Morgunblaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2016
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
Selhella 13 | 221 Hafnarfjörður | Sími 564 1400 | kerfi@kerfi.is | kerfi.is
Fagleg & persónuleg þjónusta
Dæmi:
COSMETAL AVANT
Nýjasta brúsavatnsvélin
4.600,- án VSK
Þjónusta- & leigugjald á mán.
Drykkjarlausnir
fyrir þitt fyrirtæki
Hagkvæmara en þú heldur!
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Auður djúpúðga flýgur nú frjáls eins
og fuglinn. Hin djúpvitra kona sem
nam Dalina og sat í Hvammi er kom-
in í sviðsljósið, þar sem ein af fimm
vélum Flugfélags Íslands er nefnd
eftir henni. Sem kunnugt er endur-
nýjar FÍ nú flota sinn og hefur þegar
fengið tvær af þremur vélum af gerð-
inni Bombardier Q-400. Þegar á fé-
lagið tvær Q-200 vélar af sömu gerð.
Allar flugvélarnar fimm munu bera
nöfn kvenskörunga á fyrstu öldum Ís-
landsbyggðar. Í úrslitum nafna-
samkeppni, þar sem um 6.000 tillögur
bárust, var fyrst afhjúpað nafnið
Auður djúpúðga, en svo heitir ein af
Q-400 vélunum. Hinar vélarnar eru
Arndís auðga, Hallgerður langbrók,
Þórunn hyrna og Þuríður sundafyllir.
Flug er landnám
„Flug milli áfangastaða er landnám
á sinn hátt. Því þótti mér við hæfi að
valkyrjurnar sem fyrstar byggðu Ís-
land fengju verðugan sess með því að
nýjar vélar Flugfélags Íslands bæru
nöfn þeirra. Auðarnafnið kom fyrst
upp í hugann enda áberandi í móð-
urætt minni sem er af Vatnsleysu-
ströndinni,“ segir Ólafía Þ. Stef-
ánsdóttir kennari á Seyðisfirði,
höfundur vinningstillögunnar.
„Þótt ég sé enginn sérfræðingur í
fornum ritum Íslendinga eru kven-
hetjur þeirra mér hugleiknar. Þetta
voru fyrstu rauðsokkurnar og það er
við hæfi að halda nafni þeirra á lofti,“
segir Ólafía, sem skilaði inn nöfnum
Auðar, Hallgerðar langbrókar í
Fljótshlíð og Þuríðar sundafyllis sem
byggði Bolungarvík. Á síðari stigum
bætti Flugfélagsfólk inn Arndísi
auðgu úr Hrútafirði og Þórunni
hyrnu, sem fyrst kvenna nam Eyja-
fjörð.
„Ég lagði mig eftir því að koma
með nöfn kvenna úr öllum landsfjórð-
ungum en fann þó enga héðan að
austan sem mér fannst nógu mikill
kvenskörungur. Svo var það svolítið
sláandi þegar vinningstillaga mín
hafði verið tilkynnt og ég var komin
austur að ungur drengur í fjölskyld-
unni spurði undrandi hvers vegna
engin flugvélin væri nefnd eftir karli.
Af þessu að dæma virðist nokkuð enn
í land í jafnréttisbaráttu,“ segir Ólafía
og kímir.
Tek út fyrir að fljúga
Innanlandsflugið er landsbyggð-
inni og fólki þar mikilvægt. „Flugið er
lífæðin og maður þarf stundum að
fljúga milli landshluta. Það er hins
vegar afleitt hvað ég tek eiginlega út
fyrir að fljúga vegna flughræðslu.
Þyrfti eiginlega að fara á námskeið og
komast yfir þetta,“ segir Ólafía sem
að launum fyrir vinningstillöguna
fékk ferð fyrir tvo til Ilulissat á
Grænlandi, sem er nýr áfangastaður
Flugfélags Íslands.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nafngjöf Hin orðhaga Ólafía Stefánsdóttir á Seyðisfirði og Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands.
Valkyrjur fara á flug
Hetjur eru mér hugleiknar, segir Ólafía Stefánsdóttir á
Seyðisfirði Fann nöfn á vélarnar í flota Flugfélags Íslands
Flugvél Auður djúpúðga á Reykjavíkurflugvelli, tilbúin til næstu ferðar.
Fimm konur
» Dalakonan Auður djúpúðga
þótti vera afbragð annarra og
útsjónarsöm.
» Arndís auðga var skörungur
sem efnaðist og átti jarðir.
» Hallgerður var síðhærð og
leggjalöng. Lét engan kúga sig.
» Þórunn Hyrna átti sjal sem
var hyrna yfir höfði hennar.
» Þuríður sundafyllir var víð-
kunn völva og fyllti firði af síld
með seið sínum.
Þónokkur áhugi er á jörðinni Felli í
Austur-Skaftafellssýslu, sem nær að
hluta yfir Jökulsárlón, að sögn Ólafs
Björnssonar, hæstaréttarlögmanns
og fasteignasala hjá Lögmönnum á
Suðurlandi. Sýslumaðurinn á Suður-
landi fól honum að selja jörðina sem
verið hefur í opnu uppboðsferli.
„Þetta gengur ágætlega,“ segir
Ólafur. Hann sé búinn að vera í sam-
bandi við sameigendur jarðarinnar
og eigi von á tilboði frá einum þeirra
á næstu dögum. Ekki er hins vegar
búið að auglýsa jörðina formlega,
þar sem frágangi gagna er ekki lok-
ið. „Ég er búinn að auglýsa aðeins á
Facebook,“ segir Ólafur og bætir við
að margir viti einnig af sölu jarðar-
innar vegna fjölmiðlaumfjöllunar.
„Við erum að láta þýða auglýsingu
á ensku og þýsku til þess að geta
haft auglýsinguna sýnilega á Evr-
ópska efnahagssvæðinu eins og ósk-
að var eftir. Við stefnum svo á að
koma henni inn á vefinn.“
Fjárfestar og ferðaþjónustu-
fyrirtæki áhugasöm
Hann segir fjármálafyrirtæki með
áhugasama fjárfesta hafa óskað eftir
nákvæmum upplýsingum um jörð-
ina. „Svo hafa aðrir fasteignasalar
haft samband við mig og eru þá með
kaupendur.“ Þessar athuganir séu
hins vegar allar á frumstigi og hann
viti ekki alltaf hvaða fjárfestar séu
þar að baki. Þó megi telja líklegt að
fyrirtæki sem séu í ferðaþjónustu
eins og t.d. flugfélög og rútufyrir-
tæki, sýni jörðinni áhuga. „Við vitum
að þessi helstu ferðaþjónustufyrir-
tæki á Íslandi munu sjálfsagt skoða
þessi mál og þeir fjárfestar sem eru
á bak við slíka aðila.“
Þinglýstur leigusamningur til
næstu átta ára er á jörðinni, sem og
annar notkunarsamningur sem tek-
ist er á um gildi á og er það mál á
leiðinni fyrir Hæstarétt. „Þannig að
það eru ákveðnar kvaðir á jörðinni
sem er auk þess að hluta til þjóð-
lenda. Landamerki eru hins vegar
ljós, þetta er þinglýst eign og til upp-
dráttur af henni, þannig að það er al-
veg ljóst hvaða hluti er þjóðlenda og
hvað er eignarland.“ annaei@mbl.is
Von á tilboði
í jörðina Fell
Ekki er búið að auglýsa jörðina
formlega en margir vita um söluna
Morgunblaðið/Ómar
Náttúruperla Jökulsárlón. Jörðin
Háls, sem lónið tilheyrir, er til sölu.