Morgunblaðið - 10.05.2016, Side 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2016
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Kíktu á heimasíðuna
lifstykkjabudin.is
Mikið úrval
Póstsendum
Ullar- og
silkinær-
fatnaður
Hlýtt í
útileguna
NÝKOMIÐ! Ótrúlega mjúkir og
þægilegir sumarskór úr leðri, fyrir
dömur og herra!
Gæði í gegn !
Teg: 734307 Stærðir: 36 - 42 Litur:
rautt. Verð: 13.750
Teg: 734307 Stærðir: 36 - 42 Litur:
svart. Verð: 13.750.-
Teg: 422201 Stærðir: 40 -45 Litur:
grátt. Verð: 16.950.-
Teg: 417305 Stærðir: 40 - 46 Litur:
svart. Verð: 15.500.-
Laugavegi 178
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Sendum um allt land
Erum á Facebook.
Gæði í gegn !
Teg: 503602 Mjúkir og þægilegir
herrasandalar úr leðri.Litir: brúnt og
svart. Stærðir: 40 - 48.
Verð: 11.890.-
Teg: 503603 Mjúkir og þægilegir
herrasandalar úr leðri með hælbandi.
Litir: brúnt og svart. Stærðir: 40 - 46
Verð: 13.585.-
Laugavegi 178
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Sendum um allt land
Erum á Facebook.
TILBOÐ TILBOÐ Dömuskór úr leðri,
stakar stærðir.
Tilboðsverð: 2.900.-
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
TILBOÐ TILBOÐ Dömuskór úr leðri,
stakar stærðir. Tilboðsverð: 2.900.-
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Þjóðlegir skartgripir og minja-
gripir. Mikið úrval af skarti og minja-
gripum úr silfri er tengist víkinga-
tímanum og fyrri hluta 20. aldar.
Heildsala smásala, ERNA, Skipholti
3, s. 552 0775 www.erna.is
Bílar
Renault Trafic 9 manna Minibus.
4/2014. Langur. Diesel. Hraðastillir.
Fjarlægðarskynjarar. Loftkæling.
Dráttarkrókur. ofl. Frábær bíll í
ferðaþjónustu.
Verð aðeins 4.650.000,-
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Slípa ryð af
þökum, ryðbletta
og tek að mér ýmis
verk.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Smáauglýsingar 569
Þjónustuauglýsingar
Þarft þú að koma fyrirtækinu
þínu á framfæri
Hafðu samband í síma
569 1100 eða á
augl@mbl.is
og fáðu tilboð
✝ Sigurður Sig-fússon fæddist
í Reykjavík 17. apr-
íl 1924. Hann lést á
Höfða, hjúkrunar-
og dvalarheimili 2.
apríl 2016.
Foreldrar hans
voru hjónin Mar-
grét Sigríður Eyj-
ólfsdóttir, f. 3.
október 1903, d. 31.
mars 1996, og Sig-
fús Davíðsson, f. 13. febrúar
1903, d. 8. mars 1985. Systkini
Sigurðar eru: a) Eygló, f. 28.
júlí 1930, b) Davíð f. 11. nóv-
ember 1936, c) Ólafur, f. 20. maí
1938, d) Dóra, f. 20. maí 1938,
og e) Pálmi, f. 1. desember
1945.
Sigurður giftist 26. júlí 1947
Vigdísi Magnúsdóttur, f. 2. sept-
ember 1925. foreldrar hennar
voru Guðrún Gunnarsdóttir, f.
27. júní 1904, d. 1. apríl 1996, og
Magnús Bjarnason,
f. 19. febrúar 1906,
d. 22. sept 1958.
Börn þeirra eru: 1)
Gunnar Rúnar
Hjálmarsson, f. 12.
ágúst 1942, d. 18.
maí 2007. Gunnar
var giftur Þórey
Þórðardóttur. 2)
Sigríður, f. 17. nóv-
ember 1947, gift
Birni Þórhallssyni.
3) Ragnheiður, f. 7. júlí 1948,
gift Sigurði Stefánssyni. 4)
Drengur, f. 1952, d. 1952 .5)
Halldór, f. 6. júní 1955, giftur
Ásu Helgadóttur. 6) Guðrún f. 7
október 1956, gift Hinrik Gunn-
arssyni. 7) Lóa Sigurðardóttir,
f. 20. apríl 1958. Sigurður átti
alls nítján barnabörn og 30
barnabarnabörn.
Útför Sigurðar fer fram frá
Akraneskirkju í dag, 10. maí
2016, klukkan 13.
Ég get svo fátt sem býr í brjósti
sagt.
Það bindur tungu sterkur hugartregi,
en aðeins kærleiksblómin blessuð,
lagt
á bleikan hvarm þinn, vinur
elskulegi.
Elskulegur tengdafaðir
minn, Sigurður Sigfússon, eða
Siggi kokkur eins og hann var
svo oft nefndur, lést mánudag-
inn 2 maí að Höfða, hjúkrunar-
og dvalarheimili, 92 ára gamall.
Það er með ástúð og hlýju
sem ég minnist tengdaföður
míns sem ég var svo lánsöm að
kynnast fyrir tæpum fjörutíu
árum. Siggi átti alla tíð stóran
þátt í lífi mínu og fjölskyldu
minnar , það var sterkur
strengur á milli okkar Sigga
sem varði alla tíð.
Meðan heilsa hans leyfði
hittumst við nokkrum sinnum á
dag hvort sem hann kom í vinn-
una til okkar hjóna eða heim að
Heynesi 2, hann vildi jú fylgj-
ast með því hvað var að gerast
í okkar lífi, leik eða starfi. Siggi
naut þess að vera í sveitinni hjá
okkur, hann fór í hesthúsið,
passaði börnin okkar Ingi-
björgu og Helga, gekk út að
tjörn, sat úti í garðinum eða
var í eldhúsinu að taka í nefið
og fá fréttir.
Siggi vann alla tíð hörðum
höndum til þess að sjá fyrir sér
og sínum, hann var stoltur af
sínu fólki, börnum og barna-
börnum.
Hann hafði mikla ánægju af
hestum og hestaferðum, oft fór
hann í löng ferðalög um landið,
ýmist á hestum eða sem trúss.
Siggi var góður afi og börnin
mín nutu þess svo sannarlega.
Stoltur og ánægður var hann
þegar börnin okkar og tengda-
börn tóku þá ákvörðun að
byggja sér heimili í túninu
heima, það var honum mikil-
vægt að fá að fylgjast með
hvernig húsbyggingarnar
gengu.
Þegar Siggi var níræður var
annað húsið reist og það honum
fannst honum vera besta af-
mælisgjöf sem hann gat fengið.
Siggi tók fjölskyldu minni sem
sinni og sum systkinabörnin
mín kölluðu hann afa.
Siggi hafði gaman af því að
rifja upp gamla tíma, hann var
alltaf ungur í anda og naut þess
að vera innan um sér yngra
fólk, hann setti mark sitt á
hjörtu margra og hann var góð-
ur vinur og félagi.
Þrautseigja og dugnaður ein-
kenndu Sigga alla tíð og eftir
að hann brotnaði fyrst fyrir ári
síðan fór hann daglega í sjúkra-
þjálfun.
„Þetta er allt að koma,“
sagði hann svo oft. Siggi
stefndi á það að geta keyrt aft-
ur og jafnvel flutt aftur heim
og séð um sig sjálfur. Á Höfða
naut Siggi mikillar hlýju og
umhyggju frá starfsfólkinu og
erum við ættingjarnir ævarandi
þakklát fyrir.
Það er með ást og kærleika
sem ég kveð tengdaföður minn,
Sigga afa. Minning hans mun
lifa um ókomna tíð.
Ása Helgadóttir.
Ég er afastelpa, það dylst
engum sem hefur hitt mig og
fengið að heyra sögur af afa
sem var svo ern, keyrði bíl
fram yfir nírætt, þrætti við mig
um pólitík og sat með mér við
eldhúsborðið og sagði sögur frá
gömlum tímum. Dýrmætu
stundirnar við eldhúsborðið
voru óteljandi, við afi sátum
saman, ræddum heimsmálin,
horfna gæðinga, framtíðar-
drauma og sögur af lífi hans.
Stundum þögðum við og þurft-
um ekkert að segja, bara vera.
Ég er stolt af afa sem hafði
stritað allt sitt líf, lifað tíma
sem ég get bara lesið um í bók-
um og alið af sér afkomendur
sem fylltu hann stolti með
verkum sínum og kærleik. Afi
hafði unun af því að fylgjast
með verkum afkomendanna
hvort sem það voru barneignir,
atvinna, byggingar eða annað.
Hann vildi alltaf vita hvað væri
að gerast hjá fólkinu sínu.
Samband okkar var náið,
hann tók virkan þátt í afar
stuttum keppnisferli mínum í
hestaíþróttum, tók mig með sér
í hestaferðir og keyrði mig út
um allan bæ áður en ég fékk
bílpróf sjálf.
Afi var til staðar fyrir okkur
systkinin alla tíð. Þegar eitt-
hvað bjátaði á var það ekki
endilega rætt en nærveran og
hlýjan orkuðu sem plástrar á
sárin. Afi var ekki bara afi okk-
ar, hann var afi allra, það var
nóg pláss í hjartanu hans fyrir
þá sem vildu komast þar að.
Undir það síðasta var lík-
aminn aðeins farinn að gefa sig
en hugurinn þeim mun sterk-
ari.
Þegar eymsli í baki komu
sterkar fram um nírætt tók afi
sig á og hóf líkamsrækt. Hann
var alltaf allur að koma til og
allur að batna. Þessi einstaki
lífsvilji er nokkuð sem ég mun
alltaf minnast og horfa til sem
leiðarljóss í mínu lífi. Afi fylgdi
mér alla daga þau þrjátíu og
tvö ár sem ég hef lifað og hann
mun fylgja mér áfram út lífið.
Það var mér dýrmætt að fá að
vera með honum síðustu dag-
ana.
Við áttum saman góðan tíma
þar sem við ræddum um heima
og geima, grétum og hlógum og
ég mun ætíð minnast fallega
brossins hans.
Mig langar að þakka sér-
staklega starfsfólki á Höfða
fyrir ómetanlegan stuðning og
alúð undanfarna daga.
Ingibjörg Halldórsdóttir.
Sigurður Sigfússon