Morgunblaðið - 10.05.2016, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2016
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Stærðir 36-47
Verð 26.995
Cosmic High run
Stærðir 36-47
Verð 22.995
Cosmic run
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Skyldi hún bara vera veik fyrirsvona strák sem geysist umá mótorfák og hræðist ekkineitt eins og daman sem
HLH flokkurinn söng um hér um ár-
ið? Altént var Sigríði Ýri Unnarsdótt-
ur ekki til setunnar boðið eftir að
bandaríski ferða- og ævintýramað-
urinn Mike Reid gisti á sófanum
heima hjá henni í janúar síðastliðn-
um. Að viku liðinni ætlar hún með
honum í 11 þúsund kílómetra mótor-
hjólaferð þvert yfir Bandaríkin. Mike
áætlar að ferðin taki 25 daga. Og
hann ætti að vita hvað hann syngur,
þaulreyndur maðurinn þegar ferða-
lög eru annars vegar.
„Tilgangur ferðarinnar er fyrst
og fremst að safna áheitum fyrir
samtökin Seeds of Peace, eða Fræ
friðar, í fjáröflunarátakinu Miles for
Peace, sem snýst um að safna fé til að
börn frá stríðshrjáðum löndum geti
dvalið í sumarbúðum í Bandaríkjun-
um. Markmið samtakanna er að
stuðla að friði í heiminum og okkar að
safna sex þúsund dollurum til að geta
staðið undir kostnaði fyrir barn í búð-
unum,“ upplýsir Sigríður Ýr og bætir
við að Mike sé hugsjónamaður, sem
hafi síðustu tvö árin helgað sig fjár-
öflunarleiðöngrum í þágu ýmissa
góðgerðar- og friðarsamtaka.
Ástin og ævintýrin
Förum aðeins aftur í tímann.
Sigríður Ýr hafði um nokkurt skeið
boðið ferðamönnum að gista án end-
urgjalds í sófanum heima hjá sér í
gegnum alþjóðlega tengslanetið co-
uchsurfing.com. Einn þeirra var
Mike. „Sjálf hef ég ferðast víða um
Evrópu og gist í sófum heima hjá
fólki, enda ódýrasti ferðamátinn, sem
býður aukinheldur upp á alls konar
ævintýri. Ævintýraþráin hefur alltaf
blundað í mér, en undanfarið hef ég
verið upptekin í námi í Tómstunda-
og félagsmálafræðum við Háskóla Ís-
lands og að halda heimili fyrir börnin
mín tvö, sem eru 5 og 7 ára,“ segir
Sigríður Ýr.
Þá kom Mike og hreif hana á vit
ævintýranna. „Við náðum strax rosa-
lega vel saman og urðum góðir vinir.
Ein nótt í sófanum varð að mörgum
og síðan nokkrum heimsóknum til Ís-
lands auk þess sem við vorum í stöð-
ugu sambandi á Skype. Smám saman
kviknaði ástarneisti á milli okkar og
við fórum að leggja á ráðin um fram-
tíð og ferðalög. Mótorhjólaferðin
verður í rauninni prófraun á okkur
sem ferðafélaga og ekki síst sem par,
“ segir Sigríður Ýr bjartsýn og full
tilhlökkunar.
Þótt þau ráði ráðum sínum á
Skype, hefur Mike aðallega haft und-
irbúning ferðarinnar á sinni könnu,
enda hægari heimatökin í Fíladelfíu
þar sem hann býr og verður upphaf
og endir ferðarinnar. Sigríður Ýr hef-
ur verið önnum kafinn að skrifa BA
ritgerðina sem hún skilar í dag.
„Hangir í Mike“
„Ferðakostnaður verður í al-
gjöru lágmarki. Við erum búin að
kaupa okkur mótorhjól, sem við selj-
um eftir ferðalagið, kortleggja leiðina
og ákveða hvað við þurfum að taka
með okkur, sem verður eins lítið og
við mögulega komumst af með. Tjald-
ið, myndavélar, tölvur og öryggis-
útbúnaður taka mesta plássið, en við
ætlum að halda úti facebook-síðum
og instagram, blogga og taka myndir
og vídeó af því sem á vegi okkar verð-
ur. Meiningin er að hjóla sex tíma á
Geysast um á mótorfák
og hræðast ekki neitt
Mótorhjólaferð þvert yfir Bandaríkin stendur fyrir dyrum hjá Sigríði Ýri Unnarsdóttur og Mike Reid, banda-
rískum kærasta hennar. Á ferðalaginu ætla þau að takast á við alls konar áskoranir og safna um leið fé fyrir
samtökin Seeds of Peace til að styrkja barn frá stríðshrjáðu landi í sumarbúðir í Bandaríkjunum. Ævintýrið
byrjaði í sófanum heima hjá Sigríði Ýri.
Esjan Sigríður Ýr gekk með Mike á Esjuna þegar hann kom fyrst til Íslands.
Mótorhjólaferðin Fíladelfía, heimaborg Mike, er upphaf og endir leiðang-
ursins. Fyrst halda ferðalangarnir í suður með stefnuna á San Fransiskó,
þaðan hjóla þau örlítið suður á bóginn og til baka á upphafsreit.
Útgáfu bókarinnar Lopapeysuprjón
– fyrir byrjendur og lengra komna
eftir Auði Björt Skúladóttur verður
fagnað kl. 17-18.30 í dag í verslun-
inni Eymundsson í Austurstræti.
Lopapeysuprjón
er leiðarvísir fyrir
byrjendur og
lengra komna.
Markmiðið er að
gera lopapeysu-
prjón aðgengilegt
og áhugavert fyr-
ir unga jafnt sem
aldna og hvetja
til skapandi
hugsunar við prjónaskapinn.
Íslenska lopapeysan á sér langa
sögu og er í senn fljótprjónuð, ein-
föld og falleg. Í bókinni eru ítarlegar
upplýsingar um áhöld og leiðbein-
ingar um ýmis hagnýt atriði, t.d.
hvernig best sé að taka mál og
mæla prjónafestu. Í bókinni eru
tvær uppskriftir, annars vegar af
peysu fyrir 2ja-10 ára börn og hins
vegar af peysu í stærðunum xs-xxl.
Boðið er upp á 18 mynstur, níu fyrir
hvora uppskrift. Útgefandi er Iðnú
útgáfa.
Lopapeysuprjón
Leiðarvísir fyr-
ir byrjendur og
lengra komna
Í kvöld leiðir Jóna Valdís Sveinsdóttir,
yfirgarðyrkjufræðingur hjá Grasa-
garði Reykjavíkur, fræðslugöngu þar
sem skoðaðar verða sígrænar plöntur
í garðinum. Gangan er farin í tengsl-
um við stofnfund klúbbs um sígræn-
ar plöntur hjá Garðyrkjufélagi Ís-
lands, sem hefst kl. 19 í húsakynnum
félagsins í Síðumúla 1. Eftir fundinn
verður haldið niður í Laugardal og
lagt af stað í gönguna frá aðalinn-
gangi garðsins kl. 20.
Grasagarðurinn, sem stofnaður var
á 175 ára afmæli Reykjavíkurborgar
árið 1961, stendur fyrir fjölbreyttri
fræðslu fyrir almenning árið um
kring. Markmið fræðslunnar er að
nýta hin margvíslegu plöntusöfn til
fræðslu um umhverfið, garðyrkju,
grasafræði, fuglalíf, garðmenningu,
grasnytjar og til listsköpunar.
Grasagarðurinn er lifandi safn
undir berum himni, sem varðveitir
um 5.000 safngripi í átta safndeild-
um.
Vefsíða grasagardur.is
Sígrænar plöntur í lifandi safni
Morgunblaðið/Jim Smart
Allt er vænt sem vel er grænt Gönguferð um Grasagarðinn nærir sál og líkama.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Ljóðaunnendur
ættu að grípa
tækifærið og
hlýða á túlkun
ljóða sænska
skáldsins Hjalm-
ar Gullberg og
annarra sam-
tímaskálda kl.
19.30 í kvöld í
Norræna húsinu.
Jonas Thornell rithöfundar túlkar
ljóðin en tónlistarflutningur er í
höndum Henrik Venant tónlista-
manns.
Auk þess að vera frægur sem rit-
höfundur og ljóðskáld er Gullberg
þekktur fyrir að hafa þýtt gríska
harmleiki yfir á sænsku. Hann
fæddist í Málmey árið 1898, en féll
fyrir eigin hendi 1961.
Túlkun ljóða
í tali og tónum
Hjalmar Gullberg