Morgunblaðið - 10.05.2016, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2016
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
AUDI A6 2.0 TDI S-LINE
nýskr. 08/2014, ekinn 16 Þ.km, dísel,
sjálfskiptur. Mjög vel búinn glæsivagn.
Verð 7.490.000. Raðnr.254356
CHRYSLERCROSSFIRE
nýskr. 11/2005, ekinn 63 Þ.km, bensín,
sjálfskiptur, leður. Tilboðsverð 1.690.000.
Raðnr.255052
BMW520D XDRIVE F10
nýskr. 01/2015, ekinn 25 Þ.km, diesel,
sjálfskiptur, leðurlúxussæti, glæsilega búinn
bíll. Verð 8.990.000. Raðnr.254961
JEEP GRAND CHEROKEE SRT8
nýskr. 12/2007, ekinn 80 Þ.km, 426 hö,
sjálfskiptur, ný dekk o.fl. Í toppstandi!
Verð 3.990.000. Raðnr.286902
M.BENZE300BLUETECHYBRID
nýskr. 07/2013, ekinn 83 Þ.km, dísel/rafmagn,
sjálfskiptur, leður, glertoppur o.fl.
Verð 6.590.000. Raðnr.254489
VOLVO S60 D3
04/2013, ekinn 59 Þ.km, dísel, sjálfskiptur.
Verð 4.290.000. Raðnr.254859
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum
Ólafur Bernódusson
Skagaströnd
Húsfyllir var á frumsýningu leik-
listavals Höfðaskóla á Mamma Mia!
föstudagskvöldið 29. apríl. Fögnuðu
áhorfendur hinum ungu leikurum
og leikstjóranum vel og lengi í lok-
in.
Leikstjóri sýningarinnar er leik-
listarkennari krakkanna Ástrós El-
ísdóttir. Hefur henni tekist vel upp í
vinnu sinni með krökkunum og tek-
ist að skapa trúverðugar og
skemmtilegar persónur með þeim
21 leikara sem fram koma í sýning-
unni. Auk þeirra héldu tveir sýning-
arstjórar utan um sýninguna.
Krakkarnir sem eru úr 8., 9. og 10.
bekk léku, sungu og dönsuðu í sýn-
ingunni eins og þau hefðu aldrei gert
annað, smíðuðu leikmyndina, sáu um
búninga og allt annað sem þarf til að
koma svona sýningu á fjalirnar. Þessi
uppfærsla er örlítið stytt og breytt út-
gáfa af söngleikunum Mamma Mia!
sem nú er sýndur við fádæma vin-
sældir í Borgarleikhúsinu. Góðfúslegt
leyfi Borgarleikhússins fékkst fyrir
að nota þessa útgáfu söngleiksins sem
er í nýrri þýðingu Þórarins Eldjárns.
Morgunblaðið/Ólafur
Mamma Mia Margar hópsenur eru í verkinu og eru þær vel leystar af leik-
stjóranum Ástrósu Elísdóttur. Leikritið var sýnt þrisvar á Skagaströnd.
Mamma Mia!
á Skagaströnd
ingar eru um að búið sé í ein-
hverjum húsanna.
Ekki mönnum bjóðandi
„Bæjarbúar eru þarna, ferða-
menn, kylfingar og aðrir sem sjá
þessa umgengni og þetta er ein-
faldlega ekki mönnum bjóðandi,“
segir Ólafur og segir að vel komi
til greina að fara með lögregluna
á svæðið. Það sé í skoðun. „Ein-
hverjir eigendur hafa nú þegar
brugðist við og þeir hafa ákveðinn
frest en ef tiltektin er ekki viðun-
andi þá verður farið á svæðið með
lögreglunni.“
Samkvæmt upplýsingum frá
heilbrigðiseftirliti Kópavogs og
Hafnarfjarðar er vitað um málið
og mun eftirlitið koma að málinu
verði óskað eftir því.
Hneyksluð á ömurlegri umgengni
Eigendur bátaskýlanna við Lónsbraut í Hafnarfirði safna rusli og setja skólp út í friðað lón
Skóla- og leikskólabörn leika sér í ruslahaug Hóta eigendum lögregluafskiptum
Morgunblaðið/Ófeigur
Sjónmengun Ruslsöfnun sumra eigenda við bátaskýlin er mikil. Bærinn hefur gefið eigendunum frest til að gera hreint á svæðinu.
Vinsælt Svæðið er vinsælt til útivistar og er aðgengi að
því gott. Hafa skólar og leikskólar nýtt sér það.
Bílar Brot gegn friðlýsingu fólkvangsins getur varðað
sektum eða fangelsi allt að tveimur árum.
BAKSVIÐ
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
„Skipulags- og byggingarráð [lýs-
ir] hneykslan sinni á ömurlegri
umgengni eigenda bátaskýla við
Hvaleyrarlón sem er friðlýstur
fólkvangur og er hrópandi lítils-
virðing við umhverfið og sam-
félagið í Hafnarfirði.“
Þetta segir í bókun skipulags-
og byggingarráðs Hafnarfjarðar í
síðustu viku. Ráðið beindi því jafn-
framt til umhverfis- og skipulags-
þjónustu að skoða hvort ástæða
væri til að kæra málið til lögreglu
en brot gegn friðlýsingu getur
varðað sektum eða fangelsi allt að
tveimur árum. Þá samþykkti ráðið
drög byggingarfulltrúa að bréfi og
styður aðgerðir hans til að sómi sé
að umhverfinu við lónið.
Blöskraði umgengnin
Ólafur Ingi Tómasson, formaður
skipulags- og byggingarráðsins,
segir að sumir eigendurnir hafi
tekið vel í harðorða yfirlýsingu
bæjarins og ætli að gera hreint
fyrir sínum dyrum, í bókstaflegri
merkingu.
„Okkur blöskraði þessi um-
gengni. Þetta er friðlýstur fólk-
vangur. Skólpinu er hleypt beint
út og ég er nú búinn að vera í
þessu lengi og búinn að skrifa
margar greinar um ruslmál í bæn-
um en þetta var of mikið,“ segir
Ólafur.
Hvaleyrarlón og fjörur Hvaleyr-
arhöfða í Hafnarfirði hafa verið
friðlýst síðan 2009. Svæðið er um
40 hektarar og er dýralíf auðugt,
sérstaklega fuglalíf. Oft má sjá á
svæðinu sjaldséða gesti eins og
t.d. gráhegra. Þá hefur svæðið
lengi verið vinsælt til útivistar og
er aðgengi að svæðinu mjög gott.
Hafa skólar og leikskólar í ná-
grenninu nýtt sér það þrátt fyrir
sjónmengun frá ryðguðum bílum,
steypuúrgangi, gömlum kerrum og
jafnvel ónýtum dekkjum. Vísbend-