Morgunblaðið - 10.05.2016, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2016
Áburðardreifarar
Grasið verður grænnameð góðri og jafnri áburðargjöf
ÞÓR FH
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 - 18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Það er ekki á hverjum degi semformaður flokks lýsir honum
með þeim orðum að hann sé eins og
„sjúklingur án lífsmarks,“ en það var
sú lýsing sem Árni Páll Árnason
valdi Samfylking-
unni í viðtali í gær.
Hann segir að„Samfylkingin
þurfi á því að halda
að ákveða hvað hún
ætlar að vera og
hvernig hún ætlar að
gera hlutina“, og
óhætt er að segja að
hann sé að lýsa flokki
sem er annaðhvort í
upplausn eða dauða-
teygjunum, nema
hvort tveggja sé.
Árni Páll skýrir það að hann hættivið að bjóða sig aftur fram til
formanns, viku eftir að hann til-
kynnti hið gagnstæða, með því að
erfitt væri að leiða stjórnmálaflokk
með veikt umboð. Hann hafi óttast að
sitja eftir með umboð sem væri ekk-
ert skýrara en nú og sundraðan
flokk.
Það er ekkert gefið að Samfylk-ingin lifi svona hremmingar af,“
segir Árni Páll, og bætir því við að
staðan sé mjög erfið. Vandinn sé
harkaleg orðræða og skotgrafahern-
aður, auk mislukkaðs uppgjörs við
hrunið. Þá hafi landsdómsmálið haft
skaðleg áhrif.
Jóhanna Sigurðardóttir fær sinnskammt af skömminni, ef til vill
stærsta skammtinn, en Árni Páll
finnur að því að Samfylkingin hafi
verið gerð að hreinum vinstriflokki í
stað þess að reyna að teygja sig til
miðjunnar.
Ef marka má orð Árna Páls er fátteftir fyrir flokksmenn annað en
að kasta rekunum og kveðja.
Árni Páll Árnason
Samfylkingin sjúk-
lingur án lífsmarks
STAKSTEINAR
Jóhanna
Sigurðardóttir
Veður víða um heim 9.5., kl. 18.00
Reykjavík 8 léttskýjað
Bolungarvík 2 rigning
Akureyri 11 heiðskírt
Nuuk 7 skýjað
Þórshöfn 5 alskýjað
Ósló 10 skýjað
Kaupmannahöfn 11 heiðskírt
Stokkhólmur 10 heiðskírt
Helsinki 7 heiðskírt
Lúxemborg 15 skúrir
Brussel 16 heiðskírt
Dublin 7 skúrir
Glasgow 8 skýjað
London 12 léttskýjað
París 12 léttskýjað
Amsterdam 17 heiðskírt
Hamborg 12 heiðskírt
Berlín 12 skýjað
Vín 12 skýjað
Moskva 7 heiðskírt
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 10 skúrir
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 17 heiðskírt
Róm 17 heiðskírt
Aþena 17 léttskýjað
Winnipeg -5 léttskýjað
Montreal 3 skúrir
New York 16 alskýjað
Chicago 9 alskýjað
Orlando 27 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:27 22:22
ÍSAFJÖRÐUR 4:11 22:49
SIGLUFJÖRÐUR 3:53 22:32
DJÚPIVOGUR 3:51 21:57
Tíunda eikarskipið í flota Norður-
siglingar á Húsavík er væntanlegt til
heimahafnar í hádeginu í dag. Norð-
ursigling festi nýlega kaup á skipinu
og ber það nafnið Sæborg ÞH. Skip-
ið var smíðað af Skipasmíðastöð
Gulla og Trausta á Akureyri árið
1977 fyrir Karl Aðalsteinsson út-
gerðarmann á Húsavík og syni hans,
Aðalstein Pétur og Óskar Eydal.
Alls var skipið í eigu sömu fjöl-
skyldu á Húsavík í 24 ár. Sæborg
ÞH var seld til Keflavíkur 1992 en
hefur undanfarin ár verið gerð út í
ferðaþjónustu frá Reykjavík undir
nafninu Áróra RE.
Nú snýr skipið aftur til Húsavíkur
sem hvalaskoðunarskip undir sínu
gamla nafni. Sæborgin byrjar reglu-
lega hvalaskoðun frá Húsavík 1. júní
og getur borið allt að 70 farþega.
Sæborgin verður til sýnis við flot-
bryggju Norðursiglingar milli 12 og
13 í dag .
Tíunda eikarskip Norðursiglingar
Í hvalaskoðun undir gamla nafninu
Ljósmynd/Norðursigling
Á heimleið Sæborg leggur af stað frá Reykjavík til heimahafnar á Húsavík.
„Ég hvet alla til þess að kaupa SÁÁ
Álfinn. Hann er ógeðslega sætur
með bleikan hanakamb,“ sagði
Greta Salóme,
fulltrúa Íslands í
forkeppni Euro-
vision í kvöld, en
hún tók hlé frá
æfingum í Stokk-
hólmi til að kaupa
fyrsta Álfinn af
SÁÁ. Árleg Álfa-
sala samtakanna
hófst í gær og
lýkur með loka-
keppninni á laug-
ardag. Álfasalan er víðtækasta fjár-
öflunarverkefni hvers árs á vegum
SÁÁ. Álfurinn er boðinn til sölu um
land allt og sölufólk fær úthlutað
ákveðnu athafnasvæði.
Álfasala á vegum SÁÁ hefur farið
fram árlega frá 1990. Tekjur af álfa-
sölunni hafa til dæmis kostað upp-
byggingu unglingadeildar við
sjúkrahúsið Vog og starfsemi fjöl-
skyldumeðferðar og einnig hafa
tekjur af Álfinum gert SÁÁ kleift að
þróa úrræði fyrir börn alkóhólista,
unga fíkla og fjölskyldur.
Greta hvet-
ur fólk til
álfakaupa
Álfasala SÁÁ
í startholunum
Álfur Greta Salome
með álf SÁÁ.