson. Við þökkum auðsýnda samúð við fráfall og útför MEKKÍNAR GUÐNADÓTTUR frá Sigtúnum, Eyjafjarðarsveit. Sérstakt þakklæti sendum við starfsfólki á Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri. . Bjarni Kristjánsson, Elísabet Guðmundsdóttir, Gunnar Kristjánsson, Oddný Vatnsdal, Jón Guðni Kristjánsson, Sigrún Kristjánsdóttir, Haraldur Hauksson, Helga Sigrún Harðardóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samhug og stuðning við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARGRÉTAR HALLGRÍMSDÓTTUR frá Dynjanda í Jökulfjörðum, lengst búsettrar á Þverá í Ólafsfirði, seinast Efstalandi 12, Reykjavík. . Kristín Halla Marinósdóttir, Stefán Marinósson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HELGA SIGURÐARDÓTTIR, Þorláksgeisla, Reykjavík, lést þann 21. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. . Gunnar Þór Haraldsson, Svava S. Ragnarsdóttir, Vormur Þórðarson, Theodóra S. Theodórsdóttir, Bjarni Þór Ólafsson og barnabörn. Systir okkar, mágkona og frænka, HELGA SIGURLÍNA KARLSDÓTTIR, Lækjartúni 16, Akureyri, lést þann 29. apríl á Dvalarheimilinu Hlíð. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 11. maí klukkan 13.30. . Erna T. Karlsdóttir, Ragnheiður S. Karlsdóttir, Jón Emil Karlsson, Svala Karlsdóttir, Sveinn Karlsson og fjölskyldur. Okkar elskulega amma, lang- og langalangamma, KRISTRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR, Bláskógum 11, Hveragerði, lést á Hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði, fimmtudaginn 5. maí sl. . Kristján H. Lárusson, Hrönn Waltersdóttir, Lárus H. Kristjánsson, Ragnheiður Magnúsdóttir, Rúnar K. Kristjánsson, Linda Jóhannsdóttir, Sonja Ó. Kristjánsdóttir, Örlaugur Á. Magnússon, Guðjón Ó. Kristjánsson, Karen B. Sigríðardóttir, Hera Guðmundsdóttir og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.