Morgunblaðið - 23.05.2016, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Frá kr.
97.895
KRÍT
6. júní í 10 nætur
Netverð á mann frá kr. 97.895 m.v. 2 fullorðna
og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 114.495
m.v. 2 fullorðna í stúdíó.
Omega
Platanias
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Við erum frekar bjartsýn á sumarið
en vissulega erum við ekki í sömu
stöðu og þegar allir markaðir voru
opnir fyrir makríl-
afurðir. Ég held
að það takist að
selja afurðirnar
en það verður á
lægra verði held-
ur en þegar Rúss-
landsmarkaður
var opinn,“ segir
Hermann Stef-
ánsson, fram-
kvæmdastjóri
Iceland Pelagic,
sem m.a. selur makríl fyrir Ísfélagið
og Skinney-Þinganes.
Hermann segir að útflutningsverð-
mæti makrílafurða hafi í heildina
numið um 13,7 milljörðum í fyrra, en
það var 22,4 milljarðar árin á undan. Í
heildina hafi orðið um 18% verðlækk-
un á milli ára, misjöfn eftir afurða-
flokkum. Hann segir mjög erfitt að
bera verð saman þar sem verð á ein-
stökum afurðaflokkum hafi farið
mjög langt niður, sérstaklega í kjölfar
lokunar á Rússland þegar einhvers
konar ringulreið hafi ríkt.
Mikil eftirspurn og lítið framboð
Nú eru litlar birgðir af makríl og
verð fyrir það sem hefur verið selt í
vetur hefur hækkað enda mikil eftir-
spurn og lítið framboð, samkvæmt
upplýsingum Hermanns. Í fyrra voru
hins vegar talsverðar birgðir, sem
verið var að selja fram eftir ári. Hann
metur stöðuna þannig núna að hærra
verð fáist fyrir makrílafurðir í ár en í
fyrra.
Viðskiptabann Rússa á sjávar-
afurðir frá Íslandi tók gildi um miðjan
ágúst í fyrra og er enn í gildi. Fram að
lokunardegi var makríll seldur á
þennan stærsta markað fyrir frystan
makríl frá Íslandi og lokið var við að
landa úr skipi sem komið var að
bryggju, en skip á leiðinni var
stöðvað. Þá fór lítið af makríl í fyrra á
næststærsta markaðslandið, Nígeríu,
og þrátt fyrir þreifingar hefur ekki
verið opnað á innflutning þangað.
Makríll um allan heim
Hermann segir að makríll hafi ver-
ið seldur um allan heim í fyrra og
samkvæmt Hagstofugögnum hafi
makríll farið héðan til um 50 landa.
Útflytjendum hafi síðustu ár tekist að
fjölga viðskiptalöndum samhliða auk-
inni veiði og meiri manneldisvinnslu.
Því megi þó ekki gleyma að þegar
verð falli mikið opnist markaðir víða
eins og gerst hafi í fyrra. Erfitt sé þó
að henda reiður á því hve víða makríll-
inn fari þar sem Holland sé eitt
stærsta innflutningslandið, en þangað
er fiskinum skipað til áframflutnings
síðar eða sölu þar án þess að endan-
legur áfangastaður sé þekktur.
Á síðasta ári var stór markaður fyr-
ir makríl í Egyptalandi, mikið fór til
landa í Vestur-Afríku og er hugsan-
legt að eitthvað af þeim afurðum hafi
endað í Nígeríu. Nokkuð fór til landa í
Asíu og hefur Úkraína, sem var stór
kaupandi að síldarafurðum, tekið við
auknu magni af makríl. Áður var
minnst á Holland.
70% fari til manneldis
Búast má við að makrílvertíð hefj-
ist er líður á næsta mánuð og er leyfi-
legur heildarafli íslenskra skipa á
þessu ári 147.824 lestir. Til viðbótar
er úthlutað 3.825 lestum sem ekki
veiddust af óskiptum potti smábáta á
síðasta ári. Auk þess geymdu nokkrar
útgerðir talsvert af aflaheimildum
milli ára og mega veiða nú, en
geymsluheimild milli ára var aukin í
30% í kjölfar viðskiptabanns Rússa.
Skylt er að ráðstafa 70% af makríl-
afla einstakra skipa til vinnslu á árinu
2016. Í fyrra fóru um 26,8% af makríl-
aflanum í bræðslu og hafði innflutn-
ingsbann Rússa á sjávarafurðir frá
Íslandi mikil áhrif á vinnslu makríls.
Árið 2014 fór einungis 11,1% til
bræðslu.
Bjartsýni þrátt fyrir
erfiðar aðstæður
Lokun á Rússlandsmarkaði olli verulegri verðlækkun á
makrílafurðum í fyrra Makríll þá seldur til um 50 landa
Útflutningur á
frystum makríl
20
12
20
14
20
13
20
15
20
16*
*
*Meðalverð (fob) hvers árs í íslenskum krónum á kíló.
**Janúar-mars 2016.
Heimild: HS/Hagstofan
Tonn Kr.
140.000
120.000
100.000
80.000
60.000
40.000
20.000
0
200
180
160
140
120
100
80
60
40
20
0
Magn Verð*
Hermann
Stefánsson
Vorið er tími endurfunda og árgangamóta af ýms-
um toga. Þannig minntust gamlir Rétthyltingar
þess á laugardag að þeir luku gagnfræðaprófi frá
skólanum fyrir hálfri öld. Ekið var um hverfið og
gamlar minningar rifjaðar upp. Síðan var gengið
frá Grensásvegi eftir hitaveitustokknum og í skól-
ann. Þar sagði Guðný S. Marinósdóttir, deildar-
stjóri, frá starfi skólans og Pétur Maack afhenti
skólanum þrjár klukkur fyrir hönd árgangsins.
Kannski tákn þess að tíminn tifar áfram og á
þessu ári verða gestirnir flestir 67 ára, eða „lög-
giltir“ eins og stundum er sagt.
Gengu hitaveitustokkinn að Réttarholtsskóla til að minnast gamalla tíma
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hálfrar aldar gagnfræðingar gáfu klukkur
„Kröfuhafar
fengu íslensku
bankana á silfur-
fati með mikilli
meðgjöf frá rík-
inu og gögn um
þetta ætla ég að
birta fyrir næstu
mánaðamót,“
segir Vigdís
Hauksdóttir,
þingmaður
Framsóknarflokksins og formaður
fjárlaganefndar Alþingis.
Vísar hún í máli sínu til þeirra
gagna og fundargerða sem hún hef-
ur að undanförnu aflað sér um
seinni einkavæðingu bankanna til
kröfuhafa á síðasta kjörtímabili.
Vigdís segir fundargerðir sýna
að fyrir alþingiskosningarnar 2009
hafi verið búið að ákveða að láta
bankana í hendur kröfuhafa.
Gríðarleg áhætta fyrir ríkið
Þær upphæðir sem kröfuhafar
fengu, að sögn Vigdísar, þegar
sparisjóðakerfið var endurreist
blikna í samanburði við þær upp-
hæðir sem hér ræðir.
„Eftir kosningarnar er svo geng-
ið alla leið í þessu og kröfuhöfum
afhentir bankarnir með gríðarlegri
áhættu fyrir íslenska ríkið. En
þetta mun allt saman koma betur í
ljós þegar ég birti þessi gögn á
næstu dögum,“ segir hún.
khj@mbl.is
Bankarnir færðir kröfuhöfum á silfurfati
Vigdís
Hauksdóttir
Seinka þurfti innanlandsflugi í gær-
morgun og var aðflugssvæði Kefla-
víkurflugvallar lokað milli 19 og 20 í
gærkvöld vegna yfirvinnubanns flug-
umferðarstjóra sem staðið hefur yfir í
nokkurn tíma.
Flugumferðarstjórar og Isavia
funduðu hjá ríkissáttasemjara á
föstudag en bar fundurinn ekki ár-
angur að sögn Sigurjóns Jónassonar,
formanns Félags íslenskra flug-
umferðarstjóra. Nýr fundur hefur
ekki verið boðaður. „Þetta strandar á
því að við erum nýkomnir úr fimm
ára kjarasamningi og höfum dregist
töluvert aftur úr launaþróun í land-
inu. Viðsemjendur okkar eru ekki til-
búnir að skoða þá hlið á málinu en á
sama tíma hefur álagið aukist gríðar-
lega á flugumferðarstjóra. Það hefur
lítið fjölgað í stéttinni en flugferðum
fjölgað gríðarlega, samfara auknum
ferðamannastraumi.“
Verður erfiðara í sumar
Lokanir á flugvöllum hafa sett
strik í reikninginn hjá Flugfélagi Ís-
lands undanfarið, en senn hefst anna-
samasti tími ársins. „Við reynum að
leysa þetta á hverjum degi fyrir sig
eins og við best getum en ef þetta
heldur svona áfram í sumar mun það
hafa veruleg áhrif á áætlun okkar,“
segir Árni Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri félagsins. bso@mbl.is
Truflanir á
flugumferð
um helgina
Kjaraviðræður
ekki borið árangur