Morgunblaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2016 hafðu það notalegt Njóttu þess að gera baðherbergið að veruleika miðstöðvarofnar Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidjan.is - sími 577 5177 FINGERS 70x120 cm Ryðfrítt stál JAVA 50x120 cm Ryðfrítt stál COMB 50x120 cm Ryðfrítt stál Rússneskir hermenn fjölmenntu á her- sýningu sem haldin var á Rauða torg- inu í Moskvu í gær, mánudaginn 9. maí, í tilefni af því að 71 ár er nú liðið frá sigri sovéska hersins á hersveitum þýskra nasista í síðari heimsstyrjöld. Um 10.000 hermenn tóku þátt í sýning- unni, auk orrustuflugvéla, þyrlna og skriðdreka. Vladimír Pútín Rússlandsforseti flutti ávarp þar sem hann meðal annars færði landsmönnum hamingjuóskir og kallaði eftir því að alþjóðasamfélagið sameinaðist í baráttunni gegn hryðju- verkum. „Við verðum að vinna bug á þessari illsku og Rússland er reiðubúið til þess að vinna með öðrum ríkjum að nútíma- legu og alþjóðlegu öryggiskerfi,“ hefur fréttaveita AFP eftir Pútín forseta. Þá héldu einnig rússneskir hermenn í Sýrlandi minni sigurgöngu í tilefni dagsins og fór hún fram á Hmeimin- herstöðinni þar í landi, en hún er þungamiðja í aðgerðum rússneska hersins gegn vígasveitum. Hátíð á Rauða torginu AFP Herveldi Rússneskir hermenn gengu í fylkingu um Rauða torgið til að minnast sigurs Sovétríkjanna á nasistum. Werner Faym- ann, kanslari Austurríkis, baðst í gær lausnar frá emb- ætti eftir að hafa misst stuðning flokks- félaga sinna í Jafnaðarmanna- flokknum (SPOe). Faymann hefur gegnt embætti kanslara, æðsta yf- irmanns þingsins, frá árinu 2008. Hefur hann þurft að sæta gagn- rýni innan flokks síns frá því að Norbert Höfer, frambjóðandi austurríska Frelsisflokksins (FPOe), sigraði í fyrstu umferð forsetakosninga í Austurríki í apríl sl. Fréttaveita AFP greinir frá því að Faymann hafi tilkynnt ákvörð- un sína á blaðamannafundi þar sem hann sagði meðal annars að Austurríki þyrfti á kanslara að halda sem nýtur fulls stuðnings flokks síns. Mun Faymann einnig hætta sem formaður Jafnaðar- mannaflokksins. Sagði hann rík- isstjórn landsins eiga erfitt verk fyrir höndum, en minnka þarf þar atvinnuleysi og finna farsæla lausn á flóttamannavandanum. AUSTURRÍKI Faymann kanslari segir af sér embætti Stjórnvöld í Þýskalandi segj- ast nú finna fyr- ir því að mun færri flótta- menn og hælis- leitendur hafi komið til lands- ins í seinasta mánuði en mán- uðina á undan. Þannig komu um 16.000 hælisleit- endur til Þýskalands í apríl sl., en þeir voru um 20.000 talsins í mars og 120.000 í desember á seinasta ári. Samkvæmt AFP er einkum að þakka hertu landamæraeftirliti á Balkanskaga. FLÓTTAMANNAVANDI EVRÓPU Færri hælisleitendur koma til Þýskalands Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Stjórnvöld í Túnis segjast hafa, fyrstu þrjá mánuði þessa árs, hindrað hátt í 2.000 manns frá því að ganga til liðs við vígasveitir herskárra íslamista. Frá því í janúar hafa einnig 33 mögulegir hryðju- verkahópar verið leystir upp og réttað yfir um 1.400 manns sem grunaðir eru um tengsl við hryðjuverkahópa eða -samtök. „Á þessu ári hefur 1.877 Túnisbúum verið mein- að að fara úr landi í þeim tilgangi að ferðast til átakasvæða,“ hefur fréttaveita AFP eftir Yasser Mesbah, talsmanni innanríkisráðuneytisins í Tún- is, en hann vildi hins vegar ekki nefna þá staði sem hópurinn hafði í hyggju að ferðast til. Herskáir íslamistar hafa sótt í sig veðrið í Túnis frá því að Zine al-Abidine Ben Ali var steypt af stóli forseta í arabíska vorinu svokallaða árið 2011. Ríkisstjórn landsins hefur átt í erfiðleikum í baráttunni við íslamistana, sem hafa styrkst í kjöl- far átaka í Líbíu og einnig vegna heimkomu Tún- isbúa sem barist hafa fyrir hin alræmdu vígasam- tök Ríki íslams í Sýrlandi og Írak. Ungt fólk mjög áberandi Að sögn Mesbah, sem vitnar til gagna frá innan- ríkisráðuneytinu, er ungt fólk fjölmennt í hópi þeirra tæplega 2.000 Túnisbúa sem ætluðu að ferðast til átakasvæða erlendis. Eru flestir þeirra sagðir vera á aldrinum 20 til 23 ára. Frá því í janúar hafa öryggissveitir landsins einnig gert alls 1.733 húsleitir á heimilum fólks sem grunað er um tengsl við hryðjuverkahópa og eru sumir þeirra sagðir hafa veitt vígamönnum húsaskjól. Þá hafa einnig um 140 manns til viðbótar verið handteknir af lögreglu, en hópur þessi er sagður hafa ætlað að hjálpa verðandi vígamönnum að ferðast til átakasvæða utan landamæra Túnis. Um 2.000 vildu til vígasvæða  Stjórnvöld í Túnis hafa stöðvað mikinn fjölda fólks sem vildi ganga til liðs við vopnaðar sveitir íslamista  Ungt fólk mjög áberandi meðal þeirra sem vildu út AFP Varðstöð Löggæslusveitir í Túnis leita reglulega í bílum fólks við landamærastöðvar. Leiðtoginn Kim Jong-Un hefur verið útnefndur formaður norður-kóreska verkamannaflokksins. Var þetta til- kynnt á flokksþingi í gær, en þingið er hið fyrsta sem haldið er í 36 ár. Mörg þúsund fulltrúar eru nú saman komnir á flokksþinginu og mátti sjá þá fagna óstjórnlega þegar Kim Yong-Nam þingforseti greindi frá þessum nýja titli leiðtogans. Kim-ættin hefur ráðið ríkjum í landinu frá stofnun þess árið 1948. Fréttaveita AFP greinir frá því að þessi útnefning Jong-Un, sem gegnt hefur stöðu leiðtoga Norður-Kóreu frá því að faðir hans lést árið 2011, eigi vafalítið eftir að styrkja stöðu hans og völd enn frekar. Frá því að Jong-Un tók við hefur hann meðal annars heimilað tvær af þeim fjórum kjarnorkutilraunum sem gerðar hafa verið á Punggye-ri- svæðinu. En talið er að stutt sé í framkvæmd næstu tilraunar þar. AFP Völd Jong-Un leiðtogi Norður-Kóreu á flokksþingi verkamannaflokksins. Leiðtoginn fékk nýjan titil á flokksþingi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.