Morgunblaðið - 10.05.2016, Page 27
tók Ragnheiður virkan þátt í tónlist-
arnámi þeirra fyrstu árin í Suzuki-
tónlistarskólanum í Reykjavík.
Bókmenntir skipa líka stóran sess
hjá Ragnheiði: „Ég er mikill unn-
andi íslenskrar tungu, og reyndar
norrænna tungumála yfirleitt. Fjöl-
skyldan hefur yndi af því að ferðast,
bæði hér heima og erlendis og hefur
búið tímabundið erlendis í tengslum
við störf mín í Kaupmannahöfn,
Cambridge á Englandi og Freiburg í
Suður-Þýskalandi. Ýmis áhugamál
mín tengjast fræðasviðum mínum,
en ég hef mikinn áhuga á umhverf-
isvernd, jafnréttismálum og
tengslum laga og siðferðis sem ég tel
mjög brýnt að taka til umfjöllunar í
íslensku samfélagi.“
Fjölskylda
Ragnheiður giftist 30.6. 1979,
Bjarna Kristjánssyni, f. 28.3. 1956,
viðskiptafræðingi, rekstrarráðgjafa
hjá Hagvangi, fyrrv. fjármálastjóra
Stöðvar 2 og RÚV. Hann er sonur
Hólmfríðar Jónsdóttur, f. 23.11.
1926, húsfreyju, og Kristjáns Jóns-
sonar, f. 22.10. 1915, d. 1.6. 1996, vél-
stjóra á Akureyri.
Dætur Ragnheiðar og Bjarna eru
Ragnheiður, f. 28.6.1983, ferðamála-
og markaðsfræðingur í Kaupmanna-
höfn, dóttir hennar er Katla Nessa
Kiansdóttir, f. 2007, og Unnur, f.
16.12. 1994, nemi í japönsku og þýð-
ingafræði við HÍ.
Systur Ragnheiðar eru Ásdís
Bragadóttir, f. 30.5. 1958, kennari í
Reykjavík, gift Grétari Halldórs-
syni, byggingaverkfræðingi, og
Bryndís Bragadóttir, f. 9.7.1968, pí-
anókennari í Reykjavík, sambýlis-
maður Ólafur Hallgrímsson skip-
stjóri.
Foreldrar Ragnheiðar eru Ragn-
heiður Gunnarsdóttir, f. 1.9. 1933,
fyrrv. bankaritari og húsfreyja, og
Bragi Hannesson, f. 10.12. 1932, lög-
fræðingur, bankastjóri Iðnaðar-
banka Íslands og forstjóri Iðnlána-
sjóðs.
Við sumarbústað afa og ömmu
Ragnheiður og Ásdís systir hennar.
Úr frændgarði Ragnheiðar Bragadóttur
Ragnheiður
Bragadóttir
Ólafur
Ásbjarnarson
kaupm. í Kefla-
vík, síðar Rvík
Vigdís Ketilsdóttir
frá Kotvogi húsfr. í Rvík
Gunnar Ólafsson
trésmíðam. og bifreiðastj. í Rvík
Ragnheiður Bogadóttir
frá Búðardal, tann-
smiður og húsfr. í Rvík
Ragnheiður Gunnarsdóttir
bankaritari og húsfr. í Rvík
Bogi
Sigurðsson
kaupm. í
Búðardal
Ragnheiður Sigurðardóttir Johnsen
frá Flatey á Breiðafirði, húsfr. í Búðardal
Guðlaug Ágústa Hannesdóttir
hjúkrunarfr. í Rvík
Bjarni Pálsson
lögfr. í Rvík
Ásgerður Hannesdóttir
húsfr. í Rvík
Jóhanna Gunnarsdóttir
framkvæmdast. í Rvík
Sigríður Bogadóttir
húsfr. í Rvík
Sigurður Bogason í
Vestmannaeyjum
Elísabet Gunnarsd.
húsfr. í Rvík
Bryndís
Sigurðar-
dóttir Zoëga
húsfr. í Rvík
Ingibjörg Gunnarsdóttir
hárgreiðslum. í Rvík
Ólafur Gunnarsson
rithöfundurSr. Gunnar Björnsson
Íris Ólöf Sigurjónsdóttir
listakona og safnstjóri á Dalvík
Geir Gunnlaugsson
prófessor við HÍ
Hannes Þorsteinsson aðalféh. Landsbankans
Björn Björnsson
tónlistarmaður
Oddur Björnsson
tónlistarmaður
Frosti Sigurjónsson alþm.
Helgi Gunnlaugsson
prófessor við HÍ
Geir Þorsteinsson forstj. Ræsis.
Sr. Jón Ómar Gunnarsson
pr. í Glerárkirkju áAkureyri
Áslaug
Geirsd. Zoëga
fulltr. í Rvík
Geir Hallgrímsson fv. forsætisráðh.
Björn Hallgrímsson
forstj. í Rvík
Kristinn Björnsson
forstj. Skeljungs
Bergþór Pálsson
bifreiðastj. í Rvík
Guðlaug
Bergþórsdóttir
matreiðsluk.
í Rvík
Jón Hjaltalín
Magnússon
verkfr. og fyrrv.
form. HSÍ
Hannes
Sigurðsson
listfræðingur
Margrét Benedikz
skólastjóri í Svíþjóð
Gunnar Gunnarsson
stofnandi veitingastaðarins
Austur-Indíafjelagið
Ragnheiður Jónsdóttir Ream
listmálari
Ragnheiður
Sigurðardóttir
Gunnar
Júlíusson
Geir G. Zoëga
vegamálastj.
í Rvík
Guðrún
Geirsdóttir
húsfr. í Rvík
Áslaug Geirsd.
Benediktsson Zoëga
húsfr. í Rvík
Páll Hafliðason
skipstj. í Rvík
Guðlaug Ágústa Lúðvíksdóttir
húsfr. í Rvík
Hannes Pálsson
skipstj. og forstj. Hampiðjunnar
Ásdís Þorsteinsdóttir
húsfr. í Rvík
Bragi Hannesson
bankastj. Iðnaðar-
banka Íslands og
forstj. Iðnlánasj.
Þorsteinn Ólafsson
b. á Kjaransstöðum í Innri-Akraneshreppi
Kristín Eyjólfsdóttir
húsfr. á Kjaransstöðum
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2016
Guðmundur fæddist í Reykjavík10.5. 1920. Foreldrar hansvoru Halldóra Guðmunds-
dóttir frá Akranesi, og Jón Þorvarðs-
son, kaupmaður í Reykjavík.
Fyrri kona Guðmundar var Þóra
Haraldsdóttir húsfreyja sem lést
1982 og eignuðust þau þrjú börn.
Seinni og eftirlifandi kona Guð-
mundar er Elín Sólveig Benedikts-
dóttir.
Guðmundur lauk prófi frá VÍ 1937
og var í námi í verslunarskólanum
Wood|s College í Hull í Englandi
1937-38. Hann var í söngnámi hjá
Pétri Á. Jónssyni 1941-43, söngskóla
Samoiloggs í Los Angeles 1943-44 og
1945-46, óperudeild Kungliga Mus-
ikaliska Akademiens í Stokkhólmi
1947-49, og í Vín 1959-60.
Guðmundur var fulltrúi í tónlist-
ardeild ríkisútvarpsins 1954-66 og
framkvæmdastjóri hljóðvarpsins
1966-85.
Guðmundur var í áratugi í hópi
fremstu og vinsælustu óperusöngv-
ara hér á landi. Söngferill hans hófst
meðan hann var enn í námi, árið 1946,
er hann söng einsöng með Karlakór
Reykjavíkur og Stefáni Íslandi á nær
60 tónleikum á tveggja og hálfs mán-
aðar tónleikaferð um Bandaríkin. Að
ferðinni lokinni var hann gerður að
heiðursfélaga kórsins, en samstarf
kórsins og Guðmundar gaf meðal
annars af sér lagið Hraustir menn
sem naut gríðarlegra vinsælda. Hann
söng á fjórða tug hlutverka í óperum
og óperettum hjá Þjóðleikhúsinu og
Íslensku óperunni, þ.á m. titilhlut-
verk í fyrstu óperusýningu Þjóðleik-
hússins Rigoletto eftir Verdi 1951.
Auk þess fór hann með ótal önnur
söng- og leikhlutverk á sviði og í út-
varpi og tók þátt í miklum fjölda tón-
leika, m.a. með Karlakór Reykjavík-
ur, Sinfóníuhljómsveit Íslands,
Þjóðleikhúskórnum, Söngfélaginu
Hörpu og Söngsveitinni Fílharmóníu.
Hann kenndi auk þess við Söng-
skólann í Reykjavík um árabil og sá
um dagskrárgerð í útvarpi.
Guðmundi var sæmdur fálkaorð-
unni fyrir störf sín að tónlist árið 2006
og fékk Tónlistarverðlaunin sama ár.
Hann lést 5.11. 2007.
Merkir Íslendingar
Guðmundur
Jónsson
95 ára
Guðbjörg Sigurbergsdóttir
90 ára
Jón Elíasson
85 ára
Guðlaugur J. Guðlaugsson
Hjördís Magnúsdóttir
Hrefna Ragnarsdóttir
Magnús Erlendsson
80 ára
Birkir Friðbertsson
Finnbogi L. Finnbogason
Guðjón Jóhannsson
Halldóra Karlsdóttir
Ólafur Ingi Jónsson
Sigríður Júlíusdóttir
Þórgunnur Rögnvaldsdóttir
75 ára
Kolbrún Þorvaldsdóttir
Kristrún Auður Ólafsdóttir
70 ára
Elsa Jónsdóttir
Guðjóna Jóhannsdóttir
Guðrún Ingimundardóttir
Guðrún Þ. Einarsdóttir
Ingveldur Sverrisdóttir
Steindór Steindórsson
60 ára
Aase Gunn Guttormsen
Ágúst Benediktsson
Björg Þórarinsdóttir
Erling Steinar Huldarsson
Eyjólfur V. Böðvarsson
Gunnar H. Sigurðsson
Herdís Hermannsdóttir
Hreiðar Þór Jóhannsson
Ingibjörg Ottósdóttir
Karen Kjartansdóttir
Kristín Arnardóttir
Mario Adolfo Rivera Vivar
Pétur Jónsson
Ragnheiður Bragadóttir
Sigurður H. Einarsson
Snezana Zivojinovic
Tómas S. Guðlaugsson
Þóra Sigurbjörnsdóttir
50 ára
Ásdís Steingrímsdóttir
Guðríður Erna Gísladóttir
Halldór Á. Morthens
Hjördís Björnsdóttir
Ingveldur L. Hjálmarsdóttir
Iulica Leanca
Jenný Valdimarsdóttir
Marta Jónsdóttir
Þór Hjaltalín
40 ára
Agnieszka Lukaszewska
Anna Sólmundsdóttir
Arnþór Henrysson
Freyr Ágústsson
Grzegorz Salek
Hákon Ólafur Hákonarson
Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir
Jörgen Sigurðsson
Kristinn Bragi Rudolfsson
Kristín E. Guðmundsdóttir
Siggeir Ólafsson
Þórunn G. Einarsdóttir
Ævar Rafn Björnsson
30 ára
Anna Górska
Dana Rún Heimisdóttir
Einar Rafn Ingimarsson
Einar Þór Guðmundsson
Elvar Stefánsson
Freyja Ágústsdóttir
Íris Cochran Lárusdóttir
Majlinda Krasniqi
Radoslaw Ziegert
Sigurdís S. Jóhannsdóttir
Sindri Smárason
Supatra Treewises
Þorfinnur Gunnlaugsson
Til hamingju með daginn
30 ára Þorfinnur ólst upp
í Vestmannaeyjum, býr í
Grindavík, lauk prófum í
pípulögnum og starfar hjá
Lagnaþjónustu Suður-
nesja.
Maki: Ágústa Jóna Heið-
dal, f,. 1981, leikskóla-
kennari.
Sonur: Mikael Máni, f.
2010.
Foreldrar: Gunnlaugur
Úlfar Gunnlaugsson, f.
1958, og Lilja Richards-
dóttir, f. 1956.
Þorfinnur
Gunnlaugsson
30 ára Elvar ólst upp á
Húsavík, býr á Akureyri,
lauk tæknifræðiprófi og
vinnur hjá Vélfagi ehf.
Maki: Silfá Huld Arnfjörð
Bjarmadóttir, f. 1989,
húsfreyja.
Sonur: Kolbeinn Arnfjörð
Elvarsson, f. 2015.
Foreldrar: Stefán Hall-
grímsson, f. 1958, sjó-
maður, og Vilborg Sverr-
isdóttir, f. 1963, starfs-
maður við bæjarskrifstof-
una á Húsavík.
Elvar
Stefánsson
30 ára Einar Þór býr í
Reykjavík, er grafískur
miðlari og umbúðahönn-
uður hjá Odda.
Maki: Tinna Kristjáns-
dóttir, f. 1981, skrifstofu-
stjóri Hagaskóla.
Sonur: Guðmundur Þór,
f. 2011. Stjúpsynir: Héð-
inn Vili, Daníel Óðinn og
Elvar Ægir.
Foreldrar: Guðmundur
Þór Guðjónsson, f. 1966,
og Aðalheiður Einars-
dóttir, f,. 1965.
Einar Þór
Guðmundsson
Kringlunni - 103 Reykjavík - Sími 578 8989 - www.myrinstore.is