Morgunblaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2016 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Tvær geitur í jólagjöf eru nú orðnar að tuttugu og níu geitum í húsi. Bændurnir Guðlaug Elísa- bet Ólafsdóttir og Sæmundur Jón Jónsson á Árbæ á Mýrum í Hornafirði bættust í hóp geita- bænda í síðustu viku þegar þau tóku við geitum frá bæn- um Lækjarhúsum í Suður- sveit. „Ég var búin að vera að rella í Sæmundi um að mig langaði svo í geit, eina til tvær. Hann tók þá upp á því að gefa mér tvær geitur í jóla- gjöf, sem ég var óskaplega glöð með. Nema hvað, svo fór- um við í janúar heim til geita- bóndans til að vitja um þessar tvær geitur. Þá er hún Laufey í Lækjarhúsum að hætta með geitabúskapinn og er í stökustu vand- ræðum með geiturnar, sá bara fram á að þurfa að senda þær allar í sláturhús nú í vor þegar hún ætlaði að bregða búi. Ég ákvað þá bara að taka þær allar,“ segir Guðlaug. Dásamlegar og frekar Geiturnar eru 29 talsins, 24 huðnur og 5 hafrar. „Huðnurnar eru með kiðlingum en bera ekki fyrr en seint, um miðjan júní, því það var ekki hleypt til fyrr en ég var búin að lofa að taka þær.“ Guðlaugu langaði upphaflega í geitur því henni fannst þær svo fallegar og miklar týpur en er hún enn á sama máli eftir að hafa komist í nánari kynni við þær? „Mér líst rosalega vel á þær, þær eru dásamlegar. Þær eru brjálæðislega óþekkar og frekar en hrikalega skemmtilegar og sætar,“ svarar Guðlaug en; „Geiturnar príla hér upp um allt. Ég kem af frægri smíðafjölskyldu og hef allt- af fundist ég flinkur smiður en þær bera enga virðingu fyrir því, um leið og ég er búin að smíða stíu eða annað fyrir þær hoppa þær yfir eða fara undir eða eru búnar að brjóta eitthvað þegar ég kem daginn eftir. Það tekur tíma að finna út úr því hvað þarf að gera til að sinna þeim sem best,“ segir Guðlaug. Ætlar að nýta skepnuna alla Í Árbæ er kúabúskapur og selja þau heima- gerðan ís undir nafninu Jöklaís. Guðlaug segir að það sé aldrei að vita nema þau bjóði upp á geita- mjólkurís í framtíðinni. „Ég ætla að taka mér eitt ár í að læra að eiga geitur. Í fyllingu tímans lang- ar mig til að nota skepnuna alla alveg upp til agna; kemba af henni fiðuna, súta skinnið og verka kjötið margvíslega og svo langar mig líka til að búa til osta.“ Geitur eru þekktar fyrir að fara sínar eigin leiðir og segir Guðlaug að það sé ekkert hægt að elta þær uppi né smala þeim eins og kindum. „Mér var sagt að það þýddi ekki neitt nema að hafa þær brauðvanar svo það væri hægt að lokka þær heim, láta þær elta sig. Þá sagði annar að það þýddi ekkert annað en að hafa þær ramm- girtar því ef þær gengju lausar kæmu þær ekkert heim skilst mér, en ég á eftir að komast að þessu,“ segir þessi bjartsýni geitabóndi að lokum. Forvitnar Geiturnar þurftu að kanna ný heimkynni í Árbæ í síðustu viku. Þær þykja forvitnar og frekar. Brjálæðislega óþekkar geitur  Kúabændurnir á Árbæ á Mýrum hófu nýverið geitabúskap  Frúin fékk geitur í jólagjöf  Sætar og skemmtilegar  Bera enga virðingu fyrir listasmíði Guðlaug E. Ólafsdóttir Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Auglýst verður á næstunni eftir nýj- um sóknarpresti til starfa við Laug- arnessókn í Reykjavík. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, sem þjónað hefur við Laugarneskirkju síðast- liðin tvö ár, hefur sagt embættinu lausu og flytur til Sviss. „Eiginmaður minn, sr. Árni Svan- ur Daníelsson, fékk nýlega starf hjá Lúterska sambandinu sem hefur höfuðstöðvar í Genf í Sviss og leiðir upplýsinga- og samskiptasvið þess. Og auðvitað fylgir fjölskyldan með,“ segir Kristín Þórunn Tómasdóttir. „Lútherska heimssambandið starfar á veraldarvísu á sviði hjálparstarfs og mannréttinda og það verður afar spennandi að taka þá í því starfi.“ Litrík fjölmenning Séra Kristín Þórunn segist kveðja sóknarbörn sín með söknuði. „Laugarneshverfið er komið á kort- ið og þykir spennandi kostur þegar fólk velur sér búsetu. Þetta er nán- ast úthverfi miðborgarinnar sem hefur allt til alls, ekki síst mögu- leika til dægradvalar og útvistar,“ segir Kristín Þórunn og heldur áfram: „Hér hefur myndast sterkt félagslegt tengslanet meðal íbúa og svo er þetta líka fjölmenningar- hverfi. Hér býr fólk af ýmsu þjóð- erni, sem birtist meðal annars í því að aðeins 55% af 4.500 íbúum í hverfinu eru í þjóðkirkjunni. Mér finnst þessi samsetning eigi að síður hafa gert sóknina einfaldlega litrík- ari, því hvað sem líður trúarbrögð- um sameinast fólk í svo mörgu öðru efni þar sem kirkjan er – þrátt fyrir allt – ákveðinn miðpunktur.“ Valið samkvæmt nýjum reglum Kristín Þórunn lætur af embætti í september næstkomandi. Þá verður búið að kjósa nýjan sóknarprest í Laugarnesinu. Það verður gert samkvæmt nýjum reglum þar sem aðkoma sóknarbarna að kjöri í emb- ættið er aukin. Á aðalsafnaðarfundi innan tíðar verður valið í kjörnefnd. „Nú er lag fyrir þau sem áhuga hafa á málefnum kirkjunnar að blanda sér í leikinn,“ segir sóknarprestur- inn fráfarandi. Morgunblaðið/Ómar Prestur Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir hyggst nú að róa á ný mið. Fer úr Laugarnesi og flytur til Sviss  Sr. Kristín Þórunn kveður söfnuð sinn mbl.is Vertu upplýstur! blattafram.is VANDINN LIGGUR OFT HJÁ OKKUR SJÁLFUM. SAMÞYKKIR ÞÚ KYNFERÐISOFBELDI? Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Túnikur kr. 5.900 Str. s-xxxl 2 litir Um þrjár milljónir króna söfnuð- ust í skákmaraþoni Hrafns Jökulssonar, Skákfélagsins Hróksins og Skákakademíu Reykjavíkur til styrktar börnum frá Sýrlandi. Maraþonið fór fram í Ráðhúsi Reykjavíkur á föstudag og laugardag og tefldi Hrafn Jökulsson við gesti og gangandi. Hann hafði sett markið á 200 skákir en tefldi alls 222 skákir á tæpum 30 klukkustundum. Skákmaraþonið var haldið í samvinnu við Fatimusjóðinn og UNICEF á Íslandi og fjöldi fólks gaf vinnuna sína svo það mætti verða að veru- leika. Söfnunarféð fer í neyðar- aðgerðir UNI- CEF í Sýrlandi og nágranna- ríkjunum, en milljónir barna búa þar við skelfilega neyð. Fjöldi fyrirtækja og einstak- linga hafði í aðdraganda mara- þonsins heitið á Hrafn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá UNICEF á Íslandi Þrjár milljónir söfnuðust fyrir sýrlensk börn Hrafn Jökulsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.